Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 25
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
25
Verkafólk i Snjókorninu i Peking þarf oft að sitja með hönd undir kinn því ekki er hœgt að halda áfram
vinnunni. Einhvern hlut vantar í keðjuna og fœribandið er stopp.
Hægagangur
íKína
Viö sögöum frá kæliskápaverksmiðj-
unni Snjókorniö í blaöinu fyrir
skömmu. Þar var fjallað um vinnudag
og starfskjör verkamanna — en DV
þykir við hæfi aö geta þess að yfirmenn
í Snjókorninu eru ekki sérlega ánægðir
með verkalýðinn þessa dagana.
„Aginn er slakur,” segir Kang
Ruixiang, talsmaður verkalýðsfélags-
ins í verksmiðjunni. „Þess vegna drög-
um viö af launum ungu verkamann-
anna og sendum þá á námskeið í iðni
og ástundun.”
Kang verkalýðsforingi segir að
ástandið í agamálunum hafi verið
slæmt, allt frá því menningarbyltingin
náði tökum á hjörtum fólksins. Nú er
svo komið að verksmiðjur í Kína fram-
leiða ekki nema fjórða hluta þess sem
sambærilegar verksmiðjur í vestræn-
um iönaðarlöndum framleiöa.
„En agi er ekki okkar stóra vanda-
mál,” segir Kang, — „heldur þessi ró-
legi vinnutaktur, lítil framleiðni. Þótt
við hér i Snjókorninu séum að fram-
leiöa nútimaiðnvarning, kæliskápa,
hafa menn ekki tilfinningu fyrir því, að
beita þarf hraöa og nákvæmum vinnu-
brögðum.”
Nýjung
Verksmiöjuvinna er nýlunda í Kína.
Snjókomið er einn fárra vinnustaða
þar sem verkamenn verða að sameina
tæknivinnu og gamaldags handverk. I
Kína, þar sem búa 900 milljónir
manna, eru aðeins 400 þúsund verk-
smiðjuverkamenn. Og skortur er á raf-
orku fyrir þær verksmiðjur sem reist-
ar hafa verið eða eru í byggingu.
„En þótt verksmiðja sé ný og full-
komin eru verkamenn oft gamlaðir og
áhugalitlir um tækninýjungar.” Eöa
svo segir talsmaður verkalýðsfélags-
ins, Kang Ruixiang. „Og það gengur
illa aö fá verkafólk til aö vera stund-
víst og vera á vinnustað þann tíma sem
ætlast er til að það sé á vinnustaö. Það
stafar m.a. af því hversu flókið það
getur verið aö kaupa í matinn til heim-
ilisins í Kína. Margir reyna að nota
matar- og kaffitíma til aö standa í bið-
röð einhvers staðar og koma svo of
seint úr þeim leiðangri. Og kortér fyrir
ellefu, kortéri áður en hádegisverðar-
hléið hefst, er komin hreyfing á mann-
skapinn í átt til mötuneytisins. Það er
vegna þess að skárri réttir, sem inni-
halda kjöt, eru svo fljótt uppurnir. Og
mannskapurinn lætur skammta sér í
box sem hann hefur með sér og er byr j-
aður að gæða sér á dagskammtinum á
leiðinni frá skenkinum fram í sal, því
að mönnum liggur svo á, þurfa að gera
svo margt í hádegishléinu.”
Hænublundur
Flestir verkamenn vilja ná því í mat-
artímanum að geta lagt sig. Miðdegis-
hvíldin, xiuxi, er eitt af því sem hverj-
um Kínverja finnst hann eiga rétt á, en
honum gengur illa að leggja sig þegar
matartíminn er ekki nema klukku-
stund. Aður fengu flestir tveggja tíma
hlé um miðjan daginn. Og þá sofnuðu
margir svo vært að þeir vöknuðu ekki
fyrr en undir kvöld.
Þessi þörf miðdegislúrs stafar m.a.
af því að margir Kínverjar búa svo
þröngt að þeir geta aldrei sofið al-
mennilega heima hjá sér — sofa aldrei
út. Kínver jar eru snemma á fótum dag
hvern. Og svo tekur það langan tíma
að melta kínverskt faéði, oft mjög ríkt
af sterkjuogmjölva.
