Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Side 12
12
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. AGUST1985.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON.
Fréttastjórar: JÓNAS HAR ALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SfMI 686611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA33. SlMI 27022.
Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsinqar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SlMI 27022.
Sími ritstjórnar: 686611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍOUMÚLA 12.
Prentun: Árvakurhf.,
Áskriftarverð á mánuöi 360 kr. Verð f lausasölu 35 kr.
Helgarblaö40kr.
Hættuleg staða
Nú stefnir í mikinn halla á ríkissjóöi í ár, Forsendur
fjárlaganna eru gjörbreyttar frá því þau voru samþykkt í
vetur. Þessi tíöindi vekja ótta um, að ríkisf jármálin eitri
efnahagsmálin, leiði til meiii verðbólgu og síðan gengis-
fellingar og kaup „sprengingar” upp úr áramótum.
Miklar sveiflur hafa verið í ríkisfjármálunum. I fyrra
varð 1,6 milljarða afgangur, en 1,4 milljarða halli í hitti-
fyrra. Gert var ráð fyrir 700 milljón króna halla í ár. Nú
segir Albert Guðmundsson fjármálaráðherra, að stefni í
halla upp á 2—2,5 milljarða króna.
Hvemig á að mæta þessum halla? Það er brennandi
spurning. I svörum við henni mun koma í ljós, hvert
stefnir í efnahagsmálum almennt.
Ein leiðin væru skattahækkanir.
Það yrðu þá skattar, sem skiluðu ríkissjóði tekjum
strax á þessu ári.
Albert Guðmundsson segist nú „helzt ekki” vilja
skattahækkanir.
Þar dregur Albert úr fyrri andstöðu við nýja skatta.
Áður minnast menn þess, að fjármálaráðherra hafi talaö
um að segja fremur af sér en samþykkja skattahækkanir.
Landsmenn eru þegar of skattpíndir. Skattar, lagðir á
síðla árs, eru auk þess oft óheiðarleg aðferð við innheimtu
ríkistekna. Tökum til dæmis hugsanlegan „skyldusparn-
að á hátekjur”, sem mun ein sú leið, sem stjórnarliðum
kemur fyrst í hug. Sá skattur yrði þá lagður á síðustu
mánuði ársins til viðbótar þeim tekjuskatti, sem greið-
endur eiga ella að borga. Þarna yrði komið aftan að fólki.
Þessir skattar tíðkuðust nokkuð í tíð Matthíasar Mathies-
en sem fjármálaráðherra. Skyldusparnaður á hátekjur
lenti þá gjarnan á fólki með miölungstekjur. Eftir tals-
verðar umræður um þessa skattheimtu urðu flestir þeirr-
ar skoðunar, einkum sjálfstæðismenn, að slíkum skatti
væri ekki bót mælandi.
Ríkisstjórnin á ekki hægt um vik að hækka enn sölu-
skatt, ofan á nýlega hækkun hans. Verðbólgan stefnir nú
þegar framyfir „rauðu strikin”, sem síðustu kjarasamn-
ingar miðuðust við. Ölíklegt er, að launþegar teldu það
sér til bóta að auka verðbólguna til að minnka halla á
ríkissjóði.
Að öllu athuguðu verður að fara aðra leið en skatta-
hækkanir. Skatta á að lækka. Ríkisstjórnin verður að
standa við fyrirheit um að afnema tekjuskatt af almenn-
um launatekjum á næstu tveimur árum.
Önnur leið væri erlend lántaka til að mæta hallanum á
ríkissjóði.
Nýjar aðferðir við útreikning þjóðarframleiðslu hafa
lækkað hlutfall erlendra skulda af framleiðslunni. En
þetta er bara leikur með tölur. Erlendar skuldir eru alltof
miklar og horfir í óefni. Sú kynslóð, sem nú ræður, má
ekki leggja meiri slíkar byrðar á komandi kynslóðir.
Fjármálaráðherra telur, að hluta af hallanum nú megi
mæta með afganginum, sem varð í fyrra. En í fyrra ætl-
aði ráðherrann að mæta hallanum í hittifyrra með af-
ganginum í fyrra. Sama krónan verður ekki notuð til
hvors tveggja. Albert segir í DV, að með einhverjum
hætti verði „að brúa bil upp á 1—1,5 milljarða króna.”
Svarið er, að bezta leiðin til að brúa bilið er með niður-
skurði ríkisútgjalda. Þá þarf ekki nýja skatta og unnt er
að hafa hemil á erlendum lántökum. Sjálfstæðismenn fá
enn tækifæri til að skerða „báknið”.
Haukur Helgason.
RAÐHERRANN
Á AÐ VÍKJA
Fyrsta skrefið
Hjá öðrum siðuðum þjóðfélögum,
þar sem gerðar eru kröfur til þeirra
sem til forystu veljast, hefði ráð-
herra, sem framið heföi slíkar
gerðir, verið látinn víkja sam-
stundis. En slíkt er ekki til siðs á Is-
landi. Það er nærri því sama þó
ekkert standist af því sem þessir
ráðamenn segja eða lofa. Þeir geta
setið eftir sem áður. Eða hver man
ekki orð Alberts um erlendu skuld-
irnar, um stöðu ríkisfjármálanna í
ársbyrjun 1984 og svo mætti lengi
telja. I dag standa ríkisfjármálin
verr en nokkru sinni og skuldasúpa
ríkisins hefur aldrei verið meiri.
