Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 3
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. 3 „Gámaútfíutningur hefur jákvæð áhrifá reksturinn” — segir Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Norðurtanga hf. á ísafirði Frá Vestfjörðum hefur veriö flutt nokkurt magn af ferskum fiski beint á markað erlendis á þessu ári. Síðast í gær fór Álafoss, skip Eimskipafé- lagsins, með 30 gáma fulla af fersk- um fiski til Grimsby og Hull. Af þess- um gámum var 21 frá útgerðarfyrir- tækjum á Vestf jörðum. ,,Eg tel aö þessi gámaútflutningur héðan hafi að mörgu leyti haft mjög jákvæð áhrif á reksturinn hér. Núna í haust hafa skipin komið reglulega inn á mánudagsmorgnum. Frysti- húsin hafa fengið þann afla sem hentar þeim yfir vikuna. Síðan hefur það sem þá er umfram verið sent á ferskfisksmarkað,” sagði Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Noröurtanga hf. á Isafirði. — Það er þá ástæðulaust að óttast þennan útflutning á hráefni? „Það held ég. I hráefnisöfluninni veröa alltaf sveiflur. Þaö veiðist vel eina vikuna og aðra er tregt. Spurn- ingin er því hvernig vinnslan á aö mæta þessum sveiflum. Hingaö til hefur hún gert það með því að verka þetta í salt og skreið með misjafn- lega góðum árangri.” Vanþekking — Nú heyrast raddir um að við sé- um komnir á þróunarlandastig meö því að flytja óunniö hráefni úr landi. „Eg er algjörlega ósammála þessu. Þetta er mælt af mikilli van- þekkingu. Við verðum aö horfast í augu við að þetta eru tveir ólíkir markaðir, ferskfisksmarkaðurinn og freöfisksmarkaðurinn. Það er stór hluti af fólki erlendis sem vill fá ferskan fisk og það nær í þennan fisk einhvers staðar frá. Við erum ein- faldlega að hagnýta okkur þennan markað. Ég held aö við eigum að gera það á meðan hann er hagstæð- í tjær var unnið við að ganga frá ferskum fiski í 30 gáma sem áttu að fara til Grimsby og Hull. Af þessum gámum var 21 frá Vestfjörðum. DV-mynd S. ur. Það er óumdeilanlegt að hann hefur verið mjög hagstæður og markaðsverð á ferskum fiski hefur verið óeðlilega hátt undanfariö. Þaö hneykslaðist enginn á því þegar við vorum að hengja upp skreið þegar verðið á henni var hagstætt. Þessi markaður er reyndar miklu örugg- ari. Veltuhraöinn er mikill og pening- arnir skila sér heim í sömu vikunni og varan er seld. Eg held þannig að þessi útflutningur sé bara af því góða ef rétt er á málum haldið. ’ ’ Vinnum allt sem hægt er Jón Páll bendir á að hér sé verið að sinna nýjum mörkuöum sem tslend- ingar hafi ekki gert áður. Nú sé byrj- að aö senda ferskan fisk til Bret- lands, Danmerkur, Þýskalands, Hol- lands, Belgíu og Frakklands. — Er þá svo komið aö tilgangs- laust er að vinna þennan fisk hér á landi? „Nei, alls ekki, enda vinnum við allt sem viö getum. Ég er að vona að það sé hægt aö hagnýta þessa mark- aði samhliða. Það væri mikið glap- ræöi ef við ætluðum alfarið að treysta á ferskfisksmarkaðinn. Það eru öfgarnar á hinn veginn.” — Hvers vegna? „Ég ætla ekki að gefa mér að ferskfisksmarkaðurinn verði svona sterkur alltaf. Eg tel að viö eigum að hagnýta okkur þessa markaði jöfn- um höndum. Þaö eru