Eftir hádegisverðinn er mjög frið-
sælt í Snjókominu. Verkafólkið hring-
ar sig niður hér og hvar þar sem líkur
eru á að friður haldist. En það sofa
ekki allir. Unga fólkið spilar póker —
um sígarettur.
Engan asa
„Viö höfum aldrei litið svo á að tím-
inn geti staöið í einhverju samhengi
við efnahagsmál,” segir Tong Gang,
sem skrifar reglulega í blaðið China
Daily, „þess vegna höfum við sóað tím-
anum gegndarlaust: við erum ótrúlega
lengi að byggja hús, sitjum ótrúlega
lengi á fundum og tölum ótrúlega mik-
ið á hverjum degi. Þetta allt sýnir hve
litla virðingu við berum fyrir tíman-
um. (Engan asa, manman lai, er af-
sökun sem við notum í sífellu).”
En nú á að herða taktinn í Kína,
beita auknum aga. Þeir sem hefja
störf í Snjókorninu á næstunni verða að
fara á mánaðarlangt námskeið. Og
þeim verður kennt margt um gildi þess
aö koma á réttum tíma og standa við
færibandið þann tíma sem um hefur
verið samið. Og þeir sem ekki bregðast
við hinum nýja aga mega búast við
refsingum. Kínverska ríkisstjómin
tekur þátt í þessari andlitslyf tingu með
stjóm verksmiðja, því nú eiga laun
verkamanna að vera nokkuð breytileg
eftir frammistöðu og verkefnum — og
fjárhagslegri útkomu viðkomandi
verksmiðju. Og svo á að vera mögulegt
að segja fólki upp.
Fyrirmyndarpiltar
I kommúnistaríkjum hefur lengi gilt
að útnefna þá verkamenn sem vel
standa sig fyrirmyndarverkamenn og
hengja upp myndir af þeim. Það kerfi
verður nú endurskoðað í Kína. Menn
hafa oft strítt þessum fyrirmyndar-
mönnum. 1 daglegu tali eru fyrirmynd-
armennimir ekki nefndar hetjur held-
ur shangua sem merkir fífl.
En vonandi tekst þeim vel upp í Snjó-
korninu — kæliskápaskorturinn er
mikill í Kína.
(GG endursagði)
SAUMANÁMSKEIÐ
Viltu læra að sauma? Námskeið í fatasaumi fyrir
byrjendur og lengra komna hefst ef næg þátttaka fæst.
Morgun- og dagtímar. Klæðskerar aðstoða.
Upplýsingar og innritun í simum 83069 og 46050.
SELJUM NYJA
OG NOTAÐA
BÍLA
Tegund Renault 9 TC 1983
Renault 9 GTL 1982
Renault 9 GTS 1982
Renault 9 TC 1982
Renault 11 GTL 1984
Renault 18 st. 1982
Renault 20 TS 1979
BMW 525 automatik 1981
BMW 520i automatik 1982
BMW 320 automatik 1982
BMW 320 1978
BMW518 1980
BMW316 1984
SELJUM N0TAÐA BÍLA
ÚRVAL ANNARRA BÍLA Á SÖLUSKRÁ,
ÝMISS KONAR SKIPTI HUGSANLEG.
Opið laugardag 1—5.
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON Hi. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633.^^^
Seljum í dag
Saab 99 GL, árg. 1981, 2ja
dyra, hnotubrúnn, bein- m
skiptur, 4 gíra, ekinn 70
þús. km. Bíll á mjög góðu
verði.
Saab 900 GLS, árg. 1982, 5
dyra, rauður, sjálfskiptur,
ekinn 43 þús. km. Skipti
möguleg á ódýrari.
Saab 900 GLE, árg. 1982,
4ra dyra, hnotubrúnn,
sjálfskiptur, vökvastýri,
litað gler, topplúga, ekinn
aðeins 33 þús. km, mjög
fallegur bíll.
Saab 900 GLS, árg. 1982, 5
dyra, Ijósblár, beinskipt-
ur, 5 gíra, ekinn aðeins 34
þús. km. Sem nýr blll.
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 13-17
TÖGGURHE
UMBOÐ FYRIR SAAB OC SEAT
BÍLDSHÖFEJA16, SÍMAR 81530-83104