Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 7
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
7
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Lögbrot að selja kýrkjöt
sem nautakjöt:
Verðlags-
stofnunar
að kæra
slík mál
„Það er líklega í verkahring Verð-
lagsstofhunar að kæra það ef kýrkjöt
er selt sem nautakjöt. Menn hefur
lengi grunað að svöna væri í pottinn
búið. En það hefur skort sannanir og
hingað til hefur engin kært þetta
atferli," sagði Gísli G. ísleifsson, yfir-
lögfræðingur Verðlagsstofnunar.
Gísli sagði að mörg ár væru síðan
að svipað mál hefði komið upp. En
þá var grunurinn fólginn í því að
hrossakjöt væri selt sem nautakjöt í
búðiun. Hins vegar hefði ekkert orðið
úr þessu máli þar sem óyggjandi
sannanir lágu ekki fyrir. Tækni skorti
til þess að skera úr um málið.
„Til þess að kæra verði borin fram
vegna vörusvika varðandi nauta-
kjötssölu þá yrði Verðlagsstofnun að
afla gagna um málið og rannsaka það
af kostgæfni. Það yrði að sanna á
óyggjandi hátt að kýrkjötið héti
nautakjöt í búðum,“ sagði Gísli.
„Auðvitað er það ólíðandi að láta
menn komast upp með slíka vöruföls-
un, sem kemur harðast niður á fólki
sem minnst hefur milli handanna. Og
það er einnig óeðlilegt að fólk, sem
vill kaupa fínt nautakjöt, fái það ekki
vegna þess að kaupmenn eigi það
ekki til i búðunum."
Haft var samband við landbúnaðar-
ráðherra, Jón Helgason, og sagði
hann að þetta mál heyrði undir Verð-
lagsstofnun. Hann myndi hins vegar
beita sér fyrir því að fá upplýsingar
um málið þar og haga sér samkvæmt
þeim upplýsingum. „Við munum
auðvitað reyna að koma í veg fyrir
lögbrot þegar sannanir liggja fyrir
um slíkt,“ sagði Jón Helgason.
-KB
Fjölskyldufundur
Það er tilvalið að halda smáfjölskyldufund eða bara fund um leið
og dyttað er að sæskelinni fyrir sumarið. Liklega hefur margur
þorskurinn verið dreginn á þessa trillu. Og bráðum kemur að því
aftur. Það varð áreiðanlega enginn sjóveikur á þessum dyttfundi
þvi báturinn sá arna stóð enn á þurru landi, uppi i Örfirisey, sem
er raunar löngu hætt að vera ey.
HERB
DV-mynd PK.
Sárt finnst bóndanum að missa gömlu góðu Skjöldu sína i sláturhús. En ennþá verra þykir honum þegar beljan
Skjalda er orðin að nauti i búðunum og seld á uppsprengdu verði þó hann fái aðeins nokkra aura fyrir kúna sem
mjólkað hefur fyrir hann árum saman. Þegar nánar er skoðað kemur í ljós að það er lögbrot að selja gömlu góða
beljurnar sem naut þó ekki hafi hingað til lítið verið gert í málinu. Nú er hins vegar boltinn hjá Verðlagsstofnun og
samkvæmt landbúnaðarráðherra, Jóni Helgassyni, í hennar verkahring að upplýsa málið með óyggjandi sönnunum.
Markverður árangur fremstu
vísindamanna og hönnuða
OSRAM verksmiðjanna:
CIRCOLUX HÁGÆÐA PERUR
OG LAMPAR.
Pegar
6 föld ending - bætt lýsing
og 80% orkusparnaður
fara saman talar
OSRAM um LJÓSLIFANDI
ORKUSPARNAÐ
MOSRAF
VEftSLUN, VERKSTÆfM, RAFVERKTAKAR
UrÖarholti 4 - sími 666355
y°s//fandi ork-V
OSRAM CIRCOLUX
Circolux línan frá OSRAM fyrir heimili - vinnustaöi - hótei - stofnanir - verslanir