margar samverkandi ástæður fyrir því að markaösverö hefur verið óeðlilega hátt á ferskum fiski. Við getum því ekki treyst því að þetta verði viðvarandi. Ástæður fyrir þessu eru maðal annars þær að aflabrögð hafa veriö mjög treg í Norðursjónum. Það er vöntun hjá fiskiðnaðarfyrirtækjum, bæði í Bret- landi og á meginlandinu, á fiskblokk. Þess vegna hafa mörg fyrirtæki keypt þennan fisk á þessu háa verði til að geta haldið sinni starfsemi gangandi. Það segir hins vegar ekk- ert um þaö hvort þau geti greitt þetta verð. Þessi fyrirtæki eiga tvo kosti, annaðhvort að kaupa þennan f isk eða að loka.” Jón Páll segir ennfremur að stór hluti af ferska fiskinum fari beint í fiskbúðir erlendis. Undanfarið hefur verið safnað saman ferskum fiski frá nokkrum út- gerðarfyrirtækjum á Vestfjörðum og hann síðan sendur til Reykjavíkur. Þaðan hefur hann síðan verið fluttur með flutningaskipum beint á markað erlendis. Um þessar mundir veiðist mikið af skarkola og fæst mjög gott verð fyrir hann erlendis þessa stund- ina. APH Sigmundur Guð- bjamason, rektorHÍ: „Hefði verið æskilegt að gera þessa úttekt” „Við hefðum getaö lært sitthvaö af slíkri úttekt og því æskilegt að gera hana. Það virðist margt hafa fariö úrskeiðis í tengslum við Sjóefna- vinnsluna. Þetta hefur ekki tekist eins vel og stefnt var að og því verið æskilegt að fara í saumana á því,” segir Sigmundur Guöbjarnason, rektor Háskóla Islands, við DV. I vor fól þáverandi iönaðarráð- herra Sigmundi að gera úttekt á Sjó- efnavinnslunni. Verkfræöistofnun Hl gerði síðan áætlun um könnun sem átti aö kosta 4 milljónir króna. Þetta þótti iðnaðarráðherra of dýrt og hætti því við allt saman. Sigmundur ítrekar aö það sé aö sjálfsögðu á valdi iðnaðarráðherra hvort slík úttekt verði gerð. Rétt sé að benda á að ýmislegt hafi breyst síðan ákvörðun um þessa úttekt var tekin. Samkvæmt beiðni ráöherra átti að gera víötæka úttekt á sjóefna- vinnslumöguleikunum. „Og ég tel að siík úttekt hefði orðið mikils virði. Hún hefði veitt okkur upplýsingar um hvort og hvers konar mistök hafa verið gerð í Sjóefnavinnslunni,” sagði Sigmundur. APH Keflavikin kom á dögunum með 36000 tómar sildartunnur frá Noregi. Af þeim fóru 9000 til Eskifjarðar og skiptust á milli söltunarstöðvanna sex. Afgangurinn fór til annarra söltunarstaða. Góð sfldveiði fyrir austan: Söltun upp í samn- inga er að Ijúka Frá Emil Thorarensen, fréttaritara DVáEskifirði: Búið var að salta í 25000 tunnur í síldarsöltunarstöðvum á Eskifirði í vikunni. Er skipting milli stöðva sem hér segir: Friðþjófur 8000, Auðbjörg 4700, Eljan 3600, Sæberg 3000, Þór 3000, Askja 2700 eöa samtals 25000. Góð síldveiði hefur veriö eystra síðustu daga. Er gert ráð fyrir að lokið verði við aö salta upp í samn- inga um næstu helgi. Þá er loðnubræösla í fullum gangi á Eskifirði um þessar mundir. Hefur loönubræðsla Hraöfrystihúss Eski- fjarðar tekið á móti um 46000 tonnum af loönu á þessari haustvertíð þegar þetta er skrifað. Það rýkur glatt úr strompum loðnuverksmiðjunnar enda er bræðslan á fullu þessa dagana. DV-myndir Emil. (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.