Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Page 10
10 DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. Útlönd Útlönd Utlönd Útlönd David Owen og Neil Kinnock í samtali við DV r um hungrið í Af ríku: „Islendingar hafa staðið sig vel” „Niðurskurður bresku stjórnar- innar á aðstoð við hinar sveltandi þjóðir Afríku er fyrir neðan allar hellur," sagði David Owen, for- maður breska sósíaldemókrata- flokksins, í samtali við DV. Sultur og örbirgð hinna bág- stöddu þjóða í Afríku hefur verið ofarlega á baugi hér i Bretlandi að undanförnu. I síðustu viku fór fram ein fjölmennasta mótmælastaða við breska þinghúsið i miðborg Lundúna í manna minnum þar sem þingmenn og formenn hjálpar- stofnana héldu ræður. Tuttugu þúsund manns voru sarnan komin til að þrýsta á breska þingmenn að bregðast skjótt við til hjálpar þess- um þjóðum og til að koma í veg fyrir hungur. Á síðasta ári hefur breska stjórnin skorið niður um helming aðstoð sína við Afríku- þjóðirnar, úr 2,8 milljörðum punda í 1,4 milljarða. Blaðamaður DV hitti að máli David Owen, Neil Kinnock, for- mann verkamannaflokksins, og Frank Judd, formann Oxfam, áður en þeir ávörpuðu mannfjöldann. Kannski í lagi hjá íslendingum „Fólk heldur að breska stjórnin Kristín Þorsteins- dóttir, fréttaritari DV, skrifar frá London: hafi aðstoðað þetta fólk vel og mikið en það er bara ekki rétt,“ sagði David Owen. „Hjálpin við Afríku hefur hrunið úr 0,7 prósent- um af þjóðarframleiðslunni í 0,3. Þetta væri kannski í lagi hjá Is- lendingum en við höfum skyldum að gegna við þetta fólk vegna fyrri tengsla. Við í sósíaldemókrata- flokknum vonumst til að koma hjálpinni aftur upp í 0,7 prósent en það er erfitt núna því breskur almenningur hefur ekki látið nógu hátt í sér heyra til að neyða Thatch- er til að endurskoða stefnu sína í þessum málum.“ David Owen sagði að þessi mót- mælastaða væri mjög mikilvæg og yrði vonandi til þess að einhver árangur næðist. Hann sagði að ef skemmra væri litið væri mikilvæg- ast að senda hjálp til þjóðanna fjögurra sem menn vissu þegar að syltu, það er í Súdan, Eþíópíu, Tsjad og Níger. Þó þýddi ekki, eins og Bretar hefðu gert, að senda þangað mjólkurduft, fólkið hefði ekkert vatn og gæti því ekki nýtt sér duftið. Það þyrfti að senda til- búinn mat. Þegar lengra væri litið væri skynsamlegast að leggja fé í land- búnað til að koma í veg fyrir hung- ur, einkum í sveitunum. Bangla- desh væri afbragðsgott dæmi um það. „Fólk er að gefa smáupphæðir en engum dettur í hug að neita sér Umsjón: Guðmundur Pétursson ogÞórir Guðmundsson um að eiga bíl eða fara i sumar- leyfi. Ef þetta á að takast verðum við öll að taka höndum saman,“ sagði David Owen. - Mundir þú láta eftir bílinn þinn eða sumarleyfið ef þú vissir að það mundi leysa vandann? „Ég veit það ekki. Hver og einn verður að gera upp við sig á hvern hátt hann vill styðja þetta fólk,“ sagði David Owen. David Owen, formaður breskra jafnaðarmanna. Verður okkar framlag lægra en íslendinga? „Það má segja að sú hjálp, sem Bretar hafa þegar veitt þessum þjóðum, hafi frekar eyðilagt fyrir þeim en hitt,“ sagði Neil Kinnock. „Sjáðu þessa þurrmjólk. Hún vekur vonir hjá þessu fólki sem snýst svo upp í hroðalega uppgjöf þegar það kemst að því að hún er því einskis nýt. Við