Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS 1986.
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Persaflóaríkin:
Lúxuslífið á enda
Enn sér ekki fyrir endann á verð-
stríðinu sem geisað hefur milli oliu-
framleiðenda og olían heldur áfram
að lækka.
Olíuríkin eru mjög misjafnlega
undir þetta verðstríð búin. Fátæk
og skuldug ríki eins og Mexíkó og
Nígería þola verðlækkunina illa og
hafa þurft að leita á náðir lánar-
drottna sinna um lánsfrest.
Auðugri olíuríki, eins og til að
mynda Persaflóaríkin sex, Saudi-
Arabía, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin, Bahrain, Qatar, Kuwait og
Oman, þurfa kannski að draga eitt-
hvað saman seglin en eru engan
veginn á flæðiskeri stödd.
Saudi-Arabar fresta fjárlögum
Engu að síður eru þessi ríki neydd
til að endurskipuleggja efnahagslíf-
ið að einhverju leyti, og þá sérstak-
lega útgjaldahliðina.
Saudi-Arabar, sem eru stærsti
olíuútflytjendur í heimi, hafa
ákveðið að fresta afgreiðslu fjárlaga
fyrir næsta fjárhagsár vegna þeirrar
óvissu um tekjur ríkisins sem olíu-
lækkunin hefur í för með sér. Akv-
örðun þessi er, að sögn yfirvalda í
Kuwait, tekin eftir nákvæma at-
hugun á ástandi heimsmarkaðarins
fyrir olíu, þaðan sem sextíu og átta
prósent tekna ríkisins koma. Segja
Saudi-Arabar ástandið of ótrvggt til
að hægt sé að gera einhverjar
markvissar áætlanir um eyðslu.
Verða fjárlögin fyrir síðasta ár því
látin gilda fyrir fyrstu fimm mánuði
þessa árs og síðan endurskoðuð.
Omanfelldigengið
Oman er eina Persaflóaríkið sem
brugðist hefur við olíulækkuninni
með því að fella gengið. Sharif Lutfi
hagfræðingur, sem situr i nefnd um
þróun efnahagsmála í Oman, segir
höfuðástæðuna vera þá að Oman-
búar séu raunsærri en menn í öðr-
um olíuríkjum og þar af leiðandi
betur í stakk búnir til að stýra
efnahagsþróuninni.
Lutfi segist vera þeirrar skoðunar
að olían muni halda áfram að lækka
í verði í sumar en síðan stöðvast í
október. Fyrst þá muni verðstríðið
vera orðið framleiðendum svo dýrt
að þeir muni setjast að samningum.
Lutfi spáir því að olíuverðið muni
stöðvast viö fimmtán til tuttugu
dollara á tunnuna, sennilega nær
tuttugu dollurunum.
Óttast óstööugleika
Margir óttast þær afleiðingar sem
olíulækkunin kunni að hafa á póli-
tískan stöðugleika í Mið-Austur-
löndum. Eru menn þá fyrst og
fremst að hugsa um þær sérstöku
kringumstæður sem mikill fjöldi
farandverkamanna í ríkjum á þessu
svæði skapar.
í öllum Persaflóaríkjunum eru
farandverkamenn mjög stórt hlut-
fall af íbúunum og í þremur ríkj-
anna, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum, Kuwait og Qatar, eru
innfæddir í minnihluta. Allur niður-
skurður kemur til með að bitna fyrst
á farandverkafólki, en stór hluti
þessa fólks verður sendur heim
þegar framkvæmdir dragast saman.
Fyrir mörg riki hefði slíkt alvarleg
vandamál í fór með sér. Egyptar eru
sérstaklega viðkvæmir fyrir þessu
þar sem stærstur hluti gjaldeyris-
tekna þeirra kemur frá farand-
verkamönnum. Tvær og hálf milljón
Egypta vinna erlendis og senda
kaupið sitt heim. Yrði stór hluti
þeirra að snúa heim yrði það mjög
alvarlegt efnahagslegt áfall, sem
bættist ofan á þau skakkaföll sem
Egyptar hafa þegar orðið að þola
sem olíuframleiðendur.
