Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
37
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Svarti Prinsinn siglir framhjá Köllunarklatti inn i Sundahöfn aftir tœplega tveggja sólarhringa ferð frá Noregi mefl stuttri hringferð um Fssreyjar. Ljósmynd Sveinn.
SVARTIPRINS-
INNí SUNDAHÖFN
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins
kom til landsins í vikunni. Skipiö heitir
Black Prince, er norskt og kemur hing-
að frá Alasundi meö lokaáfangastað í
Glasgow.
Um borð eru 340 farþegar og 136
manna áhöfn. Farþegarnir eru flestir
frá Skotlandi, meðlimir í skosku
áhugamannafélagi um varðveislu
gamalla bygginga og náttúruminja,
„The National Trust for Scotland”.
Skipið hafði einungis viðkomu
hérlendis í einn sólarhring, en farþeg-
amir notuðu tímann vel þrátt fyrir
frekar leiðinlegt veður í Reykjavík,
skelltu sér m.a. í skoðunarferð um
borgina og austur að Gullfossi og
Geysi.
Ferðaskrifstofan Urval sá um komu
skipsins hingaö til lands og að sögn Har-
alds Hjartarsonar hjá Urvali mega
Reykvíkingar búast við um 30
skemmtiferðaskipum í sumar á vegum
íslenskra aðila.
Svarti prinsinn telst ekki mjög stórt
skemmtiferðaskip, 142 metrar á lengd,
20 metrar á breidd og ristir 6,3 metra,
a.m.k. ef miöað er við önnur skip er
hér munu hafa viðkomu i sumar.
Skipstjórinn á Svarta prinsinum,
norskur sægarpur aö nafni Thor
Fleten, tók á móti blaöamönnum um
borð og sýndi þeim skipið. Thor sagðist
aldrei hafa komið tÚ Islands áður,
sagðist þó eiga góðan íslenskan
kunningja, Gunnar Guðmundsson,
heitins Jónassonar, er eitt sinn hefði
Kvöldifl eftir afl skipifl kom til landsins var mikið um dýrflir farþegum til
skemmtunar. Fálagar úr Þjóðdansafálagi Reykjavikur sýndu þjófldansa og
sungu gömul þjófllög við mikinn fögnufl gesta. Að loknum dansatriðum
var Rammagerðin með veglega tiskusýningu á islenskum fatnaði úr ull.
Sýningarfólk úr Modelsamtökunum sýndi fatnaflinn og vakti bœði sýning-
arfólk og fatnaflur mikla athygli.
siglt með sér um suöurhöf á Svarta
prinsinum. „Helst langar mig nú til að
skreppa til Þingvalla og að s já eitthvað
gf Reykjavík, en ekki langar mig
mikiö á diskó éða neitt slíkt,” sagði
Thorskipstjóri.
A meðfylgjandi myndum Kristjáns
Ara fáum við örlitla nasasjón af Svarta
prinsinum, lífinu um borð og þeim far-
þegum er með skipinu komu til Is-
lands.
Thor Fleten, skipstjóri Black Prince, sýndi blaðamönnum brúna og út-
skýrfli mikilvœgi hins flókna tœkjabúnaflar sem þar er að finna.
Herra og frú James Higgins höfflu
aldrei áflur til Íslands komið.
Bandaríkjamenn frá Connecticut á
austurströnd Bandarikjanna. Mest
hlökkuðu þau til afl komast til Vest-
mannaeyja, mundu vel eftir gosinu
1973. Ljósm. KAE og GVA.
■air"-,
4
Ekki er prinsinn stór en þó vel innráttaður. Sundlaugin var reyndar lokufl,
enda ekki alltof margir farþegar i sólarstellingum i íslenskri Sundahöfn í
mafmánufli.
William McHowatt var afl koma í
fyrsta sinn til islands en haffli
reyndar siglt hér framhjá i stríðinu á
breskum tundurspilli. William
hlakkaði til að komast á Þingvöll,
haffli lesifl sár nokkufl til i ís-
lendingasögunum og var m.a.
nokkufl vel afl sór i Njálssögu.
Þjónar og skipsmeyjar eru frá Portúgal, vel agafl farandverkafólk sem
vinnur i ákveflinn tfma en skellir sér á heimaslóðir þess á milli.