Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 44
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Albert setur bráðabirgðalög: BENSÍNIÐ HÆKKAR í 35 KRÓNUR LÍTRINN I gær gaf fjármálaráöherra, Albert Guðmundsson, út bráöabirgöalög. Þau kveða á um lækkun tolla á bifreiðum en hækkun bensíngjalds og þungaskatts. Þessar ráöstafanir eru geröar tU að auka tekjur í rikiskassann en fé þaö sem inn kemur vegna hækkunar þungaskatts og bensíngjalds rennur til vegamála á næsta ári. Tollar á bílum lækka úr 90% í 70%. Lækkunin leiðir til 10% lækkunar á út- söluveröi nýrra bíla. Verö á vélsleöum lækkar einnig en toUar af þeim lækka í 70% úr 80%. Bensíngjaldið hækkar 1. október. Það fer úr 6,80 krónum í 9,54 krónur. Þá mun verö á bensínUtranum veröa 35 krónur en er í dag 31,40 krónur. Inn í þessar hækkanir hafa verið felldar þær reglubundnu vísitöluhækkanir bensíngjalds og þungaskatts sem tU heföu komið aö óbreyttu. Áætlaö er aö þessar breytingar, sem bráöabirgöalögin hafa í för með sér, skUi rikissjóöi 400 mUljónum króna á heilu ári. Áhrif þessara breytinga á vísitölu framfærslukostnaöar eru engin. -ÞG. Vigdís dvelur íKaup- mannahöfn Hinni opinberu heimsókn forseta Is- lands til Hollands lauk í morgun. Vig- dís Finnbogadóttir mun dvelja í Kaup- mannahöfn til miðvikudags en þá held- ur hún tU Björgvinjar í Noregi. Vigdis mun flytja lokaræöu á mál- þingi um menntir og menningu sem haldið er í háskólanum í Björgvm. TU tslands er forsetinn væntanlegur sunnudaginn 29. september. -KMU. EINANGRUNAR GLER 666160 LOKK Vill Albert að maður mali þetta öræfagrjót á tankinn? Bráðabirgðarannsókn lokið á efninu sem fannst í Lónsöræfum: TJORUKENND FROÐA EITTHVAÐ SKYLD OLÍU —f ullyrða má að ekki séu olfulindir á þessu svæði, segir Sveinn Jakobsson jarðf ræðingur „Samkvæmt bráðabirgðaniður- stööum er þetta fljótandi efni, sem fannst í Lónsöræfum, eins konar tjörukennd froöa, eitthvað skyld oUu. Það má fuUyrða aö það séu ekki nein- ar oUulindir eða þess háttar á þessu tiltekna svæði fyrir austan. ’ ’ Þetta sagöi Sveinn Jakobsson jarö- fræðingur er DV ræddi viö hann í gær. Sveinn var þá að koma úr rann- sóknarleiðangri í Lónsöræfi. Eins og komiö hefur fram í fréttum fundu tveir menn, Kristbjöm Þor- bjömsson og Bjöm Ingvarsson, um- rædda oUukvoöu í hraunfyllingum í bergi í Lónsöræfum. Voru þeir í skoö- unarferð er þetta geröist. „Eg var eitthvað að pikka meö ísöxi í bergiö þegar þessi svarta drulla lak út,” sagði Kristbjöm í viðtali viö DV. Þeim félögum datt í hug að þarna gæti veriö um olíu aö ræða. Sendu þeir því lófafylli af efninu í rannsókn til Náttúrufræðistofnunar. Það var svo efnarannsókna- og verkfræöi- stofan Fjölver sem annaöist rann- sókn þá sem leiddi tU ofangreindrar bráöabirgöaniöurstööu. Sveinn Jakobsson skoöaöi svæöið í Lónsöræfum í gær eins og áður sagöi. Kvaö hann efnið vera mjög stað- bundið, í þrem holufyllingum á litl- um bletti. „Það er enga olíu aö sjá í neinum sprungum né lögum svo þarna eru engar oUulindir eöa þess háttar,” sagöiSveinn. „En þetta er engu að síöur mjög forvitnilegt og veröur rannsakað nánar. Ég tók sýni sem líklega verða send út til frekari skoöunar. En ég gæti trúaö aö þessi kvoöa væri tengd tveim surtarbrandslög- um sem eru þama á svæðinu,” sagöi Sveinn. -JSS mBM ft;í\ Bif reiðaeigendur of skattaðir: „ERU EINS OG í FANGELSI” segir framkvæmdastjóri FIB „Bifreiðaeigendur eru eins og fangar í fangelsi því nú er svo komið að þeir geta ekki ekið bifreiöum sín- um nema brýn nauðsyn krefji,” segir Jónas Bjarnason, fram- kvæmdastjóri FlB. Hann segir aö nú sé svo komið að um algjöra ofsköttun