Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1985, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. AGUST1985.
Christa Jóhannsdóttir, Oöinsgötu 9
Reykjavík, sem lést 12. ágúst sl., verð-
ur jarðsungin í dag, þriðjudaginn 20.
ágúst, kl. 13.30 frá Háteigskirkju.
Christa var fædd í Þýskalandi 8. mars
1924. Hún fluttist ung til Islands og
kvæntist 1950 Jóni Jóhannssyni
bifreiðastjóra. Þau fluttust til Kanada
1953 en sneru heim aftur 1963 ásamt
dætrum sínum þeim Ingeborg og
Donnu Lóu. Þau hjón slitu samvistum.
Christa vann lengst af á Hagstofu Is-
lands en þar var hún gjaldkeri.
Jón Ingvar Jónsson kjötiönaðarmaöur,
Álfheimum 28 Reykjavík, andaðist 7.
ágúst sl. á öldrunardeild í Hátúni 10.
Jón Ingvar var fæddur á Akranesi 17.
desember 1904. Foreldrar voru Jón
Ásmundsson smiður, sem iengi bjó á
Bragagötu 31 í Reykjavík, og Agnes
Eiríksdóttir, ættuð úr Borgarfirði.
Jón kvæntist Jónínu S. Filippus-
dóttur 1931 og áttu þau 4 böm: Pál G.,
Jón Helga, Þorbjörn Ástvald (látinn)
og Sveinsínu Ásdisi. Þau slitu sam-
vistum 1945.
Jón stofnaði verslunina Kjöt &
^ grænmeti en vann síðan lengi hjá Jóni
Mathiesen í Hafnarfirði og síðar hjá
Gunnari í Von og í Kjötverzlun
Tómasar, Laugavegi 32. Síðast
starfaði hann með Valdimar Gíslasyni
í Vogaveri. Eftirlifandi og seinni kona
Jóns er María Róbertsdóttir.
Ásgeir Jónsson frá Tröllatungu
andaðist 16. ágúst.
Einar G. Kvaran framkvæmdastjóri,
Kleifarvegi 1 Reykjavík, lést í Land-
spítalanum 15. ágúst.
Karen Olgeirsdóttir, Neshaga 9
Reykjavík, lést 29. júlí sl. Utförin hefur
farið fram.
Guðrún Runólfsdóttir, Brautarlandi 12
Reykjavík, lést í Landspítalanum 15.
» ágúst.
Jóhannes Jónsson bakari, Garðabraut
8 Akranesi, lést 18. ágúst í Sjúkrahúsi
Akraness.
Tapað - fundið
Týnd kerra frá Sörlaskjóli 70
Bílkerra hvarf frá Sörlaskjóli 70 fyrir viku.
Kerra þessi er mjög sterkbyggð. Grindin er
úr 5 sm ferköntuöum rörum, kassinn er einnig
úr 2 1/2 sm og 3 sm sams konar rörum. Kerr-
an er klædd innan með gulmáluðum krossviði
en botninn er úr galvaniseruðum blikkplöt-
-*um. Hjólastellið er undan Ford Prefect og.
dekkin eru 16 tommu grófmunstruð Barum
Skodadekk. A kerrunni eru langfjaðrir með
dempurum, handbremsa er fest á beisli, fótur
er á hjörum. öxull milli hjóla er úr 1 1/2
tommu röri, með ásoðnu vinikiljámi til
styrkingar. Rúmmál kerrunnar er hálfur
rúmmetri. Hún er ca 1,30 m á lengd, 1 m á
breiddog40smádýpt.
Þeir sem kynnu að hafa orðið varir við
þessa kerru eru beðnir um að hafa samband
við lögregluna eða Guðmund Asgeirsson,
Sörlaskjóli 70, í síma 18658.
Staðlar á sviði tölvu-
og upplýsingatækni
Námstefna um stöðlun og notkun staðla á
sviði tölvu- og upplýsingatækni verður haldin
á vegum Iðntæknistofnunar og Samnorrænu
staðlanefndarinnar, INSTA, miðvikudaginn
21. ágúst í húsi Iðntæknistofnunar aö Keldna-
holti og hefst kl. 15. Jafnframt verður kynnt
almenn starfsemi INSTA.
Fyrirlestrar á námsstefnunni verða fluttir
á sænsku og norsku og hún er opin öllu áhuga-
fóUú. Tilkynna þarf þátttöku í síma 68-7000.
