Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 15
DV. MIÐVKUDAGUR17. JULl 1985. 15 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið BLOÐ, SVITIOGTARÁ HUÓM- LEIKVM HJÁ BLVES CONCEPT Kristján Kristjánsson, meðlimur hljómsveitarinnar, tekinn tali Kristjðn Kristjánsson, söngvari og munnhörpuleikari í sœnsku hljómsveit- inni Blues Concept. DV-mynd S. Þaö er ekki víst að margir hér á landi kannist við sænska hljómsveit sem heitir Blues Concept. DV barst nýlega úrklippur úr sænskum blöðum þar sem hljómsveitinni er hrósað fyrir sköruglega sviðsframkomu og góða tónlist. Kristján Kristjánsson, sem er íslensk- ur eins og nafnið gefur til kynna, er meðlimur í Blues Concept og er hann staddur hér á landi í sumarfríinu sínu. Við tókum hann tali og spurðum fyrst hvers konar tónlist Blués Concept flytti. „Það má líklega kalla hana rythm and blues þó stundum sé hún nær því að vera rokk,” sagði Kristján. „Við flytjum mikið af frumsamdri tón- Ust auk þess sem við göngum i smiöju til gömlu meistaranna eins og t.d. Robert Johnson, Muddy Waters, Johnny Winter, Johnny Copland og Albert Collins. Þegar fólk hlustar á okkur viljum við að þaö dansi og þess vegna er engin lognmolla í tónlistinni hjá okkur,” bætti Kristján við. Blues Concept hefur aðeins gefið út eina litla plötu en líklega gefa þeir út stóra plötu í haust, fleira er í bígerð hjá þeim félögum eins og hljómleikaferð til austantjaldslanda. En hvað með Island? „Okkur langar til að koma til Islands en það er mjög dýrt svo það er óvíst hvort við getum það nema með styrk góðra manna,” sagði Kristján. Hann er söngvari hljómsveitarinnar auk þess sem hann leikur á munnhörpu og semur lög ásamt Michael Gudmundsson, gítarleikara Blues Concept, sem er ekki íslenskur þó nafnið bendi til þess. Aðrir hljóm- sveitarmeðlimir eru Jonas Ryberg á bassa, Kent Lenander á trommum og Jacob Nyman á gítar. Blues Concept hefur starfað í tvö ár og aðailega leikið á heimaslóðum i Lundi, en nýlega fóru þeir félagar i hljómleikaferð og brugðu sér yfir landamærin til Noregs þar sem þeim var vel tekið að sögn Kristjáns. I úrklippunum sem við fengum að utan er talað um blóð, svita og tár á hljómleikunum hjá Blues Concept. Við spurðum Kristján hvort það væri það sem fólk vildi í Svíaríki frekar en diskóið. „Við spilum af tilfinningu og reynum að ná til fólksins. Það eru fáar svona grúppur í Svíþjóð en ein hefur verið ráðandi þar í mörg ár; við erum nýir og fólk hefur tekið okkur mjög vel. Vinsældir bluesins eru alltaf að aukast enda eru ræturnar í bluesinum, hann kemur alltaf í gegn,” sagöi Kristján Kristjánsson, en hann hefur hug á aö hóa saman í hljómsveit hér heima áður en hann fer út aftur i lok ágúst. -SJ. Svlvester Stallone og nýja vinkonan Brigitta Nielsen en hún kemur til meö að leika I Rocky IV. RockylVí uppsiglingu Sylvester Stallone lætur ekki deigan síga og er nú kominn af staö með fjórðu myndina um hnefa- leikakappann Rocky. Sylvester fer að sjálfsögðu áfram með hlutverk Rocky en kvenmótleikari hans í myndinni er ný vinkona Stallone. Hún heitir Brigitte Nielsen og er dönsk og hefur starfað sem módel. Þau eru farin að búa saman og seg- ir Brigitte að það sé alvöru sambúð. Rod Stewart vill kannski vera Elton John, a.m.k. notaði hann nafnið hans þegar mikið lá við. VissiRod Stewartekki hvað hann hét? Poppgoðið Rod Stewart var á dögunum stoppaöur af lögreglunni í Hollywood fyrir afglöp í umferð- inni. Eftir að hann var stoppaður þyrptist að múgur og margmenni sem vildi fá eiginhandaráritun hjá goðinu. Að því loknu var hann fluttur á lögreglustöðina þar sem löggan lét taka blóðprufu úr honum. Síðan þurfti hann að skrifa undir eitthvert plagg hjá þeim á stöö- inni og hvaða nafn haldið þiö að hann hafi sett undir skýrsluna? Ekki sitt eigið, nei, takk, hann skrifaði skýrum stöfum Elton John. Ekki vitúm viö hvort Elton veit af þessu né hvort löggan tók þessa undirskrift góöa og gilda. i3nKW Á blaðsölustöðum Spárnar eru alltaf að batna — viðtal við Trausta Jónsson veðurfræðing Rússnesk rúlletta - garðveisla hjá Armanni Réynissyni Lífsreynsla: Ef maður fær stuðning — spjallað við einstaeða móður Jökull, gullsandur og góður matur — punktar um ferðalag á sunnanverðu Snæfellsnesi 6000 kílómetra eftir ,,Gammelt rustent skrammel" — vitnisburður um heiftarlega bíladellu Fordkeppnin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.