Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Síða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. AGUST1985. Mér f innst Eggert vera að brevta tölum „Ég vildi athuga betur ýmsa út- reikninga varðandi félagsheimilið. Okkur hefur ekki komiö saman varð- andi útreikninga á þessu,” sagði Har- aldur Júlíusson, annar af kjörnum end- urskoðendum hreppsreikninga Vestur- Landeyjahrepps. Haraldur hefur ekki skrifað undir reikninga síðasta árs. Haraldur sagði að málið snerist einkum um kostnaðarhlutdeild ung- mennafélags og kvenfélags sveitarinn- ar vegna stækkunar félagsheimilisins Njálsbúðar. Haraldur kvaðst hafa ver- ið ósáttur við útreikninga Eggerts Haukdal. Eggert hafði þá lagt fram nýja útreikninga í vor. Samþykktir með eðlilegum hætti — segir Eggert Haukdai oddviti um hreppsreikningana „Það hafa verið samþykktir hér reikningar með eðlilegum hætti og endurskoðaðir, bæði af hreppsnefnd og sýslunefnd,” sagði Eggert Haukdal, oddviti í Vestur-Landeyjum og alþingismaöur, í samtali viö DV í gær. „Það liggja engar athugasemdir fyrir um hreppsreikningana. Og meöan það liggur ekki fyrir athuga- semd við reikningana þá hljóta þeir aö vera á meðan eðlilegir og samþykkt- ir.” — Annar endurskoðandinn hefur ekki skrifað undir. „Það liggur engin athugasemd fyrir umreikningana.” — En hvers vegna hefur hann ekki skrifaðundir? „Það er ekki mitt mál. Það liggur einfaldlega engin athugasemd fyrir um hreppsreikningana 1984.” — Er eðlilegt að afgreiða reikning- ana án þess að báðir endurskoöendur hafi skrifað undir? „Sýsluendurskoðendur hafa jafn- framt athugað reikningana og ekki fundið athugasemdir. Endurskoðendur fara yfir reikninga og skrifa á þá ýmist athugasemdalaust eða með athuga- semdum, eftir því sem við á, og það hlýtur að liggja í augum uppi aö skili endurskoðandi ekki athugasemdum þá hefur hann ekkert við reikninginn aðathuga.” — En þarf hann ekki samt að skrifa undir? „Trúlegt er nú það en málið liggur „Eg vildi fá betri tíma til að bera þetta allt saman. Or því að það voru komnir tveir útreikningar frá Eggert yfir sama hlutinn fannst mér ekki hægt aö skrifa undir reikningana orðalaust. Mér finnst hann vera að breyta töl- um. Hans útreikningar passa ekki við reikningana.” — Er hugsanlega eitthvað saknæmt á ferðinni? „Eg veit það ekki. Það vill hver koma af sér kannski. Hann vill láta — segir endurskoð- andinn sem skrifaði ekki undir hreppsreikningana ungmennaf élagið og kvenfélagið borga meira. Eg er í stjórn ungmennafélags- ins og vil kannski draga úr því sem ungmennafélagiö á að greiða. En ég vil að mínir útreikningar passi við bygg- ingarreikninga en oddviti vill hækka hlut aöildarfélaganna,” sagði Harald- ur Júlíusson. -KMU. • Eggert Haukdal, oddviti og alþingis- maður. svona fyrir.” — Getur verið að hann sé ekki búinn að skrifa undir vegna þess að hann er ennþá að athuga reikningana? „Það er nú ekki margra mánaða verk aö athuga reikninga. En sem sagt. Það fylgja ekki athugasemdir reikningunum.” — Eru menn sáttir varðandi reikn- inga um félagsheimilið? Hafa engar athugasemdir komið fram við þá? „Þessi endurskoðandi hefur endur- skoðað reikninga hreppsins í mörg ár án athugasemda. Og ef allt í einu eru athugasemdir í dag þá eru einhverjar athugasemdir við endurskoðandann. En svo er ég út af fyrir sig ekki í neinni yfirheyrslu hjá þér um þetta mál. ” — En er samt ekki dálítið skrýtið að afgreiða reikningana án þess að hann skrifi undir? „Það liggur engin athugasemd fyrir. Þaðermálið.” — Þannig að þetta er allt í fína? „Þetta er svona eins og gengur. Það getur verið meiningamunur