Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 18
18 DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. Töfrar hnífsins Hvemig stendur á því að hnífurinn hefur orðið Finnum svo kært verkfæri að það vopn er eins og hluti af finnskri þjóðareál? Við þeirri spumingu er erfitt að finna svar en ein ástœðan er eflaust sú að töframáttur hefur jafnan verið bundinn jáminu, hnífsegginni sem hertvaríblóði. Því má svo ekki gleyma að í Finn- landi sem annars staðar voru hnífar auðvitað oftast notaðir í friðsamleg- um tilgangi, svo sem eins og við út- skurð í tré eða bein, eða hann var notaður eins og íshaki á vetrum, t.d. þegar einhver féll í vök. Hnífurinn var og er alhliða verkfæri, í senn þjónn og vopn þess fátæka. Hnífar hafa reyndar verið notaðir við hin margvíslegustu tækifæri í Finnlandi. Til skamms tíma vom t.d. aldrei hafðar pappirsrúllur á salern- um finnsku lestanna heldur hékk þar í spotta furubjálki og reiknað var með að ferðalangar hefðu hníf á sér til að tálga spæni sér til buxnabjargar. Finnski forsætisráðherrann P.E. Svinhuvud bar jafnan á sér hníf þar eð hann áleit að hnífur tilheyrði fatn- aði hins frjálsa manns. Auðvitað er hnífurinn einnig manndómsmerki. ógiftar konur í Karelíu bám jafnan tómt hulstur við belti sér. Kjarkmikill biðill þurfti bara aðstingahníf sínum í tómt hulstr- ið. Fengi hnífurinn að vera þar kyrr þurfti ekki að orðlengja um endalok þess bónorðs! 1 fornri þulu er hægt að fræðast um það gagn sem hafa má af hnífhumsínum. Hinir illu I austri Antti Rannanjðrvi (forfaðir hnífagerðarmannsins) og Antti Isotalo eru frægastir af „hinum illu . Þeir voru „settir i jám" í orðsins fyllstu merkingu. Þama lótu yfirvöldin þeim i tó 60 kg af hlekkjum. Áriö var 1869. „Ástin kemur eldsnöggt, eins og finnskur hnífur,“ sagði rússneska skáldið Mikhail Bulgakov. Rússar hafa, eins og svo margir aðrir, löngum óttast hinn hárbeitta finnska hníf sem stingur að óvörum og er jafhan skammt undan þegar til átaka kemur á meðal Finna. Eða svo hermir þjóð- sagan. Taisto Jalamo er finnskur blaða- maður og rithöfundur. Jalamo hefur ferðast víða um veröld og næstum alls staðar, segir hann, er hann spurður um hnífinn. „Menn hafa spurt mig eftir hnífiium, jafiit í Færeyjum sem í Kenya, og auðvitað í Svíþjóð, þar sem ég bý. Þar gengur nú ekki á öðru en glópsyrðum um Finnann og hnífinn. “ Puukkon „Puukkon" er finnska orðið yfir hnífinn. 1 Rússlandi nota menn orðið „finka“ yfir verkfærið, eða réttara sagt þegar menn vara hver annan við finnska hnífiium. Og eftir því sem 8Ögusagnir herma börðust Finnar stundum í vetraratríðinu með hnífinn einanaðvopni. Taisto Jalamo hefur rannsakað þessa goðsöcm um Finnatm n? hníf- inn. Hann skrifaði nýlega grein og þar segirm.a.: Hvere konar furðusaga er þetta með hnífi nn? Eða sky ldi vera eldur að baki öllum þessum reyk? Auðvitað. Skreppum til Suðausturbotns í Finn- landi. Árið er 1866. Reykský þyrlast upp á himininn og beret svo yfir víðáttu- mikla sléttuna. Fólkið í þorpunum hleypur í felur, leitar skjóls í gripa- húsum og geymslum. Það er hrópað yfir sveitina: Þeir illu koma! „Hájyt tulevát!" Reykskýið nálgast. Bráðlega sést hvar löng röð tvíhjóla kerra nálgast. Froðufellandi hestar draga þessa stríðsvagna. í hverjum vagni eru tveir eða fleiri karlmenn sem bölvandi og öskrandi sveifla svipum og blikandi hnífum. Þeir