Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Síða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGOST1985. 17 róttir Iþróttir íþróttir íþróttir Einar vaiinn f geysi- sterkt úrvalslið Evrópu sem . október Einar Vilhjálmsson var í gœr valinn í úrvalsliö Evrópu í heimsbikarkeppn- ina í frjálsum íþróttum, sem háð verð- ur í Canberra í Ástraliu í október. Það var Frjálsíþróttasamband Evrópu sem valdi Evrópuliðið en þar eru ekki keppendur frá Sovétrikjunum og Aust- ur-Þýskalandi. Þau lönd verða með landslið sin i keppninni og eins Banda- ríkin auk úrvalsliða heimsálfanna fimm. Það er stjömulið frábærra íþrótta- manna í Evrópuliðinu og mikill heiður fyrir Island aö Einar skuli valinn í það ásamt stórstjörnum eins og Sebastian Coe og Steve Cram, Englandi, Voronin, Póllandi, og Patrik Sjöberg, Svíþjóð. Þriðji Norðurlandabúinn í Evrópulið- inu er Ingrid Kristiansen, Noregi. I karlagreinum er úrvalslið Evrópu þannig skipaö: 100 m. Marian Voronin, Póllandi, 200 m. Ralf Liibke, V-Þýska- landi, 400 m Derek Redmond, Eng- landi, 800 m Sebastian Coe, Englandi, 1500 m Steve Cram, Englandi, 5.000 og 10.000 m Alberto Cova, Italíu, 110 m grindahlaup Gyorgy Bakos, Ungverja- landi, 400 m grindahlaup Harald Schmid, V-Þýskalandi. Hástökk Patrik Sjöberg, Svíþjóð, stangarstökk Philippe Collet, Frakk- landi, langstökk Laszlo Salma, Ung- verjalandi, þrístökk Christo Markow, Búlgaríu, kúluvarp Alessandro Andrei, Italíu, kringlukast Imrich Bugar, Tékkóslóvakíu, sleggjukast Frantisek Urbka, Tékkóslóvakíu, og spjótkast Einar Vilhjálmsson, Islandi. Kvennalið Evrópu Urvalslið Evrópu í kvennagreinum er skipað þessum konum: 100 m Anelia Nuneva, Búlgaría, 200 m Ewa Kaspszyk, Póllandi, 400 m verður síðar valið í hlaupið, 800 m Jarmila Krato- chilova, Tékkóslóvakíu, 1500 m Doina Melinte, Rúmenia, 3.000 m Maricica Puica, Rúmaiíu, 10.000 m Ingrid Krist- iansen, Noregi, 100 m grindahlaup Ginka Zagorchvea, Búlgaríu, 400 m grindahlaup Genowefa Blaszcsak, Póllandi. Hástökk Stefka Kostadinova, Búlgaríu, langstökk Vali Ionescu, Rúmeníu, kúluvarp Helena Fibinger- ova, Tékkóslóvakíu, kringlukast Zdena Silhava, Tékkóslóvakíu og spjótkast Fatima Wtitbread, Bretlandi. Keppnin í Canberra verður dagana 4.-6. október. Sovétríkin og Austur- Þýskaland unnu sér rétt i heimsbikar- keppnina þar sem löndin urðu í fyrsta og öðru sæti i Evrópubikarkeppninni i Moskvu um helgina. Það vekur athygli að sterkar frjálsíþróttaþjóðir eins og Finnar, Spánn, Portúgal og auk þess Júgóslavía, Holland, Belgía, Grikk- land, Sviss eiga engan fulltrúa í úrvals- liði Evrópu. Þar á eftir að velja í boðhlaupssveit- ir og í 4 X400 m boðhlaup kvenna hafa m. * Einar Vilhjálmsson. verið tilnefndar fimm konur. Jarmila hin tékkneska, sem ef til vill verður einnig valin í sjálft 400 m hlaupið, Rositsa Stamenove, Búlgaríu, Alena Bulirova, Tékkóslóvakíu, Kathy Cook, Bretlandi, og Heidi Gaugel, V-Þýska- landi. Ekki eru miklar líkur á að Oddur Sigurösson hafi verið tilnefndur í 4 x400 m boðhlaup. Bretar og V-Þjóð- verjar eiga svo snjalla hlaupara á þessari vegalengd. Zola Budd, sem sigraði svo eftirminnilega í 3.000 m hlaupinu í Moskvu, gaf ekki kost á sér í Evrópuliðið. hsim. „Fjarlægur draumur að komast íþetta sæti” — sagði Einar Vilhjálmsson um valið á honum sem spjótkastara V-Evrópu. Einar keppir á Grand-Prix móti á miðvikudag „Hvað ertu að segja, var ég valinn í Evrópuúrvalið? Það eru stórkostlegar fréttir,” sagði Einar Vilhjálmsson er DV til- kynnti honum að hann hefði verið valinn í Evrópuúrvalið sem keppir í heimsbikarkeppninni í Canberra í Ástraliu í byrjun október. „Það var fjarlægur draumur að komast í þetta sæti og ég stefndi ekki áð því sem slíku. Það er geysilegur heiður sem mér hlotnast með þessu, aðverða fulltrúi allra Evrópuþjóð- anna. Það er ekki nóg að eiga aðeins einn toppárangur tíl að fá sæti en hlutföllin hafa verið mér hag- stæð,” sagði Einar sem dvelst úti í Noregi þessa stundina. 