um hluti.” — Hvaða meiningamunur er þarna? „Þetta er bara almennt og eins og yf irleitt gerist í málum. ’ ’ — Finnst þér ekkert óeðlilegt að reikningarnir fari frá ykkur án þess að báðir endurskoðendurnir skrifi undir? „Það sem er meginmálið er að það liggur ekki fyrir athugasemd um þá og þá er allt í lagi með þá,” sagði Eggert Haukdal. -KMU. Algjör valdahroki í Eggerti Haukdal segir Snorri Þorvaldsson hreppsnefndarmaður „Þetta er algjör valdahroki í Eggert, algjör að minu mati,” sagði Snorri Þorvaldsson, hreppsnefndarmaður í Vestur-Landeyjum, í samtali við DV í gær. „Hann ætlar sér að nota afl sitt og atkvæði til þess aö keyra okkur niður. Eg benti íbúum hreppsins á það á fundinum í gær að ef þetta mál færi svona þá væri enginn grundvöllur til samstarfs í þessum málum og enginn grundvöllur til þess aö starfa með hon- um. Eggert boðaöi fundinn í Njálsbúð í gær. Eg var á móti því að farið væri með þetta mál til hreppsbúa. Eg vildi reyna að jafna ágreininginn innan hreppsnefndar. En hann heimtar stríð, kallinn, eins og hann þrífst á. Hann hefur aldrei náö neinum árangri nema að hafa einhverja spennu í loftinu og blandar þá öllu inn í. Eggert lítur bara á þetta sem árásir á sig og talaði um að þaö væri ár í kosningar eða tæplega það og blandar því svona svipað inn eins og þegar um prestsmálið er að ræða; þetta sé bara pólitík. Kjarni málsins eru reikningar sem snerta félagsheimiliö Njálsbúð. Þeir eru rangir að okkar mati. Á hreppsnefndarfundi kvartaði ég undan afgreiðslu á reikningunum vegna þess að ég taldi ekki rétt að farið gagnvart sveitarstjórnarlögum. Eg taldi mér ekki fært að skrifa undir reikningana á þeim forsendum aö það vantar undirskrift annars endurskoðandans. Hinn skrifaöi undir. Sá taldi sig ekki þurfa að gera meir. En Haraldur Júlíusson, þurfti að kanna betur nýja pappíra sem honum höfðu borist. Það ætlaði hann að gera í samráöi við oddvita, er mér sagt. Á hreppsnefndarfundinum fór ég fram á tvær umræður um reikninginn. En þá bar Eggert reikninginn upp til samþykktar og meirihlutinn sam- þykkti hann. Eg mótmælti þessu og óskaði ^ftir því að það yrði bókað eftir mér og gerði það munnlega. Eggert óskaði eftir því að ég gerði það skrif- lega. Eg skrifaði það niður á blað. Þegar ég lét ritarann fá það þá lét Egg- ert ritarann líka fá blað frá sér og þaö var sú bókun sem var færð inn í fundargerðarbókina. Ég fékk ekki bók- un mina skrifaða. Eg óskaöi þá eftir því að fá að hripa niður nokkrar athugasemdir undir nafnið mitt um leið og gengið yrði frá fundargerðinni en hann neitaði mér um það. Þá sá ég ekki ástæðu til frekari umræðu um þetta og neitaði að skrifa undir fundargerðina. Það er þetta sem ég fann að til ráðuneytis og síðan sýslumanns því aö það er sýslu- maður sem sér um svona litla hreppa. Þetta kallar Eggert kæru og svo heldur hann fund til að skammast út af þessu. Þennan fund hélt Eggert til að sýna fram á að ég færi rangt með og að ég væri að kæra sig og annaö. Eg held að fólk trúi því að maöur óskar ekki eftir tveim umræðum um reikninga sem búið er aö samþykkja. Eg óskaði eftir því að sjálfsögðu áður en reikningurinn var borinn upp en Eggert vill meina að ég hafi gert það of seint, að það hafi verið búið að bera hann upp. En það er rangt hjá honum. Á fundinum í Njálsbúð hélt Eggert fyrst klukkutíma ræðu um reikningana en síðan byrjaði reiðilesturinn og hann var mjög persónulegur. Sérstaklega fékk endurskoðandinn mikla ádrepu sem mér þótti afskaplega einkennileg því að ég held að hreppsbúar hljóti að fagna því ef endurskoðandi fer vel ofan í reikninga. En