Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Blaðsíða 28
28 DV. MIÐVIKUDAGUR17. JULI1985. Andlát Hörður Felixson loftskeytamaður lést 10. júlí sl. Hann fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1933. Foreldrar hans voru hjónin Felix O. Sigurbjarnarson og Sigríöur Jónsdóttir. Höröur lauk prófi frá Loftskeytaskólanum áriö 1954 og hóf skömmu síöar störf hjá Landssíma Islands og vann þar til dauðadags, eöa í rúm 30 ár, lengst af viö fjarskipta- stööina í Gufunesi. Eftirlifandi eigin- kona hans er Ragnheiöur Hjálmars- dóttir. Þeim hjónunum varö fimm barna auðið. Utför Haröar veröur gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Arnlin Árnadóttir, Laugarásvegi 24 Reykjavík, andaöist 15. júlí í Hafnar- búöum. Jóhanna Kristjánsdóttir, Aðalstræti 39 Patreksfiröi, andaöist á heimili sínu 14, júlí. Bjarni Jónsson, Drápuhlíö 30, andaöist í Landspítalanum að morgni 16. júlí. Jason Sigurðsson lést á Hrafnistu aöfaranótt mánudagsins 15. júlí. Rútur Hansson frá Hóli í Köldukinn andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 14. júlí. Jón Sigurðsson, Stóra-Lambhaga, andaðist aöfaranótt 15. júlí. Jónína Jónsdóttir, Aifheimum 16, veröur jarösungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 18. júli kl. 13.30. Sigurbjörg Bjarnadóttir, Álftagróf, veröur jarösungin frá Skeiðflatar- kirkju föstudaginn 19. júlí kl. 14. Elínborg Magnúsdóttir, Rauöarár- stíg 42, verður jarösungin frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 18. júlí kl. 10.30. Einarbjörg Böðvarsdóttir, Mark- landi, 10 sem andaðist í Borgar- spítalanum þann 12. júlí, verður jarö- sungin frá Fossvogskapeliu föstudag- inn 19. júií kl. 13.30. Kristján Einarsson, rafvirkja- meistari, Grettisgötu 48, sem andaðist miövikudaginn 10. júlí, veröur jarösunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 18. júli kl. 15. Tilkynningar Sædýrasafnið er opiö alia daga frá kl. 10—19. Um helgar eru sýningar á tamningu á há- hyrningi á klukkutíma fresti frá kl. 13-17. fellM Bilbeltin skal aö sjálfsögöu spenna í upphafi ferðar. Þau geta bjargaö iífi í alvarlegu slysi og hindrað áverka í minni háttar árekstrum. Hnakka- púðana þarf einnig að stilla í rétta hæð. jJUf^FERÐAR Bók Vöku um gróskuna í listalífi íslendinga komin út Ot er komin hjá Bókaútgáfunni Vöku stór og glæsileg bók um gróskuna í nútimalistum á Islandi. Efniö hefur Sigurður A. Magnússon rithöfundur tekið saman en bókina prýða um 170 ljósmyndir af íslenskum listamönnum eft- ir heimskunnan ljósmyndara, Vladimir Sichov. Bókin er á ensku, heitir Iceland Crucible eða I deiglunni á Islandi og ber undirtitilinn A Modern Artistic Renaissance sem þýða mætti vakning á sviði nútímalista. Henni er ætlað að kynna víða um lönd þá grósku sem ríkjandi er í öllum listgreinum hér á landi og kemur hún út í tengslum við átak á þessu sviði sem kynnt er á Kjarvalsstöðum í Reykjavík þessa dag- ana. 12. alþjóðlegi textílbiennall- inn Textíl/skúlptúr Föstudaginn 14. júní sL opnaði 12. alþjóðlegi textílbiennallinn í Musée Cantonal des Beaux- Arts í Lausanne, Sviss og stendur til 16. sept. 1985. Textílbiennallinn er miðdepill þeirra sem vinna með þráð (þræði) í einhverri mynd. Dómnefnd sem skipuð er af Citam (Centre internation de la Tapisserie Ancienne et Moderne) velur verk inn á sýninguna. Að þessu sinni sýna 52 listamenn þar af 2 gestir, þær Magdalena Abakanowicz, Póllandi og Claire Zeisler USA. Engum listamönnum hefur áður verið boðin þátttaka í sýningunni. Einn Islendingur, Ragna Róbertsdóthr, er meðal sýnenda. Er þetta í fyrsta skipti að Is- lendingur kemst inn með verk sitt á þessa eftirsóknarverðu sýningu síðan fyrsti bienn- allinn var haldinn 1962 að frumkvæði Jean Lurcat. Sýningin mun einnig verða sett upp í Ala- borgarsafninu í Danmörku og Liljevals- safninu í Stokkhólmi í apríl—maí 1986. Fréttatilkynning.' 