Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Síða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR17. JULl 1985.
3
„Efast um að kæran se til”
— segirJónas Guðmundsson sem rekinn var úr starfi skrifstofustjóra Fjármálastofnunar Varnarliðsins
„Þaö er ansi hart að vera rekinn
svona úr starfi fyrirvaralaust og án
þess að neinar ástæður séu gefnar upp.
Eg hef starfað þarna á Vellinum í 25
ár. Eg hef aldrei fundið til þess að
ónægja væri með mín störf. Eg hef eft-
ir uppsögnina reynt að spyrja þessa
menn út í það en þar hef ég heldur ekki
fengið nein svör,” sagði Jónas Guð-
mundsson.
Jónas var rekinn úr starfi sínu sem
skrifstofustjóri Fjármálastofnunar
Varnarliðsins fyrir tæpum tveimur
vikum. Það var mánudaginn 8. júli að
hann var kallaður á fimd tveggja
manna, Rebekku Ingvarsdóttur og
Þórðar Einarssonar, sem eru fyrir ís-
lenska starfsmannahaldinu á Kefla-
víkurflugvelli í fjarveru Guðna Jóns-
sonar. Þau sögöu honum að starfs-
stúlka úr Fjármálastofnuninni hefði
kært hann fyrir að hafa komið að máli
við sig í KK-húsinu í Keflavík laugar-
daginn áöur. Þar hefði hann lofaö
henni kauphækkun gegn því að hún
yrði honum til skemmtunar. Ef hún
ekki þekktist þetta boð myndi hann,
Jónas, sjá til þess að hún yrði rekin.
Buðu Rebekka og Þórður Jónasi tvo
kosti: að segja upp en verða rekinn
eiia. Jónas tók siðari kostinn þar sem
hann taldi sig ekki hafa neitt til sakar
unnið.
Vísar ásökunum
á bug
„Ég vísa þessum ásökunum alger-
lega á bug. Það er rétt að ég var á
þessu balli og hitti þessa stúlku, en að
þessi orðaskipti hafi átt sér stað er al-
veg út í hött. Ég hef beöið um að fá að
sjá þessa kæru en ekki fengið. Eg á föð-
ur og bróður sem þarna starfa. Þeir
hafa beðið um aö fá að sjá þetta en ekki
fengið heldur, né stjórn FISK, Félags
íslenskra stjómunarmanna á Kefla-
víkurflugvelli. Eg efast því um að
þessi kæra sé til. Auk þess hefur þetta
mál ekki verið sannprófaö á neinn
hátt. Fólkið, sem ég var með á þessu
balli, hefur aldrei verið kallaö fyrir
vegna þessa.
Eg tel þessa sögu og aðrar ámóta
sögusagnir sem um mig ganga alger-
lega úr lausu lofti gripnar.”
— Hvaðan eru þœr þá komnar?
„Ég tel þær runnar undar yfirmanni
mínum þarna, Mallone. Okkur hefur
ekki samið. Það er ekkert launungar-
mál.”
— Hefur þú rætt þetta við
stúlkuna?
„Nei, enda skilst mér að hún sé
eriendis.”
— Heyrst hefur að það hafi
lengið verið á dagskrá hjá Mallone
þessum að koma þór úr starfi.
' Heldurðu að það sá rétt?
„Það skal ég ekki segja um. Hins
vegar, eins og ég sagði, hefur okkur
ekkisamið.”
— Það hefur lika heyrst að með
þessu vilji varnarliðsmenn sýna að
fleiri séu breyskir en þeir og fleiri
djarfir til kvenna, samanber
aðmírálinn á dögunum. Hvað viltu
segja um það?
„Eg get ekkert sagt um það. Ef
menn hins vegar trúa þessum áburði
þá höfðar hann til sömu bandarísku laga
og aðmírállinn gekkst undir. Þetta mál
mitt er aftur á móti algerlega ósannað
og manni finnst það hart að vera
rekinn með skömm eftir að vera búinn
að starfa þama allan þennan tíma eftir
bestu samvisku,” sagði Jónas
Guðmundsson.
Jónas og aðrir íslenskir yfirmenn á
Keflavíkurflugvelli eru ekki í neinu
stéttarfélagi og hafa því ekki þá réttar-
stöðu sem menn hafa í ámóta félögum.
Hins vegar eru þeir í eigin félagi,
fyrrnefndu FISK. Stjómarmönnum
þar, og reyndar mörgum félags-
mönnum, finnst þeir algerlega rétt-
lausir gagnvart vinnuveitendum
sínum á mörgum sviðum eins og
þessum, samkvæmt upplýsingum DV.
