Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 27
DV. LAU G ARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. 27 Aðspurður segist Þrándur Thor- oddsen tvisvar hafa lent í partíi með Polanski en í slíkum boðum gekk á ýmsu. Þetta voru hálfgerðar orgíur þar sem fólk sleppti fram af sér beisl- inu eins og gengur og gerist. - Ræddirðu aldrei við Roman Pol- anski? „Einhvern tímann átti ég við hann tal í boði og man ekki annað af því, nema hvað Polanski fannst ofsalega fyndið að ég væri frá Islandi. Þeir voru ekki vanir útlendingum þama í Lodz enda var ég fyrsti vestantjalds- maðurinn sem fékk inngöngu í þenn- an k vikmy ndaskóla." Þótt fátt hafi verið um vestantjalds- menn í Póllandi átti Roman Polanski þó eftir að vinna mest með slíkum og þá utan ættjarðar sinnar. Þar voru peningamir sem hann var að sækjast eftir og atvinnumöguleikar sem hann þurfti. Ein fyrsta kvikmyndin, er hann gerði á Vesturlöndum og ein- hverjir peningar vom settir í, var Repulsion með Catherine Deneuve í aðalhlutverki; hrollvekja sem bönn- uð var innan 16. í ævisögu sinni lýsir Polanski þeim vandræðum er hann lenti í þegar Deneuve neitaði að koma fram nakin undir gagnsæjum nátt- kjól. Og ekki skánaði það þegar Pol- anski fór fram á það við hana að hún sæti fyrir á nektarmyndum sem birt- ast áttu í Playboy og auglýsa mynd- ina. Polanski tókst að tala leikkon- una til á þeim forsendum að besti vinur hans tæki myndimar, ljós- myndari á heimsmælikvarða sem hægt væri að treysta. Ljósmyndarinn mætti, tók myndimar og kvæntist svo Catherine Deneuve. Ekki gekk minna á er upptökur á Rosemarys Baby vom rétt hálfnaðar í New York. Með aðalkvenhlutverk í þeirri mynd fór Mia Farrow er þá stundina var gift Frank Sinatra. Mia Farrow var á þessum árum hálfgerð hippastúlka, bjó í litlum húsvagni í miðju kvikmyndaverinu. Á vagninn hafði hún málað litlar rósir og innan- d\'rn héneu burrkuð blórp niður úr átti eftir að færa höfundi sínum ótal tækifæri til frekari landvinninga í kvikmyndaiðnaðinum. „Þá stuttu stund sem ég fy lgdist með upptökum þama virtist mér sem ein- tómt sprell væri látið ráða ferðinni. Þetta leit einna helst út fyrir að vera klíka í sumarleyfi sem væri að gera sér dagamun. En hvað sem því líður þá hef ég vissu fyrir að Polanski var harðduglegur verkmaður og vissi hvað hann var að gera. En hann var alltaf að grínast og líktist sprellikarli sem aldrei ann sér hvíldar. Ég er á því að það hafi verið gríma sem hann setti upp til að láta fólk ekki koma of nærri sér.“ Msð Jack Nicholson við gerð Chinatown. Nicholson reykti marijúana eins og sigarettur en missti aldrei dag úr vinnu. Skömmu siðar hrökkl- aðist Polanski frá Bandaríkjunum eftir að hafa verið gefið sök að eiga kynferðislegt samneyti við stúlku undir lögaldri. Þau höfðu kvaðst við skipshlið nokkrum dögum áður og það siðasta sem Sharon Tate sagði við mann sinn var: ,,Þú ættir að lesa þessa bók. Það gsati orðið góð kvikmynd." Hún veifaði til hans venjulegri pappirskilju sem á stóð: „Tess of the d'Urbervill- es". Sú kvikmynd hefur nú verið gerð og heitir einfaldlega Tess. Polanski og Nastassia Kinski við upptökur. Sharon Tate, eiginkona Polanskis, var myrt í Kali- forníu 1969. í sjálfsævisögu sinni lýsir Poianski sorg sinni vegna missis hennar á átakanlegan hátt. Enn þann dag í dag getur hann ekki pakkað ofan i ferða- tösku án þess að tárast. Það verk var hún vön að vinna. loftinu. Frank Sinatra, eiginmaður hennar, sat aftur á móti í svítu sinni á 27. hæð í skýjakljúfi og stundaði viðskipti. Eitthvað gekk hjónabandið brösulega því dag einn mætti lög- fræðingur með sólgleraugu í kvik- myndaverið og bað um stuttan fund með frú Sinatra. Það var auðsótt í hippavagninum, fundurinn stóð í tvær mínútur og skuggalegi lögfiræð- ingurinn hvarf á brott. En Mia Farrow sat sem fastast í litla hippa- vagninum sínum og neitaði að koma út. Þegar Roman Polanski loks áræddi að ganga inn varð fyrir honum lítil og uppburðarlaus, stuttklippt stúlka, grátbólgin. Frank Sinatra vildi skilja, og það á stundinni. Nú voru góð ráð dýr: upptökur í miðjum klíðum, langt á eftir áætlun, og aðalleikonan illa á sig komin eftir nýjustu hugdettu Frank Sinatra. í sjálfsævisögu sinni segir Roman Pol- anski svo frá: „Allt í einu stóð Mia á fætur og sagði að við skyldum halda áfram að vinna. Allt var sett í gang og við mynduðum atriðið í Rosemarys Baby þar sem haldið er mikið vinahóf með glensi og gamni. Útkoman varð góð. Það var ekki að sjá að Mia Farrow væri nýskilin við Frank Sin- atra.