Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Qupperneq 18
BLAÐBERA VANTAR
í Helgalandshverfi í Mosfellssveit
Upplýsingar hjá umboðsmanni
í síma 66481.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninní landspildu úr Miðdal II, Mosfellshreppi, þingl,
eign Kristjáns Jósteinssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10.
apri'11986 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 72., 80. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Helluhrauni 12, Hafnarfirði, þingl. eign Arnarprents hf„ fer fram eftir kröfu
Iðnaðarbanka íslands og Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 10. apríl 1986 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 82., 89. og 97. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Laufvangi 13, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Aslaugar Sigurðardóttur,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Hafnarfirði, Gjaldheimtunnar í Reykja-
vík, Iðnlánasjóðs, Landsbanka íslands og Veðdeildar Landsbanka íslands á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. apríi 1986 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 12., 19. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Iðnbúð 2, 2. hæð og 1 /4 hluta 1. hæðar, Garðakaupstað, þingl. eign
Gullkornsins hf., fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs, Gjaldheimtunnar í Garða-
kaupstað og Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10.
apríl 1986 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 69. og 79. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Skerjabraut 7 (Ingjaldshóli), Seltjarnarnesi, þingl. eign Erlendar Garðars-
sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hdl. og Veðdeildar
Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. apríl 1986 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 89. og 97. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Melabraut 39, Seltjarnarnesi, þingl. eign Björns Blöndal, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar á Seltjarnarnesi og Valgarðs Sigurðssonar hdl. á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. apríl 1986 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Bjarnarhóli 7, Hafnarhreppi, eignarhluta Sveins Rafn-
kelssonar, fer fram að kröfu Brunabótafélags islands og Helga V. Jónssonar
hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. apríl 1986 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn iAustur-Skaftafellssýslu.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Silfurbraut 23, Hafnarhreppi, þingl. eign Sigurðar R.
Jónssonar, fer fram að kröfu Brunabótafélags islands og Landsbanka íslands
á eigninni sjálfri föstudaginn 11. apríl 1986 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn i Austur-Skaftafellssýslu.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Hafnarbraut 10, Hafnarhreppi, þingl. eign Stemmu
hf., fer fram að kröfu Árna Einarssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11.
april 1986 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn i Austur-Skaftafellssýslu.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Sunnubraut 8, Hafnarhreppi, þingl. eign Guðmundar
Sigurðssonar, fer fram að kröfu Gissurar V. Kristjánssonar hdl. og Róberts
Áma Hreiðarssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. apríl 1986 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Austur-Skaftafellssýslu.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Höfðavegi 13, Hafnarhreppi, þingl. eign Gunnars
Gunnlaugssonar, að hluta samkv. kaupsamningi, fer fram að kröfu Jóns
Ólafssonar hrl„ Sigurmars K. Albertssonar hdl„ Brynjólfs Kjartanssonar hrl.
og Ammundar Backman hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. april 1986
kl. 14.30.
Sýslumaðurinn í Austur-Skaftafellssýslu.
Nauðungaruppboð
2. og síðara á eigninni Svalbarða 2, Hafnarhreppi, þingl. eign Benedikts
Sigfússonar og Ólafar K. Gunnarsdóttur, fer fram að kröfu Atla Gíslasonar
hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. aprij 1986 kl. 15.00.
__________________Sýslumaðurinn i Austur-Skaftafellssýsl u.
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
BH
Menning
Mennin
VITUND
••
VOKUNNAR
Birgir Svan Símonarson
& Ólafur Lárusson
LÍFLÍNUR
Eigin útgáfa, Rvik 1985,45 bls.
í þessari bók eru tuttugu fallegar
myndir eftir Ólaf og samkvæmt
höfundum eru ljóð Birgis flest ort
við þær, andstætt venjunni, að
bókmenntaverk séu myndskreytt.
Hér verður eingöngu fjallað um
ljóðin sem eru jafnmörg myndunum
og sum mjög stutt:
Hjarta þitt
frystihólf
fullt
aftárum
Þetta er nokkurt afrek að geta
náð sterkri Jjóðmynd í svona ör-
stuttu máli. Fleiri ljóð eru litlu
lengri, og sum aðlaðandi, eins og
þegar hann fjallar um andann og
efnisleg verðmæti, eða þannig skil
ég:
Góðan veðurdag
fjöður
úr hami guðsins
svífurtiljarðar
leggurjárnbent
hús í eyði
Guðirnir fornu, Freyja og Loki,
flugu um í fjaðurham, og úr honum
svífur niður ímynd léttleikans og
rústar það sem menn eiga ramm-
gervast. En merkilegt er að sjá að
fjöðrin leggur húsið ekki í rúst
heldur eyði, það er hún hefur áhrif
á íbúa þess, en ekki steinsteypuna.