í verkamannaflokknum munum gera allt sem við getum til að þrýsta á stjórnina að gera eitt- hvað af viti. Og við styðjum af alhug allar þær stofnanir sem berj- ast gegn hungri í heiminum." Neil Kinnock sagðist vonast til að þessi fundur hefði tilætluð áhrif. Hann sagðist hafa trú á því að ef þessu yrði fylgt eftir næðist full- kominn sigur yfir hungri í heimin- um. „Þetta ætti að verða árlegur viðburður til að ná samstöðu meðal fólksins sem síðar myndi neyða stjórnina til að taka upp rétta stefnu.“ Neil Kinnock, leiðtogi breska verkamannaflokksins. - Eru framlög Breta á þessu sviði langtum minni en annarra þjóða? „Ef fram heldur sem horfir drög- umst við langt aftur úr. Okkar framlag verður ef til vill orðið lægra en íslendinga um næstu áramót. Ég hef heyrt að þið hafið látið mjög mikið af hendi rakna til hjálparstarfsins, þessi litla þjóð norður í hafi sem við gætum komið allri fyrir í litlu hverfi í Lundún- um,“ sagði Neil Kinnock. „Ég hef trú á þvi að breska stjórn- in geti ekki litið framhjá þessum mótmælum,“ sagði Frank Judd í samtali við DV. „Hér er saman- komið fólk alls staðar að af landinu og það skorar á stjórnina að gera eitthvað. Hún getur ekki látið þennan fund sem vind um eyrun þjóta. Bretar geta ekki látið svo lítið af hendi rakna til þessara þjóða. Þeir hafa skyldum að gegna við þetta fólk, hvað svo sem Margr- éti Thatcher finnst,“ sagði Frank Judd. Ljóstrað upp um pyntinga- meistara hers Chile Ofan á annan pólitískan vanda, sem Augusto Pinochet, forseti Chile, hefur við að glíma, hafa bæst núna að undanförnu vand- ræðalegar uppljóstranir um hlut- deild hersins í morðum og pynting- um á síðustu tólf árum. Þetta hefur orið til þess að ein- angra Pinochet enn frekar því að margir fyrri bandamenn hans hafa gengið í lið með andstöðuflokkun- um og undirskrifað áskoranir um að lýðveldið verði að fullu endur- reist. Opinberar játningar manna úr öryggissveitunum og aukin ágengni dómstólanna í að rann- saka mannréttindabrot grafa jafn- framt undan völdum hans, nefni- lega stuðningi stjórnarhersins sjálfs. Óstöðvandi skriða Sum þessara mannréttindabrota, sem dregin hafa verið fram í dags- ljósið, má rekja allar götur aftur til eftirmála valdaránsins 1973, þegar Pinochet komst til valda, og önnur til ársins 1976 þegar hundr- uð vinstrimanna „hurfu“. Önnur brot eru nýlegri. Síðari árin hefur reynslan sýnt það að einvaldar fá að vísu eitthvað spyrnt á móti en geta ekki fullkom- lega stöðvað slíka skriðu þegar hún er farin af stað. Pinochet virðist þvi lofa æðimiklu upp í ermina þegar hann heitir félögum sínum í hernum fullri vernd gegn eftirmál- um af framgöngu öryggissveitanna. Hann hefur sagt þeim að það sé á einskis annars færi en hans að bægja frá þeim hefnd og refsiað- gerðum. Herinn áhyggjufullur 1 ræðu sem Pinochet hélt 19. september, á degi hersins í Chile, lét hann í ljós hverjar áhyggjur þessi þróun hefur vakið: „I dag heyrast orðið raddir sem fela í sér hættulegan hefndaráróður og krefjast þess að þjónandi menn í þessum her verði dæmdir. Herinn fylgist með þessum kröfum með vaxandi áhyggjum.