“ Löngu áður hafði Polanski lent í öðrum vinafagnaði með skólafélög- um sínum í Lodz og þar var Frank Sinatra fjarri góðu gamni en Þrándur A /4 + * oúlrv „Þetta var skólaball og ég man að það gekk mikið á hjá Polanski og klíkunni hans. Skólinn var þannig að þar var einnig rekið svínabú með meiru. Það voru því hæg heimatökin hjá Polanski og félögum þegar þeir sóttu sér nokkur svín og riðu þeim síðan berrassaðir um víðan völl. Þetta vakti mikla athygli og einhverja vanþóknun hjá skólayfirvöldum, ef égmanrétt." Nú býr Roman Polanski á megin- landi Evrópu. Til Bandaríkjanna getur hann ekki farið því þar bíða réttarhöld og að öllum líkindum fang- elsisvist. Óvarlegt kvennafar með stúlku undir lögaldri kom honum í klípu sem bandarískir dómarar hafa ekki í hyggju að leysa hann úr. Þar lúra einnig minningar frá sumar- dögum árið 1969 þegar eiginkonahans og bam undir belti voru myrt á hinn hroðalegasta hátt í Kalifomíu og einnig nokkrir bestu vina hans. Sjálf- ur var Polanski staddur í London og nýbúinn að senda eiginkonu sína, Sharon Tate, yfir hafið til Ameríku þar sem ógæfan beið hennar. Þau höfðu kvaðst við skipshlið nokkrum dögum áður og það síðasta sem Shar- on Tate sagði við mann sinn var: „Þú ættir að lesa þessa bók. Það gæti orðið góð kvikmynd." Hún veifaði til hans venjulegri pappírskilju sem á stóð Tess of the d’Urbervilles. Sú kvikmynd hefur nú verið gerð T'occ - TTTR ÚRVALS NOTAÐIR Arg. Km Kr. CH. Malibu sedan 1980 320.000 Izusu Trooper bensín 1982 38.000 610.000 CH. Citation, sjálfsk. 1981 50.000 370.000 Mazda 626 2000, sjálfsk. 1980 65.000 230.000 Pontiac Parisienne 1984 15.000 950.000 Lada Topas 1500 1977 35.000 Range Rover 1981 56.000 950.000 Opel Rekord 2,0 lúxus 1982 79.000 395.000 Peugeot 504, sjálfsk.. 1978 75.000 180.000 Daihatsu Charmant 1979 150.000 Chrysler Le Baron st. 1979 51.000 390.000 Opel Corsa luxus 1984 19.000 .'350.000 Opel Ascona 1983 22.000 440.000 Citroén CX 2400, st. 1983 57.000 650.000 Opel Ascona Berl. hatchb. 1982 44.000 400.000 Volkswagen Golf 1981 66.000 235.000 Ch. Nova, sjálfsk.. 1977 102.000 150.000 Aro 244 jeppi 1979 41.000 180.000 Ch.Chevy sportvan,11 manna 1979 400.000 Pontiac Grand Prix 1979 300.000 Ch. Caprice CLst.d. 1982 101.000 850.000 Opel Kadett, 4ra d.. 1984 8.000 360.000 Plymouth Volaré Prem. 1979 79.000 230.000 Honda Accord 4 d. 1980 42.000 255.000 Mazda 929 2 d., hardtop. 1982 42.000 450.000 Opel Kadett, 5 d.. 1981 210.000 Isuzu Gemini, 1981 43.000 220.000 Oldsm. Delta 88 Royal d., 2 d., 1982 60.000 850.000 Daihatsu 850 sendib., highroof,jg84 11.000 265.000 Saab 900 GLE 1984 35.000 700.000 Toyota Carinad. 1984 37.000 500.000 Opið virka daga kl. 9—18 (opiö i hádeginu). Opið laugardaga kl. 13 — 17. Simi 39810 (bein lina). BILVANGUR sf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 68., 80. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Kópavogsbraut 85 — hluta —, þingl. eign Helgu Karlsdóttur o.fl., fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. september 1985 kl. 15.45. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 103. tölublaði Lögbirtingablaösins 1984 og 9. og 17. tölublaöi þess 1985 á eigninni Engihjalla 8 — hluta —, þingl. eign Kaup- garðs hf., fer fram aö kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Ölafs Gúst- afssonar hdl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 25. september 1985 kl. 16.00. Baejarfógetinn i Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 103. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 9. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Hamraborg 16 — hluta —, þingl. eign Þorgeröar Baldursdóttur, fer fram að kröfu Útvegsbanka Islands, Ólafs Gústafssonar hdl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. september 1985 kl. 10.15. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 69., 79. og 83. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Þverbrekku 6 — hluta —, þingl. eign Sigmars Sigurðssonar, fer fram aö kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. september 1985 kl. 15.30. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 69., 79. og 83. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Engihjalla 1 — hluta —, þingl. eign Helgu Valdimarsdóttur, fer fram að kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 25. september 1985 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.