Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. 13 Síðust í gálgann Ný bresk kvikmynd um f rægt morðkvendi Miranda Richardson: „Það sem óg bæli innra með mér." „Dansað við ókunnugan” (Dance with a Stranger) nefnist kvikmynd sem nýlega var lokið við að gera í Bret- landi. Myndin er byggð á atburðum sem áttu sér stað á sjötta áratugnum í Bretlandi: segir þar frá Ruth Ellis sem hélt skandalblaðamönnum í önnum kringum 1954 þegar hún myrti ást- mann sinn, kappaksturskappann David Blakely, og var svo send í gálgann, síðust kvenna til að fá lífláts- dómíBretlandi. Það er 27 ára gömul leikkona sem fer með hlutverk Ruth Ellis. Sú heitir Mir- anda Richardson og hefur ekki áður fengið stórt hlutverk í kvikmynd. En allt í einu er hún orðin stjarna, ásjóna hennar blasir við á forsíðum viku- blaða. Og hún er hálfvegis undrandi á öllu tilstandinu. Kaldlynt skass Richardson sýnir Ruth Ellis sem kjaftfort skass, málað eins og skurö- goð, varir eldrauðar, neglur langar og augabrúnir kolsvartar, dregnar niður á kinn. Reyndar segja sérfræðingarn- ir að hún minni nokkuð á Marilyn Monroe, enda er ætlunin að Ellis nýju myndarinnar passi beint inn í tísku og strauma sjötta áratugarins. „Fólk skilur mig víst ekki,” segir Miranda Richardson — „en hefði ég vitað að það var aðalhlutverkið sem þeir vildu fá mig í þá hefði ég forðað méráhlaupum.” Hún nam leik í Bristol Old Vic og lék á sviði í Norður-Englandi, hafði hlut- verk í leikriti sem nefnist „Líf Ein- steins”. Þá var það að umboðsmaður hennar í London hringdi, sagðist hafa klófest handrit sem væri eins og skrif- að fyrir hana. Skrifað fyrir hana? — Miranda Richardson er að sögn kunnugra langt frá því að geta talist skass. Hún er einkar blíðlynd, hefur stór, blá augu — en, eins og hún segir sjálf: „Ruth Ellis var haldin ástríöufullri þrá eftir þess- um manni og varð að bæla tilfinningar sínar. Ég hugsa að ég hafi fengið hlut- verkið vegna þess sem ég bæli innra með mér. Eg er ekki opin. Og þegar ég lék fyrir þá til prufu þá var ég stíf af hræðslu, öll í keng. Ætli ég hafi ekki fengið hlutverkið út á það? ” Taugaveiklað morðkvendi Richardson segist ekki lifa sig inn í hlutverkin. „En þeir hafa verið að segja að hlutverkið hafi tekið af mér völdin. Hefði það gerst þá hefði ég áreiðanlega fallið saman, reynt að drepa einhvern, ekki satt? ” Hún segist lítið hafa vitað um Eilis- málið á sínum tíma, enda varla fædd þegar það var á forsíðum. „En ég hafði víst heyrt um hana. Já, rétt, hún var taugaveiklað morðkvendi, eða það héldu flestir. Núna segi ég bara að hún hafi verið „manneskja”. Flókin mann- eskja einsogviðöll.” Leikstjóri „Dansins” er Mike New- ell. Handritshöfundur er engin önnur en Shelagh Delaney. Og myndin á fyrst og fremst að f jalla um það hvað getur gerst þegar fólk verður altekið af ein- hverju, hugmynd eða tilfinningu — fremur en að lýsa því nákvæmlega hvað gerðist á einhverjum tilteknum tíma. „Og,” segir Richardson — „svo snýst myndin lika öðrum þræði um dauðarefsinguna. Eg tók ekki hlut- verkið af neinum pólitískum ástæöum. En eftir að hafa leikið þetta hlutverk þá veit ég það fyrir víst að dauðarefs- ing er ekki lausnin á öllum okkar vandamálum.” Gagnrýnin Til þess að búa sig undir aö takast á við hlutverkið horfði Miranda Richard- son á ótal kvikmyndir sem gerðar voru á sjötta áratugnum. Og hún fór og ræddi við systur Ruth Ellis. Hún segist vera ákaflega gagnrýnin á eigin verk og reyndar ekki fyllilega ánægð með „Dansinn” eins og hann á endanum varð. — En hvað með lofsamlega dóma, öll blaðaskrifin? „Það er rétt. Varla hafa allir á röngu aðstanda.” Lœrið að fljúgu Við getum bætt við okkur nemendum í flugnám. Góðar kennsluvélar og fín aðstaða. Eldri nemendur okkar, rifjið upp flugið og náið fyrri réttindum. Einkaflugmannsnámskeið hefst mánudag 30. sept- ember. «7 FLUGSKÓLI HELGA JÓNSSONAR, Reykjavíkurflugvelli, sími 10880 / Húsgagnasýmng Til sölu BLIK &8B477 Mercedes Benz 350 SLC árg. '79 (80), 8 cyl., 2 dyra, dökkgrár, sanseraður, rafmagn í rúðum, centrallæsingar, útvarp, kassettutæki, sumardekk, leðuráklæði, litað gler, álfelgur o.fl. Datsun 280 ZX árg. '83, 2 dyra, 6 cyl., 5 gíra, svartur, rafmagn í rúðum, T- toppur, bein innspýting, útvarp, kassettutæki, beinskiptur. Verð kr. 980.000. Skipti á ódýrari. Nissan Patrol (dísil) árg. '83, 4 dyra, rauður, 6 cyl., útvarp, vetrardekk, bein- skiptur, aflbremsur, veltistýri. Verð kr. 850.000. Skipti á ódýrari. Opið laugardag kl. 10-19. BÍLASALANBUK Skeifunni 8 Sími 68-64-77.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.