Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Qupperneq 17
DV. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985.
17
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
. ........ , , Ir
msóttu Þór um siðustu helgi og
mur önnur hvar Halldór Áskels-
: honum.
arar?
anesi. Valsmenn efstir
ta á að vinna f jórfalt
fyrir Þrótt aö pakka í vörn til aö ná
stigi. Skaginn hlýtur aö vera sterklega
inni í myndinni þótt hann sé tveimur
stigum á eftir Val. Þá kemur leikur
þeirra viö Fram í lokaumferöinni til
meö aö ráöa miklu um úrslit mótsins.
Eg held ég treysti mér ekki til aö spá
um botnslaginn aö ööru leyti en því aö
mér sýnist Víkingur fallinn. Botninn
ræðst af leik Þróttar og Víöis.
Heimir Karlsson, Val:
„Viö eigum alla vega jafnmikla
möguleika og hin liöin. Þór á léttustu
leikina á pappírnum en ég býst viö að
leikurinn viö Þrótt veröi erfiður. Viö
eigum eftir KR og Keflavík og ég á
ekki von á ööru en aö bæði liðin komi
ákveöin til leiks og reyni aö sigra. í
leikjunum þurfum viö aö sýna aö þaö
sé karakter í liðinu og ég held aö hann
sé fyrir hendi. Viö stöndum best að vígi
í dag, höfum stigs forskot.
Eg vona til guös að Víkingur nái aö
halda sér uppi en ómögulegt er að spá
um hvaöa lið falla niöur.”
Eftirtaldir leikir eru nú eftir í deildinni:
7.9. 18. umferð:
IA—Víkingur 12.9.
FH—Fram Valur-KR
IBK—Valur 14.9.
Þróttur—Þór Þór-FH
14.9.
8.9. Víðir—Þróttur
KR-Víðir Fram—IA
15.9.
Víkingur—IBK
Gary Lineker.
Lárus skoraði sitt
fýrsta deildarmark
— er Uerdingen vann Schalke, 3-2. Atli og Lárus saman f rammi
Frá Atla Hilmarssyni, tíðindamanni
DVíÞýskalandi:
Bayer Uerdingen vann sinn annan
leik i röö i þýsku deildinni í gærkvöldi
og viröist vera að ná sér vel á strik
eftir köflótta byrjun. Það var Schalke
sem kom í heimsókn til liðs Lárusar
Guðmundssonar og Atla Eövalds-
sonar, er þeir léku saman i sókninni og
gerði Lárus eitt marka Uerdingen.
Schalke náöi forystunni fyrir framan
20 þús. áhorfendur meö marki Frank
Hartman. Þetta var á 15. mínútu en
seinna í f.h. jafnaði Lárus fyrir heima-
menn. Glæsilegt mark. Rudi Bömmer
tók hornspyrnu, Lárus og Junghans,
markvöröur Schalke, stukku saman
upp en Lárus var undan á boltann og
skallaöi fallega í markið, 1—1.
Ditimar Klinger gerði annað mark
Lárus Guðmundsson skoraði sitt
fyrsta deildarmark i haust gegn
Schalke i gær. Hann o? Atli Eð-
valdsson eru nú að tryggja sér sæti
sem framherjar félagsins.
Uerdingen er hann lék á tvo varnar-
menn Schalke og skoraöi af 10 metra
færi meö góöu skoti. Þetta var í síðari
hálfleik og á 74. mín. leiksins bætti
hinn nítján ára gamli Frank Kirchoff
þriöja marki Uerdingen viö. Þetta er
aðeins annar leikur þessa stórefnilega
leikmanns sem eflaust á eftir aö bera
mikið á í framtíðinni. A 81. mín. lagaði
Dietz stööuna fyrir Schalke í 3—2 en
þar viö sat. Bæði Lárus og Atli léku
allan leikinn og stóöu sig vel,
sérstaklega var Lárus áberandi, átti
góðar sendingar sem sköpuðu
vandræöi fyrir leikmenn Schalke.