27. fjórðungsþing Norð- lendinga verður haldið að Laugum í Reykjadal 29.-30. ágúst 1985. Á fjórðungsþingi Norðlendinga, sem jafnframt er aðalfundur Fjórðungssambands Norðlendinga, eiga rétt til setu fulltrúar allra sveitarfélaga á Norðurlandi, 66 að tölu, og sýslufélaga, sem eru 6 talsins. Þessir 72 aðilar kjósa 94 fulltrúa til setu á fjórðungsþingi. Þingsetning verður fimmtudaginn 29. ágúst nk. kl. 13.30 í íþróttahúsinu að Laugum. Þing- slit verða síöari hluta föstudags. Meginmál þessa þings verður: Skipulags- og starfshættir Fjórðungssambands Norðlendinga. Skóiamálefni á Norðurlandi. Rætt verður um háskólakennslu á Akureyri, rekstur framhaldsmenntunar og kostnaðarhlut sveitarfélaga í rekstri grunnskóla. Á þessu árí er 40 ára starfsafmæli Fjórðungssambands Norðlendinga. Það var stofnað 14. júlí 1945 i samkomusal kirkjunnar á Akureyri. Angling in lceland Ferðamálaráð hefur nú gefið út á ensku lit- prentaðan átta síðna bækling, Angling in Iceland, þar sem í máli og myndum er vakin athygli á hinum margvíslegu möguleikum á fiskveiði hér á landi, öörum en laxveiði. I bæklingnum er einkum fjallað um silungs- veiði, en einnig er vikið að möguleikum á sjóstangaveiði. Þessi bæklingur er gerður í samráði við Landssamband veiðifélaga, sem lét gera sér- stakan fylgibækling, þar sem sagt er frá silungsveiði á sjö tilteknum stöðum, Brúará, Hreðavatni, Vatnsdalsvatni, Hnausatjöm, Höfðavatni, Laxá í Aðaldal, ofan brúar, og Eiðavatni. Þessum fylgibæklingi er ætlað að gefa sýnishom af þeim möguleikum sem bjóðast í silungsveiði hér á landi. í gærkvöldi____________í gærkvöldi BEINT FRÁ BISLETT Virkur dagur og sjónvarpið byrjaði klukkan fimm, hvað var eiginlega að gerast og það sama er upp á teningnum í dag, er allt aö verða vitlaust? Eins og Jón Olafsson á rás 2 myndi segja rólega og yfir- vegað. Vonandi ekki, en í gær og í dag sýnir sjónvarpið það ágæta framtak að sýna frá frjálsíþrótta- keppni á Bislett-leikvanginum í Noregi þar sem fjórir Islendingar keppa. Það var sannarlega kominn tími til að sjónvarpið sýndi beint frá einhverjum öðrum íþróttaviðburði erlendis en knattspyrnu. Sem sagt, ágætt að mínu mati, vona bara að Islendingunum gangi vél í dag. öðrtun dagskrárliðum sjónvarpsins í gærkvöldi sleppti undirrituö þar til kom að þættinum um flóttafólk í Afríku. Við verðum sennilega seint minnt nógu rækilega á það hörmungarástand sem ríkir hjá flóttafólkinu í Afríku. Þátturinn fannst mér ágætur en þar lýsti flótta- flókið sjálft þeim hörmungum sem það hafði þurft að þola vegna hernaöarátaka sem höfðu hrakiö það frá heimilum sínum. Fram kom að hjálparstarf á vegum opinberra aðila og annarra hefur og getur gert mikið gagn á þessum slóðum. Þess vegna verður að halda því áfram og stuðningur eins og frá popptónlistar- mönnum um síðustu helgi á að vera öðrum hvatning til að leggja sitt af mörkum. Sigrún Jónsdóttir. Angling in Iceland er prentaður í 50 þús. eintökum. Hluta upplagsins, rösklega 20 þús. eintökum, hefur þegar verið dreift