Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Page 22
22
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
•mT
Jón Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður knatt-
í a er biartsýnn á næsta keppnis
spyrnudeildar 1A, er Djansy (DV.mynd HH)
tímabil. -
„Framarar sprengdu sig um
. deildarkeppnina í
- segirJón Gunnlaugsson, formað-
urknattspyrnudei/daríA
miðja 1
fyrra“
í janúar sl. voru gömlu knatt-
spyrnufélögin á Akranesi, Kári og
KA, endanlega sameinuð en þau
hafa undanfarin ár nánast verið til
á pappírnum. Formaður aðal-
stjórnar ÍA (íþróttabandalags
Akraness) var kosinn Magnús
Oddsson. Innan bandalagsins eru 6
deildir: knattspyrnudeild, sund-
deild, körfuknattleiksdeild, golf-
deild, handknattleiksdeild og borð-
tennisdeild.
Fyrsti formaður knattspymu-
deildar eftir sameininguna var
kjörinn Jón Gunnlaugsson, fyrr-
verandi leikmaður með mfl. ÍA.
DV tók Jón tali í íþróttahúsinu á
Akranesi á sunnudaginn var og
spurði hvenær breski þjálfarinn,
Jim Barrron, væri væntanlegur.
- Hann byrjar æfingar 20. mars.
Veikindi hafa tafið fyrir komu hans
en þau eru ekki alvarleg.
Hvernig list þér á komandi leik-
tímabil? Nú hafa flogið þær sögur
að sumir leikmanna ÍA ætli að
leggja skóna á hilluna. Hvað er
hæft í þessu?
- Þetta er ekki rétt. Ég veit ekki
betur en allir verði með, nema
kannski Hörður Jóhannesson, en
hann á við þrálát meiðsli að stríða.
Fara góðar sögur af Jim Barron
sem þjálfara?
- Þegar við réðum þennan enska
þjálfara tókum við okkur góðan
tíma. Ummæli góðra manna úti í
Englandi voru honum einnig mjög
í vil - en hann var leikmaður hjá
Notthingham Forest og um tíma
hjá Manch. Utd. Ron Atkinson hjá
Manch. Utd. mælti mjög með hon-
um.
Svo þú ert bjartsýnn?
- Ég er ekkert banginn við næsta
keppnistímabil. Við verðum í efri
kantinum.
Þið Akurnesingar eru þekktir
fyrir að byrja æfingar i seinna lagi
og þegar þið loksins komist í gang
þá æfið þið aðeins þrisvar í viku
eins og frægt varð t.d. 1984 þegar
Hörður Helgason var þjálfari og
gerði ÍA að bikar- og íslands-
meisturum. Hver er að þínu mati
skýringináþessu?
- Kirby byrjaði seint. Hörður
byrjaði seint en keyrði skarpt. 1.
deildar keppnin á Islandi er löng
og ströng. Ég tel að hyggilegt sé
að hafa ákveðinn stíganda og stillt
sé inn á það. Framarar sprengdu
sig t.d. um miðja 1. deildar keppn-
ina í fyrra.
Hvað með yngri leikmenn? Fá
þeir sín tækifæri á næsta leiktíma-
bili?
- f 2. flokki eru margir góðir
strákar sem eiga örugglega eftir
að ná langt. Við þurfum engu að
kvíða í þeim efnum, voru lokaorð
Jóns Gunnlaugssonar. -HH.
1
J
„Kem
aftur!“
-fullyrðirHorður
Helgason, þjá/fariá
Akranesi
Hörður Helgason, sem
þjálfað hefur 1. deildar
lið IA undanfarin ár með
mjög góðun árangri,
ætlar að taka sér frí frá
1. deildinni. DV hitti
Hörð að máli í íþrótta-
húsinu á Akranesi sl.
sunnudag.
Hörður, voru strákarnir hættir
að hlýða þér?
- Nei, nei, biddu fyrir þér. Ég hef
aftur á móti þá skoðun að þjálfari
Vissulega yrði það skaði fyrir ÍA
að missa jafnreyndan leikmann og
Árna Sveinsson. Hann sagði í sam-
tali við DV fyrir skömmu að hann
væri fluttur til Reykjavíkur og
óvissa ríkti um framhaldið.
(DV-mynd HH)
Hörður Helgason mun þjálfa 2.
flokk í A í sumar.
(DV-mynd HH)
eigi ekki að vera lengur en 2-3 ár
með sama mannskapinn.
Þýðir þetta að þú sért farinn að
þjálfa yngri flokk IA?
- Já, ég þjálfa 2. flokk. Ég lft á
þjálfun yngri flokka sem mikla
vinnu, ekki síður en þjálfun meist-
araflokks. Það má segja, kannski,
að pressan sé minni - eða öðruvísi.
En ég tel t.d. að æfingar hjá mfl.
og 2. fl. leikmönnum eigi að vera
svipaðar.
Það er ekki algengt að yngri
flokkar frá Akranesi sigri í íslands-
móti. Til dæmis komst ekkert ungl-
ingalið úr IA í úrslit sl. keppnis-
tímabil. Aftur á móti hefur frammi-
staða mfl. verið frábær og óþarft
að tíunda. Hvað veldur?