Bayern Miinchen var óheppið aö
sigra ekki Saarbrucken á útivelh en
þurfti aö sætta sig viö 1—1 jafntefli.
Hönnscheidt náöi forystu fyrir heima-
menn en Lothar Matthaus jafnaði fyrir
Miinchen á 77. mínútu leiksins.
Tveir aðrir leikir fóru fram í gær.
Bochum vann Eintracht Frankfurt, 2—
1. Harald Thenhagen náöi forystu fyrir
heimamenn, Kuntz jafnaöi áöur en
Thomas Kempe tryggði Bochum
sigurinn. Mannheim og Kaiserslautern
skyldu jöfn í frekar leiöinlegum leik.
Gestirnir náðu forystu meö marki
Trunk en Jiirgen Köhler jafnaöi fyrir
Mannheim á 67. mín. eftir þóf.
SigA.
„Við Atli eram
að ná saman”
— sagði Lárus Guðmundsson við DV
„Við fengum hornspyrnu og boltinn
sveif laglega og hátt yfir markið. Ég
stökk upp og var fyrstur á boltann og
kom honum í netið,” sagði Lárus
Guðmundsson í samtali við DV í gær
eftir að hann hafði gert fyrsta deildar-
mark sitt fyrir Uerdingen á þessu
keppnistímabili.
„Viö vorum betri allan leikinn og
vorum búnir að sækja stanslaust
fyrsta kortériö. Snemma í leiknum
fékk ég sendingu inn í teiginn en ég
missti boltann af tánum á mér. Hann
barst til Atla en þaö sama gerðist,
hann missti hann líka, þannig aö þaö
má segja aö þarna hafi farið tvö færi á
einu bretti. Síöan ná þeir forustunni
mjög ósanngjarnt eftir um 15 mín. ”
Eins og fram kemur í greininni að
ofan náöi Uerdingen 3—1 forystu og
eiginlega var sigurinn ekki í hættu eftir
aö þeir höföu náð forystunni.
„Þetta viröist allt vera að koma hjá
gær
okkur. Við Atli lékum aftur saman
frammi og mér finnst eins og viö séum
að ná saman. Það er bara vonandi aö
fleiri mörk komi í kjölfar þessa, þetta
hefur veriö alltof strjált hingaö til. Þaö
haföi skapast svolítiö leiöinlegur
mórall hjá okkur eftir aö við höföum
tapaö tveimur leikjum í röö. Fyrir
leikinn gegn Bochum geröi þjálfarinn
svo breytingar á liðinu, setti þá Feilzer
og Klinger út en þeir höföu verið fasta-
menn á miðjunni fram aö því. Annar
þeirra sem kom inn er Frank Kirchoff
sem er aöeins 19 ára og geysilega
efnilegur. Þetta gaf okkur nýja vídd og
með sigrinum í Bochum batnaði
mórallinn. Nú er bara að vona aö þetta
fari aö koma hjá okkur úr þessu. Næsti
leikur okkar er við Frankfurt á útivelli
en þeir eru erfiöir heim að sækja eins
og öll önnur liö hér og viö stefnum aö
minnsta kosti aö því aö ná stigi,” sagöi
Lárus Guðmundsson viöDV. SigA.
Lineker gerði tvö er
Everton vann með 5-1
Sigurður Jónsson og meðspilarar
hans í Sheffield Wednesday fengu rass-
skellingu í gærkvöldi er þeir mættu
Englandsmeisturum Everton á Hills-
bourogh í Sheffield. Er upp var staðið
hafði Everton gert fimm mörk, Sheff.
Wedeitt.
Meö hin góöu úrslit undanfarinna
vikna í huga byrjuðu leikmenn
Wednesday af miklum krafti og fyrstu
23 mín. leiksins voru algerlega í
höndum þeirra. Brian Marwood kom
liðinu í 1—0 á þessum kafla. Markiö
kom úr vítaspyrnu eftir aö Paul
Bracewell haföi handleikið knöttinn.
