Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 6
6
DV. LAUGARDAGUR 21. SKPTEMBER1985.
I haust munu margir þekktustu rit-
höfundar Bandaríkjanna koma
saman á Broadway og lesa upp úr
verkum sínum. Islenskir rithöfundar
hafa stöku sinnum gengist fyrir
upplestrarkvöldum og reyndar bók-
menntahátíðum, sbr. Norrænu
ljóðlistarhátíðina nýafstöðnu og
jafnan hefur bókmenntaþyrstur
almenningur þyrpst að. En í
Bandaríkjunum eru shkir
upplestrarviðburöir ekki tíðir,
sennilega vegna þess að þeir sem
gætu staðiö fyrir upplestrarkvöldum
rithöfunda trúa því varla að fjöl-
menni sæki aö.
En í haust verður lesið á Broadway
— og það sem meira er: Það er búiö
að selja upp alla fáanlega miöa að
þessari bókmenntahátið, og það þótt
verð hvers miða hafi verið heilir 1000
dollarar (40.000 ísl. kr. rúmlega)!
Tveir nóbelshöfundar
Sextán frægir rithöfundar munu
lesa úr eigin verkum, eöa halda
erindi. Tveir þeirra eru nóbels-
verðlaunamenn, þeir Saul Bellow og
Isaac Bashevis Singer.
Auk þeirra má nefna fræga menn
eins og Norman Mailer, Arthur
Miller, William Styron, Gore Vidal
ogKurt Vonnegut.
Höfundarnir koma saman og lesa i
til aö safna peningum sem variö
veröur til aö standa straum af
kostnaði við 48. ráðstefnu PEN-
samtakanna, en það eru alþjóðleg
rithöfundasamtök sem ætla að þinga
með sérstökum glæsibrag í New
York eftir næstu áramót. PEN-
samtökin berjast fyrir ritfrelsi víða
um veröld og eru PEN-deildir
starfandi í flestum löndum.
Bókmenntir
undirstaðan
„Fólki hættir til að gleyma því, að
bókmenntirnar eru sú rót sem gott,
hamingjusamt líf byggir á,” sagði
Norman Mailer nýlega á frétta-
mannafundi vegna upplestrar-
kvöldsins. Þar sátu auk Mailers, þeir
Kurt Vonnegut og Bellow, alhr harla
glaðir yfir því að svo vel skyldi
ganga að selja aögöngumiða aö
þessu stórstjörnukvöldi.
Mailer, sem er forseti bandaríska
PEN-klúbbsins (hér á Islandi er það
Thor Vilhjálmsson) sem er í forsvari
fyrir PEN), bætti við: „Viðvonumst
til að þessi upplestur verði fólki
hvatning til að snúa sér aftur að bók-
menntunum.”
„Fólk hellir sér úr í kókaín,” sagði
þá Kurt Vonnegut, „hvernig væri að
þeir hinir sömu prófuöu
bókmenntir.”
Að bjarga höfundum
úr fangelsi
Það var John Galsworthy sem
stofnaði PEN árið 1922, en
Galsworthy var einn þekktasti rit-
höfundur Breta á sinni tíð.
„Síðan hefur PEN orðið nokkurs
konar mannréttindabaráttunefnd
fyrir rithöfunda,” sagði Norman
Mailer. „PEN verður fyrst til að
mótmæla þegar einhver rithöfundur
er settur inn fyrir að hafa birt á
prenti óvinsælar hugmyndir eða
viðhorf.
Hlutur af starfi minu sem forseti
PEN er aö skrifa einhverjum
(ómerkilegum) einræöisherra bréf
í þeim tilgangi aö reyna að fá hann tii
_ c 'wunr. jy,t at, wm
Saul Bellow ríöur á vaðiö, byrjar Gabriel Garcia Marquez fær ekki vegabréfsáritun — og kemur þvi ekki á PEN-þing i Bandaríkjunum.
sinn lestur þann 22. september —
nú um helgina.
SNILLINGAR
LESAA
BROADWAY
Norman Mailer, forseti PEN i
Bandaríkjunum, stendur nú í
ströngu viö að skipuleggja 48. PEN-
þingiö.
aö sleppa rithöfundi úr fangelsi. Þaö
hefur komið fyrir aö þessir einræðis-
herrar hafa reynst menntaðir menn
— og við höfum orðið varir við
viðbrögð.”
Mailer, Vonnegut og William
Styron sögðust óttast það mjög aö
innanríkisráðuneytiö myndi neita
ýmsum þeim rithöfundum sem boðið
er á PEN-ráðstefnuna um að koma
til Bandaríkjanna. Ýmsir rit-
höfundar fá ekki vegabréfsáritun og
enn aðrir vilja mótmæla stefnu
Bandaríkjamanna í vegabréfs-
málum með því að fara aldrei til
landsins.
Meðal þeirra rithöfunda sem
Mailer og félagar hafa boöiö, en
meinaö hefur verið að fá vegabréfs-
áritun til Bandarikjanna oftar en
einu sinni, eru höfundar eins og Kobe
frá Japan, Gabriel Garcia Marquez
frá Kolombíu, Jorge Amado frá
Brasilíu og Ernesto Sabato frá
Argentínu.
Eins og í einræðisríki
„Þessi lög um vegabréf eru eins
og í einræðisríkjum,” sagði William
Styron og bætti við að Graham
Green aftæki að heimsækja
Bandaríkin vegna þessa.
Marquez hefur komið til
Bandaríkjanna, en þá aðeins á
skammtímaáritun, hann mátti ekki
dvelja nema fjóra sólarhringa í
ÍS
Sincrpr
II I - *
Isaac Bashevis Singer œtlar aö lesa — auðvitað.
Gore Vidal — stakk upp á kapp-
rsaðu milli sin og Mailers — og
Mailor þáöi.
guðseiginlandi og ekki fara út fyrir
New York-ríki.
Mailer sagði að bandaríski PEN-
klúbburinn væri að semja við innan-
ríkisráðuneytið um einstök tilfelli
því að áríðandi væri að af
ráðstefnunni gæti orðið, þótt
óneitanlega væri það undarlegt að
félag, sem berðist fyrir ferðafrelsi
og frjálsu orði í heiminum, þyrfti að
semja um leyfi til aö rithöfundar
mættu koma til Bandaríkjanna.
Nokkrir frægir höfundar munu
flytja erindi á PEN-ráðstefnunni og
er yfirskrift þeirra erinda:
„Imyndunaraflið og ríkisvaldið”.
Mailer gegn Vidal
Upplestrarkvöldið í haust, þar
sem sætið kostar 40.000 ísl. kr.,
treður upp ásamt
munu dreifast á allt haustið. Saul
Bellow og Eudora Welty byrja þann
22. september og lesa í þrjátíu
mínútur hvort. Reiknað er með því
að þann 17. nóvember muni draga tii
tíöinda því að þeir verða saman um
sviöiö þann dag kapparnir Mailer og
Gore Vidal, en þeir hafa eldaö saman
grátt silfur lengi. Þeir munu lesa í
Booth-leikhúsinu á Broadway og að
loknum upplestri munu þeir hefja
kappræður. Og það var Vidal sem
stakk upp á þeim slag.
Mailer reiknaði með að allt gæti
gerst það kvöld og neitaöi að útlista
fyrir blaðamönnum hvernig hann
byggist viö að átökin milli þeirra
yrðu.
Síðasta upplestrarkvöldið verður
þann 15. desember. Þá les John
Updike ásamt Woody Allen, en
Allen er ekki bara kvikmynda-
höfundur, heldur frægur fyrir smá-
sögur sínar.
(Reuter/GG)