Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 26. JUNI1985. 5 Forstjórinn og flugmaðurinn Fostar „MacEagla" við þristinn sinn á Reykja- vikurflugvelli i gœr. i dag eða ó morgun flýgur hann með kunningja sinum heim til Bandarikjanna eftir sex vikna stopp á íslandi vegna vólarbilana. DV-myndir: S. UF» ER AB FUUGA ÞRIST1UM HEIMINN Eftir aö hafa veriö strandaglópur á Islandi í sex vikur sér Foster Mac- Edward nú loksins fram á að geta flogið þristinum sínum heim til Vermont í Bandaríkjunum. Þann 16. maí síðastliðinn henti MacEdward það óhapp að annar hreyfill DC-3 véiar hans bilaði þegar flugvélin var að nálgast landið. Hinum þrautreynda flugmanni tókst að koma vélinni til Reykjavíkur og lenda henni þar. Nýr hreyfill var pantaöur erlendis frá og settur í. Svo illa vildi til að. í fyrsta reynslufluginu bilaði nýi hreyfillinn. Þristurinn var vart kom- inn í loftið af Reykjavíkurflugvelli þegar sá nýi gaf sig. Aftur varð að nauðlenda á einum hreyfli. Annar hreyfill var pantaður. I gær var flugvélinni svo reynsluflogið. Allt gekk vel. Foster MacEdward sér því fram á að geta haldið för sinni áfram. Hann áætlar aö leggja af stað í dag eða á morgun. Þessi 63 ára gamli milljónamæring- ur og húmoristi er alls ekki búinn að fá nóg af íslandi, eins og einhverjir gætu haldið eftir slíka óhappareynslu. Þvert á móti kveðst hann hafa notið hvers einasta dags. Hann hefur f eröast mikið um suðvesturhornið. Hann notar stei k lýsingarorð til að tjá hrifningu sína á landinu. MacEdward hefur reyndar ekki dvalist alveg samfellt á Islandi undan- famar sex vikur. Hann skrapp heim í eina viku til að gifta eldri dóttur sína, Jackie. Einn lesandi blaösins hringdi og benti okkur á að gaman væri að spjalla við „kallinn”. Við þökkuðum ábend- inguna og drifum okkur út á flugvöll. í stjórnklefanum hefur „úrninn" sórstakt kortaborð. Þar á hann flug- kort af allri jörðinni. Er kenndur við örninn Þaö fyrsta sem blaðamaðurinn tók eftir var að hann var klæddur í ná- kvæmlega eins peysu og Foster MacEdward, rauöa meö gylltum emi ísaumuðum. Fyrsta umræðuefnið var því peysur. Foster MacEdward kvaðst ekki aðeins hafa keypt peysuna vegna uppáhaldslitar síns heldur einnig vegna arnarins. „Gælunafn mitt er MacEagle,” sagði Foster. Svo við köllum hann hér eftir í greininni einfaldlega öminn. örninn lærði að fljúga í síðari heims- styrjöldinni, nánar tiltekið árið 1943. Hann flaug í bandaríska hernum. I stríðinu átti hann nokkmm sinnum leið um Island en var þó aldrei staðsettur hérlendis. „Ég hef flogiö nánast öllu sem flogið getur, líka þotum,” segir örninn. Hann kveðst fljúga 500 til 700 flugstundir á ári, bæði sér til ánægju svo og vegna starfsins. Segist hann sameina starfið og ánægjuna. Peningarnir koma af skóvélum Tekjur fær hann frá fyrirtæki sínu sem framleiðir vélar sem búa til skó. Arður af rekstrinum gerir honum kleift að lifa því sem margur myndi kalla draumálífi, sérstaklega margur flugáhugamaöurinn. örninn á tvær flugvélar. Auk þrists- ins á hann sexu eða DC-6 sem er f jög- urra hreyfla. Flugvélamar hefur hann innréttað þannig að vel fari um hann, þó án íburðar. Hann virðist vera hóg- vær maður og lætur lítið yfir velgengni sinni. Hann sýndi okkur DV-mönnum