En síðan varö ekkert stöövaö
Englandsmeistarana, þeir tóku leikinn
í sínar hendur. Trevor Steven og
Graeme Sharp komu liðinu yfir. Stev-
en bætti ööru viö og svo komu tvö frá
Gary Lineker í seinni hálfleik. Sjö
mörk hjá Lineker fyrir sitt nýja félag
og Everton komið í annað sæti.
Ronnie Whelan geröi bæði mörk
Liverpool í sigri liösins á Nottingham
Forest.
Seinna markið kom eftir ljót mistök
Hans Segers í Forest markinu. Hann
haföi lokið viö aö verja skalla frá Mark
Lawrenson en henti boltanum þá beint
til Whelan sem þrumaöi honum beint í
markiö. Voila.
Frank McAvennie reyndist drúgur
fyrir West Ham. Hann geröi enn eitt
markið er liöiö geröi jafntefli við
Southampton, fimmta mark hans.
Það var 2—2 í hálfleik í leik Coventry
og Oxford en í seinni hálfleik var aldrei
spurning um hvort liöiö hlyti stigin
þrjú. Coventry geröi þrjú mörk og
vann, 5—2. Bobby McDonald gerði
bæði mörk Oxford gegn sínu gamla
Uði.
Arsenal sigraði QPR, 1—0, á Loftus
Road. Þaö var Ian Allinson sem gerði
markið en áður haföi John Lukic variö
víti frá Terry Fenwick, fyrirliða QPR.
Birmingham hefur ekki tapaö á
heimavelli í haust. David Geddis gerði
eina mark leiksins er liöiö keppti við
Man. City.
Orslit í Englandi urðu sem hér segir:
l.deild:
Birmingham—Man. City 1-0
Coventry—Oxford 5-2
Liverpool—Nott. For. 2-0
QPR—Arsenal 0-1
Sheff. Wed. Everton 1-5
Southampton—West Ham 1-1
2. deild:
Huddersfield—Blackburn 0-0
Shrewsbury—Portsmouth
Wimbledon—Barnsley
Deildarbikarinn 1. umt. 2. leikur
Bournemouth—Reading
Blackpool—Preston
Brentford—Cambridge
Bristol C,—Hereford
Bury—Burnley
Carlisle—Crewe
Chesterfield—Bradford
C. Palaee—Charlton
Doncaster—Notts C.
Gillingham—Southend
Hull—Halifax
Middlesbro—Mansfield
Millwall—Colchester
Newport—Bristol R.
Northampton—Petersboro.
Orient—Aldershot
Rochdale—Wrexham
Sheff. Utd.—Rotherham
Stockport—Bolton
Swansea—Cardiff
Swindon—Torquay
Woives—Walsall
I
í í:
1-1
1-0
2-0 (5-1)
1- 3 (2-5)
2- 0 (3-1)
2- 0 (3-5)
5-3 (6—5)
3- 4 (6-7)
3-4 (5-6)
1- 1 (3-2)
2- 1 (2-2)
2- 0(3-1)
3- 0 (4-1)
4- 4 (4-6)
4- 1 (7-3)
1-0 (1-2)
2-0 (2-0)
2-2 (5-3)
2- 1 (2-5)
5- 1 (8-2)
1- 1 (2-5)
3- 1 (4-3)
2- 2 (4-3)
0-1 (1-2)
"
Tölurnar í sviganum sýna samanlagða
markatölu úr báðum umferðum. Staðan í leik
Chesterfield og Bradford að venjuiegum leik-
tíma loknum var 3—3 (5—5). I
framlengingunni skoraði Bradford mark og
kemst áfram. Notts County kemst áfram
vegna skoraðs mark á útivelli. 1. og 2. deildar
félögin koma inn í keppnina í næstu umferð.
SigA.
„Hefur ekkert verid
rætt við mig formlega
um Víkingsltöid ”
Það hefur ekkert verið rætt vlð mig
formlega um þjálfun á Vikingsliðinu.
