Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Qupperneq 36
36
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Richard Pryor er vel þekktur
gamanleikari og grínisti í
Ameríku. Pryor varö fyrst frægur
á sviöi fyrir brandara sína en hefur
síðan gert þaö gott viö kvikmynda-
leik.
„Eg er betri en myndirnar
minar,” segir Pryor og er þar aö
svara gagnrýnendum sem telja
hann ekkert annaö en meöalmann
á hvíta tjaldinu. Viö þekkjum
grinistann úr kvikmyndum eins og
Stir Crazy og Bustin Loose svo
einhverjar séu nefndar. Nýlega
undirritaöi kappinn stóran
samning upp á 170 milljónir króna
við Columbia kvikmyndafélagið
um aö f ramleiöa f jórar kvikmyndir
á næstu fimm árum. „Einn besti
samningur í kvikmyndabrans-
anum í dag,” eins og einn sér-
fræöingur í Hollywood lýsti hinum
nýja samningi. Aö undanfömu
hefur Pryor verið í félagi viö sinn
gamla vin og grínista Gene Wilder
og unniö aö gamanmyndinni
Double Whoopee er fjaUar um
kvenfólk og klaufalega eiginmenn.
Italski leikarinn heimsfrægi
Marcello Mastroiainni er taUnn
mikiU sjarmör og hefur löngum
gengið undir viöumefninu „lady
kUler”.
MarceUo er löngu kunnur fyrir
mörg viðamikil hiutverk bæöi á
hvíta tjaldinu og á leiksviði. Aö
undanförnu hefur kappinn veriö
viðriöinn franskt leikhús í hlut-
verki gamalgróins Casanova í leik-
ritinu La Nuit de Varennes. Mar-
ceUo lék áður í Paris í leikritinu
The General and the Dead Army
og fer þar meö hlutverk Aristo
hershöfðingja sem er meirUiáttar
flaðrari og dömuskelfir fremur en
mikilsvirtur vígvaUahershöfðingi.
Ekki var MarceUo of hrifinn af
karakter Ariosto hershöfðingja,
„kauöi er ekkert annað en vUja-
laust verkfæri í höndunum á
óprúttnum yfirboöurum og hefur
ekki séns í einn einasta kven-
mann,” segir Marcello
Mastroiainni meö fyrirlitningu.
Við Islendingar vitum aUt um
japanska bíla og háþróaðan
iönaðarvarning en aö sama skapi
lítið um þarlenda Ust og menningu.
Ein skærasta söngstjaman í Japan
i dag heitir Seiko Matsuda, 23 ára
stjama, stundum köUuö OUvia
Ne wton-John þeirra í Japan.
Stúlkan er taUn hlédræg mjög og
þrátt fyrir gott gengi á söngsviðinu
hefur hún ekki látiö frægöina stíga
sér tU höfuös. Hún býr m.a. enn í
litlu Osaka íbúöinni sinni og ekur
um á 6 ára gömlum Datsun.
Frá því hún var uppgötvuð fyri 5
ámm hefur stúlkan gefiö út 12
stórar plötur og átt 13 meiriháttar
topplög á vinsældalistum er gefiö
hafa í krónum taUö rúmlega fúnm
mUljaröa íslenskra króna. Nú
þurfum viö bara aö komast aö því
hvort þeir á rás tvö vita eitthvað
meira um mærina en við hér á DV.
Sundmót á
Seltjarnarnesi
Það voru um 80 keppendur á
sundmóti grunnskóla Seltjarnar-
ness I siðustu viku. í sól og hita
fylgdust einnig fjölmargir áhorf-
endur með spennandi keppni.
Ljóst er að mikill sundáhugi er á
Seltjarnarnesi, enda Seltirningar nú
komnir með ágœtis sundaðstöðu i
nýrri og glæsilogri sundlaug.
DV-myndir GVA.
Það var mUcUl gusugangur í hinni
nýju og glæsilegu sundlaug Seltirninga
í síðustu viku er sundmót grunnskól-
anna á Seltjarnamesi fór fram í fyrsta
sinn.
Þaö voru nemendur úr öllum árgöng-
um grunnskólanna tveggja, Mýrar-
húsaskóla og VaUiúsaskóla, er kepptu
innbyrðis hver í sínum árgangi. Synt
var bringusund og var vegalengdin 50
metrar.
Aö sögn Kristjáns Halldórssonar,
íþróttakennara í Valhúsaskóla, gekk
keppnin mjög vel fyrir sig og var bæöi
skemmtUeg og spennandi. „Viö erum
mjög ánægð með þá nýju sund- og
íþróttaaðstöðu sem skapast hefur á
Seltjarnamesi,” sagðiKristján.
Keppnin fór fram í blíöskaparveðri
og fylgdust f jölmargir áhorfendur meö
keppninni bæöi nemendur í grunn-
skólunum og töluvert af foreldrum.
Rotarýklúbbur Seltjarnamess gaf
síöan sigurvegurum hvers árgangs
veglega verðlaunapeninga til eignar.
Hringsól um Manhattan
Þaö eru ekki margir sem af fúsum og
f rjálsum vUja láta sig hafa þaö aö dýfa
stórutánni, hvað þá öllum Ukamanum,
í ár þær og flóa er umlykja Manhattan-
eyjuíNewYork.
Stúlka nokkur að nafni Júlía Ridge,
26 ára gömul New York mær, lét sig þó
hafa þaö fyrir nokkm aö skella sér í
vægast sagt óhreint árvatnið og synti,
ekki einu sinni heldur tvisvar í
kringum Manhattaneyju í aUs 21
klukkutíma, vegalengd er samsvarar
um90kUómetrum.
JúUa hin unga er atvinnulaus
leikari í stórborginni og geröi þetta, aö
eigin sögn, til aö vekja athygU á sjálfri
sér. Athygli sem gæti leitt af sér umtal
og hugsanlega gott starf.
Það fara enn engar sögur af því
hvort uppátækið hefur borgað sig fyrir
JúUu, ekkert merkilegt hefur a.m.k.
enn komiö upp úr kafinu. Hins vegar
kom ýmislegt upp á yfirborðið, í
orðsins fyUstu merkingu, á sundi
stúlkunnar, „ég rakst á sitthvað í
vatninu sem ég myndi nú alls ekki
setja í flösku og senda móður minni,”
sagöi sundmærin, „en þó engar fljót-
andi rotturnélík.”
Mannlíf
r
I
miðbæn-
Skrafað og skeggrætt á
útimarkaðnum.
Ijósm. KAE.