Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Page 10
10
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Verðlækkun á
helmillstækjum
Útsöluverð stærri heimilistækja,
þar sem tollur lækkaði úr 40% í
15%, lækkar yfirleitt á bilinu
14- 16%. Minni tækin lækka um
15- 17%. Hins vegar lækkar útsölu-
verð þeirra tækja, sem fóru úr 75%
tolli í 40%, um 18-20%.
Vegna gengishækkunar Evrópu-
gjaldmiðils nú í febrúar, en toll-
gengi marsmánaðar er reiknað út
samkvæmt gengi 28. febrúar, hefði
orðið talsverð verðhækkun á þeim
vörum sem keyptar eru frá Evrópu,
aftur á móti hefur Bandaríkjadollar
lækkað í verði gagnvart íslensku
krónunni.
Þau heimilistæki, sem lækkuðu í
15% tollflokk, eru: kæliskápar,
frystiskápar, uppþvottavélar,
þvottavélar, þurrkarar, strauvélar,
ryksugur, bónvélar, hrærivélar og
svokallaðar kvarnir eða blandarar
(food processors) sem voru áður í
80% tollflokki.
Þá fara einnig smærri rafmagns-
tæki, eins og brauð- og kjöthnífar,
í 15% tollflokkinn, dósaopnarar,
straujárn, kaffivélar, hraðsuðukatl-
ar og brauðristar.
Þess má geta að eldavélar og
örbylgjuofhar eru tollfrjáls.
Þá fara nokkur heimilistæki í
40% tollflokk úr 75%. Þar má nefna
sjónvörp, myndbandstæki, útvörp,
segulbönd og plötuspilara. Einnig
færast ýmis minni tæki í 40% toll-
flokk, s.s. rakvélar, hársnyrtitæki
(voru í 80% tolli), rafmagnspönnur,
vöfflujárn, djúpsteikingarpottar og
fleiri tæki.
Verðlagsstofnun er nú að fara af
stað með umfangsmikla könnun á
þeim verðlækkunum sem áttu að
fylgja í kjölfar kjarasamninganna
og er niðurstöðu að vænta í byrjun
næstu viku. Kvartanir hafa borist
og neytendur hafa víða fengið loðin
svör um gengisbreytingar og annað
sem á að valda því að verðlækkunin
er ekki eins mikil og hún ætti að
vera. Ýmsir hafa líka „brunnið
-álagning
verslana
í athugun
inni“ með jólatilboð þannig að
verslunareigendur neyðast til að
gefa tollinn af vörum sem keyptar
voru inn fyrir tollalækkun.
DV hafði því samband við nokkra
aðila, sem selja flestar þær tegundir
heimilistækja sem lækkuðu í verði
um síðustu mánaðamót, og leitaði
upplýsinga um verðlækkun á ólík-
um tegundum og gerðum heimilis-
tækja.
-S.Konn.&A.Bj.
Verðlækkunin fer allt niður í 14%
í kjölfar kjarasamninga komu til
framkvæmda tollalækkanir á heim-
ilistækjum, þar sem sjónvörp,
myndbandstæki, útvörp, segulbönd
og plötuspilarar lækkuðu úr 75%
tolli í 40%- Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum virðist nokkur
misbrestur hafa orðið á því að
lækkunin hafi skilað sér út til
kaupenda og hafa Verðlagsstofnun
borist kvartanir og kærur frá
kaupendum sem telja sig hafa verið
hlunnfama í viðskiptum við versl-
anir sem selja heimilistæki.
Maka verslanaeigendur
krókinn?
Verðlagsstofnun er nú að gera
umfangsmikla könnun á því hvort
eitthvað sé hæft í þvi að verslanir
hafi hækkað álagninguna samhliða
tollalækkuninni og makað á því
krókinn á kostnað viðskiptavin-
anna. Hjá Verðlagsstofnun fengust
þær upplýsingar að á þeim heimilis-
tækjum sem lækka úr 75% tolli í
40% á verðlækk unin út úr verslun
að vera á bilinu 18-20%.
