Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 19
DV. DAUGARDAGUK 21. SEPTEMBER1985. lð 3 Dimmir júnídagar á Stöð varfirði af völdum campylobacter jejuni:_ Gæs/r /egg/a menn að velli Hálfur Stöövarf jörtur með niðurgang: Eins og að vera með fæðingarhríðir - segir héraðslsknirinn sem s jálfur er á s jöunda degi VandraöaáAand Mur rikt » sjaVur er ég á sjóunda degii þesaari Hrjkjavikur og biA nú eftir j Slöðrarfiröi a« undardómu. Hi*ir mðurxangspest.'' i»*6i BJóm lk«i sagAi hérömlrkmrinn Vatrnbótað a tareinn befur na þegar lepó i témrm- Rjórmaon, héraAatrknr á t'áskruða- StóðvarfirAi er girt al en lyru legri peat seni lýsir ói i mAurgangi, firði, en taann þjónar nnmg StóAv- jkiánrnu lét dýrataekrannn a •Wtaótóanogalapplokaanskanar firAuigum. ,íg vek ekki enn hvaö BreiAdaLwik þau boA ul ganga aAþvi .ta*A segja mér nmr aA taekt veldar þeasum Aakópum en ig hef jrrði ekki lengur unaA að atagamr v*tu t b*rhi '« alleiAingamar urAiA þar jem aA framan greuur A annaA hundraA atagmr munu vera á StuAvarfirAi og fara þ*r ferAa snna um taaonn Ikt og mannfólkiA taegar peatin náAi há- punkti munu gasimar á gotum Fréttin um niðurganginn á Stöðvarfirði eins og hún birtist i DV 29. júni 1984: — Héraðslæknirinn sjálfur á sjöunda degi. Það var dapurlegt um að litast á Stöðvarfirði síðla júnímánaðar 1984. Svæsin niðurgangspest herjaði á bæjarbúa og náði hún hámarki 21,— 23. júní. Aöeins nokkrum dögum síðar var pestin komin í blöðin og í DV lýsti héraöslæknirinn henni með þeim orðum að engu væri líkara en fólk væri með fæöingarhríöir; sjálfur væri hann á sjöunda degi. I frétt DV sagði orðrétt: „Vand- ræðaástand hefur ríkt á Stöðvarfirði að undanförnu. Hálfur bærinn hefur nú legið í ókennilegri pest sem lýsir sér í niðurgangi, uppköstum og slappleika alls konar.” Og síðar er orðrétt haft eftir Birni Loga Björns- syni lækni á Fáskrúðsfirði sem einn- ig þjónaöi Stöðfirðingum: „Eg veit ekki enn hvað veldur þessum ósköp- um en ég hef látiö taka sýni úr vatns- bólinu á Stöðvarfirði, sent þau suður til Reykjavíkur og bíö nú eftir svari.” 200 gæsir á vappi Böndin bárust snemma aö aligæs- um sem sést höfðu á vappi við vatns- bólið á Stöðvarfirði en á þessum tíma voru um 200 aligæsir í bænum og næsta nágrenni. I DV-fréttinni var frá því sagt að þær færu ferða sinna um þæinn líkt og rnannfólkið og þvi þætt við að þegar pestin náði hámarki sínu hefðu gæsirnar á götum bæjarins verið fleiri en fólkið og voru heimamenn og sjúklingar bornir fyrir þessari visku. Málið var rannsakað og nýverið birtust niðurstöðurnar í Læknablað- inu. Þar höföu lagst á eitt læknir af Landspítalanum, austfirskur heilsu- gæslulæknir, sýklafræðingur og maður frá Hollustuvernd ríkisins. Niðurstöður þeirra voru í stuttu máli þær að þarna hefði sjúkdómurinn campylobacter jejuni verið á ferð og mætti kenna um gæsum er komust í opið vatnsból. Mannréttindi og vatn I greinargerð þeirra félaga er vitnað í mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóöanna þar sem kveðiö er á um að þaö séu grundvallarmannrétt- indi að eiga aðgang að ómenguðu neysluvatni. Allir hljóti að gera sér grein fyrir hvað í húfi sé þar sem nánast allir neyti vatns í einhverjum mæli. Komist sjúkdómsvaldandi bakteríur í neysluvatn getur afleiðingin orðiö útbreiddari farald- ur en við nokkrar aörar aöstæður. Og það sannaðist svo um munaði á Stöð- firðingum. Þeir hrundu niður — í niðurgangi. Fuglar skotnir Vísindamennirnir hófu rannsóknir sínar með því að taka sýni úr