Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. 3 ÞRIÐIUNGUR MEXIKO- BORGAR EYDILAGDUR — talið að mörg þúsund manns haf i látist f mesta skjálf ta f Mexíkó á þessari öld Nú er vitaö aö 1000 manns aö minnsta kosti létust í jarðskjálftanum mikla í Mexíkóborg. Fyrri fréttir sögöu þó aö líklega væru allt aö 3000 manns látnir. Mexíkanskir embættis- menn segja aö líklegt sé aö talan veröi jafnvel enn hærri. Þungamiðja skjálftans var í Kyrra- hafinu, suövestur af Mexíkóborg. Eyðileggingin var ekki bara í Mexíkóborg heldur um allt landiö, frá Kyrrahafsströndum til Atlantshafs- strandarinnar. Skjálftinn mældist 7,8 stig á Richterkvarðann. Einn fréttamaður giskaöi á að skjálftinn hefði eyöilagt um þriðjung Mexíkóborgar. Áöur en þrjár mínútur voru liönar frá því skjálftinn byrjaöi höföu háhýsi hruniö og einnig skólar, hótelogdómkirkja. Miðbærinn leit út eins og bardaga- svæði. Jaröýtur voru notaðar viö leit- ina aö fómarlömbum jarðskjálftans sem mörg eru enn grafin undir rústun- um. Samúöar- kveðjuralls staðarað Samúöarkveðjur hófu aö berast til Mexíkó strax í gær. Jóhannes Páll páfi annar sendi samúðarkveðjur til fjöl- skyldna í Mexíkó og blessaöi verk björgunarmanna. Páfi sagðist hafa fyllst dapurleika viö fréttirnar af land- inu sem væri svo nálægt hjarta sínu. Hann sagöist myndu biöja fyrir sálum hinna látnu. Fidel Castro Kúbuforseti skoraði á lánardrottna Mexíkó að vera ekki óbil- gjarnir nú á tímum neyðarinnar. „Öll lönd ættu aö sýna samstöðu meö bróö- urlandi okkar á þessum tíma,” sagöi hann á efnahagsráöstefnu. Forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, Spánverjinn Jaime de Pini- es, sendi samúöarkveöjur sínar þegar allsherjarþingið kom saman í gær. Hann sagðist einnig vona aö lönd heimsins sýndu samstöðu með Mexíkó. Saidiherra Mexíkó á þinginu þakk- aöi fyrir og sagði að mikið tjón heföi oröið. Hann sagöi einnig aö engar frétt- ir heföu borist af því aö nokkurn hinna 150 starfsmanna Sameinuðu þjóðanna heföi sakað. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti sendi líka samúöaróskir sínar til for- seta Mexíkó og bauöst til aö hjálpa. -ÞóG Sjónvarpsstöðvar sögöu frá miklum skemmdum á vegum og járnbrautum. Erfitt er aö komast á milli. Flugfélögum hefur veriö sagt að fljúga ekki yfir borgina. Menn óttast að ókyrröin í loftinu, sem fylgir flug- vélum, geti orðið til þess aö byggingar, sem enn standa, hrynji. Björgunarmenn báöu fólk aö tala ekki hátt til að þeir gætu heyrt hróp þeirra sem kynnu aö vera lokaðir niðri í rústunum. Her og lögregla eru um alla borg og hafa lokað aögönguleiðum aö borginni til að koma í veg fyrir rupl. Spánskur táningur, sem var í hjóla- stól eftir uppskurð á fæti, sagði frá því hvemig hún heföi neytt sig til aö hlaupa upp úr stólnum og niöur sjö hæðir á hóteli sinu eftir að hún fann fyrir jarðskjálftanum. Annar Spánverji lýsti því hvernig hún heföi bjargaö sex ára gömlum syni Peningar eru þegar farnir aö berast til hjálparstofnana víðsvegar um heiminn. Rauöi krossinn í Genf sagði að 20 milljónir króna hefðu þegar komið inn frá deildum hans í ýmsum löndum. Evrópubandalagiö hefur tilkynnt að það muni gefa um 15 milljónir króna til fórnarlamba skjálftans. Breska Þúsundir manna eru nú heimilis- lausar í Mexíkóborg vegna skjálftans. Yfir borginni hvilir nú þykkt ský reyks og ryks. I skýjunum má sjá á stöku stað eldglæringar koma upp. Þær koma frá byggingum sem enn brenna. Bandarískur ferðamaður í borginni sagði: „Sem við keyrðum til flugvall- arins til aö ná vél út þurftum viö allt i einu að vara okkur á hæðarhryggjun- um, sem voru á stærð viö bíla, og hús- um sem komu veltandi niður fjöllin.” Fréttamenn Reuter-fréttastofunnar