DV hafði samband við nokkrar
verslanir sem selja sjónvörp, mynd-
bandstæki og hljómflutningstæki
og fékk upplýsingar um verð fyrir
og eftir tollalækkun. í ljós kom að
verðlækkunin var mjög mismun-
andi eða allt frá 13,94% og upp í
29,19%. Helstu skýringar sem gefn-
ar voru á mismunandi lækkun voru
þær að gengi íslensku krónunnar
gagnvart gjaldmiðlum söluaðila
hefði sigið. Ef tekin em dæmi af
þýska markinu, þá var tollgengi
þess í febrúar 17,7415 en í mars
- Verðlagsstofnun setur mörkin við 18%
18,5580 sem er 4,6% hækkun. Þetta
leiðir til þess að þær vörur sem
hafa verið tollafgreiddar eftir 28.
febrúar lækka því ekki eins mikið
og annars hefði orðið og þær vörur
sem tollafgreiddar voru í febrúar
vill enginn kaupa á gamla verðinu
sem felur í sér 75% toll. Verslana-
eigendur standa því frammi fyrir því
að annaðhvort verða þeir að lækka
vömna til jaftis við nýjar eða sitja
að öðrum kosti uppi með lagerinn.
í töflunni hér á eftir koma því
niðurstöður könnunarinnar á heim-
ilistækjum frá Japis, Nesco, Sjón-
I varpsbúðinni, Radíóbúðinni og
Hljómveri á Akureyri.
í þeim kvörtunum sem bárust
Verðlagsstofnun bar mest á því að
fólk teldi hljómflutningssamstæður
ekki hafa lækkað sem skyldi og er
í því tilefni rétt að taka fram að
hvorki hátalarar né magnarar
lækkuðu í tolli og því gildir 18-20%
lækkunin ekki um samstæðurnar.
Mesta og minnsta lækkunin er
hjá sömu versluninni, sem er Radíó-
búðin, og fengust þær skýringar hjá
Sigurði Oddssyni að eldra verðið á
Goldstar sjónvarpstækinu væri síð-
an í nóvember og hefði ekki hækkað
síðan. Annar forráðamaður raf-
tækjaverslunar sagði svipaða sögu
og sagði að mikið af jólatilboðsverð-
Verðlækkunin á heimilistækjum sem
lækka úr 75% í 40% toll er á bilinu 14-30%
en Verðlagsstofnun segir 14% of lítið.
unum hefðu enn verið í gildi og
þeir ættu einskis annars úrkosti en
að lækka þau enn frekar. „ Þetta
er orðin ein allsherjar vitleysa og
við neyðumst til að halda áffarn að
bjóða enn lægra verð. Mér er ekki
ljóst hvemig framhaldið verður á
þessu, nema að vörumar hækki svo
aftur vemlega með næstu sending-
um,“ sagði hann að lokum.
Lækkun verðs á heimilistækjum
á því að vera á bilinu 18-20%, en
fari lækkunin niður fyrir 15% er
full ástæða til að ætla að álagning
hafi verið hækkuð umfram það sem
áður var.
-S.Konn.
Áður Nú Lækkun
Heimilistæki í %
Japis Sjónvörp 20" Panasonic 41.800,- 33.800,- 19,13
26" Panasonic 58.800,- 46.900,- 20,23
Segulbönd Tecnics 24.511,- 19.600,- 20
Tecnics 19.960,- 15.970,- 19,98
Hlj ómtækj asamstæður Tecnics 250 37.800,- 31.500,- 16,66
Plötuspilari Tecnics 16.395,- 13.150,- 19,79
Tecnics Leiser 33.950,- 27.600,- 18,70
Nesco Sjónvörp 20" Orion 43.900,- 35.900,- 18,22
Myndbönd Zenon NE 48.900,- 39.900,- 18,40
Zenon HV 55.900,- 46.900,- 16,10
Hljómflutningstæki Orion 14.900,- 11.900,- 20,13
Áður Nú Lækkun
Heimilistæki í%
Vasadisco \
Crown CS-55 2.490,- 1.990,- 20,8
Crown CS-66 3.990,- 2.990,- 25,06
Ferðatæki Crown CS130 7.990,- 5.900,- 26,15
Crown CS 330 15.900,- 12.900,- 18,86
Radíóbúðin Sjónvörp 14" Goldstar 31.330,- 26.960,- 13,94
22" Nordmende 59.980,- 50.880,- 15,17
Myndbandstæki Nordmende 1015 58.600,- 49.980,- 14,17
Hljómflutningstæki Marantz 78.780,- 55.780,- 29,19
Plötuspilarar Marantz TT 420 18.250,- 12.980,- 28,87
Ferðatæki Goldstar 18.340,- 14.680,- 19,95
Áður Nú Lækkun j
Heimilistæki í % j
Sjónvarpsbúðin Sjónvörp 20" Fisher 47.190,- 37.740,- 20,02
22" Finlux 66.120,- 52.890,- 20,0
Hljómflutningstæki Fisher 300 45.090,- 38.210,- 15,25
Fisher 600 66.580,- 54.115,- 18,72
Ferðatæki Fisher PH 850 15.585,- 12.465,- 20,0
Fisher PH 845 14.220,- 11.370,- 20,0
Hljómver Akureyri Sjónvörp 20" Philips 42.800,- 37.270,- 13,03
22" Philips 59.995,- 51.600,- 13,99
Plötuspilarar Onkyo 9.820,- 7.950,- 19,0
Hljómflutningssamstæða Onkyo 57.000,- 50.000,- 12,28
Á heimilistækjamarkaðinum:
Lækkunin frá
10-20 af hundraði
„Við erum með sömu álagningarprósentu og fyrir tollalækkunina," sagði Sigurbjöm Daníelsson,
sölufulltrúi í heimilLstækjadeild Sambandsins, í samtali við DV. 255 1 kæliskápur hjá Samband-
inu, sem kostaði rúm 27 þúsund kr. fyrir tollalækkunina, kostar núna 24.456 kr., lækkaði um
9,55%.
