Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Page 1
r'"‘ - * -:; &M í i 1 38.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG. A ■ DAGBLAÐIÐ —VÍSIR 187. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985. 0 f A Eldar loga enn á Bergþórshvoli — Eggert Haukdal á hitaf undi um hreppsreikninga sem annar endurskoðandinn vill ekki skrifa undir Eldar loga enn á Bergþórshvoli. I fyrrakvöld var hitafundur í Njáls- búð, félagsheimili Vestur- Landeyjarhrepps. Oddvitinn, Eggert Haukdal alþingismaður, var í sviðsljósinu. Um 40 íbúar hreppsins mættu á fundinn, sem Eggert boðaði til í framhaldi af ásökunum tveggja hreppsnefndarfulltrúa um að við afgreiðslu hreppsreikninga fyrir áriö 1984 hefði ekki verið farið að sveitarstjómarlögum. Eftir sögulegan hreppsnefndar- fund 2. júni siðastliðinn rituðu minnihlutafulltrúarnir Snorri Þorvaldsson og Brynjólfur Bjarna- son bréf til félagsmálaráðuneytis. I bréfinu mælast þeir til þess að ráöuneytið fyrirskipi oddvita að veita þeim aögang að gögnum sem lögö voru fram á fundinum og aö siðan verði boöað til annarrar umræöu um hreppsreikningana og þeir afgreiddir lögum samkvæmt og að aflað verði uppáskriftar eða athugasemda beggja kjörinna endurskoðenda. Annar endurskoðandinn, Haraldur Júlíusson, hefur ekki skrifað undir reikningana vegna ágreinings viö Eggert Haukdal um útreikninga á kostnaðarhlutdeild Ungmennafélagsins og Kven- félagsins við byggingu félags- heimilis sveitarinnar. Ráöuneytið vísaði erindi minnihlutans til sýslumanns Rang- árvallasýslu, Böðvars Bragasonar. Sýslumaður mæltist til þess fyrir mánuöi aö hreppsnefndin ræddi sem fyrst um ágreiningsatriöin og reyndi að ná niðurstöðum sem allir geti sætt sig við. Oddviti hefur ekki boðaö hreppsnefndarfundinn. „Eg var síðast kærður á föstudaginn langa árið 1984. Frá þeim tíma hefur veriö hlé á kærum. Nú hafa ákærendur minir skriðið út úr fylgsnum og sýnt sitt rétta andlit þegar þeim er ekki lengur fært að nota prestinn til að kæra,” sagði Eggert Haukdal í morgun. -KMU. Sigurður Björnsson viö upptökur á flötinni við heimili hundurinn Sebastian. sitt á Flateyri. Myndefnið heitir Þórný Hlynsdóttir og DV-mynd KAE í I i Það er óvenjulegt úrvalið á mynd- bandaleigunum á Flateyri. Viö hliðina á spólum þar sem Jane Fonda, Robert Mitchum og Strumparnir skreyta framhliðarnar getur að líta spólur með handskrifuðum vísbendingum um inni- haldið: Árshátíð frystihússins, Sjó- mannadagurinn I og II, Leikfélag Flat- eyrar/upplestur og söngur, Barna- heimilið og svo mætti lengi telja. Þess- ar heimageröu spólur kosta það sama í útleigu og stjörnufióðin af meginlönd- unum og eru ekki síður vinsælar. „Eg er með 10 spólur í útleigu núna,” sagði Sigurður Björnsson, framleið- andi myndbandanna. „Þetta eru helstu uppákomur sem veröa hér i bænum, jafnvel þrjár til fjórar á einni spólu. Upphaflega var þetta tóm- stundagaman hjá mér en svo var fólk alltaf aö koma til min og fá efniö lánað þannig að ég skellti mér í útleigu.” Annars stundar Sigurður Bjömsson sjóinn og er nú að spara fyrir fullkomn- ari upptökutækjum en hann hefur yfir að ráöa þessa stundina. — En hvaða spóla er vinsælust? „Upptökur á barnaheimilinu eru pottþéttar i útleigu. Fólk er alltaf spennt fyrir aö sjá krakkana sína,” sagðiSigurður. -EIR. Dómsmálaráðherra bannar bjórlíkið Fæði, húsnæði ogvasa- peningar — neytendurbls.8 Sigurjón Ristog vatns- skorturinn — sjá bls. 5 DSnsk vínarbrauðí Bolungarvík — sjá bls. 11 • Handklæði íBláalóninu — lesendurbls. 14 Evrópumótið íhesta- iþróttum -bls.2 „Fjarlægur draumur” Einar Vilhjálmsson íEvrópuúrvalið — íþróttirbls. 17 sjá baksiðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.