Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 11
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
11
BENEPIKT AXELSSON
til aö verða biskup
en samt varöstu
aldrei annaö
en hrókur
alls fagnaöar.
Þau voru ófá kvæðin sem ég orti í
svipuðum dúr og þetta en vegna þess
að ég fylgdist með tímanum fór ég að
yrkja opnari ljóö um svipað leyti og
þaö komst í tísku, eða aðeins seinna.
Þá varð til ljóðið um skuröinn.
Þú ert eins og
ágætlega kristið
fólk sem hefur
alla sína ævi
verið smátt og smátt
að deyja
drottni sínum
misskiliðogsmáð
en öðlast eiiift
líf um leiö
og það er grafið.
Hátíð
Og nú er nýlega lokið ljóðahátíð sem
var jafnvel umtalaðri en fjárlögin,
sem eru einhverra hluta vegna alltaf
samin í sláturtíðinni, og uröu menn
ekki sammála um það hverjir ættu að
flytja ljóð á þessari hátíð og hverjir
ættu ekki að gera það. Þó skildist mér
að það heföi kannski ríkt aðeins meiri
einhugur um það hverjir ættu ekki aö
flytja ljóð, að minnsta kosti fengu þeir
Jónas Hallgrímsson og Einar Bene-
diktsson enga tilnefningu svo vitað sé
og kunningi minn, sem er í Rithöfunda-
sambandinu, sagöi mér um daginn að
til þess lægju eðlilegar ástæður.
Á hinn bóginn skildi hvorugur okkar
hvers vegna kvenfólki var ekki boðið
að flytja verk sín á hátíðinni því að
okkur bar saman um það að við Islend-
ingar ættum margar góðar skáldkonur
og sumar væru meira að segja lifandi.
Eg stakk upp á því að þetta væri
klíkuskapur, einnig datt mér í hug aö
þetta stafaði af þvi að meðalaldur
kvenna hér á landi væri hærri en karla
og þær ættu því meiri séns en karlarnir
að taka þátt í næstu hátíð og í þriðja
lagi fannst mér þetta geta stafað af því
að konur hefðu ort svo fá ástarljóö til
karla en þeir hins vegar mörg til
kvenna.
En hvaö svo sem hefur valdiö þessu
ætla ég að vona að það komi aldrei til
þess að einhver sjálfskipuð karlanefnd
útiloki konur frá eldhúsdagsumræöun-
um því að ég hef ekki efni á því að
kaupa sjálfvirka uppþvottavél.
Kveðja
Ben.Ax.
teflislíkurnar fremur en í 4. einvígis-
skákinni í Moskvu á dögunum.
30. -Kh8 31. Bd3 Dg7 32. Dh5 h6 33.
a5 Dg5 34. Dh3 Bg7? 35. a6 Hxfl+ 36.
Bxfl Bd4 37. Dc8+ Dg8 38. Db7 Dg7?
39. Db8+
Ljubojevic hefur ekki áttað sig á
þessari svikamyllu. Nú endar 39. -
Kh7? 40. Bd3 með skelfingu og eftir
39. -Dg8 40. a7 tapar hann
biskupnum. Svartur gafst upp.
Búnaðarbankinn úr leik
Skákmenn eiga sér sína Evrópu-
keppni, rétt eins og knattspyrnu- og
handknattleiksmenn. Það er
Evrópukeppni meistaraliða þar sem
leiöa saman hesta sína sigur-
vegarar í „deildakeppninni” í hver ju
landi. Taflfélag Reykjavikur hefur
haft rétt til þess að senda sveit til
þátttöku í keppninni í öll þessi ár en
forráðamenn félagsins hafa haldiö
að sér höndum sökum slæmrar f jár-
hagsstöðu. Því brá Skáksamband
Islands á það ráð að bjóða hinni
sigursælu sveit Búnaöarbankans að
taka þátt í keppninni fyrir Islands
hönd og var því vel tekið. Vonandi er
ísinn þar með brotinn.
Mótherjar Búnaðarbankamanna í
fyrstu umferð voru engir aukvisar
heldur Taflfélagið Vulca frá
Barcelona sem komst í undanúrslit
keppninnar í fyrra. I sveitinni tefla
tveir stórmeistarar og þar er „stiga-
maður” á öllum borðunum sex. Þó
hefðu skákmenn Búnaðarbankans
átti að geta veitt þeim harða mót-
spyrnu en þeir náðu ekki að sýna sitt
besta og máttu bíða lægri hlut, 8—4.
