Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Page 12
12
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Neytendafræðslan
í molum hér á landi
Það er ekki nóg að neytendur kunni erlend tungumál. Þeir verða einnig
að kunna skil á því hvað hinar einstöku merkingar á niðursuðudósunum
þýða. - Tvær tegundir þessara ávaxta koma hingað frá Suður-Afríku, bæði
Del Monte og einnig Libbys.
Neytendurættu
aðsneiðahjá
innfluttumvörum
með erlendum
merkingum - verðugt
verkefni fyrir
Neytendasamtökin
að uppfræða
almenning
Neytendafræðsla er ekki upp á
marga fiska hér á landi. Merkingar
á inníluttum vörum eru einnig á
mjög lágu stigi og ekki gengið eftir
því að settum reglum sé framfylgt.
Ekki einu sinni stórhættuleg eitur-
efni sem eru til sölu í verslunum eru
merkt með varnaðarorðum með
örfáum undantekningum. Efni þessi
eru flutt átölulaust til landsins af
innflytjendum og seld í matvöru-
verslunum eins og ekkert sé.
Þessar dósir eru merktar eins og vera ber og ættu íslenskir neytendur að
sjá sóma sinn í því að kaupa frekar þær vörur sem þannig eru merktar.
DV-myndirPK.
tteiioí'miíisw -ín 9-
oaunírZWg
í ytvi >* aí
22 jj
ORAhí
iUpplýsingaseðiIli
! tO samanDurðar á heimiiiskostnaði!
j Hvað kostar heimilishaldið? J
I Vinsamlega sendið okkur þcnnan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- \
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fiolskvldu af sömu stærð og yðar.
Nýlega var fjallað um merkingar
á niðursoðnum ávöxtum hér á neyt-
endasíðunni. Maður varð fyrir þvi
að kaupa ódýra ávaxtadós og reynd-
ist innihaldið ekki vera fyrsta
flokks þrátt fyrir að ekki væri það
skemmt.
Við fjölluðum um málið, rætt var
við verslunarstjórann sem hafði að
sögn ekki fengið kvartanir vegna
þessara ávaxta og ætlaði að athuga
hvort innflutningi þeirra yrði hald-
ið áfram.
Erfitt getur verið fyrir neytand-
ann að átta sig á því hvemig inni-
hald niðursuðudósa er ef hann getur
ekki lesið það sem utan á dósunum
stendur. Þar er að finna upplýsingar
um innihaldið í langflestum tilfell-
um. En til þess að skilja það þarf
ekki einungis að kunna viðkomandi
tungumál sem getur verið enska,
þýska, hollenska, kínverska, ítalska
o.fl. tungumál. Það þarf einnig að
vita hvað upplýsingamar þýða. T.d.
má stundum sjá á ávaxtadósum
merkingar eins og: In syrup - In
heavy syrup - Choice - op zware
sirop - op lichte siroop o.s.frv.
Einu sinni var nóg að þekkja
vörumerkin, viðurkenndu amerísku
merkin vom næg trygging fyrir því
að innihaldið væri fyrsta flokks.
Nú dugir það ekki lengur. Viður-
kennd vörumerki em framleidd á
hinum ýmsu stöðum, einnig í Suð-
ur-Afríku (bæði Del Monte og Lib-
bys vörurnar sem við sáum í Hag-
kaupi komu þaðan). Nú eru líka
komin önnur vörumerki sem geta
verið jafngóð en við kunnum bara
ekki að lesa á dósirnar.
Nafn áskrifanda
, Heimlli__________.
Simi
Fjöldi heimilisfólks_
Kostnaður í febrúar 1986.
* Þó ætti að vera ömggt að ef á
* dósunum stendur: In heavy syrup
I eða choice quality, að þá sé um
| fyrsta flokks vöru að ræða.
Hins vegar er það sennilega ekki
* í verkahring kaupmannsins að
* upplýsa neytendur um gæði niður-
j suðudósanna. Hann ætti að sjá
sóma sinn í að hafa ekki á boðstól-
. um aðrar vömr en þær sem eru
I merktar á tilhlýðilegan hátt.
i Matur og hreinlætisvörur kr.
i Annaö
I
I
I
kr.
Alls kr.
Það er verkefni fyrir Neytenda-
samtök að upplýsa neytendur um
hvemig þeir eiga að rata um frum-
skóga aukins vömúrvals.
I
f
Einstaka niðursuðuvörur eru
merktar eins og vera ber, eins og
t.d. grænu baunirnar frá K. Jónsson
sem pakkað er fyrir Hagkaup og
baunimar frá Ora, auk fleiri niður-
suðuvara frá þessum fyrirtækjum.
-A.Bj.
Húsbyggjendur og ibúðakaupendur eiga nú áfram kost á skuldbreytingu á
skammtímalánum sínum en Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar ríkisins
annast framkvæmdina i samvinnu við banka og sparisjóði.
Aðstoð í
grelðslu-
eifiðleikum
skuldbreyting á skammtímalánum
húsbyggjenda
Þeir húsbyggjendur og íbúðakaup-
endur, sem em í greiðsluerfiðleik-
um, eiga nú áfram kost á að fá lán
vegna óviðráðanlegrar greiðslu-
byrðar. Það er Ráðgjafarstöð Hús-
næðisstofnunar ríkisins sem annast
framkvæmd þessara lánveitinga í
tengslum við ráðgjöf og athugun á
greiðslugetu umsækjenda.
Fjölmargir hafa leitað til Ráðgjaf-
arstöðvarinnar eftir að hún tók til
starfa að nýju og fleiri leita eftir
ráðgjöf áður en allt er komið í óefni.
Hjá Ráðgjafarstöðinni eru veittar
upplýsingar um lánamarkaðinn,
lánamöguleika og einnig um lána-
kjör húsbyggjenda og íbúðarkaup-
enda.
I samráði við Ráðgjafarstöðina
hafa bankar og sparisjóðir failist á
að einnig sé heimilt að veita lán
vegna greiðsluerfiðleika að því til-
skyldu að þeir stafi af fjármögnun
íbúðarhúsnæðis af hóflegri stærð
miðað við fjölskytdu.
-S.Konn.
Raddir neytenda Raddir neytenda
Sigurbjörg hringdi:
Hún vildi koma á framfærí fyrir-
spum um hvort einhver vissi hvar
hægt væri að fá leigð hvít kjólföt,
en hún sagðist hafa reynt víða og
á þeim kjólfataleigum, sem hún fór
á, voru einungis til hin hefðbundnu
svörtu kjólföt.
Neytendasíða DV haföi einnig
samband við nokkra aðila vegna
þessa, cn enginn kannaðist við að
þekkja til slíkrar leigu. Ef einhver
lesandi veit betur þá eru allar upp-
lýsingar um þetta vel þegnar.
-S.Konn
HEILLARÁÐ:
... hræriö hvítlauksdufti saman við
smjör eða sólblóma og smyrjið
brauðið og látið spægipylsu ofan
a...
... síðbuxur eiga til með að glansa
á bossanum. Gott ráð við því er
að nudda glansblettina með hrárri
kartöflu, pressa buxurnar síðan og
bursta blettinn með góðum fata-
bursta...