Viðskiptahallinn er gífurlegur og
talið að 500 milljóna gat verði á f jár-
lögum þó skorið verði niður um 2 til 3
milljaröa. Er sjálfstæðismönnum
ekki farið að blöskra? Það minnsta
sem þeir gætu gert væri að veita Al-
„Hjé öðrum siðuðum þjóðföiögum, þar sam gerðar aru kröfur til þeirra bert lausn frá stöðu fjármálaráð-
sem til forystu veljast, hefði róðherra, sem framið hefði slikar gerðir, herra. Það gæti orðið fyrsta skrefið.
verið látinn vikja samstundis." Kári Arnórsson.
Fátt hefur borið meira í orð síðusti
dagana heldur en sala fjármálaráð
herra á hlut ríkisins í Flugleiöum
Þar var réttilega um fjármála
hneyksli að ræða. Það vekur reyndai
furðu hve fjármálaráöherra hefui
tekist aö halda sér á floti miðað vifi
að í hans ráðherratíð hefur verið
meiri óstjóm á fjármálum ríkisins
en í tíð nokkurs annars er farið hefur
með þau mál. Salan á hlutabréfum
ríkisins er eitt dæmið enn til að sýna
hvernig ráðherrann fer með þá fjár-
muni sem honum er trúað fyrir.
Salan hneyksli
Fram til þessa hefur það þótt sjálf-
sagður hlutur að ríkið ætti hlut í
stærsta flugfélagi landsins, ekki síst
vegna þess hve það hefur verið háð
stuðningi ríkisins. Einnig hefur verið
litið til þess aö Islendingar eru mjög
háðir fluginu um allar samgöngur
við útlönd og Flugleiðir höfðu til
skamms tima einokunarstööu á
þessu sviði. Hjá fjöldamörgum
þjóðum er það taliö eðlilegt aö riki
eigi hlut að slíkum stórrekstri í
samgöngum. Þar er þaö taliö trygg-
ing en ekki trafali. En hvaða skoðun
sem menn hafa á eignarhlut ríkisins
þá er sala nefndra bréfa hneyksli,
hvernig sem á er litið.
Þegar ákveöið var að selja bréfin
var ábyrgur aðili fenginn til að
Að gæta fjármuna
ríkisins
Flugleiðamenn sáu það fljótt í
hendi sér að hér var um gjafverð að
ræða, aöeins 30 milljónir króna
þegar dæmið hafði verið reiknað til
enda. Þeim var því mjög í mun að
kaupin gengju sem fyrst fyrir sig svo
aðrir kæmust ekki í spilið. Birkir
hafði haft ákveðinn frest á sínu til-
boði. En nú var komið annað tilboð
sem var hærra svo ráðherra lá því
ekki á með söluna þó tilboð Birkis
rynni út. En þess skyldi ekki beöið að
fleiri kæmust í málið og ávísunin var
skrifuð og bréfin seld. Sem betur fer
var þetta hneyksli allt filmað sem
verður vonandi öðrum til viðvörun-
ar.
Þegar menn líta á eignir Flugleiða
í flugvélum, skrifstofuhúsnæði og
búnaði og hótelum (Loftleiðir, Esja)
geta menn gert sér í hugarlund hvort
slíkt muni ekki vera meira en 150
milljóna króna virði. Jú, svo sannar-
lega. Fimmti hluti af eignum Flug-
leiða fyrir 30 milljónir er gjafvirði og
ófyrirgefanlegt af ráðherra, sem
treyst er fyrir eignum ríkisins, að
fara þannig með þær.
Það hlýtur því að vekja furðu aö
Haukur Helgason skuli í leiðara DV
siðastliöinn fimmtudag verja þessar
gerðir ráðherrans eða skyldi það
vera tilviljun að slík varnarræða
skuli koma fram um leið og tvær
harðorðar kjallaragreinar birtast
um málið. Var einhvers staðar kippt
íspotta?
gH „Fimmti hluti af eignum Flug-
w leiöa fyrir 30 milljónir er gjafvirði
og ófyrirgefanlegt af ráöherra, sem
treyst er fyrir eignum ríkisins, að fara
þannig meö þær.”
Kjallarinn
KÁRI
ARIMÓRSSON
SKÓLASTJÖRI
leggja á þau mat. Niðurstaðan varð
sú að þau skyldu seld á niföldu nafn-
verði eða kr. 63 milljónir. Flugleiða-
menn létu hafa eftir sér að þetta verð •
væri alltof hátt en f jármálaráðherra
sat við sinn keip enda trúlegt
að þetta verð sé sanni nær. Svo gerist
það sem alþjóð veit að boð kemur í
bréfin með þessu heildarverði og
takmarkaðri útborgun og afgangur-
inn vaxtalaus og óverðtryggður til
átta ára. Fjármálaráðherra gefur
strax í skyn aö hann muni taka þessu
boði og þá eru Flugleiðamönnum
veittar upplýsingar um tilboðsskil-
mála svo þeim sé unnt að bjóða betur
og raunar buöu þeir þrem milljónum
meira en upp var sett. Allur þessi
framgangsmáti hefur verið rækilega
ræddur af öörum og sýnt fram á
hversu gersamlega siðlaust þetta er
og skal ekki endurtekið hér. Um hitt
hefur verið minna rætt hve lítið
fékkst fyrir hlut ríkisins.