oddviti cr víst ekki ánægður með það,” sagði Snorri Þor- valdsson. -KMU. í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Bandalag jafnaðarmanna Bandalag jafnaðarmanna er flokk- ur sem varð til fyrir frumkvæði Vil- mundar heitins Gylfasonar. í þing- kosningunum fyrir tveimur árum náði flokkurinn fjórum mönnum inn á þing sem verður að telja verk Vil- mundar heitins enda gustaði af þeim manni af því hann vissi hvað hann vildi. Eftir að Vilmundur féll frá hefur Bandalaginu ekki verið spáð löngum líf dögum og satt að segja ekki gott að átta sig á því hvaða erindi flokkurinn á þegar foringinn er fallinn. Þeir f jórir þingmenn sem á Alþingi sitja hafa undanfarna tvo vetur gert heiðarlega tilraun til að vekja á sér athygli. Aðallega hefur málflutning- ur þeirra gengið út á það að yfirbjóða Sjálfstæðisflokkinn til hægri en minna farið fyrir jafnaðarstefnunni sem flokkurinn kennir sig við. Almenningur hefur kært sig kollóttan hvoru megin hryggjar Bandalagið liggur enda engir kjós- endur fundist sem styðja það hvort sem er. Menn hafa frekar litið á athafnir fjórmenninganna í þinginu sem egotripp sérvitringa sem fyrir slysni eru komnir á þing um stundar- sakir. Það bar því til nokkurra tíöinda þegar það fréttist að til væri fólk sem kenndi sig við Bandalagið og hefði á því skoðun hvaða pólitik flokkurinn ræki. Þessi hópur telur sig jafnaöar- menn en hefur komist að þeirri niðurstöðu að þingmenn flokksins og formaður hafi orðið viöskila við þá stefnu. Fullyrða þeir að frjálshyggj- an hafi orðið ofan á i málflutningi og málatilbúnaði þingflokksins. Það er auðvitað vel skiljanlegt að fólk geri athugasemdir þegar það kannast ekki við flokkinn sem það er í eða stefnuna sem hann rekur. Það er vitaskuld slæmt þegar kjósendur tína þannig flokknum sinum og flokkurinn þeim. AUt hefur þetta leitt til klofnings í röðum þeirra einstaklinga sem telja sig aðstandendur Bandalags jafnaðarmanna. Hafa þeir séð ástæðu til að stofna sérstakt félag, Félag jafnaðarmanna. Næst liggur fyrir að hinn armurinn í Bandalag- inu stofni líka sitt félag, Félag frjáls- hyggjumanna. Þegar þeirri félags- stofnun er lokið ættu bandalagsmenn að geta haldið ró sinni enda er þeim þá í lófa lagið að bjóða fram hvor í sinu lagi í næstu kosningum til að fá úr því skorið hvar Bandalag jafnaðarmanna stendur f pólitíkinni. Nú er það að vísu svo að til er flokkur í landinu sem kennir sig við jafnaðarstefnuna. Sá heitir Alþýöu- flokkur. Og svo er annar flokkur í landinu sem styður frjálshyggjuna. Sá heitir Sjálfstæðisflokkur. Úr því að meðlimunum í Bandalagi jafnaðarmanna, sem telja sig styðja aðra hvora þessa stefnu, vilja ekki stytta sér leið og ganga í Alþýðuflokk eða Sjálfstæðisflokk, er ekki um annað að ræða en að berja á hver öðrum þangað til úr því fæst skorið hvert Bandalagið stefnir. Það hlýtur hins vegar að vera nokkuð kyndug staða í pólitikinni að vera i flokki, sem maður veit ekki hvað vill, allra helst ef það kemur í ljós, að flokkur- inn hefur villt á sér heimildir með rangri nafngift. Nú verða þingmennimir að gera það upp við sig hvort sé betra fyrir þá að styðja áfram frjálshyggju- stefnuna, sem þeir hafa gert að sinni, eða hvort þeir vilja styðja jafnaðar- stefnuna sem kjósendur þeirra fylgja. Guðmundur Einarsson, sem er einn af frjálshyggjuþingmönnum Bandalags jafnaðarmanna, hefur af þessu áhyggjur. Hann átti ekki von á því að fólk væri að skipta sér af því hvaða skoðanir hann hefði. Allra síst fólkið sem er í flokknum. Hún er stundum þreytandi þessi pólitík. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.