Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Page 6
6
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðuvinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ara og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá. sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextireru 19,5% ogársávöxtun 19,5%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
14% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 20%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 21,55% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 18%
nafnvöxtum og 18,8% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 19% nafnvöxtum og
19,9% ársávöxtun, eðá ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 15% nafnvöxtum og 15,6%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
18‘/0 nafnvöxtum og 18,8% ársávöxtun eðá
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1%
í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára aímælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan rcikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 12%, eftir 2 mánuði 13%, 3 mánuði 14%,
4 mánuði 15%, 5 mánuöi 16%, og eftir b
mánuði 18%, eftir 12 mánuði 18,6% og eftir
18 mánuði 19*%,. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7.5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 18.8%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburöur er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir. 12%, þann mánuð. .
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út oinu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 16,42% eða eins og á verðtryggð-
um 6 mánaða reikningum með 2,5% nafn-
vöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir, 12,5%, og eins á alla
innstæðuna innan þess ársíjórðungs þegar
tekið hefyr verið út oftar en einu sinni. Inn-
legg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft
næsta heila ársfjórðung. Vextir færast íjórum
sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir
eru alltaflausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 16.5%, með
17,2% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 12%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9‘X,. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar. pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtiun. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum. 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleíri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings.
annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda
fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars
mest 248 þúsund. 5 manna fjölskylda eða
stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa.
annars mest 290 þúsund. Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól.
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir. vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 2,75% á mánuði eða 33%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,9167%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í mars 1986 er 1428 stig
en var 1396 í febrúar og 1364 stig í janúar.
Miðaðerviðgrunninn lOOíjúní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699
stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11 -20.03. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUIVI sjAsérlista iliS 1! 11 í! ú l! I! \iA
INNLÁN ÓVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæía 13.0 13,0 12.5 12.0 13.0 12.0 12.0 12.0 12.5 12.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 14.0 14.5 14.0 13.0 13.5 14.0 13.0 14,5 14.0 13.0
6 mán.uppsogn 17.0 17.7 17,0 14.0 15.0 17.0 15,5 15,5 14.0
12 mán uppsógn 18.5 19.4 18.5 15.0 18.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTU R Sparað 3 5 mán. 17.0 17.0 13.5 14.0 12.0 14.5 14.0 13.0
Sp. 6 mán. og m. 17.0 17.0 14.0 15.5 15.5 14.0
TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 11.0 11.0 4.0 5.0 5.0 4.0 5.0 5.0 4.0
Hlaupareikningar 5.0 4.0 4.0 5.0 5.0 4.0 5.0 5.0 4.0
INNLÁN VERÐTRYGGD
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.5 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 3.0 2.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.0 7.5 7.0 7.5 7.5
Sterlingspund 11.5 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 11.5
Vestur-þýsk mórk 4.5 4.5 3.5 4.0 3.5 4.5 3.5 4.5 4.5
Danskar krónur 10,0 9.5 7.0 8.0 7.0 9.0 7.0 10.0 8.0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
ALMENNIR VÍXLAR (Inrvemir) 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19,5
VIÐSKIPTAVlXLAR Z) (Inrvextir) kge 24.0 kge 24.0 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 3) 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0
VIÐSKIPTASKULDABRÉT 2) kge 24.5 kge 24.5 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF3) Að2V2ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengrien21/2ér 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁNTILFRAMLEIÐSLU
SJÁNEÐANMÁLS1}
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 19,25% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10,0%,
í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,0%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einrug hjá flestum stærstu
sparisjóðunum. 3) Vaxtaálag á skuldahréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði
á verðtryggð og óverðtryggð lán.
Laxinn hækkar aftur
hugað að ísfisksölum í Boulogne í Frakklandi
Rækja
Verð á rækju var ákveðið nýlega
og gildir það frá 1. febrúar:
kr.pr.kg.
a) 160 stykki í kílói og færri.31,80
b) 161-220 stk.íkílói.........26,50
c) 221-240 stk. í kílói.......23,00
d) 241-260 stk. í kílói.......21,00
e) 261-290 stk. í kílói.......20,00
0 291-320 stk.íkílói............17,00
Loðnuhrogn til frystingar
Hvert kíló kr. 23.00. Verð er miðað
við að hrognin séu tekin úr skiljara
við skipshlið. Verðið er miðað við það
magn sem fryst er.
„Söluaukningin hjá okkur í Bret-
landi byggist aðallega á því að Bret-
um barst minna af fiski frá eigin
skipum og frá Noregi þessa mánuði
en venjulega hefur tíðkast. Söluað-
ferðir þama hafa ekkert breyst og ég
held að Bretar borði ekki meira af
fiski núna en venjulega", sagði Sig-
urður Markússon hjá sjávarafúrða-
deild Sambandsins varðandi hina
miklu söluaukningu á fyrstu tveim
mánuðum ársins hjá Iceland Seafood
LTD, sölufyrirtæki Sambandsins í
Fersk loðna til frystingar
a) Undir 50 stykkjum í kílói.kr. 8,75
b) 50-55 stykki í kílói......kr. 6,50
c) Yfir 55 stykki í kílói.....kr. 5,00
Verðuppbót úr verðjöfnunarsjóði
Aflatryggingasjóðs er 6% sem gildir
allt veiðitímabilið. Loðna til fóðurs
kr. 3.