eru í fallegum vestum og með barðastóra hatta og í háum stígvélum sem þeir gyrða buxumar niður í. Um mittið hafa þeir breið silfur- eða mess- ingslegin belti og þar hanga hníf- slíðrin. Þeir eru bereerkir sem aka gargandi um sveitir, vissir um að engir í heiminum séu glæsilegri og óHo]pcrri pr> Vtpir Boðflennur í brúðkaupl Þeir aka upp á hlað stóre bóndabýlis þar sem brúðkaupsveisla er að hefi- ast. Fremsti vagninn stefnir í gegnum hliðið en hestamir spyma við fótum, trylltir af hræðslu í öllu umstanginu. Á þessum bæ hefur fólkið ekki flúið undan bereerkjunum heldur býður þá velkomna.enda ekkert annað hægt að gera. Ef við þeim er amast getur farið illa, manndráp hlotist af, íkveikja eða skemmdarverk unnin á húsum, búnaði og fénaði. „Hinir illu“ þramma inn í spari- stofu. Foringinn fer fyretur eins og víkingaforingi aftan úr fomeskju. Hinir fylgja honum sem hirðmenn. Þeim er borið öl og brennivín, veislan heldur áfram. Úti á danspallinum er stiginn dans. Undir lauftrjám er dúk- að langborð sem svignar undan kræs- ingum. En allt í einu dettur allt í dúnalogn. Danspxirin rýma pallinn. Einn úr hópi „hinna illu“ stígur fram, tekur nokk- ur sérkennileg dansspor, stekkur svo upp á langborðið þar sem hann sýnir stoltur vonn sín. tvöfelt slíður með Jorma Rannanjárvi ar fjórði ættliðurinn i sinni kynslóð sem starfar við að smíða hnifa. Og einn só siðasti í áður fjölmennri handverks- mannastótt. Rannajárvi býr og starfar við götu sem heitir Hnifameist- aragata. (III) Kutinn, einnig nefndur „jungi". Maður grípur hann þegar skera skal flís úr sauðarlæri, smyrja með smjöri, tálga úr pipu og siða börnin. Dálkinn, veisluhnífinn, grípur maður þegar vanda skal til veislu, skírnar, bónorðs, og auðvitað grípur maður hann þegar karl- menn þurfa að gera upp sin mál. tveimur hnífum, og hann hoppar áfram með sérkennilegu bugti og beygingum eins og hani í tilhugalíf- inu. Fólkið stendur þögult álengdar og bíður. Það veit að dansinn er áskor- unardans sem er beint gegn einhverj- um sem enn hefur ekki verið til- greindur. Og svo gerist það sem allir vissu fyrir að myndi gerast. Annar víkingur stekkur upp á borðið og dansar á svipaðan máta og áskorandinn. Dauöadans Eftir stundarkom hoppa báðir „dansaramir" til jarðar og halda þar áfram sínum sérkennilega en form- fasta dansi. Svo hrópar húsmóðirin á bænum skyndilega: Komið ykkur út fyrir og gerið út um þetta, í guðanna bænum! Frammi á hlaðinu draga þeir fram hnífenn ncr hvria höggdans sinn sem lýkur ekki fyrr en annar hvor fellur blæðandi, deyjandi til jarðar. At- burðir eins og þessi voru algengir í Suðausturbotni á síðustu öld. „Hinir illu“ herjuðu þar eða voru fyrirferð- armiklir á tímabilinu frá 1790 til 1885. Á þessu árabili féllu 1500 Austur- botningar í valinn og miklu fleiri hlutu var anleg örkuml. / Vítisenglar fortíðarlnnar Þjóðfélagsleg skýring á framferði og tilkomu „hinna illu“ er of löng og flókin til að tilgreina hér og nú en ein skýring er sú að ó þessum tíma var mikið ríkidæmi í Austurbotni. Það landsvæði hafði meira en nægilega atvinnu fyrir íbúa sína, enginn al- þýðumaður þurfti að koma sér í mjúk- inn hjó vinnuveitendum eða hús- bændum. Það mynduðust hópar efn- aðara iðjuleysingja, kannski í líkingu við „vítisengla" okkar daga eða „raggara“ í Svíþjóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.