Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Síða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Tutu og Boe- sakviðút- för Palmes Suður-afrísku blökkumanna- leiðtogamir Tutu og Boesak hafa ákveðið að koma til Stokkhólms til að vera við útfor Palmes á laugardag. Innanríkisráðherra Suður-Afríku, Stoffel Botha, hefur veitt blökku- mannaleiðtoganum Alan Boesak ferðaleyfi til að fara til Stokk- hólms á laugardag ásamt Desm- ond Tutu biskup til að vera við útför Olofs Palme forsætisráð- herra. Yfirvöld lögðu hald á vegabréf Boesak á síðasta ári skömmu áður en hann ætlaði sér til Bandaríkj- anna til að taka við minningar- verðlaunum Roberts Kennedy. Ferðaleyfi það er Boesak fær gildir aðeins í nokkra daga. Segjaferð Raad ár- angursríka Dagblað í Beinit fullyrðir í morgun að Razah Raad, franskur þingmaður er reynir að miðla málum á milli ríkisstjórnar Frakka og samtaka öfgasinnaðra múhameðstrúarmanna, hafi haft erindi sem erfiði í ferð sinni til Líbanon. Öfgasinnar í Beírút hafa átta franska ríkisborgara í haldi og hafa hótað að taka þá af lífi. Dagblaðið An-Nahar segir blaðamann sinn hafa náð sam- bandi við Raad í suðurhluta Beir- út í gærkvöldi eftir viöræður hans vnð talsmenn mannræningjanna. Segir blaðið Raad hafa lýst yfir bjartsýni með árangur ferðar sinnar og telur hann ekki úrkuia vonar um að Frökkunum átta verði sleppt innan tíðar. Raad er frambjóðandi hægri manna í frönsku þingkosningun- um á sunnudag og telja fréttaský- rendur hann haía lagt stjórn- málalegan ffama sinn að veði með ferð sinni til Beirút til þess að ffeista þess að frelsa gíslanna í tíma fyrir kosningarnar. Chile: Hvetja til andstöðu Stjómarandstaðan í Chile hefur skorað á Chilebúa að taka nú höndum saman um að steypa herstjóm Pinochet og fylgja þann- ig fordæmi Haitibúa og Filippsey- inga. Sagði einn leiðtogi stjómar- andstöðunnar í ræðu, sem hann hélt á fúndi kristilegra demó- krata, að eftir það sem gerst hefði á Haiti og Filippseyjum beindist samviska heimsins í vaxandi mæli að Chile en þar hefúr herstjóm verið við völd í meira en tólf ár. Stórsigur Gonzales Spánverjar hafna úrsögn úr NATO Þvert ofan í allar skoðanakannanir ákváðu spænskir kjósendur í almenn- ri þjóðaratkvæðagreiðslu að verða áffam aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins og höfnuðu úrsögn úr banda- laginu með vemlegum atkvæðamun. Persónulegur sigur Gonzales „Þessi úrslit vísa okkur áfram veg ffiðsamlegrar sambúðar, lýðræðis og framfara er Spánverjar völdu sér fyrir tíu árum,“ sagði sigri hrósandi Felipe Gonzales, forsætisráðherra og léið- togi sósíalista, en úrslitin em talin mikill persónulegur sigur hans. Opinberar kosningatölur frá Spáni í morgun herma að stuðningsmenn NATO-aðildar hafi farið með sigur af hólmi með yfir 13 prósent atkvæða „Þessi úrslit vísa okkur áfram veg friðsamlegrar sambúðar, lýðræðis og framfara er Spánverjar völdu sér fyrir tíu árum“ sagði Gonzales, forsætisráðherra, sigrir hrósandi í kosningasjónvarpi í morgun. símamynd Polfoto. en kosningaþátttaka var rétt tæplega 60 prósent. Talsmenn Atlantshafsbandalagsins í Bmssel lýstu yfir ánægju sinni með úrslitin í nótt og kváðu þeir niður- stöðu kosninganna mikinn sigur fyrir bandalagið og sameinaða Vestur- Evrópu. „Með því að styrkja undirstöður eigin lýðræðishefðar hefur Spánn gert slíkt hið sama fyrir vini sína og bandamenn," sagði Pete Martinez, talsmaður bandaríska utanríkisráðu- neytisins, í morgun en Bandaríkja- stjóm hefur lýst yfir mikilli ánægju sinni með úrslit kosninganna. Bjartsýni fyrir þingkosningar Gonzales komst til valda á Spáni árið 1982 eftir kosningaloforð um úrsögn úr NATO og uppsögn vamar- samnings við Bandaríkin. Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna nú var það stefna ríkisstjómar sósíalista að vera áffam aðildarríki NATO, en án þess þó að taka þátt í beinu hern- aðarsamstarfi bandalagsins. Það var einnig yfirlýst stefna stjórnarinnar fyrir kosningar að samþykkja ekki kjarnorkuvopn á spænsku landsvæði og fara fram á fækkun í 12500 manna herliði Banda- ríkjamanna á Spáni. Sigur stjórnarinnar í gær gefur henni mikinn meðbyr fyrir þingkosn- ingarnar er boðaðar hafa verið fyrir októberbyijun i haust. Spánverjar: Fullir afstolti aftýðræðinu Pétur Pétursson, fréttaritari DV í Madrid: Loft er lævi blandið hér í Madrid í dag. Eftir að ljóst varð um miðnætti í nótt að Spánveijar lýstu sig hlynnta aðild að Atlantshafsbandalaginu, söfnuðust þúsundir Nato-andstæð- inga saman á Puerta Del Soll torginu í Madrid og kröfðust úrsagnar úr bandalaginu og afsagnar ríkisstjóm- arinnar. Rithöfundurinn Antonío Gala, sem hefur verið andlegur leið- togi Nato-andstæðinga í kosninga- baráttunni, hvatti menn til kampa- vínsdrykkju þar sem sigur hefði unnist. Á meðan á þessari samkomu stóð bmtu menn rúður í flestum hamborgarastöðum við torgið. Að öðm leyti var allt með friði og spekt i miðborg Madrid í nótt. 1 viðtölum við útvarp og sjónvarp nú í morgun lýstu sósíalistaleiðtogar ánægju sinni yfir sigrinum, en sögð- ust mundu endurskoða flokksskír- teini þeirra sósíalista sem hefðu tekið opinberlega afstöðu gegn Nato. Þótt kosningaþátttaka hafi verið svipuð og í stjórnarskrárkosningun- um í desember 1978, eða tæp sextíu prósent, lýstu hægri menn engu að síður yfir sigri, en þeir höfðu hvatt fólk til að mæta ekki til kosninga. Afstaða manna virðist hafa skipst mjög eftir aldri. Hinir eldri reyndust með Nato, á meðan ungir vom á móti. Nato-andstæðingar í Madrid, borg unga fólksins, vom mjög svekkt- ir yfir sigri já-sins þar í borg, á meðan nei-ið hafði sigrað í Barcelona. Almennt var þó gott hljóðið í mönn- um og voru allir fullir stolti af hinu unga lýðræði á Spáni sem í fyrsta skipti í sögunni leyfði beina þátttöku almennings í máli er varðar þjóðarör- yggi- j Urslitin eru þó fyrst og fremst geysi- legur sigur fyrir ríkistjóm Conzalesar því allir flokkar höfðu sett sig upp á móti stjórninni í þessu máli og fyrir viku sýndu skoðanakannanir að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur aðild að Nato. Stjómin hefur verið gagnrýnd mjög í morgun fyrir mis- notkun á ríkissjónvarpinu og benda menn á þá staðreynd að yfirmenn sjónvarpsins em allir sósíalistar. Flugfreyju- verkfall hjá TWA Flugfreyjuverkföll hafa sett svip sinn á samgöngur í Bandaríkjunum að undanförnu. Bandaríska flugfélagið Trans World Airways varð að aflýsa yfir helmingi áætlaðra ferða sinnar fyrir skömmu vegna verkfalla flugfreyja og samúð- arverkfalla flugmanna. Flugfélagið hefur átt í fjárhagsörð- ugleikum síðustu mánuði og hefur orðið að draga töluvert saman seglin. Vegna verkfalla flugfreyja hefur TWA orðið að grípa til þess að nota 1500 nýliða og annan eins fjölda af skrifstofufólki á jörðu niðri til að gegn starfi flugfreyjanna þar til endar ná saman i samningamálum. Challenger-slysið: Meiri líkams- leifarfinnast Björgunarmenn, sem vinna við að upplýsa Challenger-slysið, hafa fundið meiri líkamsleifar geimfar- anna sjö sem fómst með ferjunni. Líkamsleifamar em taldar geta verið mikilvægar vísbendingar um hvað grandaði Challenger. Nasa geimferðastofnUnin hefur ekki viljað staðfesta þessar fréttir opinberlega og sagt að engar yfir- lýsingar verði gefnar fyrr en allar jarðneskar leifar áhafnarinnar em komnar í land og hafa verið skoðað- ar í samráði við aðstandendur. Umsjón: Hannes Heimisson og Valgerður A. Jóhannsdóttir Hundruð flugfreyja hjá bandaríska flugfélaginu Trans World Airways hafa verið í verkfalli að undanförnu og sett áætlun félagsins að mestu úr skorðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.