Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR17. JÚLI1985. Forsetinn á Austf jörðum: STAÐNÆMST í ÁLFASTEINI I fyrradag staðnæmdist forseti Is- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, á Borgarfiröi eystra í Austf jarðaheim- sókn sinni. Víða var komið við og heimamenn tóku vel á móti forsetan- um. I Vatnsskarði tók hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps á móti for- setanum, farið var m.a. í Álfastein og aldamótatómthús skoðað. Fyrirtækið Álfasteinn í Borgarfirð- inum er tiltölulega nýtt fyrirtæki en blómstrar með,ótrúlegt úrval steina. Þar var Vígdísi færður einn steinn aögjöf. Á leið sinni um Borgarfjarðar- hrepp leit forsetinn inn hjá hjónun- um Elísabetu Sveinsdóttur og Skúla Ingvarssyni. Þau búa á sumrin í tómthúsi sem byggt var um aldamót- in. Þau eru Kópavogsbúar á veturna. I félagsheimili staðarmanna, Fjarðarborg, var boðið upp á veiting- ar og þar hélt oddvitinn, Magnús Þorsteinsson, tölu. I gær snæddi forsetinn hádegisverð á Eiðum og fór þaðan til Seyðis- fjarðar. APH. í Álfasteini var frú Vigdisi Finnbogadóttur færður einn fagur steinn að gjöf. Forsetinn og fylgdarlið heimsóttu hjónin Elísabetu Sveinsdóttur og Skúla Ingvarsson en þau búa i gömlu tómthúsi. L1NDAR8AKKI Hér er forsetinn í hópi staðarmanna og oddvitans, Magnúsar Þorsteins sonar, i Borgarfiröi eystra. Rokkguðinn gleymir ekki þegnum sínum: Megas rokkar í Austur- bæjarbíói Meistari Megas heldur tónleika í Austurbæjarbíói í kvöld klukkan níu. Lýkur rokksöngvarinn hljómleikaferð um landið sem borið hefur tónlist hans í ein tíu samkomuhús á landsbyggðinni undanfarið. „Þetta er byggt upp eins og venju- legt rokkprógramm,” sagði Megas í samtali viö DV. „Gömul lög eftir mig í nýjum búningum og svo glæný. Nokkur önnur lög eftir aðra, sem ég fíla vel, slæðast meö.” Með Megasi á tónleikunum verður harösnúin sveit. Haraldur Þor- steinsson leikur á bassa, Björgvin Gíslason, á gítar, Ásgeir Oskarsson á trommur og Jens Hansson blæs í saxó- fón. Tónleikarnir hefjast sem fyrr segir klukkan níu og er aðgangseyrir 450 krónur. Reykvískir rokkunnendur hafa ekki verið spilltir af eftirlæti það sem af er sumri en nú færir rokkguðinn þeim Megas. -ás. Vigdísarhret gengiðyfir — heimamenn undir- búa forsetakomuna Frð Emil Thorarensen, fréttaritara DV á Eskifirði: Nú er gott sumarveður á Eskifirði, 15 stiga hiti í forsælu og telja veöur- glöggir menn að svokallaö Vigdísar- hret sé að fullu gengið yfir. En um miðja síðustu viku, þegar forsetinn heimsótti Múlasýslur, gerði hið versta veöur sem lengi verður í minnum haft, norðangarri, snjókoma og fleira til- heyrandi. Er nú allt útlit fyrir að seinni hluti heimsóknar forsetans fari fram í góðviðri. Forsetinn er væntanlegur til Eski- fjarðar nk. föstudag, en ekki verður lokið við að bera olíumöl á Bleiksár- hlíðina eins og að var stefnt. Að sögn Jóhanns Klausens bæjarstjóra hefur ýmislegt óvænt komið til og tafið fram- kvæmdir. Vonaðist hann tQ að verkinu lyki um mánaðamótin og verður þá 55% af gatnakerfi Eskifjarðar komið með bundið slitlag. Bleiksárhlíðin er fjölmennasta gata bæjarins og er 1 km á lengd. -SigA. j dag mælir Dagfari______________j dag mælir Pagfari___________í dag mælir Dagfari Karlalaus kvennaráðstefna Meiriháttar kvennasamkoma er haldin þessa dagana í Nairobi á veg- um Sameinuöu þjóðanna. Að sögn eru þar mættar á fjórða þúsund kon- ur