Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Page 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST1985. 9 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur VEGAKORT í HANSKAHÓLFK) — í kortabúð Landmælinganna er úrval korta á boðstólum „Þetta er sama vegakortið og hefur verið í gangi undanfarin ár en er komiö í nýjan búning. Þessi út- gáfa hefur líkað mjög vel,” sagði Bragi Þðrarinsson í hinni nýju korta- verslun Landmælinga ríkisins að Laugavegi 178 í samtali við DV. Hann sýndi okkur nýja útgáfu af vegakorti af Islandi, í gormabók og handhægri stærð, sem hægt er að hafa í vasanum eöa í hanskahólfi bif- reiðarinnar. Það er mikil breyting frá gömlu vegakortunum sem allir þekkja en erfitt er að skoða í bíl nema þá að hálfeyðileggja það. Vegakortið er í stærðarhlutföllun- um 1:500000. Þar er að finna margar haldgóðar upplýsingar fyrir ferða- menn, m.a.s. hvaða vegir eru með varanlegu slitlagi og hverjir eru enn malarvegir. Þessi nýja útgáfa vega- kortsins kostar 305 kr. I kortabúðinni eru á boðstólum öll kort sem til eru af landinu í ýmsum mælikvörðum t.d. 1:250000 og 1:100000 o.fl. Hægt er að fá sérkort af mörgum landshlutum og síðan mjög nákvæm kort af fáeinum merkis- stöðum eins og Þingvöllum, Heklu, Vestmannaeyjum, Skaftafelli, Mývatni — Húsavík og Jökulsár- gljúfrum, Hornströndum, Reykja- vík, Þórsmörk og Landmannalaug- um. Það er nýjasta kortið og kostar 270 kr. Þá er hægt að fá níu hlutakort af öUu landinu í mælikvaröanum 1:250000 i sérstakri plastmöppu og kostarþað 2000 kr. Hægt er að panta loftmyndir af hvaða svæði landsins sem er með iitlum fyrirvara hjá Landmælingum Islands sem eru á III. hæðinni á Laugavegi 178. Tilvalið er að verða sér úti um sér- kort af þeim stöðum sem fólk ætlar sér að heimsækja í fríinu til þess að kynna sér umhverfið. I kortabúðinni er hægt að fá inn- römmuð kort. T.d. innrammað vega- kort rúmlega 5 þús. kr. og upphleypt kort í ramma 2.700 kr. A.Bj. Skinnið má mæla líka Þetta litla tæki varð á vegi Neyt- endasíðunnar á dögunum og vakti þá spurningu hvort þarna væri ekki á ferðinni handhæg lausn fyrir snyrti- vörubúðir og aðra sem láta sig yfir- leðrið á mannfólkinu einhverju skipta. Lítill málmsívalningur tengdur við aöaltækið er hafður í annarri hendi og haldið um hann þéttingsfast. Með öðrum skynjara, sem tengdur er við sama tæki, má síöan mæla rakamagn í yfirborði húðarinnar og kemur niður- staðan jafnóðum fram í glugga tækis- ins. Þannig má finna út hvaöa krem- tegundir henta best hverjum og einum og viðskiptavinir geta sjálfir séð um mælinguna og lesið niðurstööuna jafn- óðum. Ef slíkt tæki væri til í snyrti- vörubúðum til dæmis gæti það fækkað mistökum í vali á kremum og þannig sparaö neytendum fé því snyrtivörur eru ekki neysluvara í ódýrari flokknum. Tækið fannst hjá heild- versluninni Nunu og kostaöi rúmar fimm þúsund krónur. baj Tækið ar lítk) umfangs og mælir á andartaki þurrk og/eða rakamagn i yfir- borði húðarinnar. DV-mynd KA SNÆFELLS JÖKULS 5iitrar SKOLAÐUR VIKUR WASHED PUMICE Blómavikur til blöndunar í pottamold ^^xr^wrfcycc^/í't Lm / rvrwtt i Kornastærö 4—20 mm Blöndunarhlutfall 40% vikur, 60% mold Eykur loftstreymi að rótunum Bætir súran jarðveg Tvöfaldar þyngd sína með vatnsdrægni Miðlar vatni út í þurrki Ví t'' Jljj^ V>\° Jón Loftsson hf. Hringbrautl21 Símii0600 “ \V. <0^ 1»« ' yV1 °V'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.