í samvinnu við Iceland Review. Var þessum hluta upplagsins dreift sem fylgiriti með síðasta tölublaði Iceland Review. Að öðru leyti veröur Angling in Iceland einkum dreift fyrir milligöngu sportveiðifélaga og klúbba á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum. Þessi útgáfa er á ensku, en Ferðamálaráð hefur til athugunar aö láta einnig prenta þennan bækling á þýsku og dönsku, norsku eða sænsku. Talið er að liklegt sé aö auka megi talsvert tölu þeirra ferðamanna erlendra sem hingað koma með því að vekja sérstaka athygli á þeim möguleikum sem hér gefast á silungs- veiöi og sjóstangaveiði. Slíkur veiðiskapur er í senn fjölbreytilegur og tiltölulega ódýr. I tengslum við veiði af þessu tagi gefst erlendum ferðamönnum einnig færi á að komast í nána og beina snertingu við náttúru landsins. Ferðamálaráð gerir sér vonir um að sú athygli, sem vakin er á þessu á erlendum vettvangi, verði til þess að auka tekjur þjóðarinnar af erlendum ferðamönnum og veiti þeim jafnframt aukna ánægju af dvöl- inni hér. Ferðalög Ferðafélag íslands 2. 19.—27. júlí (9 dagar): Lónsöræfi. Farar- stjóri: Þorsteinn Bjarnar. 3. 19.—24. júlí (6 dagar): Landmannalaugar — Þórsmörk. Fararstjóri: Asgeir Pálsson. 4. 19.—24. júlí (6 dagar): Hvanngil—Hólms- árlón—Hólmsá—Hrífunes. Gönguferð með viðleguútbúnað. Fararstjóri: Sigurður Kristjánsson. ATH: Ekki rétt dagsetning í áætlun. 5. 23.-28. júlí (6 dagar): Norðvesturland. Skoðunarferðir í Húnavatnssýslu og Skaga- firði. Gist 1 svefnpokaplássi. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 6. 24.-28. júli (5 dagar): Landmannalaugar — Þórsmörk. Uppselt. Tryggið ykkur far i sumarleyfisferðir Ferðafélagsins. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Fl, öldugötu 3. Helgarferðir 19.—21. júlí: 1. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála. Þar er þægileg aðstaða fyrir ferðamenn, eldhús m/öilum áhöldum, svefnaðstaða stúkuð niöur, setustofa, sturta. Sumarleyfi í Þórs- mörk er eftirminnilegt. 2. Landmannalaugar — Eldgjá. Gist í Sælu- húsi FI í Laugum. Gengið á Gjátind og að Ofærufossi. 3. Álftavatn (Fjallabaksleið syðri). Uppselt. 4. Hveravellir—Þjófadalir. Gist í sæluhúsi Fl á Hveravöllum. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsins, öldugötu 3. ATH. 17. júlí er miðvikudagsferð í Land- mannalaugar fyrir þá sem vilja dvelja í Land- mannalaugum til sunnudags eða lengur. Ferðafélagsferðir um verslunarmannahelgina, 2.-5. ágúst 1. Alftavatn — Hólmsárbotnar — Strútslaug. Gist í sæluhúsi við Alftavatn (Fjallabaksleið syðri). 2. Hveravellir — Blöndugljúfur — Fagrahlíð — Jökulkrókur. Gist í sæluhúsi á Hveravöll- um. 3. Landmannalaugar — Eldgjá — Hrafntinnu- sker. Gist í sæluhúsi í Laugum. 4. Skaftafell og nágrenni — stuttar/langar gönguferðir. Gist í tjöldum. 5. Skaftafell — Kjós — Miðfellstindur. Göngu- útbúnaður. 6. Sprengisandur — Mývatnssveit — Jökuls- árgljúfur — Tjömes — Sprengisandur. Gist í svefnpokaplássi. 7. a) Þórsmörk — Fimmvörðuháls — Skógar. b) Þórsmörk, langar og stuttar gönguferöir. Gist í Skagfjörðsskála. Laugardag 3. ágúst: kl. 13. Þórsmörk. Ferðist í óbyggðum með Ferðafélaginu um verslunarmannahelgina. Pantið tímanlega. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.I., öldugötu3. Ferðafélag Islands. 2. Núpsstaðarskógar — Súlutindar o.fl. Tjald- að við skógana. Fallegt svæði vestan Skeiðar- árjökuls. 3. Kjölur — Kerlingarfjöll. Gist í húsi. Gengið á Snækoll o.fl. Hægt að fara á skíði. 