“ Federico Willoughby, hægrisinn- aður stjórnmálamaður sem var blaðafulltrúi valdaklíku hersins fyrst eftir valdaránið, segir að stjórnarher Chile sé einn sá trúasti sinni landstjórn sem þekkist í Suður-Ameríku. - „En orð fer af því innan hersins að honum sé ávallt att af stjórnmálamönnum út í skítverkin og síðan kasti stjóm- málamennirnir foringjum hersins sem sökudólgum á fórnaraltarið. Því eru pólitíkusar yfirleitt ekki í miklum metum innan hersins," segir hann. „Síðustu tólf árin hafa risið upp stjórnmálamenn úr röð- um hersins og þeir hafa einnig att hernum til svipaðra verka og aðrir pólitíkusar gerðu.“ Dómurum vex kjarkur Kveikjan að þessum áhuga á mannréttindabrotum var rannsókn dómarans Jose Canovas á brott- námi og morðum þriggja kommún- ista í mars síðastliðnum. Canovas Herlögreglan að „störfum“ á blóðárunum upp úr valdarán- inu. Augusto Pinochet, forseti Chile, fyrrum foringi í hernum sem rændi völdum 1973. dró herleynilögregluna, DICOM- AR, inn í þessa glæpi og leiddi það til uppstokkunar í lögregluliðinu og frávikningar yfirmanns Dicom- ar, Cesar Mondoza lögreglustjóra. Aðrir dómarar hafa fylgt fordæmi Canovas í því að hlífa ekki liðs- mönnum öryggislögreglunnar og taka upp ýmis mál vegna meintra mannréttindabrota. Þar á meðal er ránið á dóttur mikils metins stjórn- arandstæðings og „hvörf ‘ tiu fé- laga úr kommúnistaflokknum árið 1976. Þetta er einna líkast því að náðst hafi í enda á vefnaði sem tekur að rakna upp þegar togað er í. Hver uppljóstrun leiðir til annarrar. Bæði gerist það að þeir sem leysa frá skjóðunni kunna frá fleiru að segja og eins eru menn orðnir óragari við að bera upp brennandi spurningar sem þeir þorðu ekki áður að láta heyrast. Fjöldaaftökur, pyntingar og mannrán Eitt nýjasta málið spratt út af því að herstjórinn í bænum Calama norður í landi var neyddur til að ljóstra upp atferli öryggissveitanna þar þegar bönd bárust að honum sjálfum. Það hefur leitt til máls- höfðunar gegn heshöfðingja sem kominn var á eftirlaun en hafði verið sendur af Pinochet sjálfur norður í land skömmu eftir valda- ránið með herflokk til að halda uppi aga. - Sergio Arellano hers- höfðingi er sakaður um að hafa látið taka af lífi 26 vinstrimenn án dóms og laga. Aftakan er sögð hafa farið fram í eyðimörkinni sem borg- in Calama stendur við. Hann ber á móti þessu og lofar fullri samvinnu við rannsókn málsins. Það hefur orðið öryggislögregl- unni og leyniþjónustu hersins til mikils vansa þegar Otto Trjuillo, sem handtekinn var fyrir að falsa 5 þúsund pesoseðla, leysti frá skjóðunni. Hann starfaði á vegum leyniþjónustu flughersins 1974 til 1976. Sérgrein hans hafði verið „sálrænar pyntingar". Játningar hans fela í sér lýsingar á aðferðun- um við yfirheyrslur og eru þær ekki fagrar. Sjálfur sætti hann sams konar yfirheyrslum þegar starfsbræður hans grunuðu hann um að ætla að hefja störf hjá ann- arri leyniþjónustudeild, keppinaut- um þeirra. Lýsingar hans á fangelsun hans sjálfs og yfirheyrslum koma heim við lýsingar og játningar liðhlaupa, Andres Vanenzuela, sem sneri baki við flughernum í fyrra. Vitnis- burður beggja áfelldi Roberto Fuentes, foringja í leyniþjónustu flughersins, fyrir hlutdeild í fjölda mannrána og morða. Þegar þessar uppljóstranir voru gerðar var Fu- entes staddur í S-Afríku og var kallaður í skyndi heim þar sem hann hefur verið í varðhaldi síðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.