Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1985, Page 26
26 DV. MIÐVIKUDAGUR17. JULl 1985. Sumarbústaðaeigendur Kynnum nýja franska ofna í sumarbústaði, brenna bæði kolum og timbri. Til sýnis í verslun K. Auðunssonar, Grensásvegi 8. Kæling hf., Langholtsvegi 109, símar 32150 og 33838. KVENSKÓR Stærðir 37-42. Verð kr. 1.536,00 Póstsendum Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 Þjóðarbókhlaða. Tilboð óskast í innanhússvinnu í Þjóðarbókhlöðunni við Birkimel. Stærðir helstu verkþátta: 'llögn í gólf 9250 m2, einangrun í grind 1170 m2, blikksmíði 4500 kg, málun 5300 m2, rör 1500 m, 2 loftræsisamstæður. Verkinu skal vera lokið 1. apríl 1986. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 13. ágúst 1985 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Fyr8tir med fréttirnar alla vikuna Úrval við allra hœfi w W < Q ■B FAST A BLAÐSOL LS- Góða ferð! Á Athafnamenná Djúpuvík: í FISKIRÆKT OG HÓTELREKSTRI Frá Regínu Thorarensen, Gjögri: Fyrir nokkrum misserum keypti Magnús Hannibaisson M. síldarverk- smiöjuna á Djúpuvík í Strandasýslu og ætlaöi að setja upp fiskirækt, en eins og maður veit gengur seint aö fá lán og annað til þess. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Ásbjörn Þorgilsson. Ég skrapp til Djúpuvíkur um helgina aö skoöa hiö nýja cg fríska hótel sem risiö er hér í Ámeshreppi en aldrei hefur veriö angi af hóteli. Ég Mtti hótelstýruna, Evu Sigurbjömsdóttur. Hún sagði aö það hefði átt aö vígja Mð nýja hótel 17. júní síðastliðinn en þaö væri ekki búiö enn- þá því rafmagnsmenn hafa verið aö verki þar síðastliönar þrjár vikur og voru rétt að ljúka því. Hlutafélagið Magnús Hannibalsson keypti Kvennabraggann á Djúpuvík af Kaupfélagi Strandamanna í fyrra en þar er hótelið til húsa. Er aö myndast þarna gott hótel meö íslenskum hús- gögnum, skemmtilegri setustofu og danssal. Eldhúsið er einnig á neðri hæöinni og þar fékk ég góöar veitingar. Hótel Djúpavík er 200 fermetrar aö stærð. Uppi eru átta tveggja manna herbergi meö góöum rúmum og veru- legum húsgögnum, ailt í ljósum stíl. Ýmis félagssamtök hafa heimsótt Hótel Djúpuvík og gist þar þrátt fyrir aö ekki hafi allt veriö fullfrágengið. Allir gestir hafa rómaö góögeröimar sem þar hafa verið á boöstólum. Vilji er allt sem þarf hefur oft verið sagt. Þaö er hægt að segja meö sanni aö þetta unga fólk sem stendur aö Magnúsi Hannibalssyni er búið aö gera mikið en á líka margt eftir ógert. Vonandi kemst fiskiræktin í fram- kvæmd hjá hinu áhugasama fólki. : .... 1111 1111 ' Fjórtán á hestum yf ir Snæfjalla- „Þetta var erfitt feröalag, en allir vom himiMifandi og ánægöir aö leiðarlokum,” sagði Gísli Hjartarson á Isafirði, en hann var fararstjóri 14 manna hóps sem fór í 10 daga ferð um Vestfiröi ríðandi á hestum. AIls voru 44 hestar með i ferðinni. Hópurinn lagöi af staö frá Bæjum á Snafjallaströnd viö Djúp þann 28. júní og lá leiðin yfir Snæfjallaheiði til Grunnavíkur í Leirufirði. Þaðan var riðið inn Hrafnsfjörö, yfir Skorarheiöi, niður í FurMjörö á Ströndum, austur eftir þeim til Djúpuvikur og þaðan yfir Tré- kyllisheiöi ofan í Steingrímsfjörð. Á næturnar voru hestamir alltaf geymdir í rafmagnsgirðingu sem hópurinn flutti meö sér. En nóttina í Steingrímsfirðinum vildi svo illa til að hestamir sluppu úr girðingunni. Héldu þeir sem leið lá yfir Steingrímsfjarðarheiði og niður í Isafjörð, augljóslega með heimþrá. Þar voru þeir fangaðir af heimamönnum