Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Blaðsíða 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Thatcher
nær lent
íflug-
slysi
Margaret Thatcher, forsætisráö-
herra Bretlands, er sögö hafa veriö
mjög hætt komin í síöasta mánuöi þeg-
ar þyrla, sem flutti hana til Heathrow-
flugvallar, haföi nær orðið í vegi far-
þegaflugvélar, Boeing 757, sem var að
byrja flugtak.
Boeing-vélin var á leið til Frankfurt
meö 126 farþega þegar flugstjórinn tók
eftir þyrlunni og sá að hverju mundi
stefna. Meö því aö nauðhemla og hætta
við flugtak afstýröi flugstjórinn
árekstri og náöi þó aö halda vélinni á
flugbrautinni.
Thatcher var meö 6 manna starfsliöi
sínu á leið til flugvallarins til þess að
taka þaðan þotu td Washington. —
Bresku blöðin segja aö henni hafi ekki
veriö kunnugt um hve tæpt hafi þarna
staðið.
Útlend-
ingum
vísað
Hér stekkur einn djarfhuginn fram af Tröllaveggnum.
Fallhlífin brást og hann
stökk beint út í dauðann
burt úr
Líbýu
Hinir fyrstu úr hópi 100 þúsund
egypskra farandverkamanna, sem
vísað hefur veriö brott frá Líbýu, eru
komnir heim tU Egyptalands. 830
Egyptar komu til Alexandríu fyrir
helgi. Þeir komu sjóleiðina. Aðrir 500
komu meö vörubílum yfir landamærin.
Það hefur verið grunnt á því góða
mUli Egyptalands og Líbýu allar götur
frá því í striðinu við Israel 1973 (tU
átaka kom á landamærum þeirra 1977)
og hefur ekki lagast við þetta.
Stjórnin í Trípólí hefur vísaö 10
þúsund verkamönnum frá Túnis burt
úr Líbýu og um þúsund Malíumönnum
á síöustu mánuðum. Hin opinbera
fréttastofa Líbýu segir að afráðið hafi
verið aö bjóða útlendum verkalýð að
gerast líbýskir rUíisborgarar en ella
verði þeir að fara úr landi. — Stefnt sé
að því að Líbýa veröi minna háð
erlendu vinnuafli.
Fjórtán
þúsund
prósent
verðbólga
Þjóðhagsstofnun Bólivíu í höfuö-
borginni La Paz sagði í gær að verð-
bólgan í landinu hefði aldrei verið
hærri en í síöasta mánuði, aUs 14.173
prósent. Þarf ekki að taka fram
að bóUvísk verðbólga er sú mesta í
heimi.
Á ársgrundveUi hefur verðbólgan
verið um 8.926 prósent.
Nýr forseti Bólivíu, sem eiðsvarinn
var fyrir tíu dögum, Victor Paz
Estenssoro, hefur í boðskap sínum
sagt að viðfangsefni ríkisstjórnar hans
verði baráttan viö óðaverðbólguna.
„Við verðum að ná verðbólgunni niður
tU að afstýra algerum glundroða í
efnahagsmálum,” segir forsetinn.
Nítján ára gamall Gautaborgarpilt-
ur, Jörgen Hákonsson, hrapaöi til bana
þegar hann ætlaði að reyna fallhlífar-
stökk fram af Tröllaveggnum í Noregi.
FallhUf hans opnaðist ekki.
Hrapaði hann þúsund metra áður en
hann kom niður í björgin og valt síðan
niður 700 metra háa urð.
Ásamt þremur öðrum sænskum fé-
lögum úr Fallhlífarstökksklúbbi
Tröllaveggurinn i Noregi fyrir
miflju. Krossarnir sýna göngu-
leiðina upp ó tindinn. Þarna hafa
orflifl slys oftar en einu sinni áflur.
Gautaborgar ætlaöi Hákonsson að
stökkva af TröUaveggnum sem fleiri
djarfhugar hafa gert en ekki alUr
sloppið heilskinna frá.