Mönnum þeirra finnst vægast sagt
hæpið að reka mann fyrir ósannað mál
og yfirleitt að hægt sé að reka menn úr
starfi án nokkurra gildra ástæðna.
Þess vegna hefur stjórn FISK skotið
máli sinu til varnarmáladeildar og
síöan áfram til u,tanríkisráöherra, ef
með þarf.
-KÞ.
Millisvæðamótið:
„Annað eins hefur aldrei sést... ”
í miklum darraðardansi 12. umferðarinnar i Biel kostuðu afglöp skákstjóra
Pólúgaévski skákina og sennilega sæti í áskorendakeppninni.
DV-mynd JLÁ.
Frá Jóni L. Árnasyni, fróttaritara
DV í Biel:
„Annað eins hefur áreiðanlega
aldrei sést áður á millisvæðamóti,”
var viðkvæði áhorfenda í lok 12. um-
ferðarinnar í Biel sem tefld var í gær.
Pólúgaévskí lék sig í mát í öðrum leik,
löngu eftir að tímamörkunum var náð.
Sókolov var ýmist með unnið eða tapað
og klykkti út með því að leika af sér
manni er hann átti tveimur peðum
meira. Samt var hann með betra er
skákin fór fyrst í bið en eftir að skákin
fór öðru sinni í bið er jafnteflisfnykur
af henni. Síðast en ekki síst voru heilla-
disirnar Margeiri hliðhollar. Hann
varð að gefa drottningu sína til að af-
stýra máti og hafði þá hrók og fimm
peð gegn drottningu og fjórum peðum
en hélt samt auðveldlega jafntefli.
Sem sagt fjörug umferð með af-
brigðum en taflmennskan ekki galla-
laus.
Urslit 12. umferðar:
Martin—Margeir jaf nt
Andersson-Vaganjan jafnt
Pólú hafði hvítt í þessari stöðu og
lék 46. Ha77?
en eftir 46. — Dbl+ varð hann að
gefast upp, enda mát í næsta leik.
Hann gat leikið 46. e4 Bxe4 47. Ha7 Dg4
48. Kh2 og líklegast er að staðan sé
jafntefli.
Að sögn sjónarvotta datt fallvísir-
inn á klukku Sax þremur leikjum fyrir
afleikinn mikla. Þá var hann reyndar
búinn að ná tímamörkunum en skák-
stjóra ber samkvæmt skáklögunum að
stöðva klukkuna um leið og annar fer
yfir timamörkin, þannig að kepp-
endum takist að skrá niður leikina,
enda getur verið óvíst hvort leikjunum
40 hafi verið náð. Ef skákstjóri hefði
farið að lögum í gær hefði Pólú hætt að
tefla hraðskák og vafalaust áttað sig á
hættunni. Hann sagðist mundu leggja
fram kæru en hæpið er að úrslitum
verði breytt úr því sem komið er.
Afglöp skákstjóra gætu þannig orðið til
þess að Pólúgaévskí kæmist ekki í
áskorendakeppnina. Hann var eðlilega
niðurbrotinn maöur eftir umferðina í
gær og verður aö teljast vafasamt að
hann nái sér á strik eftir þetta.
varð hann að gefa drottningu sína svo
hann yrði ekki mát. Þá kom gamla
seiglan upp í honum og hann hékk á
jafntefli. ..
Hvítt: Martin-Gonzales
Svart: Margeir
Sikileyjarvörn.
1. o4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 g6 5. Be3 Bg7 6. Rc3 Rf6 7. Bc4
0-0 8. Bb3 d6 9. f3 Rd7l? 10. h4 Rc5
11. h5 Da5 12. hxg6 hxg6 13. g4? Be6
14. Dd2 Hfc8 15. 0-0-0 Bxb3 16.
Rxb3 Rxb3 17. cxb3 Re5 18. Kb1
Rxf3 19. Df2 Hxc3! 20. Dxf3 Hc7? 21.
Bd4 Bxd4 22. Hxd4 Hac8? 23. Hd5
Db4 24. a3l Hc3 25. Hh8 +! Kxh8 26.
Dhl + Kg7 27. axb4 Hc2 28. Hd3 He2
29. g5 Hh8 30. Hh3 Hxh3 31. Dxh3
Hxe4 32. Df3?? Hel + 33. Kc2 b5! 34.
Db7 He5! 35. Dxa7 Kf8 36. Db8 +
Kg7 37. Dc7 Kf8 38. Db8+ Kg7 39.
