Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1985.
Islandslax og
Fiskeldi
Grindavíkur
• fá ábyrgð
„Þaö voru tvær umsóknir sam-
þykktar en þrjár liggja fyrir óaf-
greiddar,” sagði Gunnar Ivarsson,
skrifstofustjóri Fiskveiöasjóös, í sam-
tali viöDVímorgun.
I gærkvöldi var stjórnarfundur hjá
Fiskveiöasjóði og þar ákveöiö aö veita
tveimur fiskeldisstöövum ábyrgð fyrir
erlendum lánum. Þaö eru Islandslax
hf. og Fiskeldi Grindavíkur hf. sem
fengu ábyrgðirnar.
Þessi samþykkt stjórnar Fiskveiöa-
sjóös er í kjölfar ríkisstjórnarsam-
þykktar sl. föstudag þar sem ákveöiö
var aö heimila fiskeldisstöövum
ábyrgö fyrir erlendum lántökum er
'~y næmu allt aö 67% stofnkostnaöar.
Eigið fé stöövanna þarf aö vera 25%
og innlent lánsfé 8%. Norræni fjár-
festingarbankinn hefur þegar gefið lof-
orö fyrir lánum til stöövanna. -þg
Tannlæknar
endurgreiða
Laun tannlækna hækka um 16,2%
frá 1. mars samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar, en sem kunnugt er
höföu tannlæknar hækkaö launin um
42,69% frá þessum tíma. Þeir höföu
látið Hagvang reikna út launataxta
sína og tilkynnt Tryggingastofnun og
Reykjavíkurborg. (Jrskurður Hag-
stofunnar nú er bindandi.
Eftir þessa niöurstöðu Hagstof-
unnar ber tannlæknum að endurgreiöa
hluta reikninga, sem þeir fengu
borgaða samkvæmt taxtanum, sem
þeir létu Hagvang reikna fyrir sig. JGH
117 milljónir til
fiskeldis
Framkvæmdastofnun ríkisins hefur
117 milljónir króna, sem líklega verður
ráöstafaö til fiskeldisstööva í ár. Á
fundi sínum í gær úthlutaði stofnunin
92 milljónum króna til 23 fiskeldis-
stööva. Ekki fengu þó allir umsækj-
endur úthlutun því tæplega þrjátíu um-
sóknir lágu fyrir. Stjórnin ákvað á
þessum fundi í gær, sem haldinn var á
Akureyri, aö lána 50% af fram-
kvæmdakostnaðifiskeldisstöðvanna.
-ÞG
:'-3
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
ÞRÖSTUR
SÍDUMÚLA 10
„Ein skemmtistund
og lífsveisla”
—segir Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, um Austurlandsheimsókn sína
Fimmti dagur heimsóknar forseta
Islands til Austurlands er i dag.
Heimsóknin hefur verið vel heppnuð
fram að þessu.
„Móttökurnar hér hafa einkennst
af einstökum höföingjabrag,” sagöi
Vigdís Finnbogadóttir í víötali viö
DV. ,Jlér er höföingjar aö taka á
móti gesti sem er mjög velkominn,
hvar sem fariö er. Ferðin hefur veriö
ein skemmtistund og lífsveisla.”
— Veörið hefur ekki dregiö úr
feröagleöinni?
„Nei, nema síöur sé. Ég skil vel aö
heimamenn vilji láta sitt héraö
skarta sínu fegursta. En þegar til
kastanna kemur eru þessar ferðir
farnar til að hitta fólkið. Þær efla
trúna á lífið og landið og verða til
þess að færa landsbyggðina nær
stjórnarsetrinu í Reykjavík.”
— Er komin feröaþreyta í forset-
ann?
„Nei, ég þreytist aldrei þegar mér
finnst gaman og nýt lífsins,” sagði
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands.
I gær fór forsetinn frá Borgarfirði
eystra til Seyðisfjaröar, m.a. með
viðkomu á Eiðum. Gott veður var á
Austf jöröum í gær. Sól skein á himni
og viö komu forsetans til Seyðis-
fjaröar var 16 stiga hiti.
• 'h/r
I dag heldur forsetinn til Hall-
ormsstaöar og kveður settan sýslu-
mann Norður-Múlasýslu, Þorvald
Jóhannesson. Seinni hluta dags tekur
forsetinn sér frí frá heimsókninni.
Á morgun mun síöan sýslumaður
Suöur-Múlasýslu, Bogi Nilsson, slást
í för meö forsetanum. Þá veröur far-
iö í Mjóafjörö og til Neskaupstaðar.
APH/N-Múl.
sja einnig bls. 4
Hér tekur forsetinn lagið ásamt börnum i sumarbúðum Þjóðkirkjunnar á Eiðum. Séra Davið Baldursson á Eskifirði leikur á gitarinn. DV-mynd PK.
Hvalveiðar íslendinga í vísindaskyni:
,,VIÐ H0FUM HEIMILDINA”
„Við höfum heimildina, annars
heföum við ekki lagt tillöguna
fram,” sagöi Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra í viötali við
DV. Hann er formaöur íslensku
sendinefndarinnar sem situr ráö-
stefnu Alþjóöa hvalveiöiráðsins í
Bournemouth. Islensk yfirvöld hafa
heimild eða1 „ blessun ráösins” til að
veiöa 200 hvali árlega.
„Viö erum aö vinna eftir ráðum
segir Halldór Ásgrímsson
Alþjóöa hvalveiöiráðsins með því að
leggja tillögurnar hér fram,” sagöi
Halldór.
Nú fyrir hádegi átti aö vera fundur
formanna sendinefndanna og þar
átti aö ákveöa hvenær íslensku til-
lögurnar væru ræddar á ráðstefn-
unni.
I gær voru hvalveiðar „frum-
byggjanna” í Alaska, Grænlandi og
Síberíu ræddar og sagði Halldór að
ljóst væri að áfram yröi haldið hval-
veiðum af þeim aöilum. Ekki væri
samt vitað hversu mikiö þeim yröi
heimilaö aö veiða.
Sagöi Halldór að gífurleg öryggis-
gæsla væri . í kringum
ráðstefnusalinn. Hann sagöist ekki
enn hafa heyrt andstöðu við tillögur
Islendinga nema hjá náttúru-
verndarfólki sem væri áheyrnar-
fulltrúar.
„Það er ljóst aö það fólk hefur haft
áhrif,” sagði hann.
-ÞG
— sjá einnig bls. 8