Reyndar forfölluðust tveir Islands-
meistarar á síðustu stundu, Jón
Kristinsson og Hilmar Karlsson, og
munar um minna. I fyrri umferðinni
töpuöu bankamenn stórt, 1 1/2—4
1/2. Margeir Pétursson gerði á 1.
borði jafntefli við 0. Rodriguez, sem
reyndar kemur frá Perú, Jóhann
Hjartarson gerði jafntefli við stór-
meistarann Bellon, Bragi
Kristjánsson tapaði á 3. borði fyrir
Martin, á 4. borði tapaöi Leifur
Jósteinsson fyrir Medina, Tómas
Björnsson tapaði fyrir Pisa á 5. borði
eftir erfitt hróksendatafl og á 6.
borði gerði Guðmundur Halldórsson
jafntefli.
I seinni umferðinni rétti bankinn
sinn hlut en tapaði samt. Margeir og
Leifur töpuöu, Jóhann, Bragi og
Tómas gerðu jafntefli en
Guðmundur Halldórsson vann sína
skák og þá einu sem Islendingar
unnu í keppninni. Varamenn í
ferðinni voru Guðjón Jóhannsson og
B jöm Sigurðsson.
Landskeppni íslands
og Færeyja
1 lok ágústmánaðar háðu
Islendingar og Færeyingar lands-
keppni í Færeyjum á 12 borðum.
Keppni þessi er árlegur viöburður. Liö
tslendinga var skipaö skákmönnum
af Norður- og Austurlandi. Við
höfum jafnan borið sigur úr býtum í
þessari keppni og svo fór einnig nú,
þótt mjótt yrði á mununum. I fyrri
umferð sigruðu Islendingar með 6,5
gegn 5,5 og í seinni umferð með 7 v.
gegn 5. Lokatölur 13,5 v. gegn 10,5
Islendingum í vil. Á fyrsta borði
vann Áskell öm Kárason
Færeyinginn Jens Chr. Hansen í
annarri skákinni en jafntefli varð í
hinni. Þessir tefldu annars í liði
Islendinga, vinningafjöldi innan
sviga: 1. Áskell örn Kárason (1,5) 2.
Kári Elísson (0), 3. Jón Garöar
Viðarsson (1,5), 4. Hólmgrímur
Heiðreksson (1,5), 5. Þór Valtýsson
(1,5), 6. Þorsteinn Skúlason (1), 7.
Eiríkur Karlsson (1,5), 8. Arnar
Þorsteinsson (1,5), 9. Einar Már
Sigurðsson (0), 10. Sveinn Pálsson
(1,5), 11. Magnús Valgeirsson (1,5),
12. Guðmundur Sigurjónsson (0,5 af
1) og Jakob Kristjánsson (0 af 1
skák).
JLA.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Bridgefélag Breiðholts
Þriðjudaginn 17. sept. var spilaður
eins kvölds tvímenningur meö þátt-
töku 16 para. Röð efstu para varð
þessi:
stig
1. Guðjón Jónss.-Friðrik Jónss. 255
2. Helgi Skúlas.-Kjartan Kristéferss. 251
3. Helgi Magnúss.-Jón Stefánss. 243
4. Victor Björnss.-Bjarni Ásmundss. 236
5. Garðar Garðarss.-Bergþér Bergþórss. 234
Meðaiskor 210
Næsta þriðjudag hefst þriggja
kvölda hausttvimenningur og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Spilaö er í Gerðubergi kl. 19.30 stund-
víslega. Keppnisstjóri er Hermann
Lárusson.
Opið hús
Opið hús, bridgestarfsemi þeirra
Hermanns og Olafs Lárussonar að
Borgartúni 18 á laugardagseftirmið-
dögum, hófst um síðustu helgi. Ágæt
aðsókn var eða 20 pör. Spilaður var
Mitchell-tvimenningur, með 3 spilum
milli para, alls 9 umferðir. Efstu skorir
fengu eftirtaldir spilarar:
VilhjálmurSigurðss.-ÞráinnSÍgurðss. 283
Rúnar Magnúss.-Þorlákur Jónss. 247
Berg|>ór Bergþórss.-Garðar Garðarss. 236
BemódusKristinss.-ÞórðurBjörnss. 235
A/V áttum:
Gísli Viglundss.-Þórarinn Ámas. 299
Ingólfur Liiiiendahi-Jón Björnss. 268
Hrannar Þ. Erlingss.-Matthias Þorvaidss. 263
Guðiaugur Sveinss.-Magnús Sverriss. 220
Vegna óska frá meginþorra kepp-
enda sl. laugardag hefur verið ákveöið
að spilamennska hjá Opnu húsi hefjist
í framtíðinni kl. 13.30 (hálftvö). Það
ætti að gefa rýmri tíma fyrir þá sem
eiga bágt með að „rjúka” fyrir kl. 13.