sé aö ræða á bifreiðaeigendur og því stefni í óefni. I samantekt um tekjur ríkisins vegna bifreiöa kemur í ljós aö þær hafa jafnt og þétt aukist frá árinu 1977 fram til 1984. Hins vegar hafa útgjöld til vegamála hlutfallslega minnkað að sama skapi. Árið 1977 voru þau 40 prósent af sköttum af bif- reiðum en voru 1984 komin niður í 30 prósent. I þessari samantekt, sem FlB hefur látið gera, eru lagöar sam- an tekjur ríkisins vegna bifreiða- kaupa, bensíns, hjólbarða, vara- hluta, viögeröa og þungaskatts. „Það er ljóst að bifreiöaeigendur eru nú í auknum mæli farnir aö standa undir annarri starfsemi á vegum ríkisins,” segir Jónas. Hann segir að nú stefni enn í hækkun þess- ara skatta, eins og t.d. þungaskatts, sem sýni best dugleysi stjómmála- mannanna í að leysa f járhagsvanda ríkisins. Jónas segir aö vegna þessarar of- sköttunar aki nú nær hver ökumaöur á ódýrum, sóluöum hjólbörðum, eng- inn geti látið gera við nema þaö nauösynlegasta í bifreiöum en samt sé bíll lífsnauösyn viö þær þjóö- félagslegu aöstæöur sem við búum viö núna. Hann bendir einnig á að rekstrarkostnaður bifreiöa sé nú orð- inn mun meiri en annar orkukostn- aöur heimilanna. Þaö hafi ekki veriö áður. Olafur Steinar Valdimarsson, ráöuneytisstjóri í samgönguráðu- neytinu, segir að þessi samanburður FlB á tekjum ríkisins af bifreiöum og útgjöldum til vegamála sé ekki raunhæfur. Ekki sé raunhæft að reikna með almennum tollum því þeir eigi ekki að renna til takmarkaðra verkefna. Ekki sé heldur rétt aö reikna með sköttum af bílainnflutningi því hann sé ákaflega breytilegur frá ári til árs. APH Ljómaralli var fram haldifl í gær. Eftir annan keppnisdag eru Finnarnir Saku og Tapio á Opel Manta i fyrsta sæti. Þeim hefur gengifl mjög vel og hefur afleins sprungifl á einu dekki. Þeir eru með tiu minútna forskot á Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson á Ford Escort. í þriflja sæti eru Þorsteinn Ingason og Sighvatur Sigurjónsson á Toyota Corolla. Fimmtán bilar af 27, sem hófu keppnina, eru eftir. í dag verflur ekifl um Fjallabaksleið afl Kirkjubæjarklaustri. Um kl. 19 verður farið í gegnum Fífu- hvamm i Kópavogi. Keppninni lýkur á morgun við Glæsibæ. Á myndinni sjást Finnarnir á Opel- bil sinum á Esjuleiðinni i gær. ÓG/DV-mynd KAE Skýrsla Hafrannsóknar: LODNAN ÍHÆTTU? „Þessar niðurstööur eru ekki nei- kvæöar nema hvaö nú fannst miklu minna af ársgamalli loðnu á þeim slóöum sem hún er vön aö halda sig á þessum tíma. Þetta er áhyggjuefni og gæti bent til mikilla sveiflna á loðnu- stofninum eftir eitt eöa tvö ár,” sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, viö DV um niður- stööur rannsóknar fiskifræðinga á út- breiðslu fiskseiöa viö Island, Austur- Grænland og í Grænlandshafi sem fram fór í ágústmánuði. „Það jákvæða er aö útbreiðsla þorskseiöa virtist vera með mesta móti sem gefur tilefni til aö búast viö sterkum þorskárgangi 1985,” sagði Jakob. I skýrslu, sem Hjálmar Vil- hjálmsson fiskifræðingur geröi, er þessari niöurstööu jafnaö viö hina stóru árganga þorskseiöa 1970, 1973, 1976 og 1984. 1 þessari könnun kom einnig í ljós aö hlýr sjór umlukti landið í ríkara mæli en 1984. Mest var af ýsuseiðum frá Breiðafirði að Húnaflóa og var stærö þeirra og fjöldi í góöu meðallagi. Þá segja fiskifræðingar að leiöa megi líkur aö því aö árgangur karfaseiöa 1985 sé meö besta móti frá því aö rannsóknir hófust 1970. Á þriðjudag munu fiskifræðingar ganga á fund sjávarútvegsráðherra og kynna honum horfurnar í stööu fiski- stofnamia og hvað þeir telji ráölega nýtingu þeirra næstu árin. APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.