Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Page 20
.f)8er JiflciAííuoAcru kám .vcr
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
LAUS STAÐA
Laus er til umsóknar staða lektors í heimspeki við
heimspekideild Háskóla íslands. Umsækjandi skal
vera hæfur til að kenna heimspekisögu og jafnframt
ýmsar greinar heimspeki svo sem frumspeki, siðfræði
og þekkingarfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf,
rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 1. maí
1986.
1. apríl 1986,
Menntamálaráðuneytið.
Húsnæóisstofnun ríkisins
Tæknidcild Lauyavegi77. R. Simi28500
ÚtboÓ
Framkvæmdanefnd um byggingu íbúða- og dvalar-
heimilis aldraðra á Eskifirði óskar eftir tilboðum í
uppsteypu og að gera fokhelt hús aldraðra á Eskifirði.
Húsið verður 315 m2, 3177 m3.
Verkið skal unnið samkvæmt teikningum og útboðs-
gögnum nr. Æ.06.01 úr teikningasafni Tæknideildar
Húsnæðisstofnunar r'kisins og skal skilað 15. nóv.
1986.
Afhending útboðsgagna er hjá bæjarskrifstofu Eski-
fjarðar og hjá Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
frá þriðjudeginum 8. apríl nk. gegn kr. 5.000,00 skila-
tryggingu.
Tilþoðum skal skila á framangreinda staði eigi síðar
en þriðjudaginn 29. apríl 1986 kl. 11.00 og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. framkvæmdanefndar,
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
/
HVESEL
Vesturgötu
Nýlendugötu
Laugaveg 1-120, oddatölur
Lindarbraut
Miðbraut
Grandaveg
Hringbraut 95-út
Bræðraborgarstíg
Holtsgötu
Skipholt 27-70
Hjálmholt
Laugaveg168-178
SVIKINVK)
SVERRIH/F
Ég hef áður skrifað í DV um þau
samskipti og þann skipasmíða-
samning sem Skipasmíðastöð M.B.
hf. á ísafirði og Sverrir hf. frá
Grindavík gerðu með sér og hvern-
ig þeir aðilar allir sem einn hafa
hjálpast að við að gera fyrirtæki
mitt að engu á einni nóttu.
Forsaga þessa máls er sú að fyrri
hluta árs 1979 leitaði Sverrir hf. í
Grindavík eftir samningi við stöð-
ina og virtist ekkert því til fyrir-
stöðu þar sem stöðin var orðin
verkefnalaus. Síðan gerðum við
samning um 39 m langt skutskip
sem við fengum ekki samþykktan
hjá viðskiptabanka okkar. 25.
ágúst 1979 gerðum við nýjan samn-
ing um 26 m langt skip með 12
mánaða byggingartíma og verð
þess var 660 millj. g. kr. og fram-
reiknað í 12 mánuði var áætlað að
skipið myndi kosta 900 millj. g.
kr., sem var lausleg áætlun frá
hagdeild LI., en hann er okkar
viðskiptabanki. Um miðjan sept-
ember 1979 er þessi samningur
samþykktur á stjórnarfundi hjá
Fiskveiðasjóði ísl. og 75% lán út á
skipið þegar það er fullgert en að
undangenginni samþykkt við-
skiptabanka okkar.
2. nóvember 1979 sendir Fisk-
veiðasjóður viðkomandi aðilum
skriflegt svar við samþykktinni og
sendir jafnframt 75% af verði
skipsins í dollurum til ísafjarðar
og þar með á smíði skipsins að
hefjastáfullu.
Nokkru síðar sækir útgerðarfé-
lag í Ólafsvík um lán til kaupa á
nýsmíði nr. 51 hjá M.B. hf. og viti
menn, það fær peninga umyrða-
laust senda á silfurfati, allt saman
lánað á eign sem Sverrir hf. á og
með lögboðnum veðum. í byrjun
maí fer stöðin með samning nr. 2,
sem er falsaður af hennar hálfu, til
Siglingamálastofnunar ríkisins og
fær skipasmiðaskírteini dags. 5. 5.
