Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 2
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. eðlilegt” — segir Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri „Þetta er algerlega út í hött,” sagði Pétur Guðmundsson, flug- vallarstjóri í Keflavík. Það var ein- staklega gott flugveður og það lentu fjórar vélar klukkan 10.45, 10.47,10.48 og 10.50. Á meðan þess- ar vélar voru að lenda þá beið sov- éska véiin. Reglumar eru þær að vélar á flugi ganga fyrir vélum sem eru á jörðinni.” Pétur sagði að til að komast í flugtaksstöðu yrði flugvél að loka braut þeirri sem bandarísku flug- vélarnar notuðu við lendingu. Því hefði sovéska vélhi orðið að bíða. En það hefði bara verið um 10 mín- útur að ræða. „Þetta er allt saman mjög eöli- legt og hreinn uppspuni ef verið er að halda því fram að þeir hafi verið í einhverjum leik, það er bara della,”sagðiPétur. Hann sagði að það gæti villt um fyrir mönnum að vélarnar kæmu tvær og tvær saman úr flugi og að á meðan önnur væri að lenda þá færi hin yfir brautina og í sveig og lenti síðan. -ÞóG „Þakka ykkur fyrir," segir Halldór til að binda enda á spurningar blaða manna en Sévardnadze vill ólmur svara fleiri fyrirspurnum. Halldór Ásgrímsson um Sévardnadze: „Myndarlegur maður” —þriggja tíma stans hjá hinum nýja utanríkisráðherra Sovétmanna í glampandi sól á íslandi Myrkur hvíldi yfir Keflavíkurflug- velli þegar Edvard Sévardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, lenti þar á Iljúshin-€2M þotu sinni í gærmorgun klukkan hálfátta. Flug- vélin kom hálftíma áður en áætlað var og því voru Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og Évgeni Kosar- ev sendiherra varla nema mátulega mættir á völíinn þegar Sévardnadze lenti. Líklega hefur þetta verið fyrsta heimsókn hans á bandarískan herflugvöll. Kosarev sendiherra fór síðan inn í vélina og kom stuttu síðar út með hvíthæröum manni, brosandi og kvikum í bragði. Sévardnadze heils- aði Geir með virktum en gaf honum þó ekki þau Rússafaðmlög sem viö- staddir biðu eftir enda ekki Rússi heldur Georgíumaður. Á130 kílómetra hraða Mót roöanum í austri keyrðu þeir til Reykjavíkur á 130 kflómetra hraða þegar þeir gátu en silalegir vörubflar töfðu þá eitthvað á leiðinni. Konur sendiherrans og utanríkis- ráðherranna óku beina leið á Kjar- valsstaði. Síðan komu þær niður í ráðherrabústað þar sem fréttamenn biðu i anddyrinu eftir að fundi utan- ríkisráðherranna og Halldórs Ás- grímssonar, starfandi forsætisráð- herra, lyki. Til að létta sér biöina datt einum fréttamannanna í hug að fá að heyra hvernig konu Sévardnad- zes hefði þótt feröin á Kjarvalsstaði þar sem stendur yfir sýning á verk- um Kjarvals. Sigríöur Snævarr úr utanríkisráðuneytinu fór upp til frúnna og kom aftur með svör Nanu- liu Rajdenovnu. Nanulia er sjálf blaöamaður. Henni hafði fundist það „alveg stórkostleg uppgötvun að sjá Kjarval. Myndir hans heföu verið skemmtilegt bland af klassík og nú- tímalist. Þetta væri í fyrsta skipti sem hún sæi verk hans”. Svaraði spurningum Þegar svo fundinum lauk réðust fréttamenn inn í fundarherbergið þar sem ráðherrarnir sátu með enskumælandi túlk Rússanna á milli sín. Sévardnadze byrjaði á að afsaka að hann varð þess valdandi að menn hefðu