Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 27
DVeMAiffUPMUMGKmffiAmi
m
Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga
DV-myna örynjar uauti.
Stjarnan á úrslitalið í öllum flokkum á íslandsmótinu
,Stefnum á
verölaunasæti4
-segir Gunnlaugur
Grétarsson úr Haukum
Gunnlaugur Grétarsson, fyrirliði Hauka.
Reykjanes- og
UMSK- mótín
enn ekki verið haldin
„Við höfum unnið síðustu 2 um-
ferðir með fullu húsi,“ sagði Gunn-
laugur Grétarsson, fyrirliði 3. flokks
Hauka. „Við vorum öruggir í úrslit
fyrir þessa umferð og eitthvert kæru-
leysi kom yfir okkur í þessari síðustu
umferð. Það hefur leitt til þess að
við höfum tapað 2 leikjum. Með einu
tapi í viðbót hefðum við lent í 2.
sæti á eftir UBK. Þessi töp hafa
komið okkur niður á jörðina. Það
kann að hafa sitt að segja að við
ætlum í utanlandsferð í sumar og
vorum með áheitasöfnun í þessari
umferð. Fáum við 3 krónur fyrir
markið. Það varð til þess að sóknirn-
ar urðu í styttra lagi og við skutum
allt of snemma."
- Hvemig ætlið þið að undirbúa
ykkur fyrir úrslitin?
- „Við höfum æft vel undanfarið,
meðal annars stundað lyftingar til
að bæta þrekið.
Annars þurfum við að standa okk-
ur í úrslitum. Ég á von á því að
Keppni í 4. flokki kvenna gat ekki
farið fram helgina fyrir páska þar
sem gleymst hafði að útvega hús fyrir
keppnina. Keppnin átti að fara fram
í Hafnarfirði á vegum FH. FH-ingar
héldu að skrifstofa HSl myndi panta
húsið og þeir á skrifstofu HSÍ héldu
að FH-ingar myndu panta húsið.
Þess vegna var komið að lokuðum
dymm og fór mótið því ekki fram
fyrr en á miðvikudaginn, þremur
dögum fyrir úrslitin.
Svona nokkuð má ekki koma fyrir
nema einu sinni. 1 keppni D-riðils 2.
flokks áttu ÍR-ingar að sjá um fram-
kvæmd mótsins. Þar sem ÍR-ingar
eiga enga dómara nema 2. flokks
leikmenn dæmdu þeir alla leikina í
annaðhvort Stjarnan eða KR verði
Íslandsmeistari í ár. Við stefnum þó
á verðlaunasæti."
- Fylgdist þú með heimsmeistara-
keppninni?
„Já, það mátti sjá að liðin notuðu
hornin betur en við íslendingar. ís-
lensku hornamennimir stóðu við
hliðina á bakvörðunum, en í hinum
liðunum lágu þeir dýpra niðri í horn-
unum.“
- Hvernig finnst þér leikjafyrir-
komulagið?
„Mér finnst slæmt að hafa þetta
helgarfyrirkomulag. Það eru 5 leikir
í einu og síðan ekkert í langan tíma.
Það þurfa að vera leikir með jöfnu
millibili þannig að hægt sé að bæta
það sem aflaga fer á milli leikja.
Þegar leikir eru yfir eina helgi er oft
erfitt að laga það sem að er. Til þess
þarf lengri tíma. Annars fer þetta
mikið eftir þjálfurunum - hvort þeir
útvega æfingaleiki," sagði Gunn-
laugur Grétarsson að lokum.
riðlinum. Hvort ÍR-ingar eru góðir
dómarar eða ekki skal ósagt látið en
það er ekki gott til afspurnar að
leikmenn dæmi eigin hraðmót og
geti þannig haft áhrif á það hvaða
lið sigra. Þá er eins gott að hinir
leikmennirnir fái líka að hafa sína
fulltrúa í dómgæslunni og allt fari í
tóma vitleysu. Þetta má ekki endur-
taka sig.
í hraðmóti C-riðils 2. flokks sá
Víkingur um framkvæmdina og
vantaði dómara til leiks í einum leik.