Olíuiækkunin af hinu góða
Ekki eru allir jafnóánægðir með
þá stefnu sem olíumálin hafa tekið.
Háttsettur embættismaður í Oman
hefur látið hafa eftir sér að olíu-
lækkunin kunni að vera af hinu
góða fyrir hin auðugu Persaflóaríki.
Olíulækkunin kynni að kenna
mönnum að treysta ekki um of á
olíuna heldur snúa sér að því að
þróa aðrar greinar efnahagslífsins
og búa sig þannig undir þann dag
er olíuuppsprettan þornar.
íbúar þessara ríkja hafa vanist því
að lifa í lúxus án þess að þurfa að
hafa alltof mikið fyrir því. Nú verða
menn að sætta sig við að ferðast
með áætlunarflugi í stað einkaþotu
þegar farið er i innkaupaleiðangra
til London, er haft eftir vestrænum
diplómat í Kuwait.
Saudi-Arabar eru mestu olíuútflytjendur í heimi. Hjá þeim vinna milljónir
farandverkamanna við olíuvinnslu.
Það er enginn fátæktarbragur á borgarlífmu í höfuðborg Kuwait, sem varð fyrsta olíuríkið til að veita olíuauðn-
um út í samfélagið.
Gengur Sviss í
Sameinuðu þjóðimar?
Þjóðaratkvæðagreiðsla á sunnudag
Það eru án efa fjölmargir sem
ekki gera sér grein fyrir því að Sviss
er ekki aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna og hefur aldrei verið.
Afstaða Sviss til Sameinuðu þjóð-
anna hefur löngum verið vettvang-
ur fyrir stjórnmálalegan ágreining
manna á meðal og hefur sitt sýnst
hverjum.
Eftir langan aðdraganda hafa
svissnesk yfirvöld nú ákveðið að
láta þjóðina fella sinn dóm um hvort
sækja skuli um aðild að Sameinuðu
þjóðunum eða vera áfram utan
samtakanna.
Það er gamalgróin hefð í sviss-
nesku stjómarfari að vísa ágrein-
ingsmálum undir dóm þjóðarinnar
í þjóðaratkvæðagreiðslu og hafa
slíkar atkvæðagreiðslur verið tíðar
í Sviss undanfarin ár.
Ganga Svisslendingar til þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar á sunnudag
og ákveða þá afstöðuna til Samein-
uðu þjóðanna.
Kjósendur andvígir aðild
Ríkisstjórn landsins hefur stutt
þá tillögu að Sviss sæki um fulla
aðild að S.Þ. og hið sama hefur
þjóðþingið gert. Þar er sterkur
meirihluti fyrir aðildinni í báðum
deildum þingsins.
Skoðanakannanir sýna aftur á
móti nokkum meirihluta kjósenda
sem andvígur er því að Sviss verði
fullgilt aðildarríki S.Þ.
í Sviss em það kjósendumir í
kosningunum á sunnudag er hafa
lokaorðið, og em úrslit kosning-
anna bindandi.
Afstaðan til S.Þ. hefur verið mál
málanna í Sviss að undanfömu og
tilefni til margvíslegra stjómmála-
legra skoðanaskipta.
Þingmennirnir Christopher
Blocher frá Þjóðarflokknum og
sósíal-demókratinn Walter Rensc-
hler hafa saman ferðast um landið
síðustu vikur og haldið kosninga-
fundi i mismunandi landshornum
þar sem þeir hafa kynnt afstöðu sína
til inngöngu ríkisins í S.Þ.
„Sameinuðu þjóðirnar eru verk-
færi þeirra er útbreiða vilja vegvillu
alþjóðlegs kommúnisma." segir
Christopher Blocher.
