Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Page 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 26. JUNI1985. 11 Menning Menning Hallgrímur Helgason sýnir í Listmunahúsinu: Listin felst einkum í vinnu „Maöur dregur andann, frekar en að fá hann yfir sig,” segir Hallgrím- ur Helgason sem um þessar mundir sýnir 30 olíumálverk auk fjölda teikninga í Listmunahúsinu við Lækjargötu. „Listin felst einkum í vinnu.” Skóli er skjólgarður Hallgrímur er fæddur í Reykjavík áriö 1959. Hann stundaöi nám viö Myndlista- og handiöaskóla Islands veturinn 1979—'80 og einn vetur var hann viö akademíuna í Miinchen. Þá fékk hann nóg af öllu námi og hefur síðan haldiö því fram að skólar væru lítið annaö en skjólgarðar. Sýningin í Listmunahúsinu er sjötta einkasýning Hallgríms frá því hann kom heim frá Miinchen voriö 1982, en hann hefur einnig tekiö þátt i þremur samsýningum. Hann segist hafa orðið að sýna þetta oft til aö hafa í sig og á, en Hallgrímur lifir eingönguaf listinni. „Þetta verður eins og hver önnur vinna þegar maður er farinn aö lifa af þessu, eins konar vítahringur. Maður verður að mála og sýna, ann- ars blasir eyrin við. En það er lflca hægt að sýna of oft. Núna bíð ég bara eftir gula spjaldinu. Síðan kemur þaö rauða...” Kaldar og yfirvegaðar Hallgrímur lýsir myndum sínum sem köldum og yfirveguðum. Hann segist vinna að þeim jafnt og þétt, „á hverjum degi eins og venjulegur launamaður nema meö helst til mik- illi næturvinnu”. Myndimar hafa breyst mikiö frá þvi Hallgrímur byrjaði að sýna fyrir tveimur árum. Þá málaöi hann landslagsmyndir, „malerískar og frjálslegar”, svo not- uð séu orð gagnrýnenda, en núorðið einbeitir hann sér að mannslíkaman- um og er stíllinn öllu agaðri og form- fastari en fyrr. „Þetta breyttist allt saman. Maður gengur i gegnum timabil, fær hugmynd, vinnur úr henni, tæmist og byrjar svo upp á nýtt. Þetta er svona bláa tímabilið hjá mér núna. ” Bláa tímabilið. Hallgrími finnst íhaldssemi einkenna myndlist nú um stundir. „Flestir listamenn eru að gera einhverja gamla hluti upp á nýtt og hafa sjaldan eitthvað veru- lega frumlegt fram að færa.” Sjálfur segist hann vera undir miklum áhrif- um frá ítölsku endurreisninni og meistara Picasso: bláa timabiliö. Annars finnst Hallgrími bjart fram undan í íslenskri myndlist. „Margir ungir málarar lofa góöu. Auk þess hefur lítið verið málað á Is- landi undanfarin 20 ár, gömlu meist- aramir allir löngu horfnir, þannig að það er mikil vinna fram undan og nóg pláss á toppnum, ef út í það er farið.” Sýningu Hallgríms lýkur sunnu- daginn30. júní. EA Hallgrímur Helgason við eitt verka sinna. DV-mynd VHV MIÐVIKUDAGUR 26. HÚSAVÍK Sýningartími: 15:00-18:00 Sýningarstaður: Við Bílaleigu Húsavíkur. FIMMTUDAGUR 27. SIGLUFJÖRÐUR Sýningartími: 11:30-13:00 Sýningarstaður: Við Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar AKUREYRI Sýningartími: 16:30-20:00 Sýningarstaður: Við Bláfell sf. FÖSTUDAGUR 28. SAUÐÁRKRÓKUR Sýningartími: 09:00-13:30 Sýningarstaður: Við Bókabúð Brynjars BLÖNDUÓS Sýningartími: 15:00-18:00 Sýningarstaður: Við Bílaþjónustu Blönduóss TOYOTA ÞJONUSTA Fyrirliggjandi í birgðastöð Stálgæði: Remanit 4301 IIIC Stálgæði: Remanit 4016 Plötuþykktir: 0.8 - 3.0 mm Plötustærðir: 1250 x 2500 mm SINDRA STÁLHF Ðorgartúni 31 sími 27222 ^ SatHl/lHHH SÖLUBOÐ ...vöruverö í lágmarki \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.