frá hundrað og tuttugu löndum en í framhjáhlaupi kemur einnig fram að þar er haldin önnur ráöstefna, líka fyrir konur, og á þeirri ráðstefnu eru á milli tíu og tólf þúsund kven- fulltrúar. Ekki er þess getið hver munurinn er á þessum tveim ráö- stefnum, enda er það sjálfsagt auka- atriði. Þó má þess geta að meðan fimm íslenskar konur sækja ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna er aðeins ein á þeirri síðarnefndu, en hún mun ekki vera þar sem fulltrúi íslands, heldur á vegum Alþjóðlegra ungmennasamskipta. Ferðalag hennar er styrkt af Kvennalistanum, Rauða krossinum og Kvenfélaga- samtökum. Oþarfi er hinsvegar aö taka fram hver kostar fimm manna sendinefndina. Hún þarf ekki á nein- um styrkjum að halda. Ríkið hefur eflaust greitt undir þær ferðalagið og það telst auðvitað ekki styrkur. Islensku fulltrúamir segja gott skipulag á ráðstefnunni. Þær hafi ekki þurft að bíöa nema í tvær klukkustundir eftir hótelherbergi og vopnaður vörður er á hverri hæð á hótelum ráðstefnugesta. Ekki fara neinar spurnir af um- ræðuefnum en hinsvegar hefur aðal- lega veriö sagt frá því að konurnar hafi komið sér saman um að koma sér ekki saman. Israelskonur hafa mótmælt arabakonum og öfugt, og sendinefnd Bandaríkjanna hefur heimtað að fá að ráða einhverju, án þess aö fram sé tekið hverju. Islenska sendinefndin segir að engin formleg samþykkt verði gerð á ráð- stefnunni, og er það talinn mikill ávinningur fyrir ráöstefnuna. Af öllu þessu sést að þetta verður merk ráðstefna. Það er fremur sjald- gæft að konur fái að funda út af fyrir sig og þar að auki ánægjulegt, ekki síst fyrir karlmenn, sem ekki þurfa að vera viðstaddir. Enginn þarf að hlusta á þær nema þær sjálfar, enginn þarf að taka mark á þeim nema þær sjálfar og enginn veit hvaö þær eru að tala um, ekki einu sinni þær sjálfar. Islend- ingar hljóta að vera fullkomlega sammála þeirri ákvörðun að senda fimm íslenskar konur á slíka ráð- stefnu. Það er þá að minnsta kosti friður fyrir þeim hér heima á meðan. Ekki spillir það fyrir að vopnaður vörður skuli gæta kvennanna á meðan á ráðstefnunni stendur. Það fylgir að vísu ekki fréttinni hvaöa hlutverki verðimir gegna, en þar sem engir karlmenn eru sjáanlegir á svæðinu hlýtur hinn vopnaði vörður að eiga gæta kvennanna og er auðvitað ekki ráö nema í tíma sé tekið. Þegar þúsundir kvenna safn- ast saman á einn stað í Kenya dugar ekki minna en vopnuð gæsla aö mati þeirra sjálfra og segir þaö aö sjálf- sögðu sína sögu um hvaða álit kon- urnar hafa hver á annarri. Það segir líka sína sögu að Rauöi krossinn skuli sjá ástæðu til að styrkja einn ráðstefnugestinn, þann sem er á vegum alþjóölegra ung- mennasamskipta. Rauði krossinn hefur tekið þátt í söfnun fyrir hungrað fólk og bágstatt í Afríku, og þar sem hluti af því fé sem þannig safnast er varið til þátttöku í óskil- greindri kvennaráðstefnu í Kenya, hlýtur það að vera í liður í líknar- starfinu. Undir það má taka. Konur á alþjóöaráðstefnum flokkast undir mannúðarstarfsemi og þá einkum fyrir karla sem eru lausir við þær á meöan. Vonandi er aö ráðstefnan í Nairobi takist vel. Islenska sendinefndin mun flytja eina ræöu á ráðstefnunni og er ekki að efa að sú ræða mun full- komlega standa undir farareyri nefndarinnar, jafnvel þótt enginn hlusti á hana. Það má þá allténd birta hana í blööunum hér heima. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.