„Sjálfstæði frá Sameinuðu þjóð-
unum þarf ekki nauðsynlega að fara
saman við einangmn og afturför
eins og andstæðingar okkar segja,“
segir Walter Ren'schler.
Virk þátttaka
Þrátt fyrir að vera ekki formlegt
aðildam'ki S.Þ. hefur Sviss alla tíð
haft nána samvinnu við stofnanir
samtakanna á alþjóðavettvangi og
hýsir meðal annars aðalskrifstofu
EvrópudeildarS.Þ. í Genf.
Sviss hefur löngum tekið þátt í
starfsemi hinna ýmsu stofnana S.Þ.
og veitt þeim fjárhagsaðstoð er
nemur yfir 100 miljónum dollara á
ári.
Sviss á aðild að UNESCO, menn-
ingar og framfarastofnun S.Þ., og
hefur ekki dregið úr þátttöku sinni
á þeim vettvangi á sama tíma og
Bandaríkin og Bretland, fullgild
aðildam'ki S.Þ., hafa ákveðið að
segja sig úr UNESCO.
Svissneskur ríkisborgari er ný-
skipaður yfirmaður flóttamanna-
stofnunar S.Þ. og annar er yfir
þeirri stofnun samtakanna er fjallar
um tolla og fríverslunarmál og
ágreining á milli aðildarríkja í þeim
málaflokkum.
Sviss hefur meira að segja lagt
fram herbúnað fyrir friðargæsluliða
S.Þ. í Miðausturlöndum og svissne-
skir hermenn hafa verið í Suður-
Kóreu samkvæmt samningi S.Þ. frá
því er vopnahlé var undirritað eftir
Kóreustríðið árið 1953.
Spurningin um aðildina að S.Þ.
hefur skapað óvenjulega sundrungu
í landi þar sem stjórnmálin og
stjórnmálabarátta er átakalítil og
einkennist frekar af góðsemi og
umburðarlyndi en miskunnarleysi
stjómmálabaráttu í öðrum ríkjum
Vestur-Evrópu og Bandaríkjanna.
Helstu stjómmálaflokkar Sviss
eru klofnir í afstöðu sinni til aðild-
Stjórnmálaflokkar klofnir
Kristilegir demókratar sam-
þykktu inngöngu landsins í ályktun
á nýafstöðnu flokksþingi sínu en
uppgötvuðu þá sér til skelfingar
djúpstæðan klofning innan flokks-
ins og mikla andstöðu hins almenna
flokksmanns við inngönguna.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
un, er Genfarblaðið La Suisse lét
gera í vikunni, vom 48 prósent
kjósenda andvíg aðild landsins að
S.Þ. á meðan aðeins 34 prósent
studdu aðildina.
Helsta ástæða þeirra er leggjast
gegn aðild var hinn mikli kostnaður
er af yrði fyrir svissneska skatt-
borgara, yfir tíu miljónir dollara á
ári, og önnur meginástæðan var
ótti við minnkandi sjálfstæði og
sjálfsforræði á alþjóðavettvangi.
Helsta tromp stuðningsmanna
aðildar er fordæmi annarra hlut-
lausra þjóða, sem jafnframt em fúll
aðildarríki S.Þ., ríkja eins og Finn-
lands, Svíþjóðar og Austum'kis, .og
sterk staða þeirra á vettvangi S.Þ.
á þeim áratugum er þau hafa tekið
þátt í starfsemi samtakanna.
Benda stuðningsmennirnir á
sterka stöðu þessara ríkja á al-
þjóðavettvangi og að aðild þeirra
að S.Þ. hafi ekki orðið þeim til
trafala, hvorki á innanlands- né
alþjóðavettvangi.
Frá þjóðþinginu í Bern. Svissneskir þingmenn styðja aðild að S.Þ. en skoðanakannanir sýna að almenningur er
á móti. Dómur kjósenda á sunnudag er bindandi fyrir stjórnvöld.
Umsjón: Hannes Heimisson og Valgerður A. Jóhannsdóttir