þurft að vakna fyrir allar a)d- ir. Það væri með mikilli ánægju sem hann heimsækti höfuðborg landsins. Eftir nauösynlegar kurteisiskveðj- ur og lýsingar á fundinum (sem „var uppbyggilegur, haldinn í anda gagn- kvæms skilnings,” þrátt fyrir ýmis ágreiningsefni) baunuðu fréttamenn spurningum á Sévardnadze. Hann brá út af þeirri venju Kremlverja að veigra sér við að svara slíku og tók vel á móti spurningunum. Sévardnadze sagði aðspurður að hann hefði rætt við Reagan Banda- ríkjaforseta um skipulag leiðtoga- fundarins sem halda á í Genf í nóv- ember. „Við skulum sjá til eftir fund- inn,” sagði hann þegar hann var spurður um álit sitt á samningsvilja Bandaríkjamanna. Halldór Asgrímsson reyndi að stööva spurningamar en var ofurliöi borinn. Edvard Sévardnadze kom sér hjá því að tala um mál kvik- myndaleikstjórans Andreis Tarkov- skí, sem heimsótti Island í sumar, með því að leggja til aö sovéski sendiherrann yrði spurður um það mál. Myndarlegur maður Halldór Ásgrímsson sagði eftir á að Sévardnadze hefði verið einkar viðræðugóður. „Hann verkar mjög vel á mig. Þetta er mjög myndarleg- ur maður. Hann virðist vera mjög fljótur að átta sig á hlutunum og er mjög vel inni í öllu sem hann fjallar um.” Með þetta hrós í veganesti fór Sé- vardnadze meö Geir út á Keflavíkur- flugvöll, nú í glampandi sólskini, þaðan sem hann fór burt þremur tímum eftir að hann lenti. Þetta var mjög snöggt bað. „Okkur þykir þetta miður” — segja Sovétmenn „Við getum bara sagt að okkur þykir þetta miður. Þessi atburður getur ekki orðiö til annars en að spilla fyrir góðu andrúmslofti í heimsókninni,” sagði blaðafulltrúi sovéska sendiráðsins um flug bandarísku herþotnanna yfir höfði sovéska utanríkisráðherrans í gær- morgun. -Þ6G -ÞóG IManulia Rajdenovna, kona Sóvardnadzes, kemur út úr ráflherrabú- staðnum mefl stöllu sinni Ernu Finnsdóttur, konu Geirs Hallgrímssonar, sem er til vinstri. DV-myndir GVA Kristján Pétursson um lágflug herflugvélanna yf ir höfði sovéska utanríkisráðherrans: „ VITFIRRINGI 17 MÍNÚTUR” „Þessi vitfirring stóð yfir i 17 mín- gær. inni. I öll þau ár sem ég hef fylgst yfir höfði utanríkisráðherrans. útur,” sagði Kristján Pétursson toll-i „Eg tel þetta freklega móðgun við með þessu hef ég aldrei orðið vitni að „Þær steyptu sér niður að rúss- gæslumaður um darraðardans1 land og þjóð. Þessi maður er gestur öðrum eins vitleysisgangi,” sagði nesku flugvélinni og fóru fram og til bandarísku herflugvélanna yfir flug- okkar. Þessar flugvélar flugu þarna í Kristján sem var einn margra sem baka í lágflugi og svona gekk þetta vél sovéska utanríkisráðherrans í lágflugi fram og aftur yfir flugbraut- horfðu þrumu lostnir á flugsýninguna stöðugtíþessarl7mínútur.” -ÞóG „Yfirleitt með lítið eldsneyti” — segir blaðafulltrúi varnarliðsins „Þetta voru vélar sem voru að koma úr æfingaflugi. Þessar vélar eru yfirleitt með takmarkað elds- neyti þegar þær koma inn til lend- ingar,” sagði Friðþór Eydal, blaða- fulltrúi vamarliðsins. „Mér sýnist að þama sé gerður úlfaldi úr mý- flugu,”sagðihann. Friðþór neitaði því aö um vísvit- andi ögrun hefði veriö að ræða. Flugvallarstjóri hefði ákveðið lend- inguvélanna. -ÞóG „Allt saman mjög

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.