Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 8
§
SAUMANÁMSKEIÐ
Saumanámskeiðin eru að hefjast aftur, fyrir byrjendur
og lengra komna.
Upplýsingar og innritun í síma 15511, 21421 og
83069.
Sfor i réffta áffff
saumaverkstœdi
Hafnarstrœti 21
S: 15511
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar
stöðu námsstjóra í stærðfræði á grunnskólastigi.
Áskilin er þekking í greininni, kennslureynsla og
kennsluréttindi á grunnskólastigi.
Starfið felst í að leiðbeina kennurum um kennslu og
námsgögn, umsjón með endurskoðun námsskrár,
ráðgjöf o.fl.
Umsóknarfresturertil 20. apríl nk.
Umsóknum ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sé skilað til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 4.
LAUS STAÐA
Laus er til umsóknar staða lektors í franskri málfræði
og málvísindum við heimspekideild Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf,
rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 1. maí
1986.
1. apríl 1986,
Menntamálaráðuneytið.
•I? LAUSAR STOÐUR HJA
'I' REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjörsamkvæmt kjarasamningum.
Seljahlíð, vistheimili aldraðra v/Hjallasel.
1. Hjúkrunarfræðinga á dag- og kvöldvaktir. Upplýsingar gefur
Aðalheiður Hjartardóttir í síma 73633.
2. Starfsfólk í ræstivinnu og aðhlynningu á vist,
um er að ræða vaktavinnu.
3. Hársnyrtir, um er að ræða hálft starf.
4. Snyrtifræðing til fótaaðgerða, um er að ræða hálft starf.
5. Starfskraft við símavörslu.
6. Starfskraft i þvottahús.
7. Húsvörð, um er að ræða dagvinnu.
8. Sjúkraþjálfara.
Upplýsingar gefur María Gísladóttir forstöðumaður í sima 73623
frá kl. 10.00-12.00 daglega.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 13. apríl.
.98erjm/,.THUOA(i
DV. MANUDAGUR 7
Utlönd
Utlönd
Utlönd
kk
„LIBYSKT HANDBRAGÐ
Á HERMDARVERKUNUM
— segir talsmaður Bandaríkjastjórnar
Bandaríska dagblaðið New York
Times segir í dag að Bandaríkja-
stjórn áformi nú að nýju aðra herferð
á hendur Líbýumönnum er miði að
því að einangra ríkisstjórn Gaddafis,
efnahagslega og stjórnmálalega.
Aukinn þrýstingur á
bandamenn
Hefur blaðið þetta eftir ótilgreind-
um embættismanni Reagan stjórnar-
innar og segir að nú verði þrýstingur
aftur aukinn á bandamenn Banda-
ríkjanna um að vera með í refsiað-
gerðum gegn Gaddafi.
Segir blaðið að Bandaríkjastjóm
sé þess fullviss að Líbýumenn standi
á bak við tvö hefndarverk í Evrópu
í síðustu viku, sprengjutilræði um
borð í flugvél TWA flugfélagsins yfir
Aþenu þar sem fjónr Bandaríkja-
menn fórust og sprengjutilræðið á
skemmtistað í Vestur-Þýskalandi
yfir helgina þar sem tveir fórust og
hundruð særðust.
Annar þeirra sem fórst var Banda-
ríkjamaður og var skemmtistaðurinn
mikið sóttur af bandarískum her-
mönnum í Vestur-Þýskalandi.
f i
Oskarsverðlauna-
hafínn fékk ríkis ■
borgararétt
Haing Ngor, flóttalæknirinn frá
Kampútseu, sem heimsfrægur varð
af leik sínum í kvikmyndinni
„Blóðvellir" (Killing fields), er nú
orðinn bandarískur ríkisborgari
ásamt þúsund öðrum umsækjend-
um sem afgreiddir voru um helgina.