en ferðamennimir komuakandiáeftir. Ur Isafiröi var loks riðið yfir Glámuheiði til Dýrafjarðar. Þessi leið var fjölfarin á Sturlungaöld en hún hefur ekki verið riöin af hóp síðan 1892. Að sögn Gísla gekk ferðin þama betur en hann hafði þorað að vona. Mestan Muta leiðarinnar mátti fara á snjó með' þvíaðþrasðaskafla. Hestamennirnir, sem tóku þátt í þessari ferð, voru frá Bolungarvík og Isafirði, 9 karlar og 5 konur. ________________________JKH. „Alnæmi mun liprara en ónæmis- tæring” „Mér finnst orðið alnæmi mun liprara en ónæmistæring. Auk þess finnst mér styttingin OT, sem oft sést í fyrirsögnum blaðanna alveg ótæk. Onæmistæring er þrísamsett orö og því er raunar ekkert skrítið að blaðamenn reyni aö stytta orðið, einkum í fyrirsögnum,” sagði Guð- mundur Sigurðsson, aðstoðarland- læknir i samtaU við DV. I bæklingi sem landlæknisem- bættið gaf nýlega út. er fyrr- nefndur sjúkdómur nefndur ahiæmi. Pestin, sem á erlendum málum er kölluð AIDS, hefur verið kölluð ýmsum nöfnum hérlendis. Fróðir menn um málefni þetta fjöUuðu um máUð og var ákveöið, að ónæmistæring væri besta nafnið. En nú kemur landlæknir með bækling og kallar sjúkdóminn ahiæmi. Hefur landlæknir þá gert upp hug sinn í þessu máU? „Hvað varðar þennan bækling höfum við gert upp hug okkar. Hins vegar erum við hér ekkert æðsta vald i orðanotkun landsmanna. En þar tU ekkert betra finnst köUum við sjúkdóminn alnæmi,” sagði Guðmundur Sigurðsson. -KÞ Jónas Jónsson leiðsögumaður og Hallgrimur Dalberg ráðuneytisstjóri með stærsta laxinn sem komið hefur úr Norðurá í sumar. Félagarnir veiddu hann í Berghyl og vó hann 18 pund. mxm DV-mynd G. Bender Urrmi: 8,5 punda í Laxá i Mývatnssveit —góð veiðiíVeiðivötnum „Ofsalega gott veður og nóg af fiski að vaka um allt, við fengum 5 sUunga og sá stærsti var 4 pund,” sagði Agnar Sverrisson, en hann var að koma úr Veiðivötnum við fimmta mann. „Fiskurinn hefur víst tekið betur núna en oft áður og má veiða í öUum vötnum. Þaö hefur best veiðst í Hraunsvötnunum og þar hafa veiðst 10 punda fiskar stærst. Fossvatn, stóra og litla, hefur gefið ágætlega og 2—5 punda fiskar hafa veiðst þar.” Við fréttum af veiðimanni sem fékk nýlega 30 faUega sUunga í Veiði- vötnunum og tóku þeir alUr 18 gramma tóbý, svartan. „Það er aUt gott aö frétta héðan, en veiðin er kannski ekki eins góð og verið hefur, enda kalt og rigning núna. Það eru bæði Islendingar og útlendingar við veiðar héma núna og þetta eru margar flugutegundir sem urriðinn tekur,” sagði Hólmfríður Jónsdóttir er við leituðum frétta af urriðasvæðinu. „Það hafa veiðst 1900 urriðar og sá stærsti sem veiðst hefur veiddist ekki hjá mér heldur í Geirastaðalandi og var 8,5 punda. ” Við heyrðum eina góða úr Skaga- firði um daginn, en eins og menn vita er leikhópur Þjóðleikhússins í leik- ferð um Norður- og Austurland. I hópnum eru veiðiáhugamenn og renndu þeir fyrir fisk eins og gengur og gerist. Tveir þeirra fóru í heiðar- vatn eitt og veiddu. Þegar heim var komið var farið að spyrja frétta um veiðina því að enga silunga komu þeir með heim. „Jú, við misstum eina sjö fiska og svo gáfum við bænda- konu þessa þrjá sem við veiddum, góða silunga og fallega.” Eða þannig, eða bara ekki orö um þaö meira. G. Bonder. Þeir eiga að vera á öllum aldri, veiðimennirnir, og á myndinni heldur Sverrir Ingi Gunnarsson á fyrsta silungnum sínum sem hann veiddi nýlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.