Hluþu þjálfarar í skarðið og gat leik-
urinn farið fram. Lið Ármanns, sem
leikur í þessum riðli, sýndi mótherj-
um sínum mikla óvirðingu er þeir
mættu aðeins 5 í leik gegn UBK og
Á næstunni verður haldið svokall-
að LEGÓ mót að Varmá í Mosfells-
sveit. UMF Afturelding heldur mótið
sem verið hefur fastur liður í starf-
semi félagsins undanfarin ár. Mótið
fer fram helgarnar 12.-13. og 19.-20.
apríl. Þátttökutilkynningar hafa
verið sendar út til félaganna. Er
þetta mjög lofsvert framtak hjá
Mosfellingum.
Það vekur athygli að enn hafa ekki
létu ekki sjá sig í leik gegn Gróttu.
Verður að fara að taka hart á svona
nokkru, sérstaklega þegar sömu
flokkarnir og félögin eiga í hlut ár
eftir ár.
Það eru margir hlutir sem bæta
þarf í mótahaldi yngri flokka á
komandi mánuðum. Svo virðist vera
að lið sem sjá fram á að eiga ekki
möguleika á sæti í úrslitum slaki á
æfingum þegar líður á veturinn og
missi áhugann. Einnig er sem leik-
mönnum finnist leiðinlegt að leika
sífellt gegn sömu andstæðingunum
allan veturinn. Nauðsynlegt er að
hafa mótin með styttra millibili en
nú tíðkast. Það er ekki beint örvandi
verið haldin Reykjanes- og UMSK-
mót og virðist sem félögin á Reykja-
nes- og Kjalarnessvæðinu hafi
gleymt því að unglingarnir þurfa
verkefni til að glíma við. Eins og
mótafyrirkomulagið er núna, með
fáum leikjum og langur tími milli
móta, hefði margsinnis verið hægt
að halda þessi mót í vetur, en áhugi
félaganna virðist vera af skornum
skammti.
að leika alvöru handboltaleiki með
margra mánaða millibili.
Um páskana voru þýskir unglingar
hér og léku við unglingalandsliðin
eins og sagt er frá annars staðar á
síðunni. Á sama tíma voru leikir í
bikarkeppni 2. flokks. 18 úra land-
sliðið er að búa sig af kappi undir
Norðurlandamót. Liðin sem fara í
úrslit eru öll á fullu. Allt er þetta á
sama tíma. í vetur hafa leikmenn
yngri flokkanna verið verkefnalausir
tímunum saman.
Þeir sem stjórna handknattleiks-
málum á íslandi þurfa að fara að
ræða saman. Nú eru sífelldir árekstr-
ar og leiðindi sem eingöngu lenda á
leikmönnum yngri flokkanna.
Úrslita-
keppnin
hefst um
helgina
Úrslit yngri flokkanna í hand-
knattleik hefjast nú um helgina. Þá
fara fram úrslit í 2. flokki karla, 2.
flokki kvenna, 6. flokki karla og 4.
flokki kvenna, Úrslit í 2. flokki karla
fara fram í Vestmannaeyjum og eru
eftirtalin lið í úrslitum.
A-riðill:
Týr
Stjarnan
Víkingur
FH
B-riðill:
ÍR
Þór
Selfoss
Valur
Úrslit í 2. flokki kvenna fara fram
i Seljaskóla og leiða saman hesta
sina eftirtalin lið.
A-riðill:
FH
Víkingur
ÍBK
UBK
B-riðill:
Stjarnan
Fram
KR
Haukar
Úrslit í 6. flokki karla fara fram í
Garðabæ. Þar leika:
HK
UBK
Stjarnan
Selfoss
4. flokkur kvenna leikur á Selfossi
og þar leika:
UMFG
KR
Selfoss
Fram
Fylkir
Grótta
Er ekki að efa að öll liðin leggja
hart að sér að vinna íslandsmeistara-
titilinn. Núverandi íslandsmeistarar
í flokkunum eru:
2. flokkur karla: Víkingur.
2. flokkur kvenna: Stjarnan
4. flokkur kvenna: Grótta
6. flokkur karla: Fram
Alltaf klúður hjá handknattleiksforustunní:
Mörg mál í ólestri