Ég hef rætt við menn í góðu tómi en
ég er ekki ákveðinn í hvað ég tek mér
fyrir hendur. Mér likaði mjög vel ó Sel-
fossi, það eina sem mér fannst ver að
var keyrslan,” sagði Magnús
Jónatansson, þjálfari Selfoss, í spjalli
við DV en sú saga hefur gengið f jöllum
hærra um höfuðstaðinn að hann verði
næsti þjálfari Vikings.
„Ég hef heyrt þessa sögu rétt eins og
þú en ég veit ekki af hverju hún er til
komin,” sagði Magnús sem hefur á sér
mjög gott orð fyrir að koma þeim lið-
um er hann hefur þjálfað upp um deild-
ir. t surnar þjálfaði hann Selfoss í 3.
deUdinni og kom því upp í aðra. Áður
hefur hann komið liöi tsafjarðar,
Breiðabliks og KR upp í 1. deUd.
Beckerer
úrleik
— á opna bandaríska
Boris Becker, yngsti Wimbiedonsigurveg-
ari frá upphafi, tapaði í gær fyrír Svíanum
Jnakim Nyström á opna bandaríska
meistaramótinu í tennis. Bccker, 17 ára V-
Þjóöverji, átti ckkcrt svar viö öruggum leik
Joakims Nyström og í fjórðu umferö geröi
mörg mistök scm á endanum kostuðu hann
sigurinn. Sviinn kom þarna fram hefndum því
hann varð fómarlamb Beckers i þríðju um-
ferð á Wimbledon. Nyström vann leikinn með
6—3 6—4 4—6 og 6—4 og þar með urðu
áhorfendur af viðureign Becker við McEnroe
en þcir hefðu mæst ef Becker hefði lagt
Svíann.
McEnroe sjálfur sigraði Tékkann Tomas
Smid (nr. 16) auðveldlega með 6—2, 7—5, 6—
2. Hann og Jimmy Connors era nú einu
Bandarikjamennirnir eftir í 8 manna úr-
slitum og vcrða að sjá um að verja heiður
lands síns en Bandarikjamenn hafa unnið
keppnina 10 ár í röð. Nokkrir af öðrum sem
eru i fjórðungsúrslitunum í New York cru
Svíarnir Nyström og Anders Jarryd auk
Frakkans Yannick Noah scm vann Jay
Berger, 18 ára Bandaríkjamann í 4. urnferð.
Berger komst inn i aðalkeppuina eftir að hafa
unnið unglingakeppnina og hefur komið
fcikilega á óvart með því að komast í fjórðu
umferð þessa næststerkasta tennismóts árs-
ins.
Jimmy Connors vann sinn 76. leik á opna
bandaríska er hann vann Svíann Stefan
Edberg 6—4,3—6,6—3,6—4.
1 kvennakeppninni er Chrís Evert-Lioyd
komin í undanúrslit, eftir sigur á nr. 5,
Claudia Kobde-Kilsch. Hún mætir nr. 3,
Helenu Madlikovu i undanúrslitunum en
spekingar segja að Uoyd hafi aldrei veríð
betri cn nú og að fátt geti stöðvað hana.
Þróttara-
dagurinn
Þróttaradagurinn verður næstkom-
andi sunnudag við svæöi félagsins við
Holtaveg.
Meðal skemmtunar verður keppt um
Gróubikarinn í 5. flokki og þá mun
veröa slegið upp heljarmikilli veislu óg
þúsund pylsur munu verða grillaöar.
Kaffi og kökur verða á boöstólum
fyrir þá eldri. Þá mun knattspyrnu-
deild félagsins reyna sig i reiptogi við
aðalstjórnina og margt fleira verður til
skemmtunar. Fjörið byrjar klukkan
eitt.
-fros.
Firmakeppni
ÍR
Hin árlega firmakeppni knatt-
spyrnudeildar IR utanhúss verður
haldin dagana 13.—15. sept. næstkom-
andi.
Þátttökugjald verður kr. 3.500.
Þátttaka tiikynnist í síma 82855,
Bergþór eða Hans, fyrir þriðjudaginn
10. sept.
Nánari upplýsingar fást einnig í
sama símá.
Iþróttir
íþróttir