1982 og þjóðernis- og skráningar-
skírteini fyrir skip sem hefur
smíðanúmer 51 og þar með getur
stöðin látið hina fölsuðu eigendur
þinglýsa skipinu á sitt félag. Þar
með eru þeir komnir með eignar-
heimild á skipinu með skjalafalsi
sem Fiskveiðasjóður íslands og
Byggðasjóður eru báðir búnir að
samþykkja.
Sýslumanni svarað
Skipasmíðastöðin var tollvöru-
geymsla. I athugasemd þinni í DV
gantast við þig, hr. sýslumaður, þar
sem þú ert svo til nýbyrjaður í
starfi og þekkir ekki þessa menn,
þá Gunnar Örn Gunnarsson og
Fylki Ágústsson, sem þarna eiga
mestan hlut að máli, en ég virði
það við þig að þú ert eini opinberi
aðilinn sem reynir að klóra í bakk-
ann og halda uppi heiðri þíns
embættis.
Mér þætti vænt um, hr. sýslu-
maður, ef þú vildir skýra mér frá:
1) I hvaða húsi var nýsmíði nr. 51
byggð? 2) í hvaða húsi var tollvöru-
geymsla M.B. á árunum '79-82? 3)
Hver annar en skipasmíðastöðin
var umboðsmaður skipafélaganna
sem fluttu allt góssið í nýsmíði nr.
51 og fengu þar með alla tollpapp-
íra í hendurnar sjálf? Allar vélar,
járn og fleiri hlutir eru frá Magnúsi
Ólafssyni h/f. Fiskleitartæki frá
Friðriki Jónssyni h/f. Allur spil-
Kjallarinn
MAGNÚS Þ.
SVERRISSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SVERRIS H.F
búnaður er frá Rapp Hydenn í
Noregi, umboðsmaður Hinrik
Hallgrímsson.
Hr. sýslumaður, þú ættir nú að
hafa samband við þess aðila um
hvernig þessi tollaviðskipti fóru
fram á þessum árum áður en þú
hefur mikið hærra, því mér er dálít-
lH „...en ég virði það við þig að þú ert
™ eini opinberi aðilinn sem reynir að
klóra í bakkann og halda uppi heiðri þíns
embættis.“
þriðjudaginn 1. október sl. tekur
þú þér það bessaleyfi að hvítþvo
stöðina af þessum ósóma, sjálfsagt
vegna fornrar frægðar, því þú getur
þyrlað ryki í augu almennings í
landinu, ekki mín.
Hr. sýslumaður, ég ætti eflaust
ekki að rengja orð þín, það lærður
sem þú ert, en ég segi þau helber
ósannindi vegna þess að skipa-
smíðastöðin var tollvörugeymsla á
árunum ’79-’82 og jafnvel fyrr, því
embætti þitt hafði stöðina grunaða
um þessi tollabrot áður en þú tekur
við embætti, annars ætti það nú
ekki að standa í þér að kanna þann
þátt ef þú hefðir áhuga á því. Ég
ætti nú kannski ekki að vera að
ið kunnugt um málið og flesta
viðskiptaþættina og veit ég þess
einnig dæmi að stjórnendur stöðv-
arinnar lánuðu varahluti til skipa
án þess að greiða þá þegar þeir
fóru út.
Ég ákæri
Eg ákæri Skipasmíðastöð M.B.
h/f á ísafirði og þá Gunnar Örn
Gunnarsson framkvæmdastjóra og
Fylki Ágústsson skrifstofustjóra og
krefst rannsóknar á þessum við-
skiptum. Aðdragandi málsins er sá
að eftir að skipasmíðasamningur-
inn var samþykktur af Landsbanka
íslands og Fiskveiðasjóði í okt. ’79
um okkar íjármagn til smíðarinnar,
sem hljóðar upp á eitt ár. Á sama
tíma og þessi samningur gengur í
gegn og er samþykktur semur stöð-
in við járnblendiverksmiðjuna á
Grundartanga um verkefni til sex
mánaða, en í okt. ’80 var ekki einu
sinni búinn 1/3 partur af skipinu.
