Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Guflrún S. Gísladóttir og Helgi Skúlason í Reykjavíkursögum Ástu.
, . . , r.r. , DV-mynd KAE
Listahatío kvenna:
REYKJAVÍK EFTIR-
STRÍDSÁRANNA
— á sviði Kjallaraleikhússins að Vesturgötu 3
Listahátíð kvenna er hafin. Dagskrá-
in er feikiviðamikil. Næsta mánuðinn
verður boðið upp á málverkasýningar,
tónleika, ljósmyndasýningu, upplestur
á sögum og ljóðum, leikrit sem og
margvíslegar uppákomur.
Kjallaraleikhúsið
I kvöld verður frumsýnd leikgerð
Helgu Bachmann á Reykjavíkursög-
um Ástu Sigurðardóttur. Til að sýna
verkið hefur verið stofnað nýtt leikhús,
Kjallaraleikhúsið. Sýningar verða í
kjallara kvennahússins við Vestur-
götu.
Helga hefur valið fimm af sögum
Astu til sýningar. Þær eru: Gata í rign-
ingu, Supermann, Kóngaliljur, I hvaða
vagni og Frá sunnudagskvöldi til
mánudagsmorguns. Efni sagnanna er
sýnt sem sjálfstæðir einþáttungar.
Þær eiga það sameiginlegt að þar er
brugðið upp myndum af lífinu í
höfuðborginni á árunum eftir stríð.
Helga neitar þó að um heimildarverk
sé að ræða. „Sögur Ástu eru fyrst og
fremst mikill skáldskapur. Stíll hennar
færaðnjótasín.”
Þótt í leikgerðinni sé engin tilraun
gerð til að tengja sögurnar saman fer
það vart fram hjá áhorfendum að þær
mynda býsna samfellda heild. Helga
Bachmann hefur skýringar á því á
reiðum höndum. „Það er talent Astu
sem rithöfundar og mannskilningur
hennar sem tengir þessar sögur
saman.”
Minna en Þjóðleikhúsið
„Nei, sjáðu til, þetta er rétti staður-
inn til að sýna þetta verk,” segir Helga
þegar efasemdir vakna um að þröngur'
og fornfálegur kjallarinn í bakhúsinu á
Vesturgötu 3 henti sem best fyrir
leiksýningar. I veggjum kjallarans er
hleðslusteinninn ber og „salurinn”
einkennist af skógi stoða sem halda
uppi gólfi fyrstu hæðar. Með einfaldri
sviösmynd Steinunnar Þórarinsdóttur
myndast þó þarna innan dyra áhrifa-
mikil og dálítið kaldranaleg götu-
mynd. Það er eins og sýnishom af
Reykjavík eftirstríðsáranna hafi verið
geymt þarna til síðari nota.
Með aðalhlutverk í sýningunni fara
Guðrún S. Gísladóttir, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Helgi Skúlason og Emil
Gunnar Guðmundsson. Tónlist hefur
Guðni Franzson samið og nefnir hana
Reykjavíkurtangó. Sveinn Benedikts-
son annast lýsingu og Þorsteinn M.
Jónsson vasast í tæknimálunum auk
þess að fara með smáhlutverk.
Frumsýningin verður í kvöld kl. 21.00.
Listahátíð
En það verður fleira en leiklist á
listahátíðinni. I dag kl. 14.00 verður
opnuð á Kjarvalsstöðum samsýning á
myndlist fjölda kvenna. Ber sýningin
yfirskriftina Hér og nú. Þar að auki
opnar Ásrún Kristjánsdóttir mynd-
listarsýningu í Gallerí Langbrók kl.
16.00.
Á morgun hefst dagskráin kl. 14.00
með opnun sýningar í Gerðubergi á
bókum og bókaskreytingum eftir
konur og kl. 15.30 verða þar lesin ljóð
kvenna. Kl. 17.00 verða flutt á Kjar-
valsstöðum tónverk eftir íslenskar
konur. Á þessum fyrstu tónleikum í röð
slíkra verða flutt verk eftir Karolínu
Eiríksdóttur og Mist Þorkelsdóttur.
Annað kvöld kl. 20.30 flytja síðan
leikarar úr Leikfélagi Reykjavíkur
dagskrá úr verkum Jakobínu
Sigurðardóttur í Gerðubergi. Leik-
stjóri er Bríet Héðinsdóttir. GK
Innbrotin um verslunarmannahelgina:
14 ígæsluvarðhald
framtílþessa
I tengslum við innbrot sem framin
voru í Reykjavík um verslunarmanna-
helgina hafa 14 manns verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald. Enn eru
fjórir þessara manna í gæslu. Eins og
kunnugt er af fréttum voru framin
nokkur innbrot í heimahúsum í
Reykjavík um verslunarmannahelg-
ina.
Trimminu
lýkurídag
Nú fer hver að verða síðastur til að
taka þátt í Norrænu trimmlands-
keppninni. Síðasti keppnisdagur er í
dag, laugardag. Að honum loknum
er fólk hvatt til að fylla út þátt-
tökukort sin og koma þeim til
tþróttasambands f atlaðra, Háaleitis-
braut 11—13, eigi síðar en 27.
september. Þessi mynd var tekin á
upphafsdegi keppninnar fyrir tæpum
tvelmur vikum þegar fólk trimmaði
saman úr Hátúni. DV-mynd PK.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarlögreglunni er mál þetta
orðið viðamikið og teygjast angar þess
í margar áttir s.s. að fíkniefnaviðskipt-
um.
Rannsókn málsins stendur enn yfir
og enn er ekki allt þýfið komið í
leitirnar.
APH
HRESSINGARLEIKFIMI
KVENNA OG KARLA
Haustnámskeið hefjast fimmtudaginn 26.
sept. nk.
o Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskólans og í-
þróttahús Seltjarnarness.
• Fjölbreyttar æfingar — músík — dansspuni — þrek-
æfingar — slökun.
Innritun og upplýsingar í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari.
QDYRASTI
ALVÖRUBÍLUNN
ovf'f?.
Verð aðeins kr. 209.000.
Lán ; 104.500.
Þér greiðið 104.500.
Verð með eftirgjöf kr. 142.000.
Tökum vel með farnar Lödur upp í nýjar.
iC: BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236.
OPIB TIL
rVer*«® ^
Cirv
u
KL4 I DA4í
raWÖ f* boöt.
VfSA
Jli
Jón Loftsson hf.
/2imn r
ðE
Hringbraut 121 Simi 10600