Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Blaðsíða 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Elísabet Englandsdrottning og
Díana tengdadóttir hennar voru
virkilega hneykslaðar i garö-
velsiu sem haldin var í garðinum
við Buckingham höliina nýiega. 1
veislunni voru um 8000 gestir en
einn af starfsraönnum hallarinn-
ar sást í sólbaði á nærbuxunum
einum fata. Þetta þótti þeim
stöllum alls ekki við hæfi i svona
miklu f jölmenni og voru, eins og
fyrr segir, virkilega hneykslað-
ar. _______
Þær sögur gengu fjöllunum
hærra fyrir Live Aid hljómleik-
ana að Bítlarnir mundu koma
fram með Julian Lennon í stað
föður hans. Paui mun hafa verið
upphafsmaður að þvi að reyna að
fá Ringo og George til að koma
fram á Live Aid. Þeir neituðu
báðir og er Paul æfur út í félaga
sína fyrir vikið, svo reiður er
hann að hann segist efast um að
hann tali nokkurn tima við þá
framar. Ástæðan fyrir þvi að
George vildi ekki spila var að
hann var hræddur um að á sig
yrði ráðist. Ringo sagðist hins
vegar vera orðinn of ryðgaöur í
trommuleiknum til að berja
trommurnar fyrir framan miilj-
ónir.
Fyrir nokkru sögðum við frá
því að Linda Evans, Dynasty
leikkonan góðkunna, ætlaði að
troða upp sem söngkona á hóteli i
Atlantak í Bandaríkjunum. Nú
höfum við frétt að bún hafi bætt
við allt saman einfaldlega vegna
þess að henni fannst hún ekki
syngja nógu vel. Núna er Linda
kófsveitt í söngtímum og reynir
að ná tökum á sönglistinni því að
hún vill endilega taka tilboði hót-
elstjórans. Gestir hans verða
hins vcgar að bíöa enn um sinn
með að fá að heyra „Krystal”
syngja nema hún gráti því að af
því gerir hún töluvert í þáttunum
að því er við best vitum.
Rick Springfield
hélt hjónabandi
sínu leyndu í ár
— óttaðist að tapa vinsældum
Rokkstjarnan Rick Springfield gekk
í hjónaband fyrir tæplega ári, brúð-
kaupiö fór fram með mikilli leynd og
hefur Rick viöurkennt að ástæðan hafi
verið sú að annars óttaðist hann aö
missa kvenaðdáendur sína.
Eiginkona Ricks heitir Barbara
Porter og fylgir hún honum þegar hann
fer í hljómleikaferðir vítt og breitt um
Bandaríkin. Hún mun vera ófrísk
þannig að nú tekur hún lífinu með ró og
er hætt að vinna á snyrtistofunni þar
sem hún vann áður. Þeim hefur tekist
vel aö varna því að f jölmiðlar fjalli um
hjónaband þeirra. Aðalástæðan fyrir
leyndinni var, eins og fyrr segir, að
Rick óttaðist að stelpurnar, sem fylla
aðdáendaklúbba hans, mundu verða
honum andsnúnar. Hann sagði sjálfur:
„Ég gæti eyðilagt ímyndina sem ég hef
skapaö mér meðal stúlknanna sem eru
stór hluti af milljónum aödáenda
minna.”
Þegar þau Barbara og Rick gengu í
það heilaga í fyrrahaust voru aðeins
nánustu ættingjar viðstaddir og lofuðu
þeir að segja engum frá. BrúMijónin
flugu síðan heim til Bandaríkjanna
hvort í sinni flugvélinni, en Rick er frá
Ástralíu og þar fór brúðkaupið fram.
Rick hótaði að reka hvern þann úr
starfsliöi sínu sem mundi kjafta frá því
i lausu lofti.
DV-myndir PK.
Takið ykkur stöðu.
Stelpur stinga sér
Á góðviðrisdögum er jafnan líf og fjör í sundlaugum borgarinnar, sumir
fara bara i sólbað, aðrir i pottana og sumir fá sór sundsprett. Ljósmyndari
DV bró sór i Laugardalslaugina, fór samt ekki ofan í en fylgdist með mann-
lífinu þar. Hann tók þessar myndir af ungum sunddrottningum sem sefðu
sig í að stinga sór sem fagurlegast. Árangurinn sjóum við ó meðfylgjandi
SJ.
tiflfn *** tf* *,i*r -»•» mmmm-
Rick Springfield ó sviði. Stelpurnar
reyna að komast sem næst goðinu.
Hvað ætli þær segi nú þegar í Ijós
kemur að hann er harðgiftur
maður.
9
Barbara, eiginkona Ricks.
I að hann væri kvæntur maður. Umboðs-
maður Rick hefur neitaö því alfarið að
Rick væri kvæntur og sagði hann m.a. í
viötali við bandarískt tímarit síðast í
júlí að Rick hygöist alls ekki ganga í
hjónaband á næstunni. Sannleikurinn
hefur hins vegar komiö í ljós eftir
öðrum leiðum og vinir Barböru hafa
sagt að þetta sé eins og í ævintýri.
Unga, fátæka stúlkan hittir stjörnu,
þau verða ástfangin, giftast og eignast
síðan barn og lifa hamingjusöm þar til
yfir lýkur. Það er ekki hægt annað en
að vona það besta, enda engin ástæða
til annars.
Splash. Komnar ofan í eftir vel heppnaða tilraun
Frá Tónlistarskólanum
f Reykjavík
Inntökupróf í tónmenntakennsludeild verða fimmtudag-
inn 29. ágúst kl. 13.00 í Skipholti 33.
Nánari upplýsingar um nám og inntökuskilyrði eru gefnar
á skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
.l/ll/IAai/IAV T8Y3J HUT3Ð VO í OUIS8ÝJÐUA-ÁM8
blidbBgniaylguBBmS
T7
SSOYS imia -