Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Page 15
DV. FÖSTUDAGUR 28. JUNI1985.
15
Menning Menning Menning
SÓLSTÖÐU-
MYNDIR
Verk eftir Nini Tang.
Verk NiniTang
í Nýlistasaf ninu
Nini Tang heitir ung listakona frá
Hollandi sem verið hefur í stööugu
sambandi við íslenska starfsbræður
sína frá því hún var við nám með
nokkrum þeirra í Maastricht árið
1981. Síðan þá skilst mér að hún hafi
haldiö eina sýningu á Islandi og nú
hefur hún opnað aðra slíka í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg. Eins og endra-
nær eru upplýsingar og sýningar-
skrár af skomum skammti á þeim
bæ en I þetta sinn gerir það lítið til
því fersk og frjálsleg verk Nini Tang
halda manni hugföngnum frá upp-
hafitilenda.
Sýning hennar er tvískipt. I forsal
er að finna lítil málverk á stríga og
pappír, ásamt með samansafni af
hugdettum í formi ljósmynda og riss-
Myndlist
Aöalsteinn Ingólfsson
blaða, og árítaöra og skreyttra póst-
verka.
Syngjandi malerí
I meginsal safnsins eru stærri
verk, einnig á striga og pappir, sem
unnin eru í kringum sama stefiö, sól-
stöður á Islandi og áhrif þeirra á
menn og dýr. Sá hluti sýningarinnar
er ekki síst athyglisveröur fyrir það
að hann er unninn hér á landi á
nokkrum dögum en ber samt engin
merki flausturs. Leiða má getum að
því, að Nini Tang hafi búið sig af
kostgæfni undir Islandsförina.
Þótt listakonan reisi verk sín á ein-
hvers konar hugmyndafræðilegum
grunni — en til þess benda rissblöö
hennar í forsal — þá hefur hún til að
bera svo ríka málarahæfileika að
allar hugmyndir hennar kvikna til
lífs í syngjandi maleríi. Bendir það
til þess að Nini Tang hafi ekki síður
taugar til kóbra-arfleifðar Hollend-
inga en konseptlistar.
Dýr verða til
Dýr eru henni hugleikin, bæði dýr
merkurinnar og hugarflugsins, og
gefa henni tilefni til blæbrigðaríkrar
túlkunar sem er í senn trú „dýrseðl-
inu” og forsendum málverksins.
Smærri málverk hennar virðast inni-
halda myndspennu á við mun stærri
myndfleti.
Eg skal játa að mér er ekki alveg
ljóst hvernig hún vill láta lesa úr
sólstöðumyndum sínum. Þó er eins
og hún vilji gefa til kynna lengd
dagsins, sjálfan tímann, í hlutföllum
myndanna. Og eftir því sem dagur
lengist og myndir hennar stækka því
meir virðist ganga á í þeim.
Einfaldaðar fígúrur, náttúrleg minni
og dýr verða til, streita og sameinast
í ofsafengnu en þó hárfínt uppbyggöu
samspili lita og f orma.
Það kæmi mér ekki á óvart þó Nini
Tang ætti eftir að láta að sér kveða á
alþjóðlegum vettvangi myndlistar.
AI.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Galvaniserad
plötuiárn
ST 02 Z DIN 17162
Plötuþykktir: 0.5-2mm
Plötustærðir: 1000 x 2000 mm
og 1250 x 2500 mm
SINDRA AmSTÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
Sjúkrahúsið
Patreksfirði
Sjúkrahúsið Patreksfiröi óskar aö ráða hjúkrunarfræöing
og sjúkraliöa til starfa sem fyrst eöa eftir samkomulagi,
einnig vantar hjúkrunarfræöinga og Ijósmóöur til sumar-
afleysinga. Gott húsnæöi fyrir hendi. Nánari upplýsingar
veitir Sigriður Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri i slma 94-1110
eða 94-1386.
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Dregið 6. júlí.
Sækjum — sendum.
Sími 82900.
Sjálf stæðisf lokkurinn.
UMBOÐSMENIU
Umboðsmenn vantar á Borgarfjörð eystri og
Patreksfjörð.
Upplýsingar á afgreiðslu DV í síma 27022.
Einnig vantar umboðsmann í Grundarfjörð.
Upplýsingar í síma 93-8825 og 91-27022, Þórlaug.
JEPPADEKK
OG FELGUR
Geysilegt úrval af
gæðadekkjum.
Margskonar mynstur.
Sendum gegn
póstkröfu um lana aílt.
VINNII
STOfAN
Skipholti 35, s: 31055 og 30688
Réttarhálsi 2, s: 84008 og 84009
HÖFUM OPNAÐ
NÝJA
BÓN- OG ÞVOTTASTÖD
O Gufuþvoum vélar
og felgur \(
Q Djúphreinsum
sœtin og teppin
Q Notum
eingöngu hid
níðsterka
Mjallarvaxhón
Opið á laugardögum.
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA - Sími 21845