Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Side 5
DV. MIÐVIKUDAGUR17. JULI1985.
5
Tjaldstæðið íReykjahlíð við
Mývatn er fjölsótt:
Upp undir 1.600
gestir í einu
„Þaö var ekki fyrr en í vor sem
ákveðið var að þetta yrði framtíöar-
tjaldstæði,” sagði Ragnheiður Bóas-
dóttir, starfsmaður tjaldstæðisins við
Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Tjaldstæðið þar er eitt hið óvenjuleg-
asta og fegursta sem um getur hér-
lendis. Ferðamenn tjalda við rætur
gervigíga eða hreinlega ofan í þeim.
Utsýni er yfir Mývatn og til hins stór-
brotna Hverfjalls.
Það þarf því engan að undra að tjald-
stæði þetta skuli jafnframt vera eitt
hið vinsælasta á Islandi. Otrúlegur
fjöldi ferðamanna gistir þar á hverju
sumri. Stærstu hóparnir koma með
Úlfari Jacobsen og Guðmundi Jónas-
syni.
„Fjöldinn hefur fariö upp í 1.600
manns yfir nótt,” sagði Ragnheiður.
Oft eru þar yfir eitt þúsund manns.
„Ég gæti trúað að 70 til 80 prósent
þeirra sem tjalda héma séu útlending-
ar. Annars hefur tslendingum fjölgaö
síðastliöin þrjú ár,” sagði Ragnheiður.
Skútustaðahreppur rekur tjaldstæð-
ið. Sex fastir starfsmenn eru þar í sum-
ar. Þeir vinna einnig fyrir Náttúru-
verndarráð sem eftirlitsmenn með
friölandinu umhverfis Mývatn.
Eftir að ákveðið var að hafa tjald-
stæðið á sama stað til frambúðar var
hafist handa við uppbyggingu þess.
Salerni hafa verið byggð svo og betra
húsfyrirtjaldverðina. -KMU.
Tjaldstœðifl vifl Rsykjahlffl er f óvenjulegu umhverfi.DV-myndir: PK.
Ragnheiður Bóasdóttir tjaldvörður.
Hann er ekki fallegur þessi lax,
einn þeirra sem fundist hafa f
Elliðaánum síðustu daga.
DV-mynd G. Bender.
Laxadauðinn
enní
rannsókn
„Það má eiginlega segja að þessar
rannsóknir okkar séu rétt á
byrjunarstigi. Sýnin sem við feng-
um í síðustu viku voru öll ónýt. þar
sem þau voru ekki nógu fersk en á
mánudag fengum við einn lax svo
við erum að byrja að rannsaka lax-
inn,” sagði Eva Benediktsdóttir, ör-
verufræðingur á Keldum, í samtali
við DV.
Eins og DV hefur sagt frá hafa all-
margir dauðir laxar, eöa í dauða-
teygjunum, fundist við Elliðaár. Hef-
ur enn ekkert komið fram sem skýr-
ir þetta. En hvenær má búast við
niðurstöðum?
„Ætli það verði ekki fyrir helgi,”
sagði Eva Benediktsdóttir. -KÞ
EHiðaárnar:
Veiðsthafa
480laxar
Laxveiðin í Elliðaánum er heldur
betri en við sögðum frá í gær og
munu vera komnir um 480 laxar á
land. I gegnum teljarann eru farnir
upp um 1250 laxar og telst það gott.
Pétur R. Guðmundsson hefur fengið
þann stærsta ennþá. Sá var 13 pund,
veiddur á fluguna Crossfield.
G. Bender.
MJs < ': ........
Vvv
rk-y ;■?'*
"Kí/Ú 'V s M &. ■
Wmw
W-:
Ótrúlegt en satt!
F*M 100 K3A 10« MH*
• KW3 -x •
AJV1 ao 70 ao ia»o nso K.H*
Sambyggt bíltæki — 2x8 wött. FM. Steríó. MW.
Adeins 3.950
VfV;
<; 'Ay..
■ÁfSi
/**>. <**\
-**~\ /‘"•’s ^ /"S
||| m gjjj£ ^ |||
'Wmmmmmmmmm^^
^mmmmmm
^mmmmmm
^mmmmmm
^mmmmmm
^^mmmmm
^ ~'^mmmm>
mmmi
Bíltækjapakki
sumarsins!
toa «3* •«?» WH*
| r-wx: AM «N» «0 W «Q W **» iv"
:
1 ^ ^ ~^
'-'-'mmmmmmmmm ^
I ss
to*»« , vol
mmmmm'
mmmmmm'
mmmmmm'
mmmmmmw
mmmmm^^
mmmm^^^
TUfye ~f>- mau
Verd adeins 4.950
Sambyggt bíltækl — 2x7 wött. FM. Steríó. MW. Ásamt 15 watta hátölurum.
r£'\
v'v- '?y.
Og aftur komum vid á óvart!
mm m 100 10# 10® mh*
am m mo 70'«o w 130 kh*
Sambyggt bíltækl — 2x7 wött. „Auto Reverse". FM. Steríó. MW. Adeins 5.690
Hátalarar í affa bíla — Vérd ffrá 1.370 paríð.
Tónjafnarar með 30 watta affli frá 2^00.
Leitið ekki langt yfir skammt. — Úrvalið er hjá okkur.
SJÓNVARPSBÚÐIN
Lágmúla 7 — Reykjavik
Simi 68 53 33