„Gengisbreyting eins og orðið hefur á vestur-eviópskum gjaldmiðh hefur mikið að segja og
nú hefur orðið 5% hækkun á markinu á örfáum dögum. Þess vegna er lækkunin á heimilistækj-
unum vegna tollabreytinganna á bilinu frá 10 og upp í 20%,“ sagði Sigurbjöm.
Við fengum dæmi hjá Sigurbimi um verð fyrir og eftir tollalækkunina. Um er að ræða þýskar
vörur:
kæliskápur fyrir breytingu kr. 27.041, eftir 24.456, lækkun 9,55%
uppþvottavél fyrir breytinguna 40.054, eftir 34.944, lækkun 12,75%
þvottavél fyrir breytinguna 42.370, eftir 36.999, lækkun 12.67%
þurrkari fyrir breytinguna 22.725, eftir 18.986, lækkun 16,45%
„Smásöluverslanir sem liggja með stóran lager fara illa út úr þessu því verðið er lækkað strax.
Við verðum að vona að þetta vinnist upp með aukinni sölu,“ sagði Sigurbjörn Daníelsson.-A.Bj.
KÆLISKÁPURINN
LÆKKAR UM 11,4%
„Fyrsta virka daginn eftir að tollalækkanirnar tóku gildi lækkuðum við verð á öllum okkar
heimilistækjum 10-11%. Það verð gildir þar til við leysum út vömr samkvæmt nýja tollgeng-
inu,“ sagði Viðar Kornerup Hansen hjá Fönix í samtali við DV.
„Flestar okkar vömr em frá Danmörku en gengi dönsku krónunnar hefur hækkað um rúm
4% frá febrúartollgengi. Ef tollalækkunin hefði ekki komið til hefði verð á heimilistækjum frá
V-Evrópu hækkað vegna gengissigsins undanfarið," sagði Viðar.
„Fyrirtækin sem áttu einhvern lager verða sjálf að bera það tjón, auk þess sem farið er fram
á að við beinlínis lækkum álagninguna. Vera má að þetta sé neytendum í hag núna á þessari
stundu en með þessu er verið að þrengja hag fyrirtækjanna. Þannig geta þau e.t.v. ekki, þegar
fram líða stundir, veitt þá þjónustu sem er neytendum í hag.
En við munum halda okkur við sömu prósentuálagningu og áður,“ sagði Viðar. Hann nefndi
okkur dæmi um verð tveggja kæliskápa sem fyrirtækið hefur leyst út úr tolli eftir lækkunina.
250 I skápur kostaði áður 30.700 kr. en eftir lækkunina 27.200 kr., hefur lækkað um 11,4%.
Anriar skápur, 285 1 á stærð kostaði fyrir tollalækkunina 26.600 kr. en lækkaði í 23.900 kr. eða
um 10,2%.
Aúrar verðbreytingar hjá Fönix em m.a.:
Uppþvottavél kostaði fyrir tollalækkun 44.000 eftir 35.900 lækkun 18,4%(tilboðsverð)
þvottavél kostaði fyrir tollalækkun 45.800 eftir 41.200 lækkun 10%
þurrkari kostaði fyrir tollalækkun 21.800 eftir 19.600 lækkun 10,6%
ryksuga kostaði fyrir tollalækkun 12.000 eftir 10.600 lækkun 11,66%
Viðar tók það fram að tollalækkunin næði einungis til heimilistækja, en ekki til tækja sem
notuðemíiðnaðarfyrirtækjum. -A.Bj.