Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Side 28
28
DV. MIÐVKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
• „Drottning elds og vatns”
var bún kölluð eftir frækna för í
úrslitakeppni i fegurðarsam-
keppninni ungfrú alheimur er
haldin var á dögunum. Það
rigndi nefnilega eidi og
brennisteini heima á Puerto
Rico nóttina er hún kom heim og
heljarinnar eidsvoði braust út
sama kvöld í nágrannahverfi.
Dagblöðin í San Juan, höfuðborg
Puerto Rico, voru því ekki í vand-
ræðum með að finna nafn á
meyna. Hún þykir nokkuð snotur
hún Deborah Carthy-Deu og
aðeins fulira átján vetra.
Nú er meyjan að komast á kaf
í nám og lestur við rikishá-
skólann i San Juan og ku iesa
sálarfræði. Margt er gert sér til
ánægju og yndisauka en mestur
er áhuginn á hestamennskunni,
sagði meyjan nýlega í viðtali.
• Vestur-þýskar götudrósir,
öðru nafni meyjar, er selja blíðu
sína á strætum borga og bæja
landsins, eiga nokkuð bágt þessa
dagana. Lögregluyfirvöld hafa
stóraukið baráttu sína gegn
vændi og öllum þeim dólgshætti
sem því er talið fylgja. Madonnur
vændishúsa og stúlkurnar á göt-
unni í háhæluðu skónum og stutta
pilsinu eiga því erfitt núna og
dregið hefur úr viöskiptum.
Kúnninn er nú hræddari að bíta
á en áður og eitthvað segja kunn-
ugir að fáklæddum meyjum með
verömiða á milli læranna hafi
fækkað á götum.
• Rock gamli Hudson hefur
aldeilis verið í sviðsljósinu aö
undanförnu eftir að uppgötvaðist
aö leikarinn gengur með hinn
hættulega sjúkdóm ónæmistær-
ingu. Stjörnuhrap Hudsons í
Hollywood varö algert þegar
gamlir samstarfsmenn í ótal sen-
um og á leiksviði þyrptust í tuga-
tali til læknis og létu athuga sig.
Óðagotið varð algert og hneisa
aumingja Hudsons mikil. Sumir
sögðu að nú væru sannanir komn-
ar á gamlan oröróm um kynvillu
kappans, gamli kvennasjarmör-
inn hefði alla tíö verið hinum
megin við línuna. Hér er Hudson
með gamalli vinkonu sinni, Doris
Day, í hléi frá ti9cum í sjónvarps-
þáttum er fjölluðu um hunda sem
húsdýr.
1000
TONN
AF
HUNDA-
SKÍT
DAG-
LEGA
Frá Ketilbirni Tryggvasyni, fréttarit-
ara DV í Vestur-Berlín:
Á seinasta ári komst Island inn á
landakort fjölmargra Þjóöverja vegna
hinnar frægu tíkar fjármálaráöherra
okkar Islendinga. Skrif um hunda-
málin á Islandi voru mörg og má sem
dæmi nefna að eitt mest lesna dagblaö
í Vestur-Berlín, BZ, birti á árinu 1984
einar 9 greinar um mál þetta sem eiga
það allar sameiginlegt að fjármála-
ráðherra og náttúrlega tíkar hans var
getið. En nú á allra seinustu mánuðum
hafa hérlend dagblöð sótt minna og
minna norður í höf í leit frétta sem
þessara en hafa þess í stað snúið sé að
málefnum sinna eigin hunda.
Þjóðverjar eru mikið fyrir gæludýr og
eiga hátt í 14 milljónir slíkra af hinum
ýmsu tegundum. Hundar eru þar
stærsti flokkurinn og teljast vera um 5
milljónir. Uppi eru háværar raddir
fólks sem vilja benda á þá staðreynd
að í stærri borgum landsins séu tugir
þúsunda hunda sem eiga sér einungis
götur og stræti sem útivistarstað og
dvelja innanhúss meiri hluta dagsins.