1 dag heldur hann síðan tU Sviss þar sem hann mun keppa á Grand Prix móti sem haldið verður i Ziirich á miðvikudag- inn. „Keppnin í Ziirich leggst ósköp hversdagslega i mig. Eins og málin : hafa þróast þáhef égþurft að keppa undir vafasömum kringumstæðum og getað beitt mér sem skyldi. Eg fer ekki með háar vonir á mótið. Eg mun einungis stefna að því að halda haus. Helst hefði ég viljað keppa aðeins á Grand-Prix mótinu í Köln þann 25. en þar sem sömu móts- haldarar standa að mótunum þá þurfti ég að velja báðar eða sleppa báðum. Á mótinu í Ziirich munu átta bestu spjótkastarar heims keppa og ég lét mér detta i hug að árangur þar yrði látinn ráða sæti Evrópuúrvalinu iáður en þú hringdir. -fr0s „Engin takmörk fyrir þvísem ég get gert” — segir nýja stórstjarnan í sundinu, Bandaríkjamaðurinn Matt Biondi „Eg hef aldrei átt slakt keppnistima- bil og það eru engin takmörk fyrir því hvað ég get gert,” sagðl hinn nýi stór- sundmaður USA, Matt Biondi, 19 ára piltur frá Moraga í Kalifomíu eftir Kyrrahafsmótið í sundi i Tokýo um helgina. Hann var stórstjarna keppn- innar, endasprettir hans i boðsundunum, þegar sveitir USA settu heimsmet,-voru ekki einu afrek hans. Hann sigraði með miklum yfir- burðum i 100 m skriðsundinu á 49,17 sek. 1 þriðja slnn, sem hann syndir undir heimsmetinu, sem Rowdy Gaines, USA, átti — 49,36 sek. Bætti það tvivegls á meistaramóti USA, synti best á 48,95 sek. Biondi hlaut fimm gullverölaun í Tokýo. Bandaríska sundfólkið hafði gífurlega yfirburði á þessu fyrsta Kyrrahafsmóti í sundi, eða Pan-Paci- fic swimming championship eins og það var kallað á enskunni. Þaö hlaut 25 gullverðlaun af 33 — 14 silfur og 9 brons. Ástralía kom næst með 3-10-11 og Kanada í þriðja sæti 2-6-10. Auk þess hlutu Japan, Brasilía og Nýja-Sjáland verðlaun. Mjög góður árangur náðist í mörgum greinum. Helstu úrslit: 100 m baksund karla 1. RickCarey, USA 56,46 2. Mike Wcst, Kaiiada 56,60 3. Charles Siroky, USA 57,06 4. DaUchiSuzukl, Japan 57,48 5. Gary Hurring, Nýja-Sjálandi 57,54 6. Andrcw PhiUips, Jamaika 57,74 7. PaulKingsman,Nýja-SjáIandi. 57,87 8. Mark Tewsbury, Kanada 58,91 Þetta er mjög svipaður árangur og á EM í Sofia á dögunum. Þar varð Eðvarð Eðvarðsson sjötti á 57,92 sek. 200 m baksund karla 1. Rick Carey, USA 2:01,08 2. MikcWest, Kanada 20:01,83 3. Sean Murphy, Kanada 2:02,35 4. Ricardo Prado, Brasiliu 2:02,86 100 m skriösund karla 1. Matt Biondi, USA 49,17 2. Mike Heath, USA 50,43 3. Matthew Renshaw, Ástral. 51,17 100 m skriösund kvenna 1. Jenne Johnson, USA 56,36 2. Carrie Stelnseifer, USA 56,75 3. Sarah Thorpe, Ástralíu 57,51 50 m skriösund 1. MattBiondi, USA 22,73 2. John Sauerland, USA 23,11 3. Mark Stockwell, Ástralíu 23,44 Á sömu vegalengd kvenna sigraði Lisa Dorman, USA, á 26,19 sek. Jenna Johnson önnur á 26,47 og Angela Harr- is varð í þriðja sæti á 26,57 sek., sem er Ástralíumet. 400 m skriösund karla 1. JustinLemberg, Astralíu 3:52,13 2. JohnNykkanen, USA 3:52,40 3. MichaelMcKenzie, Astraliu 3:54,41 200 m flugsund karla 1. Anthony Mosse, Nýja-Sjál. 1:58,74 2. Vlastimil Cerny, Kanada 1:59,22 3. Ricardo Prado, Brasilin 1:59,89 4. PabloMorales,USA 1:59,99 5. JonSleben, Ástraliu 1:00,05 Mosse setti nýtt landsmet en mest kom á óvart að heimsmethafinn Sieben varð aðeins fimmti. , 200 m bríngusund karla 1. Jon Moffet, USA 2:16,74 2. GlennBeringen, Astralíu 2:18,01 3. MarcoVeilieux, Kanada 2:21,29 Á sömu vegalengd kvenna sigraði Hiroko Nagasaki á 2:29,95 mín., japansktmet. 