vatns- krönum, sundlaug, vatnsbólinu sjálfu og litlum læk er rennur í vatns- bólið. Sýnin voru rannsökuð á venju- legan hátt með tilliti til mengunar af kóligerlum. Þá voru sýni tekin til ræktunar úr iðrum tveggja gæsa- unga og tveggja máva sem skotnir voru ekki alllangt frá vatnsbólinu og úr gæsaskít við vatnsbólið. Saursýni úr sex sjúklingum voru send á rann- sóknarstofu og campylobacter jejuni ræktaöur og greindur. Fannst hann í f jórum sýnum af sex, í iðrum beggja gæsaunganna en mávarnir sem skotnir höfðu verið á flugi reyndust hreinir og það sama má segja um vatnssýnin úr krönunum og sund- lauginni. Campylobacter jejuni fannst hins vegar í litla bæjarlækn- um sem rann í vatnsbólið og fyrr var frá sagt. Gæsirnar fjarlægðar Um uppruna sýkingarinnar segir svo í grein vísindamannanna: „Þegar ljóst var að um faraldur var aö ræða bárust böndin strax að neysluvatni sem liklegri smitleiö. Sjúklingarnir voru á ýmsum aldri og ekkert tengdi þá annað en búseta á Stöðvarfirði og að allir höföu neytt vatns í einhverjum mæli. Það, hve tilfellin komu upp á skömmum tíma, virtist benda til að um skyndilega, mikla mengun neysluvatnsins gæti verið að ræða. Við athugun kom í ljós aö skömmu áður höfðu aligæsir verið reknar á slóðir þar sem vatnsbóliö er og reyndist umhverfi þess mikið mengað af gæsaskít... Gæsirnar voru þegar fjarlægðar af vatnsbólinu og eftir þær aðgerðir hætti að bera á nýjumtilfellum.” Feimni? Ibúar á Stöðvarfirði náðu sér að fullu eftir niöurganginn nema hvað einn bæjarbúi varð að fara á sjúkra- hús vegna fylgikvilla sjúkdómsins. I grein vísindamannanna kemur fram aö athyglisvert sé hversu fá saursýni hafi verið send á rannsóknarstofu. Engu sé líkara en íslenskir læknar geri sér ekki fulla grein fyrir mikil- vægi saurræktana viö greiningu á niðurgangi. Er haft eftir starfsfólki á heilsugæslustöðinni á Stöðvarfirði að þaö hafi tekið eftir mjög eindreginni andstöðu sjúklinga gegn því að skila slíkumsýnum. I lok greinarinnar í Læknablaöinu segir orðrétt: „Faraldurinn á Stöðvarfirði er þörf áminning til allra þeirra sem vinna að málefnum er varöa neysluvatn. Þeir staðir sem búa illa að þessu leyti ættu að leggja áherslu á að leita sér betra vatns og vernda vatnsbólin þannig að slys af því tagi sem varð á Stðvarfirði endurtaki sig ekki. Ef ekki er unnt að afla góðs vatns er nauðsynlegt að eyöa sýklum úr vatninu með klórmeðferð, útfjólubláum geislum eða öðrum viðeigandiaðferðum.” -EIR. Á þessu línuriti sést vel hvernig campylobacter jejuni þróaðist ð Stöðvarfirði. í byrjun mánaðarins fer að bera á tilfellum og þau aukast verulega um miðjan mánuð. Hámarki nær pestin svo 21. og 23. júní. DV-mynd s, Gæsagangur og niðurgangur; gæsir og vatnsból fara ekki saman FLUGLEIÐIR GERA ÞÉR KLEIFT AD TAKA ELSKUNA ÞÍNA MEÐ JPt&A V W mr r 1 MlMÍl INNANLANDS Ef þú ferðast mikið með Flugleiðum innanlands átt þú það á „haettu" að fá einn daginn frímiða upþ í hendurnar, sem gildir til hvaða áfangastaðar okkar sem er innanlands - fram og til baka. Við gefum þér nefnilega punkta í hvert skipti sem þú ferðast með okkur og þegar þú ert þúin/n að fljúga 13-17 sinnum á fjórum mánuðum finnst okkur tími til kominn að við borgum farið — ekki þú. Fáðu safnkort hjá afgreiðslufólki Flugleiða og láttu það kvitta fyrir þegar þú kaupir flugmiða. Við munum sjá um það að skrá punktana og senda þér frímiðann — og þá getur þú tekið elskuna með þér í flugið til tilbreytingar — fritt... FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.