Einnig er bent á að á tímum hungurs-
• „Þú segir ekki, 1000 tonn af hundaskit?"
neyðar á mörgum stöðum í heiminum
éta hundar í Þýskalandí fyrir jafnvirði
2 milljarða þýskra marka og ÖU gæludýr
fyrir um ca 5 milljarða, f járhæð sem
myndi geta framfleytt þúsundum
hungraðra í marga mánuði. Reyndar
er þaö svo að framleiðendur gælu-
dýrafóðurs eru einu matvæla-
framleiðendurnir hérlendis sem geta
hreykt sér af meira en 10% aukningu
eftirspurnar árlega, tölu sem fer
vaxandi.
En eitt er það sem öll umræða snýst
meira eða minna um og er og verður
stærsta vandamálið í sambandi við
hunda í stórborgum. En það er hunda-
skíturinn! Talið er að samtals lendi á
gangstéttir, götur og í garða hér í
Þýskalandi um 1000 tonn af hundaskít
daglega. Stærst er vandamálið í
Vestur-Berlín, í hinni svokölluðu
hundaparadís Þýskalands, en þar
sjá 90.000 hundar hreinsunarliöi
borgarinnar fyrir um 16 tonnum af
þessari vellyktandi framleiðslu sinni.
Yfirvöld í hinum mismunandi borgum
hafa reynt mikið til að bæta þetta
vandamál en sjaldnast haft árangur
sem erfiði. Hvern langar svo sem til að
láta hund sinn losa við sig í plastpoka?
Nýjasta hugmyndin sem upp hefur
komið hjá hinum hugmyndaríku
stjórnmálamönnum, sem þora ekki að
skerða hundahald af ótta viö kjósenda-
missi, er hundaklósett með öllu
tilheyrandi.
85 ára og
eldhress
• DrottningarmóOirin 85 ára fyrir miðju með barnabörnum sínum. Frá
vinstri prinsarnir Karl, Edward og Andrew auk Önnu prinsessu.
Breska drottningarmóöirin átti 85
ára afmæli nú á dögunum. Auðvitað
var mikið um dýrðir í höllinni og
breskur almenningur fylgdist grannt
með afmælispartíum konungsfjöl-
skyldunnar. Sú gamla átti sér eina ósk
heitasta á stórafmælinu og þaö var að
komast í flug með hinni fullkomnu og
hljóðfráu Concord þotu er Bretar og
Frakkar smíðuðu í sameiningu fyrir
nokkrum árum.
Drottningarmóðirin var reyrð niður
í sæti fyrir aftan flugmennina hátt yfir
Irlandshafi og stöðugt nálgaðist þotan
hljóöhraða. Þegar komið var vel yfir
hljóðhraöa og hraðinn orðinn tæpir
2000 kílómetrar á klukkustund, var af-
mælisbarnið fengið til að láta í ljós álit
sitt á ferðalaginu. „Otrúlegt, ótrú-
legt,” muldraði sú gamla og er þegar
farin aö hlakka til næstu Concord
ferðar.
Amerísk hetia
eefur út bók
. —
Hver kannast ekki við tilraunaflug-
manninn Chuck Yeager? Amerísk há-
loftahetja og víðfrægur um veröld
alla. Flugkappinn er lengi búinn að
vera í sviösljósinu í heimalandinu,
Bandaríkjunum, fyrir dirfsku og
þróaöa flugtækni.
Yeager er sko engin plathetja hjá
þeim í Ameríkunni. Kappinn skaut
niður 13 þýskar óvinaflugvélar í seinni
heimsstyrjöld, þar af fimm á einum
og sama degi.
Hann skaut niður þýska í stríðinu og
var fyrsti maðurinn til að rjúfa hljóð-
múrinn á flugvél og lifa af.
Nú hefur bókaforlag eitt í New York
gefiö út æviminningar flugkempunnar,
skrifaðar af honum sjálfum og Loe
nokkrum Janus. Chuck Yeager er
aöeins 62 ára að aldri og enn í fullu
fjöri. Hann er að vísu ekki tilrauna-
flugmaður lengur en þess í staö orðinn
heimilisvinur bandarískra sjónvarps-
áhorfenda í alls konar auglýsingum
þar sem vélar og tæki eru boðin til sölu.
• Tilraunaflugmaðurinn Chuck Yeager er vel kynntur um víða veröld.
Kappinn er aðeins 62 ára gamall en er búinn að gefa út sjálfsævisögu er
selst grimmt i Bandaríkjunum.