Þorskalifur, bræðsluhæf,
seld frá skipi:
Lifur, sem landað er frá höfnum frá
Akranesi til Hornafjarðar, hvert tonn
kr. 3.750. Verð í fiskbúðum í Reykja-
vík frá kr. 125 til kr. 175 kílóið.
Bretlandi.
Þessi söluaukning er fyst og fremst
borin uppi af mikilli aukningu á sölu
frysts þorskafla og á sölu frystrar og
pillaðrar rækju.
„Við hefðum getað selt miklu meiri
fisk í Bretlandi í fyrra en þá var gengi
dollarans svo hagstætt að fiskurinn
var frekar seldur til Bandaríkjanna.
Nú hins vegar er gengið á pundinu
hagstætt og þess vegna meira fram-
leitt fyrir Bretlandsmarkað," sagði
Sigurður. -KB.
Hörpudiskur
kr. kílóið
Hörpudiskur, 7 cm og hærri..13,60
Hörpudiskur, lægri en 7 cm..11,10
Verð þetta er miðað við að skelin
sé komin á bíl og sé í vinnsluhæfu
ástandi. Nýting8-10%.
Útflutningur Ameríkana á
fiskafurðum til Japan
Ameríkumenn hafa aukið útflutn-
ing sinn til Japan á fiskafurðum frá
því 1984 fram til september 1985 um
32% og er gert ráð fyrir aukningu frá
september til áramóta um 10%. Á
sama tíma hefur útflutningur Japana
á fiskafurðum aukist um 6%. Útflutn-
ingur frá Bandaríkjunum til Japan
var frá áramótum 1985 til september
fyrir 18.000 milljónir króna. Á sama
tíma fluttu Japanir út fiskafurðir fyrir
2.250 milljónir króna. Aftur á móti
eru Japanir að hasla sér völl í fram-
leiðslu fiskafurða um allan heim og
verður sagt frá því síðar.
Fiskmarkaðirnir
INGÓLFUR
STEFÁNSSON
New York
Rækjuverð er enn í hámarki og
virðist munu standa fyrst um sinn en
getið var um hið háa verð áður í
þessum pistlum. Telja fiskkaupmenn
að kaupendur séu orðnir vanir þessu
háa verði og sætti sig við það.
Verð á hörpuskelfiski frá Fulton
hefur verið fyrir íslenskan hörpuskel-
fisk kr. 425 hvert kíló, annan hörpu-
skelfisk allt að 600 kr. hvert kíló.
Eftirspurn er góð. Verð á þorski hefur
verið lágt miðað við það sem verið
hefur, eða kr. 108 hvert kíló, en var
vikuna á undan kr. 148 hvert kíló.
Nokkur eftirspum hefur verið á laxi
frá Chile, svonefhdum Coho laxi.
Hefur hann verið á allt að þriðjungi
lægra verði en norskur lax. Nú hefur
samt verð á norskum laxi hækkað
nokkuð og hefur verið sæmilegt nú
undanfarið. kr.hvertkíló
Ferskur lax, 2 til 3 kg stykkið.370
Lax, 5 til 6 kg stykkið.......406
hefur þó verið allt að kr. 500 þegar
besthefurverið.
Boulogne
Islenskir útflytjendur huga nú að
því að selja fisk í Boulogne í Frakk-
landi. Þarna er jafnvel að opnast
góður markaður fyrir þann hluta
aflans, sem oft hefur verið í lágu
verði, t.d. í Englandi, þama mætti
benda á að keila hefur staðið í sæmi-
legu verði, svo og ufsi. Verð á þorski
hefur verið að undanfömu kr. 151,00
fyrir hvert kíló og ufsi kr. 60.00.
Ingólfur Stefánsson
Rækjuveiðimenn fá nú kr. 31,80 fyrir kílóið af stærstu rækjunni, en verðið fer
niður i 17 krónur á smárækju.
Söluaukning hjá
lceland Seafood
í Bretlandi
„Ekki vegna þess að Bretar borði meiri fisk"
Flugfélag Norðurlands
rekið með hagnaði
Rekstur Flugfélags Norðurlands
gekk vel árið 1985. Hagnaður af
rekstrinum varð 3,1 milljón króna.
Velta nam 70 milljónum króna. Eigið
fé í árslok var 36,5 milljónir króna.
í frétt frá félaginu segir að farþegar
í áætlunarílugi hafi verið um 20 þús-
und en vömr og póstur um 470 tonn.
Mikil umsvif voru einnig í leiguflugi,
bæði innanlands og utan. Hæst bar
Grænlandsflug, sem var um 30 pró-
sent af rekstrinum.
Grænlandsflug hefur í mörg ár verið
mikilvægur þáttur í rekstri Flugfé-
lags Norðurlands. Umsvif olíufélags-
ins ARCO við Scoresbysund eiga
vemlegan þátt í aukningunni nú.
í ræðu á aðalfundi 5. mars síðastlið-
inn þakkaði stjórnarformaðurinn,
Einar Helgason, velgengni félagsins
ekki aðeins ytri skilyrðum heldur
einnig og jafnvel miklu fremur ötulu
og óeigingjömu starfi allra starfs-
manna þess.
Hjá félaginu vinna tuttugu manns;
níu flugmenn, sex flugvirkjar, þrír
afgreiðslumenn og tveir skrifstofú-
menn. Framkvæmdastjóri er Sigurð-
ur Aðalsteinsson.
-KMU
Flugfélag Norðurlands stundar áætlunarflug til ellefu staða.