4. Eldgjá — Landmannalaugar. Gist í góöu húsi sunnan Eldgjár. Hringferð um Land- mannaleið. 5. Dalir — Breiðafjarðareyjar. Gist í húsi. 6. Þórsmörk. Brottför föstud. kl. 20.00. Ennfremur daglegar ferðir alla helgina. Brottför kl. 8.00 að morgni. Frábær gistiaðstaða í Utivistarskálanum Básum. Uppl. og farmiöar á skrifstofunni, Lækjar- götu 6a, simar: 14606 og 23732. Sjáumst. Utivist. ÚTIVIST 10 Á R A Útivistarferðir Helgarferðir 19.—21. júlí. Símar: 14606,23732. 1. Þórsmörk. Gist í Utivistarskálanum góða i Básum. Fullkomin hreinlætisaðstaða, sturtur o.fl. Gönguferðir við allra hæfi, bæði norðan og sunnan Krossár. 2. Landmannalaugar — Eldgjá. Gönguferð á Landmannalaugasvæöinu. Eldgjá skoöuö: farið að Ofærufossi, á Gjátind o.fl. Ath. þetta er hringferð um Fjallabaksleið nyrðri. Brott- för föstud. kl. 20.00. Mjög góð gisting í skála. 3. Skógar — Fimmvörðuháls — Básar. 2 dagar. Brottför laugard. kl. 8.30. Létt bakpokaferö. 4. Sumardvöl í skála Utivistar í Básum er tilvalin fyrir unga sem aldna. Vika eða hálf vika í Þórsmörk. Brottför föstud. kl. 20.00. sunnudaga kl. 8.00 og miðvikud. kl. 8.00. Útivistarferðir Verslunarmannahelgin 2.-5. ágúst. 1. Hornstrandir — Homvík. Tjaldað í Hom- vik. Tapað -fundið Tík týndist í Hvalfjarðarbotni Hundur af poodle-terrierkyni varð viðskila við fólk sitt í Hvalfirði föstudaginn 28. júní sl. Síðan hefur verið stöðug leit. Það sást síðast til hans laugardaginn 29. júní. Hann er 11 ára, ljósbrúnn, loðinn með R-merki. Fundar- launum heitið. Hringið í sima 12865 eða 84551. Kettlinga vantar heimili Er með fjóra, 6 vikna gamla kettlinga sem vantar góð framtíðarheimili. Fást að sjálf- sögðu ókeypis. Upplýsingar í síma 76522. Happdrætti Happdrætti knattspyrnu ráðs ÍBV Þriðjudaginn 9. júlí var dregið í happdrætti knattspymuráðs IBV hjá Bæjarfógetanum. Eftirtaldir miðar hlutu vinninga: Fisher videotæki að verðmæti 44.900 kr. 4997, 5344, 10245, 12146, 12955, 13401, 14459, 14832,15936,18756, Fisher hljómtæki að verðmæti 30.800 kr. 889, 3933, 5122, 7152, 12257, 13678, 16204, 16524,17967,19832. Fisher hljómtæki að verðmæti 20.000 kr. 5287, 9972, 10432, 13573, 13927, 14298, 14925, 17432,20971. Vinningshafar eru beðnir að tilkynna sig í síma 98-1980. Knattspymuráð IBV þakkar bæjarbúum og ekki sist hinum mörgu stuðningsmönnum á fastalandinu fyrir góð skil á heimsendum miðum. Tónleikar í Áskirkju Páll Eyjólfsson gítarleikari heldur tónleika í Áskirkju í Reykjavik fimmtudaginn 18. júlí kl. 20.30. A efnisskrá verða m.a. verk eftir D. Scarlatti, J.S. Bach, I. Albeniz, og Mist Þor- kelsdóttur. Páll hóf nám í Bamamúsíkskóla Reykja- víkur, síðar í Gitarskólanum þar sem kennari hans var Eyþór Þorláksson. Hann lauk ein- leikaraprófi þaðan árið 1981 og stundaði síðan framhaldsnám á Spáni í tæp þrjú ár undir handleiöslu spánska gítarleikarans José Luis Gonzalez. Hann starfar nú sem gítarkennari í Reykjavík. Tónleikamir á fimmtudaginn eru fyrstu einleikstónleikar Páls í Reykjavík. 60 ára afmæli á í dag, 17. júlí, Hilmar Steinólfsson, fyrrverandi vöruflutn- ingabílstjóri frá Siglufirði, nú til heimilis að Álandi 9, Reykjavík. Hann verður að heiman. 70 ára afmæli á í dag, 17. júlí, Júiíus Ingibergsson fyrrum útgerðarmaður Vestmannaeyjum. Kona hans er Elma Jónsdóttir. Hann er í dag í orlofsíbúð bankastarfsmanna á Akureyri að Tjarnarlundi 5A.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.