um borð í þristinn. Þar gat fyrst að líta eld- hús með örbylgjuofni aftast í vélinni við hliðina á salerninu. Næst stjórn- klefanum voru tvö rúm sem hægt var að breyta í farþegasæti fyrir sex. I farþegarýminu vora einnig sex djúpir hægindastólar og fótaiýmið ekki skorið við nögl. Þar voru og tvö sjón- vörp, videotæki og sími, svo eitthvað sé nefnt. Þarf ekki að flýta sér Hann kærir sig ekkert um þotu. „Ef ég ætti þotu þyrfti ég að fljúga í 30 þúsund fetum og hafa stöðugar áhyggjur af bönkunum. 1 flugvél eins og þessari er hins vegar engin fjár- festing. Auk þess er miklu skemmti- legra að fljúga svona vél þó að hún fari hægar og sé kannski ekki eins öragg. Eg hef nógan tíma og mér liggur ekkert á. Eg þarf ekki að flýta mér. Auk þess gæti ég ekki lent á íslensku malarflugvöllunum á þotu né á ökrum heima eins og ég get á þessari flugvél. Og á þessari nýt ég þess að fljúga lágt og skoða landslagið,” sagði Öminn. A samtalinu heyrum við að trúlega þekkir hann meira til Islands en marg- ur Islendingurinn gerir. Hann hefur margoft komið hingaö undanfarin fjöratíu ár, oftar en hann hefur töiu á. Hann hefur eignast vini og kunning ja á Islandi. Flýgur um heiminn Hann á sér meira að segja sína uppá- haldsflugleið um Island. Hún Uggur f rá Reykjavík um Reykjanesskaga fram- hjá Kleifarvatni og KeiU. Síðan beygir hann og fylgir fjaUgarðinum tU norð- austurs, flýgur mUU Hveragerðis og HengUs og yfir ÞingveUi. Hann flýgur síðan yfir Geysi og GuUfoss og tekur stefnuna á Kjöl. Hann flýgur yfir Hvítárvatn, í gegnum skarðið miUi Hrútafells og Langjökuis og tekur stefnuna norður fyrir Hofsjökul. Hann flýgur um fjallgarðinn mUU Skaga- fjarðar og Eyjafjarðar og miUUendir kannski á Akureyri. Hann þræöir áfram norðlenska hálendið inn af Svarfaðardal og tekur síðan stefnuna suður. Hann flýgur yfir Arnarvatns- heiði, Reykholt í Borgarfiröi og Akra- nes áður en aftur er lent í Reykjavík. Hann nýtur þess aö fljúga um heim- inn. I fyrra fór hann á sexunni um Kyrrahafið, þræddi Kyrrahafs- eyjamar og dvaldi á Ha waii. Hann hélt — Bandaríkja- maðurinn Foster MacEdward hefurverið strandaglópurá Íslandiísexvikur áfram tU FiUppseyj:., Kina og Japans. Þetta er hans líf og yndi, að fljúga um heiminn. „Eitt af því fyrsta sem ég geri aUtaf þegar ég kem tU Reykjavíkur er að gá hvernig gengur hjá ykkur aö byggja kirkjuna þama,” segir örninn og hlær um leiö og hann bendir á HaUgríms- kirkju. „Undanfarin 20—30 ár hefur þaö verið tilhlökkunarefni aö sjá hvað kirkjubyggingunni hefur miðaö áfram. Eg vona að ykkur takist aö ljúka byggingunni einhvern tímann í fram- tíðinni,” segir hann. -KMU. Farrýmið er likara venjulegri ibúð en farrými farþegaflugvéla. MYNDBANDALEIGA til sölu á besta staö í bænum, hagstæð húsaleiga. Verð aðeins kr. 500.000, engin útborgun nauðsynleg. Greiða má með fasteignatryggðum skuldabréfum til margra ára. Upplagt fyrir fjölskyldu eða aðra mynd- bandaleigu sem myndi þá reka tvær leigur með betri nýtingu á myndum og tækjum. Áhugasamir vinsam- lega sendi nöfn og símanúmer til smáauglýsingadeildar DV, Þverholti 11, í síðasta lagi fyrir fimmtudaginn 27. júní merkt „Myndbandaleiga 1000". Öllum bréfum svarað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.