Upp úr því notfæra þeir sér 8. grein
samningsins og rifta honum við
Nonna h/f, sem var stærsti fjár-
mögnunaraðilinn við Sverri h/f,
þar sem þeir telja vélar og spil frá
þeim of dýr og þar með strika þeir
Sverri h/f út úr samningnum og
segja sem svo: Þeir geta aldrei
borgað neitt úr því sem komið er -
en til að geta fjármagnað bilið frá
Nonna h/f hlaupa þeir hjá M.B. h/f
yfir til Magnúsar Ólafssonar h/f
og semja við þá um kaup á öllu
járni til skipsins, öllum vélum, sem
sagt öllu nema spilum og fiskileit-
artækjum. En viti menn, stöðin
krefst þess að umboðið hækki allar
vélar og önnur tæki, sem keypt eru
hjá M.Ö. h/f, um 30-40% til að vega
upp á móti tekjumissi frá Nonna
h/f, láta síðan Fiskveiðasjóð borga
alla súpuna.
Ég ákæri þá einnig fyrir brot á
tollalöggjöfinni þar sem þessir
menn notuðu sama húsið sem toll-
vörugeymslu og skipasmíðastöð og
greiddu tollpappíra eftir eigin geð-
þótta og fjárhagsstöðu stöðvarinn-
ar. Þeir gleymdu að greiða 1 millj-
ón kr. til Rapp í Noregi, eða þurftu
þess ekki, þar sem Gunnar Örn
hafði alla tollpappíra undir hönd-
um sjálfur, umboðsmaður Rapp er
Hinrik Hallgrímsson, Kríuhólum,
Rvík, sem getur sagt ykkur frá
þessum svikum. Fiskileitartækin
pantaði ég undirritaður hjá Frið-
riki Jónssyni h/f og komu þau öll
til stöðvarinnar og jafnhliða í toll-
inn. Þar biðu tækin á gólfinu í um
það bil 1 ár án þess að þau væru
greidd, þá vinsar Gunnar Örn úr
um það bil 1/3 af öllum tækjunum
og lætur senda afganginn út aftur,
eða umboðið varð að hirða tækin.
Ég ákæri stjórn Fiskveiðasjóðs
og framkvæmdastjórann, Sverri
Júlíusson, fyrir svik á lánsloforð-
um við Sverri h/f og krefst þess að
sjóðurinn skili þessum lánum til
Sverris h/f þar sem Sverrir h/f hefur
ekkert brotið af sér við sjóðinn og
því síður við skipasmíðastöð M.B.
h/f.
Ég ákæri stjórn Fiskveiðasjóðs
fyrir að heimila skipasmíðastöð
M.B. h/f að selja bæði Sverri h/f
og Enni h/f, Ólafsvík, sama skipið
og samning nr. 51, þar sem stjórn
sjóðsins hafði fulla vitneskju um
þessi svik. En stjórn Fiskveiðasjóðs
hafði aldrei samband við Sverri h/f
er þessi svik og þjófnaður fóru fram
á milli Fiskveiðasjóðs og M.B. h/f,
það hefur aldrei legið fyrir afsal frá
Sverri h/f á þessum samningi.
Ég ákæri stjórn Fiskveiðasjóðs
fyrir að aðstoða M.B. h/f við að ná
til sín fjármagni úr Fiskveiðasjóði,
þar sem skipið átti að kosta 1.320
þús. $, eða 42 millj . kr. fullbúið, en
stjórn Fiskveiðasjóðs réttir þeim
aðrar 30-40 millj. kr. undir borðið
til að bjarga stöðinni frá gjaldþroti
sem hún var komin í er þetta gerð-
ist.
Ofan á þessar ásakanir, sem ég
ber á þessa menn og stend við hvar
og hvenær sem er, harðneitar sak-
sóknaraembættið, undir forsæti
Jónatans Sveinssonar útgerðar-
manns, mér um rannsókn á þessu
máli, þó svo að öll gögn liggi á
borðinu og þykir mér það hart sem
þegn þessa þjóðfélags, en svona er
það nú samt að vera bara Jón en
ekki séra.
Magnús Þ. Sverrisson.