Mörg önnur ljóð af þessu tagi
finnst mér detta dauð til jarðar, búa
yfirlitlu, t.d.:
Hjarta tromp
úrslitaslagurinn
hún lumar á mannspili
hundar í borði
en þá ríf ég
úr mérhjartað
yfirtrompa
Það eru helsti mörg ljóð bókar-
innar svona átakalítil og þótti mér
Birgir senda frá sér öllu tilkomu-
Bókmenntir
ÖRN ÓLAFSSON
meiri verk áður, til dæmis Ljóð úr
frystihúsi í fyrstu bókinni, draum-
líkt verk, þar sem spannst saman
martröð hversdagslegrar vinnunnar
og ævintýri vökudrauma í slitróttri
hrynjandi. En nú virðist hann hafa
öðlast þá vandvirkni sem þar skorti
stundum og er spennandi að sjá
hvað verður úr þessu. En mér dettur
í hug að þessi tilraun þeirra félaga
gefi vísbendingu um að skáld örvist
ekki til dáða af því að fá myndlistar-
verk til að leggja út af, þá fari
skáldin ekki að gera verulega
myndir fyrir sitt leyti.
Annars eru meiri átakaverk í
kverinu og langar mig sérstaklega
til að nefna: Sofandi maðurinn.
Titli þeim er svarað í lokalínu Ijóðs-
ins. Það er mestmegnis á sjómanna-
máli og myndir þess af sjómannalífi
verða sterkari en ella myndi vegna
andstæðunnar við kyrrláta stofuna
þar sem maðurinn sefúr. í draumi
hans verður hún lúkar, síminn
kallar dyrabjölluna út af frívakt,
standlampi umhverfist í drukkinn
sjómann.
Kvæðið er vel byggt. Fyrsta erindi
er sviðsetning með þessari ruglings-
legu skynjun hálfsofandi manns
sem nú var rætt um. Blaktandi
gluggatjöld umhverfast þannig í
vængi soltinna sjófugla. Annað
erindi lýsir svefni mannsins, hvern-
ig hann er gjörsamlega dauður
gagnvart raunverulegu umhverfi
sínu, þeim þremur hljóðum sem
helst ýta við mönnum í landi, hann
yrði aðeins vakinn til sjómenns-
kunnar. Þriðja erindi raðar saman
goðsögnum um sjómannslífið en
þær mótast af sterkum andstæðum;
lýst kyndlum/myrk höf; tröllin tína;
dauðinn er léttadrengur. Goðsög-
urnar eru einnig nokkurs konar
draumur eða víma til að flýja vitund
vökunnar, sem nefnd er í lokin.
Sofandi maðurinn
nýsköpunartogarinn tekur dýf-
ur
á stofuveggnum
standlampar riða
kófdrukknir sjómenn
í erlendri hafnarborg
gluggatjöld blakta
vængir soltinna sjófugla
Æðisgenginn Liszt-
frabær Schostakowitsch
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands i
Háskólabíói 3. april.
Stjórnandi: Frank Shipway.
Einleikari: Martin Berkofsky.
Efnisskrá: Franz Liszt: Píanókonsert nr.
2 í A-dúr; Dimitri Schostakowitsch: Sin-
fónia nr. 10 i e-moll, op. 53.
Þegar Martin Berkofsky er við
píanóið og Liszt á efnisskránni er
það nokkurn veginh hið sama og
að setja saman sterka púðurhleðslu
og handfylli af höglum - aðeins
þarf hvellhettuna til viðbótar og
síðan að hleypa af. Martin Berkof-
sky hefur í sér þann demónska
kraft sem manni finnst ti! þurfa í
músík Liszts, en einnig þá angur-
værð til mótvægis sem gerir ægi-
kraftinn í leik hans viðsættanleg-
an. Þar er engar málamiðlanir að
finna, heldur eru öfgarnar málaðar
sem skörpustum litum svo að ekk-
ertferámilli mála.
Mætti ég biðja um „Festival
Strings“-alltaf
I undurblíðum inngangi píanó-
konsertsins fann maður til þess að
strengjaliðið væri einum of þunn-
skipað, einkum dýpri raddirnar.
Strengimir spila þar dempaðir og
mér leist satt best að segja ekkert
á að þeir hefðu neitt í stórátökin,
sem á eftir fylgdu, að gera. Það
vekur mann óneitanlega til um-
hugsunar um hvað orðið hafi um
„fjölgunina“ sem boðuð var sam-
fara langþráðum lögum um hljóm-
sveitina. Jú, víst hefur orðið fjölg-
Martin Berkofsky.