Einn félaganna, Andreas Collin, fór
fyrstur og að hætti þeirra sem stökkva
í fallhlífum fram af björgum, lét hann
sig falla nokkur hundruð metra áður
en hann opnaði falUUifina. Lending
Andreasar gekk vel.
Jörgen fór næst og sjónarvottar sáu
að hann lét sig sömuleiðis faUa mörg
hundruð metra án þess að opna fallhUf-
ina. Þegar hann loks opnaði hana voru
snúrur greinilega flæktar svo að hlífin
breiddist aldrei út.
AUir fjórmenningarnir eru þraut-
reyndir fallhlífarstökkvarar sem hafa
stundað þessa háskaíþrótt í nokkur ár.
Dóttirin bjargaði móðurinni
f rá því að missa meðvitund
Kona, sem missti eiginmann sinn og
tvö böm í flugslysinu í Japan á
dögunum, segist hafa komist af vegna
þess að dóttir hennar Utla hafi haldið
henni vakandi á meðan hún beið
hjálpar.
Hiroko Yoshizaki (35 ára) og 8 ára
dóttir hennar Mikiko eru tvær þeirra
f jögurra, sem komust Ufs af úr slysinu
þar sem 520 manns fórust með
JALþotu.
Það tók björgunarsveitir 15
klukkustundir að komast á slysstað og
finna þessar fjórar, en þær höfðu aUar
setið aftarlega í flugvélinni. Hiroko
braut í sér þrjú rif og kjálka, en
dóttirin vinstra mjaðmarbein og eitt
rif.
„Nokkrum sinnum var ég að því
komin að tapa rænu, en Mikiko sagði
jafnan: „Móðir, ef þú sofnar þá
deyrðu. Hún hélt mér vakandi með
skrafi,” sagði móðirin við fréttameim.
Það er haldiö, að fjögur til viðbótar
úr flugvélinni hafi verið lífs, eftir að
vélin var lent á fjalUnu, en þeim hafi
borist björgunin of seint.
Sérfræðingar, sem vinna að rann-
sókn slyssins, eru nú orðnir vissir
um að stélhluti hafi brotnaö af. Þeir
segja óUklegt að flugstjórinn eða
áhöfnin hafi getað vitað hvað að var
þegar þeir í hálfa klukkustund börðust
við að reyna að fljúga vélinni, eftir að
stélið vantaði. Flugstjórinn hélt að
bilun væri í afturhurð vélarinnar, en
hún reyndist vera á hjörum í brakinu.
Reyna að koma Rainbow
Warrior aftur á flot
Floti Nýja-Sjálands segist ætla að
freista þess að koma Rainbow
Warrior, skipi grænfriðunga, aftur á
flot. Hafist var handa við að dæla úr
skipinu í nótt og ætlunin að reyna að ná
því upp á seinna flóðinu í dag.
Kafarar flotans hafa komið þrettán
flothylkjum fyrir í skipinu en skipið
„er aUt í götum” að því er talsmaður
flotans sagöi og vildi ekki lofa árangri.
Björgunarmenn hafa unnið á
vöktum 24 stundir sólarhringsins við
að undirbúa björgun Rainbow Warrior
síðan honum var sökkt í höfninni í
Auckland á Nýja-Sjálandi með
sprengingu. — Grunur leikur á að það
skemmdarverk hafi verið unniö að
undirlagi frönsku leyniþjónustunnar.
Rainbow Warrior átti að sigla í
fararbroddi mótmælaflota sem ætlaði
til Mururoa-eyja tfl að andmæla kjama-
vopnatilraunum Frakka þar. —
Dráttarbáturinn Greenpeace mun fara
ístaöinn.
Skipstjóri Rainbow Warrior hefur
sagt að vonlaust sé að ætla sér að
reyna að gera skipið sjóklárt aftur svo
skemmt sem það sé.