Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985. ST. JÓSEFSPÍTALI, LANDAKOTI LAUSARSTÖÐUR Fóstra óskast til afleysinga í vetur á dagheimili fyrir börn á aldrinum 3ja til 6 ára. Einnig vantar starfsmann á dag- heimilið. Upplýsingar í síma 19600-250 milli kl. 09.00 og 16.00. Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækningadeildir l-A og ll-A, handlækninga- deildir l-B og ll-B, barnadeild, svæfingardeild og gjör- gæslu. Boðið er upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar. Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við eftirtaldar deildir: Lyflækningadeild ll-A, handlækningadeildir l-B og ll-B. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600-220-300, alla virka daga. Reykjavík 20/9, 1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Rauðarárstíg 7, þingl. eign Haralds Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimunnar í Reykjavík, Veödeildar Landsbankans, Sigríöar Thorlacius hdl. og Arna Vilhjálmssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöju- daginn 24. september 1985 kl. 11.45. Borgarfógetaembaettið í Reykjavík. Útvarpshúsið saltað á f járlögum: Fær um 55 milljónir í stað 170 milljóna I fjárlögum næsta árs er gert ráö fyrir því aö um 55 milljónir fari til framkvæmda viö hiö nýja útvarps- hús. Hins vegar er áætlað að það þurfi minnst 170 milljónir á næsta ári viö framkvæmdirnar til aö halda áætlun. Niöurskuröurinn á þessu sviði er u.þ.b. 70 prósent. Að sögn Harðar Vilhjálmssonar, fjármálastjóra Rikisútvarpsins, veröur næsta ár f járfrekasta árið frá upphafi framkvæmda miðaö viö byggingaráætlun hússins. Ráðgert hefur veriö að ljúka við stóran hluta hússins svo að nær öll starfsemi Rikisútvarpsins, sem nú er á Skúla- götu 4, geti flutt í ársbyrjun 1987. Ef þessi áætlun næði fram að ganga myndi hljóðvarpið flytja í húsið í árs- byrjun 1987. Hörður segir að ef rétt sé að skera eigi framlög ríkisins til byggingar- innar niður muni það að sjálfsögðu seinka framkvæmdum mikið. „Það yrði að mínu mati dýrt spaug fyrir ríkið vegna þess að nú þegar er búiö að leggja mikið í þessa bygg- ingu. Ég tel að það sé léleg f jármála- pólitík aö ljúka þessum framkvæmd- um ekki á eðlilegum tíma,” sagði Hörður. APH Ingolf heitir i höfuðiö á Ingólfi Arnarsyni. Frá Akureyri hélt skipið til Danmerkur. Það hefur aö mestu stundað strandgæslu viö Grænland. Skipið tók eitt danskra skipa þátt i heræfingum Nato nýlega. DV-mynd JGH. Bless við brottför Danska herskipið Ingolf „lúðraði” Akureyringa Danska herskipið Ingolf kvaddi Akureyringa að sjómannasið síðast- liöinn laugardag er það þeytti lúðra. Skipið gerði að þessu sinni stuttan stans á Akureyri, staldraöi við í tvo daga. Ingolf er eftirlitsskip í danska flot- anum og hefur mest fengist við strand- gæslu við Grænland. Það heitir í höfuðið á ekki ómerkari manni en fyrsta landnámsmanni Islendinga, Ingólfi Amarsyni. Frá Akureyri hélt skipiö til Dan- merkur, Frederikshavn. Þar verður skipt um áhöfn og síðan haldiö í norðrið aftur. Hver áhöfn er í þrjá mánuði á skipinu í senn. Ahöfnin er 71 maður, þar af 13 foringjar. Skipperinn í þessum túr heitir O. Lichtenberg. Þess má geta að Ingolf tók þátt í hinum umfangsmiklu heræfingum Nato nýlega, eitt danskra skipa. -JGH. Fjör i brekkunni fyrir neðan leikhúsið á Akureyri. Það er heldur engin furða, þetta eru leikendur i Jólaævintýrinu eftir Dickens. Leikritið verður frumsýnt um miðjan nóvember. , Leikfélag Akureyrar á fullum dampi: Sextíu böm reyndu sig í leik og söng — Jólaævintýrið, Silfurtunglið og Fóstbræður verða sýnd í vetur „Það má segja að starfsárið hjá Leikfélagi Akureyrar hafi byrjað þann 19. ágúst þegar 60 böm stormuðu inn í leikhúsiö til að reyna sig í söng og leik fyrir fyrsta verkefni félagsins,” sagði Signý Pálsdóttir, leikhússtjóri á Akureyri. Signý sagði að umrætt leikrit væri Jólaævintýrið, Christmas Carol, eftir Charles Dickens. Sextán börn úr áður- nefndum 60 barna hópi æfa nú fyrir leikritið, auk þess sem ellefu leikarar og sex dansarar hafa bæst í hópinn. Reiknað er með að Jólaævintýrið verði frumsýnt um miðjan nóvember. 1 leikritinu fer nirfillinn Scrooge á fleygiferð fram og aftur í tíma á jóla- nótt. Að sögn Signýjar verður Silfur- tunglið eftir Halldór Laxness sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur. Gert er ráð fyrir að það verði frumsýnt seinni hluta janúar. Silfurtungliö hefur veriö sýnt í Þjóðleikhúsinu. Það var einnig sýnt í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Loks verður leikritið Fóstbræður, Blood Brothers, eftir Willy Russell frumsýnt í lok mars. Leikstjóri er Páll Baldvinsson. Leikritið f jallar um „tvíburabræður sem alast upp í ólíku umhverfi, gerast perluvinir án þess að vita um uppruna sinn. En örlögin spinna þeim ævintýra- legan vef”. Hvaðagrein er„fjár- frekusi” — styrkir vegna nýsköpunar Umsóknir um styrki til Rannsóknaráðs ríkisins vegna ný- sköpunar í atvinnulífinu voru fleiri en menn áttu von á. Til úthlutunar eru 50 milljónir króna en heildar- upphæð umsókna reyndist 204,1 milljón króna. Styrki þessa skal veita til rannsókna- og þróunar- starfa í þjóðfélaginu. Sérstök mats- nefnd hefur verið skipuð og á hún að úthluta styrkjunum fyrir októberlok, svo sem greint hefur verið frá í DV. Alls bárust 122 umsóknir. Þaö hefur helst heyrst á máli manna, þegar nýsköpun í at- vinnulífinu hefur borið á góma, að vaxtarbroddurinn liggi í loðdýra- rækt, fiskeldi, líftækni og upplýsinga- og tölvuiðnaði. Það er athyglisvert að skoða flokkun um- sóknanna, sem bárust til Rannsóknaráðsins, og hvaða grein er „f járfrekust”. Flestar umsóknir bárust frá aðilum varðandi upp- lýsinga- og tölvutækni. Helmingur umsókna er til þróunar hug- búnaðar og hinn helmingurinn til þróunar vélbúnaöar á tölvusviöinu eða samhæfðs vélbúnaðar og hug- búnaðar. Þeir 38 umsækjendur, sem sækja um styrki á þessu sviði, biðja um 52,3 milljónir króna. Vegna fiskeldis og skyldra verkefna bárust 28 umsóknir, að upphæö 36,7 milljónir króna. Stærsta upphæöin var vegna líf- efna- og líftækniverkefna, 61 milljón króna í 10 umsóknum. Samanlagt eru umsóknir til áður- nefndra greina 150 milljónirkróna. -ÞG. -JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.