Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Síða 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. Fréttir Fréttir Fréttir Alpaklúbbsmennirnir tveir fundust í góðu yfirlæti í skála AlpaklúbbsinsíSúlnadal: I „Égvarð að skríða upp fjallið -veðurofsinn var svo mikill,“ sagði Hermann Valsson, fjallgöngumaðurinn kunni „Ég verð að segja eins og er að hjálparsveitirnar voru of fljótar að spenna gikkinn. Þegar sveitirnar voru kallaðar út vissu leitarmenn að þeir voru að fara að leita að tveimur mönnum sem höfðu mikla reynslu í fjallgöngu og fjallaklifri. Það var algjörlega óþarfi að senda sjötíu manna leitarhóp, fimm snjó- bíla, 23 snjósleða og sex hunda til að hefja leit strax um nóttina. Það hefði verið nóg að senda einn snjó- bíl og fimm til sex manna hóp til að kanna aðstæður á þeim stað sem átti að leita á,“ sagði Hermann Valsson, kunnur fjallamaður úr Alpaklúbbnum. Víðtæk leit fór fram að Hermanni, sem er 29 ára, og félaga hans, Stefáni Smárasyni, 19 ára, á svæðinu við Botnssúlur. Þeir félagar fundust heilir á húfi í skála Alpaklúbbsins í Súlnadal kl. 11.20 í gærmorgun. „Við fórum í fjallgöngu og klifur á sunnudag- inn ásamt félögum okkar. Við fór- um þó aðeins tveir í klifur. Ætlunin var að koma til byggða á sunnu- dagskvöldið. Svo varð ekki, því að mjög slæmt veður skall á. Þessi veðurbreyting kom okkur nokkuð á óvart. Við vorum búnir að kanna spána og spáin sagði að veður ætti að versna um kvöldið, eða á þeim tíma sem við ætluðum að vera 170 leitar- mennvoru kallaðir út Það tóku alls 70 manns þátt i leitinni í Botnssúlum aðfaranótt mánudagsins. Leitarmenn voru á fimm snjóbílum, með 23 snjósleða og sex hunda. í gærmorgum var svo búið að kalla út 70 Ieítarmenn til viðbótar sem voru að gera sig klára til leitar þegar þeir Hermann Vals- son og Stefán Smárason fundust í skála Alpaklúbbsins í Súlnadal. -SOS komnir til byggða. Veðurofsinn var mikill, sem sést best á því að ég þurfti í fyrsta skipti í þau átta ár sem ég hef stundað fjallagöngu að skriða um 2o m upp eftir fjalli. Það var vart stætt,“ sagði Hermann. Hermann sagði að hann og Stef- án hefðu fljótlega komist í skálann. „Það fór mjög vel um okkur í skálanum. Við notuðum teppi, sem voru utan um dýnur, til að hlúa að okkur, fengum okkur að borða og lögðumst síðan til svefns. Það var ekkert annað hægt að gera í stöðunni," sagði Stefán. „Okkur grunaði strax að það yrðu kallaðir út leitarflokkar. Ég hef verið í Flugbjörgunarsveitinni og veit því vel hvað menn hugsa. Ég er ekki að gera lítið úr björgun- Hermann Valsson og Stefán Smárason sjást hér, rétt eftir að þeir komu niður með leitarmönnum. DV-mynd:KAE arsveitunum. Mér finnst að það hafi verið sent of fjölmennt lið út til leitar um nóttina. Við erum þrautþjálfaðír fjallgöngumenn og vitum vel hvemig á bregðast við þegar svona veður skellur á. Ef við hefðum ekki náð að komast í skál- ann hefðum við grafið okkur niður Einn af snjóbílunum sem tóku þátt í leitinni. DV-mynd:KAE og beðið átekta. Við vorum vel útbúnir og með nóg af mat,“ sagði Hermann. Hermann sagði að þeir félagar hefðu vaknað kl. 8.30 í gærmorgun. „Við fórum nokkrum sinnum út, en þá var veður slæmt, þoka, lélegt skyggni og rok. Við ákváðum því að halda kyrru fyrir og bíða eftir að veður lægði. Nei, það kom mér ekki á óvart að sjá leitarmennina koma að skálanum. Ég veit að hjálparsveitarmenn eru vel þjál- faðir og fljótir til. Það var gaman að sjá þá.“ - Hvað með snjóflóðahættuna á svæðinu sem leitað var á? „SÉg varð ekki var við að snjóflóð hefðu fallið á þessu svæði eða að hætta hefði verið á snjóflóðum. Ef svo hefði verið þá hefði átt að loka svæðinu en ekki leita á því með fjölmennu liði. Með því voru hjálp- arsveitarmenn að stofna sjálfum sér í hættu. Við vorum allan tímann vel á okkur komnir sem sést á því að við skíðuðum með hjálparsveitar- mönnunum niður úr skálanum og gengum þegar þurfti,“ sagði Her- mann sem var mjög hress þegar DV ræddi við hann undir hlíðum Syðstusúlu í gær. -SOS Tveirsnjó- sleðar festust „Snjórinn var sem h'm þegar við fórum niður eitt gilið. Sleðarnir festust og við yfirgáfum þá þegar við vorum komnir í sjálfheldu,“ sögðu tveir leitarmenn úr Hjálpar- sveit skáta. Strax eftir að leitar- menn komu niður ásamt mönnun- um tveimur fóru menn úr Hjálpar- sveit skáta aftur upp í fjall og náðu snjósleðunum tveimur upp úr gil- inu. Þeir komu með sleðana til Reykjavíkur um kl. 20 í gærkvöldi. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.