Sem fyrr er öllu spilaáhugafólki og
öörum þeim sem áhuga hafa á eins
dags tilbreytingu í hversdagsins önn
hjartanlega heimil þátttaka. Stefnt
verður að því í framtíðinni að auglýsa
þessa starfsemi á öllum þeim vett-
vangi sem annast einhver félagsleg
samskipti, ferðaskrifstofum, hótelum
og öðrum þeim ferðamannamiðstöðum
sem leiðbeina gestum okkar í leit að
afþreyingu.
Minningarmótið um
Einar Þorfinnsson
á Selfossi:
Opna minningarmótið um Einar
Þorfinnsson á Selfossi verður laugar-
daginn 5. október nk. Skráning er þeg-
ar hafin hjá stjóm félagsins og Olafi
Lárussyni á skrifstofu Bridgesam-
bandsins (s. 91-13350).
Spilaöur verður 36 para barometer,
með 2 spilum milli para, alls 70 spil.
Spilamennska hefst kl. 10 árdegis og
verður spilað í Gagnfræðaskólanum á
Selfossi. Umsjón og útreikning annast
þeir bræður Hermann og Olafur Lárus-
synir.
Veitt verða 5 verðlaun, þeim pörum
er flest stig hljóta samtals. Þau verða:
1. verðlaun kr. 20.000, 2. verðlaun kr.
16.000, 3. verðlaun kr. 12.000, 4. verð-
launkr. 8.000, og 5. verðlaunkr. 4.000.
Keppnisgjald verður kr. 1.500 á par,
Að auki er spilaö um silfurstig.
Búast má við að mjög fljótt fyllist í
þetta mót þannig að þeir sem hafa
áhuga á að vera með eru beðnir um að
hafa samband við stjórn félagsins eðr.
Olaf Lárusson hið fyrsta.
Bridgefélag
Akureyrar:
Bautamótið í tvímenningskeppni
hefst næsta þriðjudag í Félagsborg.
Spilaðar verða f jórar umferðir. Baut-
inn og Smiöjan gefa verðlaun í mótið.
Þeir sem hafa hug á þátttöku þurfa
að staðfesta það við stjóm félagsins
fyrirkl. 20 nk. sunnudagskvöld. Einnig
má geta þess aö þeir félagar Anton
Haraldsson og Stefán Ragnarsson
munu annast umsjón með spila-
mennsku í Dynheimum á miðviku-
dagskvöldum fyrir þá sem hafa áhuga
á því í vetur.
Frá Skagfirðingum:
Sl. þriðjudag hófst 32 para baromet-
er hjá Skagfirðingum í Reykjavík.
Spiluð eru 4 spil milli para. Eftir 1.
kvöldið (af 4), þegar 7 umferöum er
lokið, er staða ef stu para þessi: stig
1. Ármaun J. Láruss.-Jón Þ. Hilmarss. 11
2. Anton R. Gunnarss.-Sveinn Sigurgeirss. 100
3. Ragnar Björnss.-Sævin Bjarnas. 64
4. GísliTorfas.-GuftniKolbeinss. 57
5. Hjáimar S. Pálss.-Jörundur Þórðars. 56
6. Guftrún Jörgensen-Þorstelnn Kristjánss. 39
7. Guftrún Hinriksd.-liaukur Hanness. 34
8. Jón He rmaunss.-Ragnar Hansen 28
3. Suzuki Fox árg. 1982. Verfl 4. Mazda 323 station, árg.
290.000. 1980. Verfl 190.000.
5. Mazda 626 árg. 1984 m. öllu. 6. Ford Bronco árg. 1974. Verð ]
Verfl 495.000. 195.000.
' 7. Mazda 626 árg. 1982. Verfl 8. Mazda 323 árg. 1982. Verfl]
270.000. 270.000.
} 9. Mazda 323 árg. 1981. Verð 10. Mazda B1800 pickup árg. i
. 240.000. 1982. Verð 250.000.
11. Mazda 323 árg. 1981. Verð 12. Toyota Cressida station
' 230.000. árg. 1982. Verð 350.000.
YMSIR AÐRIR BILAR A
STAÐIMUM.
OPIÐ LAUGARDAGA
FRÁKL.10-4.
BILABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I
Engjaseli 13, þingl. eign Páls Andrésar Andréssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24.
september 1985 kl. 14.15.
Borgarfógetaembaettiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Laufásvegi 8, þingl. eign Sverris Gauta Diego, fer fram eftir kröfu Veð-
deildar Landsbankans, Gjaldheimtunnar í Reykjavlk og Tryggingastofn-
unar ríkisinsá eigninni sjálfri þriöjudaginn 24. september 1985 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og siðasta á hluta I Krummahólum 6, þingl. eign db. Gisla
Marinóssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavlk á eign-
inni sjálfri þriöjudaginn 24. september 1985 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.