100 m flugsund karla 1. Pablo Morales, USA 53,69 2. John Sieben, Ástralíu 53,78 3. MattBlondi, USA 54,57 I fimmta skipti sem Biondi syndir þessa vegalengd í keppni svo hann virðist einnig hafa gífurlega mögu- ' leika þar. Sieben setti nýtt Ástralíumet — Yukinori Tanaka japanskt met, 55,58 sek., sem aðeins nægði í 8. sæti í úrslitum. 100 m brlngusund karla 1. John Moffet, USA 1:02,42 2. BrettStocks, Astralíu 1:03,40 3. David Lundberg, USA 1:03,84 | 400 m fjórsund karla 1. Rlcardo Prado, Brasiliu 4:20,37 2. Matt Rankln, USA 4:24,27 3. JeffPrior, USA 4:24,27 -hsim. 3. deildar lið í handknattleik, nálægt Stór- Reykjavíkursvæðinu, auglýsir eftir vel liðtæk- um útileikmanni. Atvinna og húsnæði á staðnum. Hafið samband við auglýsingaþjónustu DV í síma 27022 fyrir 22.8. H-2121. Jennings til Tottenham Norður-írski laudsliðsmarkvörður- inn Pat Jennings, sem eför sfðasta kcppnistimabil tilkynnti að hann mundi leggja skóna á hflluna, breytti um skoðun í gær og ákvað að leika með Tottenham Hotspur. Jennings er ekki ókunnugur hjá Lundúnaliðinu, bann lék með þvi i fjölda ára áður en hann var seldur tll erkifjendanna Arsenai fyrir átta árum. Jennings er nú fertug- ur. Hann er talinn liklegur sem aðal- - markvörður n-írska landsliðsins sem mætir Tyrkjum i næsta mánuði. „Ég er mjög ánægður með að hafa jafnreyndan markvörð í varaliðinu og Pat getur leikið f imm leiki með því fyr- ir Tyrkjaleikinn,” sagði Peter Schreeves, stjóri Tottenham. Jennings er ekki á samningi hjá Lundúnaliðinu. Hann mun vera laus og laun hans felast í „bónusum”. I frétta- skeytum Reuters er greint frá því að Tottenham hafi reynt að fá Jennings til sín vegna meiðsla og er líklegt aö þar sé átt við Tony Parks sem hefur veriö M varamaður fyrir Ray Clemence. _________________________-fros Guðmundar- mótí hjoireiðum Hjólreiöamenn gangast nú fyrir hinu árlega Guömundarmóti um nsstu helgi. Mót þetta er minningarmót um hjólrelðakappann Guö- mund Baldursson og er hjólaö frá Keflavik til Hafnarfjaröar. Lagt veröur af staö frá lög- reglustöðinni i Keflavik kl. 10.00 á laugardag- inn og hjólaö aö KaplakrikaveUi en sú vega- Iengder37km. . Keppt veröur um bikar sem hjélreiöaversl- ' uniu öminn gefur. Þátttökugjald er 250 kr. og innifaliö í því er ferö meö bfl tfl Keflavíkur. Bfllinn fer af stað frá Frikirkjuvegi 11 kl. 8.00. Keppt veröur baöi i byrjunar- og kcppnis- flokki og má búast viö fyrstu kcppendum i Haf narf jöröinn kl. 11. SigA Mikil meiðsl hjá Frökkum Mikil meiðsl hrjá nú franska lands- liðið í knattspyrnu en á miðvikudaginn munu Evrópumeistararnir mæta S- Amerikumeisturum Uruguay i minningarleik um fyrrum forseta UEFA, Artemio Franchi. Það er núna ljóst að þrir af sterkustu mönnum landsllðsins, Manuel Amoros, Leonard Specht og Jean Tigana munu ekki leika með Frökkum i keppninni um bikar sem nefndur hefur verið eftir hinum látna forseta. Allt stefnir i að Maxime Bossis, sem nú leikur með 2. deildarUði Racing Paris, verði með og jafnar hann þá landsleikjamet Mtrius Tresor en það er 65 leikir. SigA Fillol til A. Madrid Ubaldo Fillol, markvöröur argcntlska landsliðsins, hefur gengið til liös viö spánska félagiö AtleUco Madrid. Fillol, sera varö heimsmeistari með Argentinu 1978, leikur nú meö brasiliska Uöinu Flamcngo. Hann er nú staddur á Spáni Ul aö neða samnlng sinn viö AUeUco. Verölö miUi félaganna hefur veriö ákveöiö, 4,8 millj. króna eða um 84 þús. pund. FUlol var keyptur U1 Flamengo i janúar 1984. -SigA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.