Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1985. 3 Nýjar reglur um slökkvibúnað í skipum: Margrét Guðnadóttir prófessor og rannsóknarstofa í veirufrœði á baklóð Landspítalans: — Þurfum nýtt, sýklahelt hús ef halda á AIDS i burtu. Ónæmistæring í tannlæknahúsið? „Mjög fullkom- inn búnaður„ — segir siglingamálastjóri „Það eru að koma nýjar reglur um slökkvibúnaö í skipum. Þegar þær verða komnar til framkvæmda á það ekki að gerast að skip geti brunnið nið- ur úti á sjó,” sagði Magnús Jóhannes- son siglingamálastjóri í samtali viö DV. I kjölfar bruna Sjóla úti fyrir Vest- fjörðum á dögunum hefur vaknað sú spuming hvort slökkvibúnaði um borð í skipum sé ábótavant. „Ef við tökum Sjóla sem dæmi þá var hann með fullgilt haffærnisskír- teini. Það segir okkur um leið að slökkvitækin um borð voru í lagi. En svona hlutir hafa því miður gerst en ég tel að þar verði breyting á með þessum 1 nýju reglum,” sagöi Magnús. Hann sagði að reglugerðin væri þeg- ar komin út en hún tæki gildi um ára- mótin næstu, fyrst hjá stærstu skipun- um. Ráðgert væri að árið 1987 yrðu það lög að öll skip yfir 15 metrum að stærð yrðu búin þessum tækjum. Meöal þess- ara tdcja eru til dæmis mjög fullkomin reykskynjunartæki, þannig að ef eldur kemur upp einhvers staðar í skipinu verður hans strax vart í brúnni með þar til gerðu viðvörunarkerfi. -KÞ Lúðrasveit Hafnarfjarðar: Fer til Piirg Lúörasveit Hafnarfjarðar er um þessar mundir 35 ára. I tilefni afmælis- ins mun hljómsveitin halda til V- Þýskalands og Austurríkis um helgina.. 35 hljóðfæraleikarar fara þessa ferð og leika þeir undir stjóm Hans Ploder. Hljómsveitin mun taka þátt í hátíð- arhöldum vegna afmælis lúörasveitar Niederrimsingen, en sú hljómsveit kom til Islands fyrir nokkrum árum. Þá mun LH taka þátt í lúðrasveitamóti í Piirg í Austurríki. - „Vil halda landinu hreinu en það kostar 10 milljónir,” segir Margrét Guðnadóttir prófessor „Eg skil ósköp vel að sjúkrahúsin vilji koma sér upp sérstökum rann- sóknarstofum þar sem hægt verður að skoða AIDS-sýni og önnur áhættu- sýni,” sagði Margrét Guðnadóttir, prófessor og yfirlæknir á rannsóknar- stofu í veirufræði. „Enþegarkemurað því að greina allt blóð handa blóðgjöf- um þá þarf annað og meira til. Eins og stendur er engin aðstaða til þess hér á landi og litlar rannsóknarstofur á sjúkrahúsum leysa ekki þann vanda. Þetta eru tvö óskyld mál.” Margrét Guðnadóttir er nýkomin úr- utanlandsferð þar sem hún sat ýmsar ráðstefnur um ónæmistæringu og skoð- aöi rannsóknarstofur þar sem AIDS- veiran er til skoðunar. Eins og fram kom í fréttum DV fyrir skömmu eru ekki nokkur tök á því að taka við ónæmistæringarsýnum á rannsóknar- stofu í veirufræöi, húsnæði rannsóknarstofunar á baklóö Land- spítalans er einfaldlega ekki sýklahelt. „Tillaga mín er einfaldlega sú að byggt verði hús yfir þessar AIDS- rannsóknir. Við þurfum 1200 fermetra á tveimur hæðum og þá byggingu mætti auðveldlega reisa í framhaldi af byggingu Tannlæknadeildarinnar héma fyrir neöan Landspítalann. Þar er meira að segja steypt plata tilbúin og þó svona hús kosti 10 milljónir er það lágmarksverð ef við viljum halda landinu hreinu og AIDS í burtu,” sagði Margrét Guðna dóttir. „En það verður að ganga í þetta strax. Yfirvöld vilja að við rannsökum allt blóð handa blóðgjöfum og það getum við ekki fyrr en húsnæðiö er til staðar.” -EER. Jóhannes Pálmason i kjallara Borgarspítalans þar sem ráflgert er afl setja upp AIDS-stofu: — Viljum hafa vaflifl fyrir neðan okkur þegar ógœfan dyn- ur yfir. „AIDS-stofa” íBorgarspftalann: VIUUM VERNDA STARFSFÓLKIÐ —segir f ramkvæmdastjórinn „Við viljum hafa vaöið fyrir neðan okkur og vemda starfsfólkið. Þessi ógæfa á eftir að dynja yfir okkur og það er ekki annaö forsvaranlegt en koma þessari öryggisrannsóknarstofu á fót,” sagði Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspitalans í samtali við DV. Á fundi sínum 18. júní ákvað stjóm spítalans að ráðist yrði í uppsetningu á rannsóknarstofu meö sérstökum öryggisbúnaði. Þar er ráðgert að rann- saka blóðsýni i áhættuflokki, meðal annars ónæmistæringarsýni. „Fjárfestingin er að sjálfsögðu háð leyfi heilbrigðisráðherra en hann hefur lýst sig fylgjandi hugmyndinni. Enda kostar þetta ekki nema tæpar tvær milljónir króna,” sagði Jóhannes Pálmason. „AIDS-stofan” verður til húsa í kjallara Borgarspítalans, undir slysa- deildinni. -EDt. Opið a morgun kl. 1-4. Hefur þig ekki alltaf langað aö eignast torfærubíl ... en ekki lagt í þaö vegna verösins? jm hefur okkur tekist aö Mm verðið úr 420.000 í aðeins Standardútgáfa af Lödu Sport meö ryövörn P.S.: Við bjóðum að auki okkar rómuðu greiöslukjör. BEFREffiAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. TiiitolífN cimrmT nvncnnntm t a c . aaaaa c cái immr n. oi aac SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236 t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.