- Það eru gerðar miklar kröfur
til leikmanna sem eru að koma upp
úr 2. flokki og drengirnir gera sér
grein fyrir því að þeir verða að
vera eins góðir, helst betri, en þeir
sem fyrir eru. Á Akranesi er það
aðaláhugaefni yngri knattspyrnu-
manna að komast einhvern tíma í
mfl. Baráttan er hörð um sæti og
aðeins úrvalið kemst að. Við fáum
þetta 2-3 einstaklinga af hverjum
árgangri, sem er gott.
Hættur 1. deildar þjálfun?
- Nei. Ég kem örugglega aftur.
-HH.
Allt um íslandsmótið í
unglingaflokkum
kvenna á mánudaginn
kemur!
UBKsigraði
Þriggja liða æfingamót í mfl.
kvenna í innanhússknattspyrnu
fór fram á Akranesi sl. sunnudag.
Úrslit urðu þessi: Valur - ÍA 4-4,
UBK - Valur 7-3, ÍA - UBK 4-5.
HH
Nýtt íþróttahús í bygg-
ingu á Akranesi
Norðan við íþróttasvæðið við Jað-
arsbakka á Akranesi er hafin bygg-
ing íþróttahúss á vegum ÍA. Gólfflöt-
urinn mun verða 50x25 m. Halldór
Fr. Jónsson, byggingarnefndarmað-
ur og þjálfari 3. fl. IA, sagði að mikil
þörf væri fyrir þetta íþróttahús því
innanhússíþróttir nytu sívaxandi
vinsælda á Akranesi. Ríkharður
Jónsson, hin góðkunna knattspyrnu-
hetja þeirra Akurnesinga frá árunum
1950-1960, tók fyrstu skóflustunguna
við hátíðlega athöfn 1. ágúst sl.
„Okkar draumur er að húsið verði
fokhelt 1. ágúst í ár. Það er búið að
steypa sökkla og sökkulveggi," sagði
Halldór. Hann kvað nánast allt
unnið í sjálfboðavinnu. Útlagður
kostnaður væri aðeins um 800 þús.
kr. sem ekki væri hægt að kalla
mikið við framkvæmdir sem þessari
DV reyndi að ná sambandi við hinn
dugmikla formann byggingarnefnd-
ar, Jón Runólfsson, en hann var ekki
í bænum. Halldór sagði formanninn
einkar laginn við að fá fólk til starfa.
Hann er hreinn galdramaður og
áhugi hans er slíkur að hann hrífur
fólk með.
Gott framlag einstaklinga og
fyrirtækja
Halldór sagði að búið væri að taka
tilboði frá Límtré hf. um smíði á
sperrum. Af 12 sperrum, sem fara í
Rættvið HalldórFr.
Jónsson úrbygging-
arnefnd og Reyni
Karlsson, íþróttafull-
trúa ríkisins
húsið hefur þegar safnast fé í 8. En
andvirði hverrar sperru er um það
bil 100 þús. kr. „Allir sjá að hér er
um gífurlegar upphæðir að ræða og
hefur áhugi einstaklinga og fyrir-
tækja fyrir þessu málefni verið ein-
stakur og kunnum við bestu þakkir
þeim aðilum sem hafa ljáð okkur
stuðning," sagði Halldór.
Sundlaug við hliðina
Akranesbær hefur hafið byggingu
sundlaugar sunnanvert í skjóli við
hið væntanlega íþróttahús. „Mein-
ingin er að nýta búnings- og baðað-
stöðu sundlaugarinnar," sagði
Halldór Fr. Jónsson að lokum.
Þáttur íþróttanefndar ríkisins
DV spurði Reyni Karlsson, íþrótta-
fulltrúa ríkisins, sem var staddur á
Akranesi, hvort þessar framkvæmdir
þeirra Akurnesinga væru ekki svo-
lítið sérstakar með tilliti til hinnar
miklu sjálfboðavinnu og hvaða regl-
ur giltu um stuðning við slíkar fram-
kvæmdir. Reynir upplýsti eftirfar-
andi.
„Samþykki Alþingi tillögur
íþróttanefndar ríkisins og mennta-
málaráðuneytisins um stuðning við
byggingu íþróttamannvirkis þá eru
greidd 40% af kostnaðarverði þess
úr íþróttasjóði. Á fyrsta ári er
greiðsla þessi lág, eða eins konar
viðurkenning á því að mannvirkið
hafi verið samþykkt inn á skrá sjóðs-
ins. Leitast er síðan við að greiða
hlut íþróttasjóðs í mannvirkinu á
fjórum árum, en hraði og upphæð
greiðslna hverju sinni fer að sjálf-
sögðu eftir ákvörðun Alþingis varð-
andi fjárlög hvers árs.
Um byggingu íþróttahúss ÍA
Það er aðdáunarvert hve Skaga-
menn hafa sýnt mikinn áhuga og
samstöðu um byggingu þessa
íþróttahúss íþróttabandalags Ákra-
ness. Forsvarsmönnum IA hefur
tekist að sameina áhugafólk um
byggingu hússins með þeim hætti að
fram til þess hafa framkvæmdir fyrst
og fremst verið unnar í sjálfboða-
vinnu.
Sá kraftur sem liggur á bak við
þessar framkvæmdir hlýtur að stuðla
að því að IA eignist hér íþróttahús
fyrr en nokkurn hafði órað fyrir,“
sagði Reynir Karlsson að lokum.
-HH
ríkisins, t.v,
Karlsson, íþróttafulltrui