Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Page 17
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS 1986. 17 Skóval KARLMENN! við Óðinstorg Mjög gott úrval af karlmannaskóm. Götuskór og spariskór eru bæði í leðri og lakki. Vinnuskór, töfflur og inniskór eru á góðu verði. Ljósir og hvítir sumarskór eru þegar komnir - ódýrir - bæði reimaðir og óreimaðir. Póstsendum. SKÓVAL við Óðinstorg, skóverslun fjölskylduimar. Sími 14955. Lesendur Lesendur Lesendur Spegill, spegill. „Nútímaþjóðfélag íslendinga er að breytast með þeim hætti að fólk vill útivist og heilsurækt.. “ Málsvari aukinnar diykkju Foreldri skrifar: í DV þann 7. mars sl. birtist furðu- ritsmíð eftir matarfræðinginn Jón Óttar. Þar ásakar hann Áfengisvarn- arráð og er best að gefa honum orðið aftur: „í fyrsta lagi liefur það (Áfengis- varnarráð, innskot) neytt óharðnaða unglinga í þúsundatali til þess að drekka sterka drykki.“ Og áfram er haldið: „í öðru lagi hefur það komið í veg fyrir að hér myndist þjóðleg menningarhefð um veikari tegundir áfengis, öl og létt- Og að lokum: „í þriðja lagi hefur þessu ráði mistekist með öllu að kenna unglingum og þjóðinni í heild undirstöðuatriði í hóflegri notkun áfengis." Sú sem ritar þessa grein þekkir ekki til Áfengisvarnarráðs nema það sem birt hefur verið í fjölmiðlum frá ráðinu. Það er örugglega ekki hlut- verk Áfengisvarnarráðs né neinna opinberra aðila að kenna fólki að drekka. . Nútímaþjóðfélag íslend- inga er að breytast með þeim hætti að fólk vill útivist og heilsurækt, ekki aukna drykkju. Áfengi og önnur vímuefni hafa skapað fleirum sorg en hamingju. Öflugar fjöldahreyfingar vaxa og hefði Jón átt að láta sjá sig á fundi áhugafélags foreldra um vímulausa æsku, SÁÁ og Lions, sem haldinn var sl. laugardag. Þar var fjallað um þessi málefni af þekkingu. Við þurfum ekki fleiri tegundir áfengra drykkja, ekki fleiri vínveit- ingastaði og ekki fleiri talsmenn áfengisnotkunar. Við þurfum að bæta aðstöðu fyrir unga sem aldna til þess að geta eytt frítíma sínum við holla tómstundaiðju. „Handboltamennirnir eru heilbrigðir menn og út í hött að vera að styrkja þá til eins eða neins.“ íþróttarugl íslendinga Birgir skrifar: Aldrei ætlar þessu íþróttarugli að linna. Nú er heimsmeistarakeppnin í handknattleik að baki - sem betur fer. Það gekk alveg fram af mér hversu mikið var gert úr því að ein- hverjir menn voru að henda á milli sín bolta úti í heimi, það var næstum sama hvaða fjölmiðill það var, alls staðar handboltinn númer eitt. Hvað ætli þessi ósköp kosti þjóðina - að senda alla þessa menn út og allt það lið sem fylgir þeim? Nú, eða launin Strákarnir spila beint frá hjartanu Bubbi skrifar: Ég var staddur í Roxzy á laugar- dagskvöld og get ekki sagt annað en loksins, loksins, loksins. Því þar kom fram óauglýst hjómsveit sem heitir Strákarnir og kom hún liðinu gjör- samlega i opna skjöldu. Það eru ár og aldir síðan liefur heyrst í annarri eins hljómsveit, þeir félagar spila rokk og ról eins og það er best, beint frá hjartanu. Þarna held ég að birst hafi vísir að nýjum og betri tímum. Til hamingju, strákar, þarna er eitt- hvað í gangi. handa Bogdan? Auk þess eru hand- knattleiksmenn sífellt á spítala og það kostar líka sitt. Að maður tali nú ekki imi vinnutapið, eða bara það vinnutap sem felst í því að þessir garpar koma alltaf þreyttir í vinnu, öll orkan fer í það að kasta bolta. Og nú stendur til að gefa hand- boltanum 5 milljónir. Hvað á svona fífiaskapur að þýða? Af hverju er peningum sem fara í handbolta ekki frekar varið til að hjálpa blindum eða einhverjum sem þurfa á þeim að halda? Handboltamennirnir eru heil- brigðir menn og út í hött að vera að stvrkja þá til eins eða neins. Þeir mega fá sitt hús, en verða þá að bvggja það sjálfir, i sjálfboðaliða- herm þú mér hvar á iandi ódýrast er að sjá sig brosa Já, Maxi spegiarnir kosta 1.480,- 4 stykki saman í pakka með öllum festingum BÚS6A6NABÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK 1 91-6811 99 og 681410 . CÁ r' >•'. v . c^N LÆKIMISVITJUN ‘r\N > o K ara gamuMað^inn r " la*>’ Sex íslenskir læknar svara

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.