lýstu því hvernig háhýsi hefðu hrunið sínum þar sem hann var um það bil að detta út um glugga á sjöttu hæö á sama hóteli. „Eg greip Alexandro þegar hann var að falla út um hótelgluggann. Eg trúi þessu ekki ennþá,” sagði hún. Læknir sagði að spítalar hefðu orðið að flytja sjúklinga á læknastofu sína stjórnin lofaði að gefa rúmar þrjár milljónir króna. Talsmaður Rauða krossins sagði að hjálparlið væri á leiðinni til Mexíkó. Það myndi leggja mat á stöðu mála í borginni. Hann sagði að blóð og sjúkragögn væru af mjög skomum skammti í borginni. en önnur hallast geysilega. Fréttastof- an er á 10. hæð í einni byggingunni. Reuterfréttamaður, sem hafði nýopn- að stofuna, hljóp niður stigana á með- an bjálkar og steinar hrundu allt í kringum hann. Hann rétt komst út á götuna áður en byggingin hrundi. Þaö var lán í óláni aö jaröskjálftinn kom klukkan 7.19, áður en flestar skrif- stofur eru opnaðar. Skrifstofurnar í hinum gömlu háhýsum miðborg- arinnar voru því fáliðaðar. Þetta er versti jaröskjálfti sem kom- ið hefur í Mexíkó á þessari öld. eftir að margir spítalar hefðu hrunið. Hinir særðu hefðu byrjað að streyma inn strax eftir skjálftann. „Þetta var hræðilegt, hræðilegt,” sagði hann. „Það var svo mikill reykur að það var ekki hægt að sjá í hvaða byggingum hafði kviknað. Rauði krossinn í Noregi, Svíþjóð, Vestur-Þýskalandi, Bretlandi og Nýja- Sjálandi hafði þegar lofað peningum í gær og búist var við að fleiri bættust við. Svissneska flugbjörgunarsveitin var send af stað með 30 manna lið til Mexíkóborgar, auk níu blóðhunda og 16 tonna af neyöarútbúnaöi. -Þ6G. Islendingarí Mexíkóborg Simasambandslaust var til Mexíkó í gær og í fyrradag. DV hef- ur reynt aö hringja til Islendinga sem vitaö er til að séu í Mexíkó- borg.enekkitekist. Vitað.er um fjóra Islendinga í borginni. Vel hugsanlegt að þeir séu fleiri. Þrír þeirra, Jónas Gísla- son, bróðir hans Guðmundur Gisla- son og unnusta Guðmundar, Guðný Jensdóttir, búa í norðurhluta borg- arinnar. Skaðinn var hins vegar mestur í miðborginni og í suður- hlutanum. Ættingjar hafa elnnig reynt árangurslaust að hafa samband til Mexíkó. Konsúll lslands i Mexíkó er David N. Wiesley. Síminn hjá honum er 5891329. Konsúll Mexíkó á Islandi er Jón Armann Héðins- son. I Mexikóborg búa um 18 millj- ónirmanna. -ÞóG Óttastum 23 skip Ottast er að fjögur kaupskip og 19 togarar hafi sokkið út af Kyrra- hafsströnd Mexíkó í jarðskjálft- anum. Ekkert hafði heyrst frá þessum skipum í gær, einum og hálfum sólarhring eftir skjálftann. Skipin voru um 120 mílur vestan viðAcapulco. Jesus Ferreira, sem er yfir- maður loftskeytastöðvar, sagði að skipstjóri spánsks togara hefði sagt sér að sjórinn hefði skyndilega soöið upp og komið æðandi að sér i 20metrabylgjum. -ÞóG. Ekkert ákveðið með heims- meistara- keppnina Enn er ekki búiö að ákveða neinar breytingar á fyrirhugaðri heimsmeistarakeppni i knatt- spyrnu í Mexíkóborg árið 1986. Alþjóða knattspyrnusambandið sagði að upplýsingar frá borginni væru enn of óljósar til aö hægt væri að taka slíka ákvörðun. Slíkar upplýsingar koma kannski á mánudag þegar keppnis- nefndin frá Mexíkó fundar með FIFA. Sá fundur hafði verið áætlaður fyrir löngu. Keppnisnefndin sagði í sjónvarpsútsendingu að skjálftinn hefði etói skaddað neinn hinna 12 leikvanga þar sem keppnin ætti að fara fram milli 31. maí og 29. júní. -ÞópG. -ÞóG Fyrir og sftir: Mexíkóborg eins og hún leit út fyrir jarflskjálftann, sem lagði þriðjung borgarinnar i rúst, og eins og hún leit út i fyrradag. HUÓP UPP ÚR HJÓLASTÓL -ÞóG PENINGAR ÞEGAR FARNIR AÐ BERAST í HJÁLPARSJÓÐI Pottþéttar perur á góðu verði!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.