De8 hxg5 40. Dxe7 Hf5 41. Dxd6 Kg8
42. Kd3
— og hér var samiö jafntefli. Hvítur
kemst ekki gegnum vígi svarts.
Staðan á toppnum er svolítið óljós
vegna biðskáka sem tefldar verða í
dag. Fátt getur þó komið í veg fyrir að
Vaganjan komist áfram og þeir Seira-
wan, Torre, Sókolov, Van der Wiel og
Ljuboievic virðast þess albúnir að
fylgja honum. Það komast hins vegar
bara fjórir áfram. ..
13. umferð verður tefld á föstudag.
Þá hefur Margeir hvítt gegn Kína-
manninum Lí. | JLÁ/-IJ.
Van der Wiel-Jansa 1 —0
Ljuboievic-Short jafnt
Pólúgaévskf-Sax 0—1
Quinteros-Seirawan 0—1
Torre—Gutman 1—0
Sókolov-Rodriguez bið
Li-Partos jafnt
Það var hrikalegt að fylgjast með
timahrakinu í skák Pólú og Sax. Sax
átti minni tíma og skellti niður mönn-
unum er hann lék og lamdi á klukkuna.
Hvorugur haföi tölu á leikjunum og
aðrir keppendur slógu hring utan um
borðið til þess að sjá betur.
Skyndilega heyrðist stuna frá
áhorfendaskaranum og Pólú stóð
snögglega upp, eldrauður í framan.
Sælusvipur færðist hins vegar yfir and-
lit Sax, sem hugði gott til glóðarinnar
því Pólú var óverjandi mát í næsta
leik. Afleikurinn mikli kom í 46. leik,
sex leikjum eftir að tímamörkunum
var náð og þá var Pólú skiptamun yfir
en reyndar búinn að leika yfirburða-
stöðu niður í jafntefli. Hann var þó
fljótur að taka sig saman í andlitinu og
rétti Sax höndina til merkis um upp-
gjöf.
Þeir Sókolov og Rodriguez tefldu
heldur ekki gallalausa skák. Sókolov,
sem hafði hvítt í spænskum leik, fórn-
aði manni fyrir að því er virtist vænleg
sóknarfæri. Síðan lék hann af sér og
varð að gefa drottningu sína og hafði
þá aðeins einn hrók. Þá lék Rodriguez
biskup kæruleysislega og áttaði sig
bersýnilega ekki á máthættu í borðinu.
Hann varð að gefa drottninguna til
baka fyrir hrók og var þá tveimur
peðum undir. Nú var röðin aftur komin
að Sókolov; hann lék af sér heilum
manni en var samt með betra er
skákin fór i bið. Líkur voru þó mestar á
jafntefli, ekki síst eftir að skákin fór
aftur í bið í gærkvöldi.
Oft hefur verið heitara í skáksaln-
um en í gær en sjaldan jafnundarlega
teflt. Quinteros og Seirawan tefldu
furðulega skák þar sem Argentínu-
maðurinn lét öllum illum látum en
lagðist svo saman í vörninni er sóknin
gekk ekki nógu vel upp. Short sagðist
hafa átt tapaða stöðu á tímabili en
hann náði að bjarga sér. Torre mátaði
drottningu Gutta strax eftir að skákin
hafði farið í bið. Þeir Andersson og
Vaganjan voru hér um bil þeir einu
sem héldu ró sinni; skák þeirra var í
járnum allan tímann og jafntefli eðli-
leg niðurstaða. Þá tefldi Van der Wiel
vandaða skák gegn Jansa og tókst að
vinna eftir hróksendatafl, með þrjú
• samstæð peö á drottningarvæng gegn
tveimur peöum Jansa á kóngsvæng.
Van der Wiel virðist eflast um allan
helming í hvert sinn sem hann tapar
skák!
Best er aö hafa sem fæst orö um
skák Margeirs. Hann yfirspilaði Spán-
verjann í byrjuninni, sem var
Sikileyjarvörn, afbrigði drekans ógur-
lega. Svo lék hann veikt og allt í einu
Torfæruhjól
Allt fyrir BMX
BMX-hanskar
BMX-hjálmar
BMX-grímur
BMX-peysur
BMX-buxur
BMX-skór
BMX-sokkar
BMX-hnéhlífar
BMX-púðar
BMX-merki
• Sendum í póstkröfu
• Kreditkortaþjónusta
• Varahluta- og viðgerðarþjónusta
l/efslunin W
yM4RKlD
Suðurlandsbraut 30. S(mi 35320.