Staðlastofnanimar á Norðurlöndum standa
að Samnorrænu staðlanefndinni og er fulltrúi
tslands StaðladeUd Iðntæknistofnunar.
Arlegur fundur nefndariiuiar er haldinn hér á
landi að þessu sinni þriðjudaginn 20. ágúst.
Ferðalög
Útivistarferðir
Helgarferðir 23.-25. ág.
1. Berjaferð. Brottför kl. 18. Farið í gott
berjaland í Reykhóla- eða Gufudalssveit. Gist
aðBæi Króksfirði.
2. Landmannahellir — Hrafntinnusker —
Krakatlndsleið. Spennandi öræfaleiöir.
tshellar, jarðhitasvæði o.fl. skoöaö. Gist við
Landmannahelli. Ekið um Fjallabaksleið
syðri heim.
3. Þórsmörk. Gönguferðir við allra hæfi. Gist
í Otivistarskálanum góða í Básum. Upplýs.
og farmiðar á skrifst. Lækjargötu 6a, símar:
14606 og 23732. Sjáumst.
Utivist.
Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins:
23.-28. ágúst (6 dagar): Landmannalaugar
— Þórsmörk. Gengið milU sæluhúsa. ATH.
Sfðasta gönguferðin á áætlun. 29. ágúst — 1.
sept. (4 dagar): Norður fyrir Hofsjökul. Ekið
til HveravaUa, þaðan yfir Blöndukvíslar
norður fyrir Hofsjökul og í Nýjadal. Gist eina
nótt á HveravöUum og tvær nætur í Nýjadal.
5.-8. sept. (4 dagar): Núpsstaðarskógur.
Sérstæð náttúrufegurð, spennandi göngu-
ferðir. Gist í tjöldum. Obyggðir Islands eru
. aldrei fegurri en síðla sumars. Ferðist með
Ferðafélaginu. öruggur og ódýrar ferðir.
Farmiðasaia og upplýsingar á skrifstofunni,
öldugötu 3.
í gærkvöldi í gærkvöldi
Kópar og kjúklingar
I gærkvöldi var á dagskrá þáttur
um nátturuverndarsamtökin
Greenepeace. Var þetta langþráöur
þáttur því í raun vita fáir hver þau
samtök eru og hvernig þau starfa.
Margir hræöast mátt þeirra. Það
gera ekki síst frændur okkar, Norö-
main. 1 norsku myndinni kom glöggt
í ljós hvernig selveiöar voru lamaöar
og fólk missti atvinnu sína. Þetta
sýndi það sem oft er borið Green-
peace á brýn, en þaö er óraunsæiö og
mótsagnimar í aðgerðum þeirra.
Þeir hafa ekki veist aö kjúklinga-
bændum sem drepa saklausa kjúkl-
inga unnvörpum á hinn ómannúö-
legasta hátt heldur aö fáeinum sel-
veiðimönnum langt norður í höfum.
Bitna aögeröiraar haröast á því fólki
sem lifir hvaö mest í sátt og sam-
lyndi viö hina höröu náttúru norður-
hafanna. Það væri nær fyrir þá aö
skoða betur úrganginn sem stóru iðn-
fyrirtækin í Evrópu eru að fleygja i
hafið og eyöileggja með því allt líf-
ríki þess á stórum svæðum. I raun
eru þar mun meiri náttúruauðæfi í
húfi.
Anna Birna Almarsdóttir.
Þótt bifreiðastöður sóu nú bannaðar á Skólavörðustígnum vegna framkvæmda þar lót eigandi þessa bils
sig það engu skipta. En lögreglan lók þar krók ó móti bragði og lót fjarlœgja bílinn, svo vafalaust hofur
oigandinn gripið i tómt þegar halda hefur átt á næsta ákvörðunarstað. DV-mynd S
Miðvikudagur 21. ágúst:
Kl. 08. Þórsmörk — dvalargestir og dagsferð.
Þeim fjölgar sem vilja njóta dvalar í Þórs-
mörk hjá Ferðafélagi Islands. Aðstaöan i
Skagfjörðsskála og náttúrufegurðin í Langa-
dal er það sem heillar ferðamenn í sumar.
Dagsferðir Ferðafélagsins 24. og 25. ágúst.
Laugardag 24. ágúst, kl. 09. Söguferð um
Borgarf jörð. Verð kr. 700.00.