Ngor fékk óskarsverðlaunin fyrir
túlkun sína á hlutverki Dith Pran,
fréttaljósmyndarans í kvikmynd-
inni. Hann kom til Bandaríkjanna
fyrir 5 Zi ári.
Lífsreynsla Ngors sjálfs í Kamp-
útseu á blóðstjórnarárum Pol Pots
var jafnvel enn átakanlegri en Dith
Prans sem nú starfar hjá New York
Times. Hann missti alla fjölskyldu
sína og unnustu. Hann býr einn í
Los Angeles en er á förum til Ev-
rópu til þess að undirbúa jarðveg-
inn fyrir frumsýningu heimildar-
myndar hans „Cambodian
Odyssey".
„Líbýskt handbragð“
Fulltrúar Bandaríkjastjómar segja
að framkvæmd beggja hermdarverk-
anna hafi haft yfir sér „líbýskt
handbragð".
Fyrri tilraunir Bandaríkjastjórnar
til að sannfæra bandamenn sína í
Vestur-Evrópu um að taka þátt í
refsiaðgerðum gegn Líbýu eftir
fjöldamorðin á flugvöllunum í Róm
og Vínarborg í desember síðastliðn-
um urðu sem næst árangurslausar.
Hefur blaðið það ennfremur eftir
embættismanninum að stjórnin í
Washington leggi nú á það aukna
áherslu við ríkisstjórnir Vestur-
Evrópuríkja að þær vísi skilyrðis-
laust þeim líbýsku sendimönnum úr
landi er orðið hafi uppvísir að því
að misnota friðhelgi stöðu sinnar
sem stjómarerindreka í þágu hermd-
arverka.
Segir blaðið Bandaríkjastjórn nú
þrýsta á stjórnvöld í Vestur-Þýska-
landi að þau vísi nú líbýskum
sendimönnum frá Bonn í kjölfar
sprengjutilræðisins á skemmtistaðn-
um um helgina.
Bandarísk stjórnvöld gruna útsendara Líbýustjórnar um að vera ábyrga fyr-
ir sprengingunni um borð í flugvél TWA flugfélagsins á dögunum sem og
skemmtistaðnum í Vestur-Þýskalandi fyrir helgi.
Leikarinn Ngor, öðru nafni blaða-
ljósmyndarinn Dith Pran í kvik-
myndinni Killing Fields, ásamt eina
eftirlifandi ættingja sínum frá
Kampútseu skömmu eftir að Ngor
fékk óskarsverðlaunin í fyrra.
Stúlkan sá mynd af frænda sínum
í dagblöðum og leitaði hann uppi.
Verkfall hrekur Koi-
visto úr forseta-
höllinni í Helsinki
Verkfall opinberra starfsmanna í
Finnlandi hefur nú staðið í fimm
daga en yfirvöld gera sér vonir um
að geta senn opnað Helsinki-flugvöll
aftur til umferðar. Verkfallið hefur
stöðvað allt innanlands- og utan-
landsflug, auk annarrar þjónustu
eins og afgreiðslu símtala til Sovét-
ríkjanna en um 25% utanríkisversl-
unar Finna eru við þau.
Lestarferðir hafa einnig stöðvast,
en ekki ferðir lestanna milli Helsinki
og Leningrad og Moskvu.
Um 15 þúsundir í Helsinki óg naéstá
nágrenni eru í verkfalli til að fylgja
eftir kröfum um 20% launahækkan-
ir, en við þær munu bætast 27
þúsundir ef ekki næst samkomulag
fyrir 16. apríl.
Verkfallið hefur flæmt Mauno Koi-
visto út úr forsetahöllinni þar sem
starfsfólk hallarinnar er í verkfalli
og hún kuldalegur íverustaður á
meðan. Dvelur forsetinn í gestabú-
stað, sem þjónað er af fyrstd flokks
veitingastað, og hefur forsetinn sagt
að betur fari um hann þar en heima
í forsetahöllinni.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og
Hannes Heimisson