Sunnudagur 25. ágúst:
1 kl. 10. Víðiker—Kvígindisfell—Hvalsskarð—
Brynjudalur. Ekið að Víðikeri, gengið þaöan
að Skinnahúfuhöfða, meðfram Hvalvatni og
niður í Brynjudal. Verð kr. 650.00.
2. Kl. 10. Berjaferð í Brynjudal. Verð 650.00.
3. Ki. 13. Berjaferð í Brynjudal. Verð kr.
400,00. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Helgarf erðir 23.-25. ágúst:
1. Álftavatn—Háskerðingur—Mælifells-
sandur—Skaftártunga. Gist í húsi
v/Álftavatn. Ekið heimleiðis um Skaftár-
túngu.
2. Landmannalaugar—Eldgjá. Gist í húsi í
Laugum.
3. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála.
4. Hveraveilir—Þjófadalir. Gist í húsi.
Helgarferðir með Ferðafélaginu eru
skemmtileg tilbreyting. Farmiðasala á skrif-
stofuF.I.
Ferðafélag Islands.
Tilkynningar
Frá stjórn SÍNE
Sumarþing SINE var haldið 10. ágúst. Þingiö
mótmælir harðlega þeirri ákvörðun mennta-
málaráðherra að halda til streitu þeirri stefnu
sem tekin var upp á sl. ári að veita 1. árs
nemum ekki víxillán úr sjóðnum. Þingið telur
að þessi ákvörðun auki enn misrétti til náms.
Auk þess átelur þingið að mökum náms-
manna verði ekki veitt lán til hlutanáms.
Sýnir þetta í verki vilja ráðherra til aö auka
möguleika kvenna til menntunar þar sem í
flestum tilfellum er hér um konur að ræða.
A þinginu tók við ný stjóm samtakanna
sem í eiga sæti Bjöm R. Guðmundsson for-
maður, Högni Eyjólfsson gjaldkeri og Guðrún
ögmundsdóttir.
Ýmislegt
Ný líkamsrækt
Sunnudaginn 11. ágúst tók til starfa ný
líkamsrækt á homi Ananausta og Holtsgötu í
vesturbænum. Eigendur hennar eru þeir
Ævar Agnarsson og Hallgrímur V. Jónsson.
Ennfremur er Elva Bjömsdóttir í félagi við
þá.
Nýja líkamsræktin heitir Ræktin, og er hún
búin öllum fullkomnustu tækjum til vöðva-
styrkingar. Þar er einnig aðstaða til leikfimi
og hefjast 6 vikna námskeið í byrjun septem-
ber undir stjóm Ágústínu Guðmundsdóttur
íþróttakennara. Aerobic-leikfimi verður
einnig á dagskrá í byrjun september en hún
verð kennd á kvöldin tvisvar í viku.
Ljósastofa er rekin í tengslum við Ræktina
og kosta 10 tímar í 18 mía bekk kr. 1.200 en kr.
1.000 í 27 min. bekk.
Gufubað fylgir bæði karla- og kvenna-
klefum og er notkun þcss ókeypis.
Ræktin verður opin frá kl. 7—22 mánudaga
til fimmtudaga. 7—20 á föstudögum og frá kl.
10—18 um helgar. Þjálfari er ætíð á staðnum.
NOROISKT WUSTEKNISKT MÖTE I RSYKJAVÍK
Norrænt Ijóstækniþing í
Reykjavík
Dagana 20.—25. ágúst verður haldið í Reykja-
vík Norrænt ljóstækniþing (NLM 85). Setning
þess fer fram í hátíðarsal Háskóla Islands og
verður forseti Islands viðstaddur.
Fyrirlestrahald fer fram í Odda, hinni nýju
byggingu Háskóla Islands.
Fjölmörg og fjölbreytileg erindi verða flutt
um lýsingartækni, ljós og geislun og áhrif á
heilsu manna.
Samhliða hinum hefðbundnu fyrirlestrum
verður f jallað um uppsetningu spjalda af sér-
fræðingum. Nordlys-nefndin hefur undirbúið
dagskrána en Ljóstæknifélag Islands hefur
annast annan undirbúning með aðstoð Ferða-
skrifstofu Ríkisins.
Þátttakendur eru um 208 og frá fjöl-
mörgum löndum. Þetta er í annað sinn sem
Islendingar halda þingiö.
r
Fyrstir med fréttirnar
W
kaiivm
alla vikuna
Urval
við allra hœfi
Q
Z
5
s
D
§
æ S
£
w
FAST
Á BLAÐSÖLU^
Góða ferð!